Morgunblaðið - 16.02.1991, Page 32

Morgunblaðið - 16.02.1991, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1991 Minning: Sigurður Hreiðar Valdimarsson Fæddur 17. september 1965 Dáinn 9. febrúar 1991 . í upphafi var orðið og orðið var hja Guði. Fjjölmörg orð hafa verið skráð á hin ýmsu tungumál og enn fleiri töluð frá upphafi sögunnar. Þó verður okkur orðfall og ekk- ert skýrir, hvorki orð né athafnir, tilganginn þegar ungur vinur í blóma lífsins er burtkallaður úr örmum okkar, á einu augnabliki, á svo skammri stundu sem hendi sé veifað. Og eftir situr tómið eitt. Sunnudagur 10. febrúar 1991. Fréttin kemur eins og reiðarslag, fyrst orðrómur á götunni síðan hel- kaldur raunveruleikinn staðfestur. Við drúpum höfði. Tómarúmið og tilgangsleysið er ekki bara í sál- um okkar, heldur alls staðar. Allt umhverfið virðist tómt. Fjallgarðurinn umhverfis virðist hnípinn, jafnvel hann virðist ekki skilja tilganginn með stöðu sinni á þessum stað, á þessari stundu. Sigurður var vinur minn og nem- andi. Hann var vinur sona minna. Hann dvaldist um tíma á heimili okkar og tók þátt í starfi og leik hversdagsins. Minningarnar hrannast upp, þær ylja, gleðja og gefa. Allar jákvæðar og uppbyggjandi. Að umgangast hann var mannbætandi. Gleðin sem skein úr augum hans, kersknislaus og einlæg, bæði sem ungum dreng og fullorðnum manni. Djarfur og spurull í námi á bókina sem og í verki, í átökum við baldinn fola eða íþróttakeppni hvers konar. Alls staðar reiðubúinn að rétta hjálparhönd. Þegar leið lá framhjá húsinu hans Sigurðar afa var gjarnan kom- ið útá götUna og spjallað, ófeiminn, einlægur og stoltur, hann hafði hlutverk þessi ungi maður.Ég er að hjálpa afa. Þar skynjaði maður stolt og væntumþykju á báða bóga. Það sem ég finn í dag að mig hefði langað að gefa honum er orð- ið of seint. Undarlegt er að við skulum aldrei læra af biturri reyríslu daganna. Missir og eftirsjá. Vangoldið þakklæti og vinátta frá okkar hendi. Virðing fyrir góðum dreng, inni- byrgð í sálu okkar, við finnum á stundum sem þessari hvað hún hefði oft átt rétt á að koma fram, bæði til gleði fyrir þiggjandann og gefandann. Samt er eins og eitthvað haldi aftur af okkur í hinu daglega lífi. Við næsta missi verða líklega svip- aðar hugsanir í hugum þeirra er þá þurfa að syrgja og sakna. Énginn mun héðan í frá fá notið mjúkra handa hans. Enginn skynja flekklausa hlýjuna í augum hans og brosi. Öll sitjum við og drúpum höfði í lítillæti og vanmætti. Allar minningarnar sem við eig- um og geymum vefjast saman við spurninguna. Hvers vegna þetta allt? Hver stjórnar? Hvað er verið að kenna okkur? Hvers vegna hann? Foreldrum, systkinum, ættingj- um og vinum bið ég blessunar Guðs og votta þeim mína dýpstu samúð. Nú þegar Guð hefur tekið til sín eitt sinna björtu ljósa leitum við eftir orðum. Ekkert virðist geta eytt sorginni. Sá sem trúna hefur getur allt. Drottinn, hjálpa þú van- trú minni. Bjarni E. Sigurðsson Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Úr Spámann- inum.) Fáir þekktu Sigga öðruvísi en glaðan og kátan. Hann fyllti líf okkar birtu og yl það eina ár sem við þekktum hann. Hann markaði spor í vitund okkar sem aldrei verða afmáð og það holrúm sem hann skilur eftir í lífi okkar verður aldrei fyllt. Við komum til með að muna allar stundimar, augnatillitin og orðin, ekki síst þau sem aldrei vom sögð. Sigga minnumst við með söknuði og sársauka, en einnig með gleði og þakklæti fyrir allar góðu stundirnar sem hann gaf okkur. Sá sem eftir Iifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnamir honum yfir. (Hannes Pétursson) Foreldmm, systram og öðmm aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Kolbrún og Ragnhildur Árla morguns, sunnudaginn 10. þessa mánaðar, hringdi Gunnar Dungal í Dallandi og bar mér þá helfregn, að vinur minn Sigurður H. Valdimarsson væri látinn. Allt varð svo óendanlega sárt, svo hel- kalt og nístandi. Að þessi ungi maður, sem mætti manni alltaf svo hugljúfur með bros á vör, væri ekki lengur meðal okkar. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmæl- is- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. I minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins em birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og rneð góðu línubili. Sigurður fæddist í Hveragerði þann 17. september árið 1965 og voru foreldrar hans hjónin Jóna Sigurðardóttir og Valdimar Ingva- son. Þau eignuðust að auki tvær dætur, Önnu Erlu og Soffíu. íslenski hesturinn, þessi „skapar- ans meistara mynd“ átti hug hans og hjarta enda fór það svo að hann kunni ungur að njóta kosta hans og snilli. Hann var nú, er hann lést, orðinn úrvals tamningamaður, kunni að móta það besta í fari íslenska gæðingsins og sýna hann á hestaþingum af kostgæfni. Það var þetta sameiginlega áhugamál, hesturinn, sem færði okkur Sigurð heitinn nær hvorn öðrum fyrir nokkmm ámm og batt okkur vin- áttuböndum. Hann var orðinn sem kallaður er atvinnumaður við tamn- ingar og gat sér gott orð á því sviði. Síðastliðið ár vann hann aðal- lega í Skagafírði og í Húnaþingi. Þegar vinur minn Gunnar Dungal í Dallandi spurði mig sl. haust um traustan mann til að vinna í vetur við Hestamiðstöðina í Dal kom nafn Sigurðar fyrst upp í huga minn og gekk jþað eftir að Sigurður var ráð- inn. Ég benti honum einnig á sam- starfsmann til að vera með Sigga, sveitunga minn Helga Kjartansson frá Hvammi. Var mér kunnugt um að þeir félagarnir vom þegar komn- ir í mikið álit hjá húsbændum sínum í Dallandi, þeim Þórdísi og Gunnari. Samstarf þeirra félaganna í Hestamiðstöðinni í Dal hófst síðan um áramótin og var með miklum ágætum. Nokkrum dögum fyrir hið hörmulega slys komu þeir sam- starfsmennimir til okkar á skrif- stofu Eiðfaxa, þessir lífsglöðu ungu menn fullir af áhuga og bjartsýni og að vanda var hesturinn og hesta- mennskan aðal umræðuefnið. Ég tel það hafi verið mér til gæfu að kynnast svo ágætum manni sem Sigurði H. Valdimarssyni þó að samveruárin hafí orðið alltof fá. Minningin um góðan dreng mun lifa. Ég flyt foreldmm hans, systr- um og öðmm aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Sigurður Sigmundsson Kveðja frá bekkjarfélögum Með þessum orðum viljum við minnast bekkjarbróður okkar og vinar, Sigurðar H. Valdimarssonar, góðs drengs sem ólst upp með okk- ur í Hveragearði. Hann var sonur þeirra ágætu hjóna Valdimars Ingvasonar og Guðbjargar Jónu Sigurðardóttur. Siggi, eins og hann var alitaf kallaður, var með okkur í skóla frá því í 6 ára bekk þangað til við luk- um skólaskyldu 16 ára gömul. Það varð okkur mikið áfall þegar við fengum þær hörmulegu fréttir að Siggi hefði látist í bílslysi þann 9. þ.m. Þeir sem hann þekktu vita vel hve eftirminnilegur hann var, smit- andi kátínan fylgdi honum og ógleymanlegur hlátur. Siggi var alltaf á ferð og flugi, þegar einu verkefni lauk var hann þegar kom- inn á kaf í það næsta. Hann átti mörg áhugamál en hestamennskan heillaði hann mest. Hann varð þess aðnjótandi að hafa áhugamál sitt að atvinnu. Við erum þakklát fyrir allar ánægjulegu samverustundimar og að hafa kynnst jákvæðu lífsviðhorfi Sigga. Við sendum fjölskyldu hans og öðrum aðstandendum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Megi minningin um hans fallega bros styrkja ykkur á erfiðum tímum. Bekkjarfélagar Hann var svo ungur og lífsglað- ur. Hvers vegna þurfti einmitt hann að verða eitt af fórnarlömbum plág- unnar sem alltof oft heijar á íslenska þjóðvegi? Þeirri spurningu verður ekki svarað og fátækleg orð duga skammt til þess að tjá hugsan- ir okkar, þegar okkar elskulegi vin- ur, Siggi Valda, er lagður til hinstu hvíldar. Sigurður Heiðar, en svo hét hann fullu nafni, var fæddur 17. septem- ber 1965, sonur hjónanna Guð- bjargar Jónu Sigurðardóttur og Valdimars Ingvasonar í Hveragerði og ólst upp hjá foreldrum sínum ásamt tveim yngri systram. Hann sýndi snemma' mikla atorku bæði við nám og störf, en þótt námsgáf- ur væru nægar, lagði hann ekki fyrir sig langskólanám, áhugi hans beindist fljótlega fyrst og fremst að hestum og hestamennsku. Hest- amir tóku snemma mikið af tíma hans og síðustu árin hafði hann atvinnu af tamningum og sýsli við hesta, bæði norðanlands og hér syðra. í þessum störfum kynntist hann fjölmörgum hestamönnum og eignaðist góða vini í hópi þeirra. Kynni þeirra af Sigga vom öll á sama veg, félagar hans og vinnu- veitendur ljúka upp einum munni um einlægan og hreinskiptinn dreng, sem átti létt með að blanda geði við alla, eldri sem yngri. Við höfum notið kynnanna við Sigga í um það bil átta ár. Þau sköpuðust í fyrstu af hestastússi, en smám saman uxu þau og við lærðum að þekkja persónu, sem á margan hátt var óvenjuleg. Dreng- skapur og hreinlyndi vom þeir þætt- ir sem sterkastir vom í fari hans. Hann sagði meiningu sína um hvað sem var við hvem sem var, en hann var frábitinn því að fella dóma um aðra menn og vísaði öllu slíku frá sér. Það fylgdi honum alltaf birta og hressileiki og drengimir okkar fögnuðu honum jafnt og við þegar hann birtist. Hann var hjá okkur við tamningar og við litum nánast á hann sem einn af fjölskyldunni. Hann var alltaf reiðubúinn til hjálp- ar við alls konar viðvik og þegar hlé varð á störfum var spjallað um heima og geima. Margt sótti á huga hans þó að helstu áhugamál hans tengdust aðallega útivist og þá fyrst og fremst hestum var hann alltaf tilbúinn til viðræðna um hin óskyld- ustu málefni, enda var hann víða heima og gæddur góðum gáfum. Síðast kom hann hingað, glaður og hress að vanda, nokkmm klukkustundum áður en hann dó. Þá heimsókn og allar samvem- stundirnar þökkum við og munum um ókomin ár. Megi blessun Guðs fýlgja vininum okkar góða og veita líkn foreldrum hans og öðmm ást- vinum. Fjölskyldan I Akurgerði. Það dimmdi og hljóðnaði á okkar heimili þegar við fréttum að það hefði orðið slys. Kær vinur okkar hafði látist í bflslysi, aðeins 25 ára gamall í blóma lífsins. Fyrsta hugsunin var að hann hefði verið of efnilegur og góður til að við fengjum að njóta hans og verka hans hér á jörðinni. Við vorum svo lánsöm að kynn- ast Sigga og föður hans í gegnum áhugamál okkar allra, hesta- mennskuna. Það var eitthvað sér- stakt í fari þessa unga manns, eitt- hvað sem erfitt er að lýsa með orð- um. Hann var í senn traustvekjandi og hógvær, en jafnframt glettinn og hress og smitandi hlátur hans og skemmtileg tilsvör gerðu það að verkum að manni leið svo vel í 'náVist HáHs.1 ’' ...... + JÓHANN B. VALDÓRSSON frá Eyri í Reyðarfirði, lést á Vífilsstöðum að kvöldi 14. febrúar. Ættingjar og vinir. Eiginmaður minn, FRIÐGEIR GfSLASON, Suðurhólum 4, lést á Landspítalanum 14. febrúar. Sigurbjörg Óskarsdóttir, börn og barnabörn. + Eiginmaður minn og faðir okkar, SAMÚEL BJÖRNSSON bifreiðastjóri, Dalbraut 21, Reykjavik, lést fimmtudaginn 14. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Margrét Bjarnadóttir og börn. + Eíginkona mín, LÁRA VETURLIÐADÓTTIR, Fjarðarstræti 6, ísafirði, lést á Borgarspítalanum fimmtudaginn 14. febrúar. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Guðmundur M. Ólafsson. + Fósturfaðir minn og afi, GUÐMUNDUR HÓLM, Skeggjagötu 23, andaðist á elliheimilinu Kumbaravogi 15. febrúar sl. Fyrir okkar hönd og annarra, Jenný Árnadóttir, Katrín Ösp Bjarnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.