Morgunblaðið - 14.02.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.02.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 37. tbl. 79. árg. FIMMTUDAGUR 14. FEBRUAR 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mannskæðasta ioftárás bandamanna til þessa í stríðinu fyrir botni Persaflóa: Hundrað óbreyttra borgara bíða bana í byrgi í Bagdad Bandarísk stjórnvöld segja að Iraksher hafi notað byrgið sem stjórnstöð - Irakar saka Bandaríkjamenn um að hafa drepið saklaust fólk að yfirlögðu ráði írakar reyna að bera kennsl á lík fólks sem beið bana í loftárás Bandaríkjamanna á loftvarnabyrgi í Bagdad í gær. Talsmaður Bandaríkja- forseta segir að íraksher hafi notað byrgið sem fjar- skipta- og stjórnstöð en því vísa Irakar á bug. Þeir segja að engin hernaðarskotmörk séu í grenndinni við byrgið. Nikosíu, Bagdad, Washington. Reuter, The Daily Telegraph. HUNDRUÐ manna biðu bana og særðust er tvær sprengjur frá bandarískum herþotum sprungu í loftvarnabyrgi í Bagdad í gær. Vestrænir fréttamenn höfðu eftir björgunarmönnum og íbúuin í grenndinni að meira en 400 manns hefðu týnt lífi - aðallega konur og börn. Bandarísk stjórnvöld sögðu að Iraksher hefði notað byrgið sem fjarskipta- og stjórnstöð og sökuðu Saddam Hussein íraksfor- seta um að hafa látið flytja þangað óbreytta borgara. írakar vísuðu því á bug og sögðu að engin hernaðarmannvirki væru í grenndinni við byrgið. Þetta er mannskæðasta loftárás bandamanna á írak til þessa. „Byrgið sem ráðist var á var hernaðarskotmark, fjarskipta- og stjórnstöð Irakshers,“ sagði í yfir- lýsingu Marlins Fitzwaters, tals- manns Bandaríkjaforseta. „Ekki er ljóst hvers vegna óbreyttir borgarar voru þarna en við vitum að Saddam Hussein Iraksforseti ber ekki sömu virðingu fyrir mannslífum og við. Hann hefur ítrekað sýnt að hann er reiðubúinn að fórna óbrejdtum borgurum til að ná fram hernaðar- markmiðum sínum.“ Talsmaðurinn kvaðst harma mannfallið og bætti við að fjölþjóðaherinn hefði ekki gert árásir á óbreytta borgara af ásettu ráði. Umsjónarmaður byrgisins sagði að enginn hermaður hefði verið i því, enda hefði það einungis verið ætlað óbreyttum borgurum. Abdul- Salem Mohammed Saeed, heilbrigð- isráðherra íraks, sagði að engin hernaðarmannvirki væru í grennd- inni. „Þetta var glæpsamleg árás á óbreytta borgara og gerð að yfir- lögðu ráði,“ sagði hann. Talsmaður Bandaríkjahers í Riyadh, Richard Neal, kvaðst ekki hafa skýringar á því hvers vegna óbreyttir borgarar voru í byrginu. Hann sagði að fjölþjóðaherinn hefði fylgst með fjarskiptum írakshers frá byrginu undanfarnar tvær vikur með aðstoð gervihnatta. Fréttaritari Reuters var einn af þeim fyrstu sem komu að byrginu eftir árásina og kvaðst hafa séð illa brunnin lík borin út úr því. Hann hafði eftir íröskum embættismönn- um að árásin hefði kostað hundruð manna lífið. Fréttamaður breska útvarpsins BBC kvaðst hafa heimildir fyrir því að um 400 manns hefðu beðið bana. Hann sagði að írakar hefðu gert aðsúg að erlendum fréttamönnum á staðnum og kallað þá „glæpa- menn, villimenn og skepnur". „Ég varð feginn þegar ég komst í burtu,“ bætti hann við. Talsmaður lögreglunnar í Bagdad sagði að allt að 1.000 manns hefðu Ieitað skjóls í byrginu fyrir árásina, en um 500-700 konur og börn hefðu verið þar að jafnaði frá því stríðið hófst fyrir tæpum mánuði. Ein sprengja sprengdi gat á steinsteypt þak byrgisins, sem var fimm metrar að þykkt. Önnur sprakk inni í því. Byrgið er í Am- iriya-hverfi í vesturhluta Bagdad og við það er skóli, moska og stór- markaður. Saddam Hussein á stór- ar Jandeignir í útj.aðri hverfisins og hyggst reisa þar forsetahöll. Irösk stjórnvöld hafa sakað bandamenn í Persaflóastríðinu um að hafa orðið 6-7.000 óbreyttum borgurum að bana til þessa í loft- árásum á landið. Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kvaðst harma mannfallið í Bagdad og stjórnvöld í Alsír og Túnis lýstu árásinni sem fjöldamorði. Douglas Hurd, utanríkisráðherra Bretlands, sagðist ekki telja að árásin yrði til þess að ijúfa samstöðu Vesturlanda og arabaríkja sem sent hafa her- sveitir gegn her Saddams Husseins. Sjá fréttir á bls. 18. Reuter Háttsettur bandarískur embættismaður um samskipti Islands og Litháens: Líklegt að sovéskir ráða- menn láti mótmæli nægja Fulltrúi Sovétstjómarinnar segir ekki hafa komið til tals að slíta sljómmálasambandi við Islendinga MÖRG ríki eru líkleg til að fara að dæmi íslendinga og taka upp stjórn- málasamband við Litháen að teknu tilliti til viðbragða og þeirra áhrifa sem ákvörðun Islendinga hefur. Þetta er mat háttsetts embættismanns í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Embættismaðurinn sem óskaði nafn- leyndar taldi að Sovétmenn myndu ekki slíta stjórnmálasambandi við íslendinga heldur láta mótmæli duga. Það mat hans byggðist á því að íslendingar veldu þá leið sem honum þætti líklegust, að fela sendi- herra Islands í Stokkhólmi að annast stjórnmálatengsl ríkjanna en freistuðu þess ekki að opna sendiráð eða ræðismannsskrifstofu í Vil- nius, höfuðborg Litháens. Karen Karagesjan, aðstoðarmaður Vítalíjs Ignatenkos, blaðafulltrúa Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta, sagði í gær að í Moskvu hefðu menn ekki hugleitt þann möguleika að slíta sljórnmálasambandi við íslendinga. „Þú ert sá fyrsti sem nefnir þann möguleika í mín eyru,“ sagði Karagesjan í samtali við biaðamann Morgunblaðsins. Opinber viðbrögð af hálfu Banda- ríkjastjórnar við ályktun Alþingis liggja ekki fyrir. Þetta kom fram bæði í gær og í fyrradag er Margar- et Tutwiler, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, ræddi við blaðamenn í Washington og var spurð álits á ákvörðun Islendinga. Hins vegar hefur bandaríska utan- ríkisráðuneytið dreift til fjölmiðla upplýsingum um málið þar sem seg- ir að Alþingi hafi falið ríkisstjórn íslands að kanna leiðir til að koma á stjórnmálasambandi við Litháen. Gert sé ráð fyrir af hálfu ráðuneytis- ins að í slíkum viðræðum verði að , taka afstöðu til þess hvort telja beri Litháen fullvalda ríki. Bandaríski embættismaðurinn sagðist telja líklegt að fælu íslend- ingar sendiherranum í Stokkhólmi að sjá um að halda uppi stjórnmála- sambandi við Litháen þá yrði það vandalaust. „En ef íslendingar reyna að koma sendimanni til Vilnius og það tekst ekki nema með því að þriðja ríki [þ.e.a.s. Sovétríkin] veiti vegabréfsáritun þá væri það í and- stöðu við hefðir í stjórnmálatengslum ríkja." Embættismaðurinn sagði þá spurningu vakna hvaða áhrif ákvörð- un íslendinga hefði. „Ég veit hversu mjög hún hefur stappað stálinu í Litháa en á hinn bóginn gætu Sovét- inenn sýnt heimsbyggðinni að þeir hefðu enn tögl og hagldir í Litháen ef íslendingar gerðu tilraun til að skipa sendimann með aðsetur í Viln- ius.“ Embættismaðurinn sagði að mörg ríki hefðu lýst því yfir að þau væru ekki tilbúin að ríða á vaðið og veita Litháum formlega viðurkenn- ingu en þau væru tilbúin að fylgja í kjölfar annarra. „Ég geri því ráð fyrir að eftir að hafa vegið og metið viðbrögðin og áhrifin myndu aðrir fylgja dæmi Islendinga. Ég get ekki sagt nákvæmlega hvaða ríki þhð eru sem myndu fara að dæmi íslendinga. En ég get á hinn bóginn fullyrt að mörg ríki, einnig Bandaríkin, eru að velta því fyrir sér hver sé besta leið- in til að styðja Eystrasaltsríkin."' Sjá fréttir á bls. 19. Rússland: Ráðherra segir af sér vegna „rógsherferðar“ Moskvu. Reuter. GENNADIJ Fílshín, aðstoðarforsætisráðherra Rússlands, sagði af sér í gær og kvaðst hafa orðið fórnarlamb rógsherferðar sovésku öryggis- lögreglunnar KGB og sovéskra embættismanna á hendur leiðtogum umbótasinna í lýðveldinu. Fílshín er hagfræðingur og hefur beitt sér fyrir mun róttækari efna- liagsumbótum en sovésk stjómvöld hafa viljað fallast á. „Nú er svo komið að ég get engan veginn sinnt embætti mínu sem skyldi þar sem ég hef þurft að útskýra augljós sannindi og bera af mér tilhæfu- lausar og grófar aðdróttanir," sagði Fílshín í afsagnarbréfi. sínu. Áður hafði forsætisráðheiTa Rússlands, ívan Sílajev, látið svo ummælt á rússneska þinginu að kommúnista- flokkurinn og KGB hefðu hafið herferð til að rægja Borís Jeltsín, forseta lvðveldisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.