Morgunblaðið - 16.02.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.02.1991, Blaðsíða 14
14 MÓRGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDÁGUR 16. FEBRÚAR 1991 ★ Pitney Bowes- póstpökkun Mjög hentug fyrirtækjum, bæjarfélögum, stofnunum Brýtur blaðið, setur í umslag og lokar því OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33-105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 Þar sem lúxusinn dafnar Um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar Honda Accord Sedan 2,0 EX 91 Verð fró 1.360 þúsund. GREIÐSLUSKIIMÁLAR FYRIR ALLA 0 VATNAGÖRÐUM 24 RVÍK., SÍMI 689900 eftir Ólínu Þorvarðardóttur Hinn 21. febrúar næstkomandi verður fjárhagsáætlun Reykjavík- urborgar endanlega afgreidd í borg- arstjórn. Áætlun sjálfstæðismanna hefur þegar verið kynnt og ef að líkum lætur verður hún samþykkt í krafti meirihlutavalds. Breytinga- tillögur borgarstjórnarandstöðunn- ar hafa hingað til átt lítið erindi sem erfiði inn í þá umræðu og trúlega verður hið sama upp á teningnum að þessu sinni. I því plaggi sem sjálfstæðismenn hafa kynnt i borgarstjórn kennir ýmissa grasa sem nógu fróðlegt væri fyrir hinn almenna borgara að kynna sér — þó að ekki væri til annars en að skynja áherslurnar og forgangsröð meirihlutans. Vanáætlaðar tekjur Tekjur borgarinnar á þessu ári eru tólf milljarðar króna og trúlega vanáætlaðar, ef marka má reynslu undanfarinna ára þar sem bók- haldssnillingar borgarinnar hafa ævinlega vanáætlað tekjur svo nemur hundruð milljónum króna. Á síðasta ári voru tekjurnar vanáætl- aðar um tæplega 180 milljónir sem þýðir að Reykjavík hefur haft tæp- lega 200 milljónir aukreitis á milli handa í ýmis verkefni. Þetta eru íjármunir sem borgarstjórn hefur hinsvegar ekki til hliðsjónar við samþykkt fjárhagsáætlunar. Það þýðir að sjálfstæðismeirihlutinn getur á næsta ári varið því fé að vild sinni, enda þótt í fjárhagsáætl- un sé horft í hverja krónu til brýnna verkefna án þess að ráð sé fyrir því gert í hinu bústna plaggi borgar- stjórans. Það væri reyndar í góðu lagi ef hýran færi þangað sem þörf- in er mest. En því er ekki að heilsa. Á þessu ári verða tæplega fjórir HENTUDOS TIL HJÁLPAR! Á laugardögum söfitum við einnota umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hringið ísíma 621390 eða 23190 á milli kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum. ÞJÓÐÞRIF Æ L.H.S (B® V3rj LANDSSAMBAND IIJÁLPAnSVEITA SKÁTA BANDALAQ ÍSLENSKRA SKÁTA HJÁLPARSTOFNUN KIRKJUNNAR Dósakúlur um allan bæ milljarðar handbærir til fram- kvæmda þegar rekstrarkostnaður er frátalinn. Bróðurparturinn fer til gatna- og holræsagerðar: Einn milljarður í nýframkvæmdir og ann- ar til í önnur útgjöld tengd götum og holræsum. Þetta er gríðarlega mikið fé og grátlegt til þess að vita hversu lítill hluti þess fer í að auka t.d. umferða- röryggi og forvarnir. Má til dæmis nefna eyðingu' svartbletta, hraða- hindranir og aðgerðir til að auka umferðaröryggi. Að þessu sinni eru öll þau verkefni færð undir einn lið í ljárhagsáætlun og gert ráð fýrir 15 milljónum króna til þeirra í ár. Það er sáralítil hækkun frá síðasta ári enda þótt borgarstjórnarand- staðan hafi undanfarin ár lagt mikla áherslu á að auka framlög til þess- ara verkefna við litlar undirtektir. „Arðsemi“ umferðar- framkvæmda Þörf verkefni á borð við upphitun gatna vega t.d. ekki þungt á vogar- skálum þessara tveggja milljarða. Þrjár og hálf milljón króna eiga að fara í það verkefni í ár, en það er nánast sama upphæð og á síðasta ári. Þá var hinsvegar ekki varið nema 500 þúsundum í upphitun gatna, þannig að tæplega þijár milljónir króna lágu óbættar hjá garði. Þær fóru í eitthvað annað. Af þessu er ljóst að þegar kemur að forvarnarstarfi er horft í hveija krónu, og lítil von til þess að um- framtekjurnar sem hvergi er um getið í fyrirliggjandi áætlun fari í slíkar framkvæmdir. Til saman- burðar má nefna að gert er ráð fyrir 40 milljónum króna í að „end- umýja norðurbakka Tjarnarinnar“ (ráðhúslóðina) eins og það heitir á máli fjárhagsáætlunar. Meira virð- ist liggja á því verkefni en t.d. umferðarfræðslu í Reykjavík, sem er annað dæmi um forvarnarstarf. Á þessu ári eiga að fara 3,2 milljón- ir í það merka framtak. Umferðar- fræðslan fær m.ö.o. þokkalegt bílverð í sinn hlut. Ekki einu sinni andvirði borgarstjórabifreiðar (hvað þá tveggja) á að renna í upp- fræðslu ungdómsins um þá ábyrgð sem hveijum og einum er skylt að axla í umferðinni, þar sem líf og limir eru í húfi. Þessar tölur segja mér það að í fjárhagsáætlun er ekki hugsað í mannlegum verðmætum. Enda sló það mig afar illa er ég varð fýrst vitni að því í borgarráði, að menn töluðu um „arðsemi" framkvæmda þegar verið var að ákveða forgangs- röðun verkefna í umferðarmálum. Hvað varð um söluandvirði Glyms? í Ijósi þessa ætti heldur engum að koma á óvart hver áherslan er á æskulýðsstarf í borginni, en þang- að eiga nú að renna 3,5 milljónir króna. Til íþrótta fara hinsvegar 130 milljónir. Það sem við blasir er mikið misræmi á milli æskulýðs- starfs og íþróttamála sem vitnar um þann útbreidda misskilning að þetta tvennt verði lagt að jöfnu enda þótt ákveðin skörun hljóti að vera þar á milli: Annars vegar Ólína Þorvarðardóttir „Það vekur t.d. athygli að á sama tíma og 680 milljónir króna eiga að fara í ráðhúsbygging- una á yfirstandandi ári fara einungis einungis 467 milljónir í fram- kvæmdir við öldrunar- stofnanir — allan þann málaflokk." íþróttastarfsemi, sem á að nýtast öllum aldurshópum (að vísu með full mikla áherslu á keppnisíþrótt- ir), hins vegar félags og tómstunda- starf fyrir börn og unglinga. í heild sinni heldur málaflokkur- inn þó ekki sínum hlut frá síðustu fjárhagsáætlun, því nú verður fjár- magn skorið niður um 30 milljónir. Vaknar þá óhjákvæmilega spurn- ingin um það hvað hafi orðið af söluandvirði Glyms; hússins sem meirihluti sjálfstæðismanna fag- urgalaði um að yrði nýtt til æsku- lýðsstarfsemi? Borgarstjómarandstaðan lagði til. að söluverð hússins yrði látið renna til nýrrar unglingaaðstöðu. Þeirri tillögu vísuðu sjálfstæðis- menn til gerðar fjárhagsáætlunar. En hvað hefur svo orðið um pening- ana? Þeir hafa hreinlega gufað upp! A.m.k. hafa þeir ekki runnið til æskulýðsstarfsemi í þessari ijár- hagsáætlun. Öldrunarúrræðin á hakanum Raunar er margt sem stingur í augu við lestur fjárhagsáætlunar og of Iangt mál að rekja það allt. Það vekur t.d. athygli að á sama tíma og 680 milljónir króna eiga að fara í ráðhúsbygginguna á yfir- standandi ári fara einungis 467 milljóniir í framkvæmdir við öld- runarstofnanir — allan þann mála- flokk. Þangað fara m.ö.o. 2A af framkvæmdafé einnar byggingar (ráðhússins) en ekki ein króna til byggingar á nýju hjúkrunarheimili. Þrátt fyrir þá staðreynd sem öllum er lfklega Ijós, nema sjálfstæðis- mönnum, að þörfin fyrir hjúkrunar- rými aldraðra er æpandi. Þriggja ára biðtími eftir hjúkrunarrými er það sem aldraður einstaklingur má búa við eins og nú er ástatt. Það sem er ískyggilegra þó, er sú staðreynd að á síðasta ári vant- aði 68 milljónir króna upp á að framkvæmt væri fyrir það fé sem átti að renna til þessa málaflokks: Þær 68 milljónir fóru í eitthvað annað — t.d. ráðhúsið sem á síðasta ári fór 105 milljónir króna fram úr áætlun. Ætti maður svo að treysta því að það fjármagn, sem nú er gert ráð fyrir í öldrunarmál, fari þangað? Hversu háar aukafjárveit- ingar verða ákveðnar í ráðhúsið á næsta ári, og hvaðan verða þær teknar? Mannleg verðmæti í forgang Það blasir við hveijum þeim sem skoðar þessa fjárhagsáætlun að peningar til gæluverkefna á borð við snúningshúsið í Öskjuhlíð (rúm- ur milljarður þar), ráðhúsið (tveir milljarðar að auki) o.fl. hafa aldrei verið skornir við nögl. Þvert á móti hefur verið klipið af velferðarverk- efnunum til þess að fjármagna fínheitin. Og hvers skyldi maður þá vænta varðandi t.d. dagvistar- heimilin, þar sem um eitt hundrað íými standa ónotuð vegna starfs- mannaskorts? Vegna þess að Reykjavíkurborg — sem veltir 12 milljörðum króna í ár og hefur ríflega 4 milljarða króna í hreint eyðslufé — þessi forríka borg, telur sig ekki hafa efni á að borga starfs- fólki sínu laun! Hún telur sig heldur ekki hafa efni á að leysa vanda þeirra 1.200 barna sem bíða dag- vistunar í Reykjavík. Hinsvegar tel- ur borgarstjóri sig vera þess um- kominn a kaupa foreldra og börn út af biðlistum dagvistarheimila frekar en sinna lögbundnu verkefni á borð við dagvistir. Þá er ekki að spyrja að afdrifum þeirra 1.350 öldruðu þegna sem bíða úrlausnar hjá félagsmálastofn- un, að ekki sé minnst aftur á þann hóp sem bíður í þijú ár eftir hjúkr- unarvist. Borgarfulltrúar Nýs vettvangs munu að sjálfsögðu ekki fallast á þessa íjárhagsáætlun. Við munum leggja fram aðrar tillögur þar sem allir málaflokkar sem hér voru nefndir verða litnir í öðru ljósi en því sem gert er í plaggi borgarstjór- ans. Við munum í okkar tillögum líta á manngildið áður en við skoð- um verðgildið. Mannleg verðmæti og þarfir fólksins í borginni verða höfð þar í öndvegi. Síðan verða aðrir borgarfulltrúar að gera það upp við samvisku sína og betri vit- und hvað þeir samþykkja. Höfundur er borgarfulltrúi Nýs vettvangs. nýtt símanúmer ai iniÝSlNGADEILDAR: onn KBVIIKm HÖRGATÚNI 2, 210 GARÐABÆ, SÍMI: 40719

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.