Morgunblaðið - 18.12.1990, Síða 76

Morgunblaðið - 18.12.1990, Síða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 1990 í BLÓMINU FÆRÐU JÓLA- SKRAUTÍ ANDA ÖMMUOG AFA Nú eins og í fyrra getur þú fengið jólavörur eins og amma og afi keyptu þegar þau voru ung. Hjá okkur getur þú valið úr miklu úrvali af fallegu og vönduðu jólaskrauti, jólagjafakortum og j ólagj afapakkningum. Dúkkulísur frá 1920. Nr: 8120 Litur:Svart Stærðir: 3-7 1/2 Verð: 5.990 kr. UWlKlll Laugavegi95 » Sími:624590 Komdu í Blómið og'" kynntu þér úrvalið. Amma og afi koma örugglega. Opið til kl. 21 öll kvöld Skreytingar við öll tækifæri. VISA, EURO, SAMKORT OG DINERS. BLÓMIÐ HAFNARSTRÆTI 15 SÍMI 21330 Minning: Guðmundur Guð- mundsson vélsljóri Fæddur 12. apríl 1916 Dáinn 29. nóvember 1990 Einhverntíma fyrir tíu eða fimmtán árum sagði prófessor við Háskóla Islands mér sögu til marks um það hve íslensk menning hefði fram á okkar daga verið mikil sam- eign allrar þjóðarinnar, en ekki eign fárra útváldra af hærri stéttum, svo sem tíðkaðist mjög í öðrum löndum. Hann hafði verið á ferð um ísland með nokkrum erlendum mennta- mönnum og á veitingastað einum úti á landsbyggðinni tóku þeir sér- staklega eftir tveimur sjómönnum sem stóðu við skenkiborðið og voru að rífast um eitthvað, orðnir nokkuð háværir. Um hvað eru þeir að rífast? spurðu erlendu menntamennirnir. Þeir eru að metast um fæðingarár eins af helstu ljóðskáldum þjóðar- innar, sagði íslenski prófessorinn. Það kom furðusvipur á útlending- ana. Guðmundur Guðmundsson vél- stjóri, sem fyrir skemmstu er horf- inn okkur sjónum, var dæmi um það fyrirbæri sem að framan er nefnt, það sem erlendir mennta- menn hafa undrast hvað mest, al- þýðumanninn sem les bókmenntir, en ekki aðeins þær lágmenning- arbækur sem ætlaðar eru fjöldan- um. Eg kynntist Guðmundi nokkrum árum eftir lok heimsstyijaldarinnar síðari. Hann og Steinn Steinarr skáld voru þá orðnirgóðri kunningj- ar og ég furðaði mig í fyrstu á þessum kynnum skáldsins og vél- stjórans, því Steinn var ekki allra, Qarri því, en ég hætti að undrast, þegar ég varð þess áskynja, að vél- stjórinn vestan af fjörðum kunni heil ósköp af ljóðum og var vel les- inn í bókmenntum. Við kölluðum hann ljóðasjóð eða Ijóðmselasjóð okkar á milli, en hann hefur sjálfur gert grein fyrir því í blaðaviðtali hvernig það viðurnefni var til komið, Steinn Steinarr hafi eitt sinn sagt': Þú ert svo mikili Ijóðasjór, Guðmundur, en Karl Is- feld misheyrt þetta og úr orðið heit- ið ljóðasjóður. Steinn var höfuðsnill- ingur skálda í augum Guðmundar, en hann las einnig ljóð annarra höfunda sem þá voru að koma fram, þótt þeir væru með allskonar nýj- ungar og farnir að sleppa rími. Þeir urðu margir góðkunningjar hans og hann fylgdist með skrifum þeirra bæði þá og síðar. Hann kynntist einnig Magnúsi Ásgeirs- syni ljóðaþýðara og hafði á honum miklar mætur. Einhvern dag hafði ég verið í félagsskap skálda og skáldavina, þar sem hóflega var glösum lyft að kvöldiagi, en dróst þó fram yfir miðnætti. Og þar sem ég átti heima fjarri miðbænum, þar sem við höfðum komið saman, vildi Guðmundur að ég gisti hjá sér í herbergi uppi í Gijótaþorpi. Ég þáði það. En þegar við vorum lagstir til hvílu í herbergi hans, þótti honum ekkert liggja á að fara að sofa. í stað þess tók hann fram bók með ljóðaþýðingum Magnúsar Ásgeirs- sonar og las upphátt fyrir mig og okkur báða. Hann var úr hinni „vinnandi stétt“ einsog þa var orðað á pólitískum vettvangi þeirra ára, ég úr hópi slæpingjanna sem voru að yrkja og skrifa og sitja á kaffi- húsum, þó ég væri raunar nýkom- inn úr „hinni vinnandi stétt“. Við hugsuðum víst hvorugur um það, en sameinuðumst í aðdáun á snilld- inni. Hvers virði það var mér á þeim tíma að finna þetta samband veit ég ekki. Það gæti hafa verið meira en orð fengju lýst. Við ungu höfundarnir á þeim tíma vorum sakaðir um að vera ekki í tengslum við „fólkið“ og „hina vinnandi stétt“. En þarna vorum við. Og við skildum hvor annan. Guðmundur sagði mér löngu seinna hvernig hann hefði komist upp á það að lesa góðar bókmennt- ir. Þótt hann hefði alist upp við ljóðalestur á heimili sínu í Önundar- firði þar sem hann var borinn og barnfæddur, — móðir hans og amma mjög gefnar fyrir Ijóð — þá var það annað sem hann nefndi sérstaklega við mig. Það var þegar hann var unglingur eða ungur mað- ur vestur á Isafirði við nám og sjó- mennsku og fór þar á almennings- bókasafnið til að fá lánaðar bækur að lesa. Þá var þar bókavörður Guðmundur G. Hagalín, rithöfund- ur, en ungur höfundur, Oskar Aðal- steinn, honum til aðstoðar. Guð- mundur Hagalín gaukaði að nafna sínum einni og einni góðri bók, því hann hafði þá trú að hægt væri að koma mörgu fólki með lagni upp á það að lesa sígildar bókmenntir. Og í þetta skipti sáði bókavörðurinn Hagalín ekki í ófrjóan akur, því ungi maðurinn sem fljótlega sigldi um höfin og gætti skipsvélanna sem urðu að starfa rétt, ef vel átti að fara, kunni fyrr en varði að meta fagurbókmenntirnar. Hann tók þær með sér á skipsfjöl og hafði þær tiltækar við kojuna sína. Danskir eftirlitsmenn eða tollarar sem komu í klefa hans í danskri höfn undruð- ust að sjá bók eftir Knut Hamsun hjá íslenskum vélstjóra. Engan danskan vélstjóra höfðu þeir hitt með þesskonar bókmenntir í fórum sínum. Guðmundur Guðmundsson vél- stjóri kunni vel að meta góða stílista einsog fleiri á þeim árum. Það er því síst að undra þótt Hamsun væri Guðmundi hugleikinn alla tíð. Ljóðaáhugi hans var þó ef til vill það sem einkenndi hann mest. En hvernig kom hann fyrir, gæti ein- hver spurt. Hann var kempulegur maður, eiginlega dæmigerður sjó- maður, en hlýlegur og sérkennilega feimnislegur nema þegar hann var ör af víni í kunningjahópi. Hann vann síðari ár ævinnar í landi og stundaði þá ýmis störf, en bók- menntalestri hætti hann aldrei, þó liðin væri sú tíð þégar við bóksækn- ir menn hittumst í miðbæ Reykjavíkur, Steinn löngu horfinn okkar yeraldarsjónum, einnig Magnús Ásgeirsson, en sumir farn- ir annað á þessari jarðkringlu. Guð- mundur saknaði þessa félagsskap- ar, þar sem talað hafði verið um skáldskap og listir. Þá hringdi hann stundum í mig til að rifja upp liðna tíð og tala um bókmenntir, ævinlega um bókmenntir og oftast um ljóð. En þegar honum var gert að hætta störfum vegna aldurs, þótt í fullu fjöri væri, einsog nú er plagsiður, fann hann aftur skáld og listamenn í miðbæ Reykjavíkur, fann kunn- ingja sem töluðu meðal annars um Minnig: Kristín Eysteins- dóttir, Snóksdal Fædd 21. apríl 1909 Dáin 10. desember 1990 Að heilsast og kveðjast það er Iífsins saga. Kynni okkar Kristínar urðu ekki löng. Við hittumst fyrst 1984 þegar ég og fjölskylda mín áttum leið hjá Snóksdal. Við fórum heim að bænum til að skoða kirkj- una og þar hittum við þessa indælu gömlu konu, sem bauð okkur upp á kaffisopa. Það var eins og tíminn hefði stað- ið í stað á þessum bæ. Þar hafði litlu sem engu verið breytt frá því bærinn var byggður um 1930. Kristín bjó ein á bænum og virtist lífsglöð og ánægð með sinn hag. Hin gömlu íslensku gildi, gestrisni og nægjusemi, voru alls ráðandi. Síðan liðu mörg ár og mér varð oft hugsað til þessarar gömlu konu, sem einhverra hluta vegna varð mér svo minnisstæð, þrátt fyrir örstutt kynni. Það var hins vegar ekki fyrr en síðasta sumar að leiðin lá aftur hjá garði í Snóksdal. Okkur var tekið sem kærum vinum, allt það besta sem til var á bænum var borið á 'borð. Sami glampinn var enn í aug- um Kristínar þó árin hefðu færst yfir. Hún hafði mikið dálæti á hest- um og það er ógleymanlegt hvernig hún dró fram lítinn útskorinn tré- hest sem henni hafði verið gefinn þegar hún var 7 ára gömul og sýndi okkur. Við áttum eftir að hittast nokkr- um sinnum eftir þetta hér sunnan heiða. Börnum hennar og öðrum að- standendum vil ég votta samúð mína. Kristín mun koma mér í hug er ég heyri góðs manns getið. Guðrún í dag, 18. desember, verður amma jarðsungin frá Snóksdals- kirkju, Miðdölum, Dalasýslu. Okkur systkinin langar til að minnast Kristínar ömmu í örfáum orðum. Amma fæddist á bænum Litla- Langadal á Skógarströnd, dóttir hjónanna Eysteins Finnssonar og Jóhönnu Oddsdóttur. Þar ólst hún upp til 5 ára aldurs en þá fór hún í fóstur til föðurbróður síns, Björns Finnssonar og Kristínar konu hans, í Tungu í Hörðudal. Alls voru systk- inin 13 og ólust amma og bróðir hennar Kristján upp saman. Árið 1929 giftist amma afa, Pálma Jón- assyni frá Gilsbakka. Afi og amma byggðu nýbýli í Snóksdal og flutt- ust þangað árið 1933. Þau eignuð- ust 7 börn: Kristfn, gift Herði Vil- hjálmssyni, Elín, gift Viktori Hjalta- syni, Finna, gift Einari Tryggva- syni, Einar, kvæntur Jóhönnu Auði Árnadóttur, Björn, kvæntur Guð- rúnu Bjarnadóttur, Guðmundur, hans sambýliskona Gunnlaug Arngrímsdóttir, og Jóhann, kvænt- ur Sigríði Svavarsdóttur. Afkom- endur ömmu og afa eru um 70 í dag. I huga okkar reika ýmsar minn- ingar frá barnæsku. Það var með okkur eins og mörg önnur börn að við urðum þess aðnjótandi að fá að dvelja hjá afa og ömmu í sveitinni á sumrin. Þá var oft líf og fjör í baðstofunni og alltaf nóg pláss. Það er aðdáunarvert hve fólk á þessum tíma var nægjusamt hvað varðar húsnæði og fleira. Búskapur þeirra hjóna var til fyrirmyndar. Afi var mikið snyrtim'enni og hlúði vel að jörð og dýrum svo að sómi var að. Við krakkarnir kynntumst sveita- störfum og tókum þátt í þeim. Ekki voru sveitastörfin eins vélbúin og í bókmenntir, sátu við eitt hornborðið á Skálanum, þar sem Steinn Stein- arr sat forðum, þótt nú heiti staður- inn, því miður, öðru nafni, og drukku morgunkaffið sitt. Það var betra en ekki að fá þessa morgun- stund í þeim félagsskap sem minnti á gamla daga. Og þegar hann var orðinn helsjúkur, en fékk nokkurra mánaða grið frá meininu sem um sig hafði grafið, fylgdi konan hans honum ofan eftir, Guðbjörg Hall- dórsdóttir, einnig ættuð að vestan, fylgdi honum af því að hún óttaðist svimann sem ásótti hann, en síðan fann hún sér eitthvað til að erinda í bænum meðan Guðmundur spjall- aði við morgunspekingana, rithöf- unda, leikara, blaðaritstjóra. En sjúkdómurinn hlaut að fella hann innan tíðar. Guðmundur vissi vel að hverju dró og gerði ráðstafanir, hvernig að skyldi farið þegar hann væri allur. Fór því sú athöfn fram í kyrrþey með ættingjum og nokkr- um vinum, en prestur úr hópnum við morgunborðið las ritningar- greinar og sagði nokkur vel valin orð. Guðmundur Guðmundsson vél- stjóri, oft kenndur við ljóð, er einn af þeim mönnum sem við bókaunn- endur söknum, þegar við eigum ekki lengur von á honum í miðbæ Reykjavíkur. Hann var það dæmi um alþýðu þessa lands sem ég minntist á í upphafi greinar, sá al- þýðumaður sem við af gamla skói- anum viljum að verði áfram til. Jón Óskar dag. Margar hendur voru á lofti bæði stórar og smáar. Skemmtileg- ast var í heyskapnum, en önnur verk þurfti einnig að gera, misjafn- lega skemmtileg, t.d. vafstra í kringum kýrnar og kindurnar. Okk- ur var síðan umbúnað með því að fara í útreiðartúr e.t.v. út í Hólma til að tína skeljar eða í heimsókn á aðra bæi. Amma hafði alla tíð dá- læti á dýrum, sérstaklega hestum og hennar yndi var að komast í útreiðartúr, umgangast og ræða um hesta. Einnig minnumst við þess þegar bærinn var kyntur með kolum og taði og olíuiamparnir lýstu upp bæinn. Við fráfall afa, er lést 11. desember 1974, breyttist margt í lífi ömmu. Hún bjó ein í bænum eftir það. Amma var ákveðin og mjög gestrisin kona. Þegar eitthvað stóð til í fjölskyldunni, veisla eða annað, var ekki mikið mál fyrir gömlu konuna að skreppa suður og hitta fólkið sitt. Hún var mjög ræð- in og minnug. Ófáar voru þær vísur, sálmar og rímur sem hún kunni og fór með. Hún naut sín í fjöimenni en alltaf þurfti hún að flýta sér aftur vestur eftir of stutta dvöl að okkur fannst. Hun sagði alltaf að skepnurnar biðu sín. Siðustu árin hafði amma hesta, kindur og kisu heimafyrir. Hún naut aðstoðar tveggja sona sinna sem bjuggu í nágrenninu og annarra nábúa að ógleymdum Jóel á Harrastöðum og þökk sé þeim. Amma lést á deild 11E á Land- spítalanum og viljum við þakka starfsfólki þar fyrir frábæra umönnun og veittan stuðning. . Við þökkum allar góðar stundy;. Ilvíli hún í friði. Elvira, Kristín, Lýður og Berglind.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.