Morgunblaðið - 21.03.1991, Blaðsíða 72
„JSS&a
■WINCHESTER 85K
BYSSUR OG SKOTFÆRI
Heildsöludreifing:
I.Guðmundsson, sími :24020
FIMMTUUDAGUR 21. MARZ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Óvenju mikill útflutningur hjá SH:
4.300 tonn flutt út
fyrir 900 milljónir
Framleiöslan fyi’ir Bandaríkjamarkað að aukast
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna (SH) flytur út um 4.300 tonn
af frystum afurðum í þessari viku. Þar af fara 2.700 tonn í 131
gámi til Vestur-Evrópu og Asíu og 1.600 tonn ineð Hofsjökli til
Bandaríkjanna á laugardag. Fob-verðmæti útflutningsins er um 900
milljónir króna og langt er síðan útflutningur SH hefur verið jafn
mikill eða meiri í sömu vikunni, að sögn Hjalta Einarssonar fram-
kvæmdastjóra hjá SH.
SH flytur út frystar afurðir í 72 Vestur-Evrópu í þessari viku. Til
gámum til Asíu og 59 gámum til Japans fara meðal annars 1.173
tonn af loðnuhrognum í vikunni.
„Eftirspurnin eftir fiskafurðum
hefur verið mjög mikil og við eigum
litlar birgðir. Framleiðsian nam um
tvö þúsund tonnum hjá okkur í síð-
ustu viku, þannig að við flytjum
út tveggja til þriggja vikna fram-
leiðslu í þessari viku,“ segir Hjalti
Einarsson.
Hann upplýsir að framleiðslan
fyrir Bandaríkjamarkað sé að auk-
ast aftur vegna verðhækkana þar
undanfarið og hækkunar Banda-
ríkjadals gagnvart krónunni.
Bandaríkjadalur hafði í gær hækk-
að um 6,3% gagnvart krónunni á
þessu ári.
„Nú eru 1,78 Bandaríkjadalir í
sterlingspundinu en fyrir skömmu
voru tveir dollarar í sterlfngspund-
inu og í sumum tilfellum er nú
hagstæðara að framleiða fyrir
Bandaríkin en Evrópu. Verð á
þorskblokk í Bandaríkjunum er til
dæmis komið upp fyrir verð á
þorskblokk í Evrópu í krónum tal-
ið. Verðið hefur verið óbreytt í
Evrópu í viðkomandi myntum en
hækkað jafnt og þétt í Bandaríkj-
unum,“ segir Hjalti. Hann upplýsir
að nú fáist 2,50 dollarar fyrir pund-
ið af þorskblokk í Bandaríkjunum.
^Vonskuveður í Grímsey:
Flýja hús vegna
rafmagnsley sis
Grímsey.
MIKIÐ vonskuveður af norðaustri
hefur verið í Grímsey síðan á
þriðjudag. Rafmagnslínur slitn-
uðu og ellefu íbúðarhús urðu raf-
magnslaus og eru enn. íbúar hús-
anna fluttu til ættingja og mikið
fjölmenni er á þeim heimilum sem
jjj^hafa rafmagn.
Vonskuveður var í Grímsey í gær
og fyrradag. A þriðjudag komst
vindhraði í 10 vindstig og úrkoman
frá klukkan 9 til 18 síðdegis mæld-
ist 25,3 millimetrar. Má segja að
þetta sé fyrsti vetrarsnjórinn sem
fellur á eynni.
Mikil ísing myndaðist fljótlega
eftir að veður tók að versna á þriðju-
dag og olli því að rafmagnslínur
slitnuðu á þriðjudagskvöld.
Að sögn Bjarna Magnússonar
hreppstjóra, sem hefur umsjón með
rafstöðinni, er rafmagnsiínan slitin
sunnan og ofan við félagsheimilið
og einangrarar og tvær þverslár
brotnar. Einnig er talsvert slitið
syðst á eynni.
í gær var unnið við að beija ís-
ingu af mestum hluta línunnar og
sagði Bjarni að ísingin hefði verið
mjög föst og erfitt hefði verið að
athafna sig vegna snjóskafla.
Feijan Sæfari, komst ekki til
Grímseyjar með mjólkurskammtinn
á þriðjudaginn og hafa eyjaskeggjar
því ekki fengið mjólk frá því á þriðju-
dag í síðustu viku og eru að verða
miólkurlausir.
HSH
266 mál af-
greidd á þingi
ALÞINGI var rofið rétt fyrir há-
degi í gær. Alls voru 266 mál
afgreidd af 476, sem lögð voru
fyrir 113. löggjafarþingið
Fjölmargir þingmenn láta nú
af störfum eftir áratuga þing-
setu. Geir Gunnarsson og Matthí-
as Á. Mathiesen hafa setið lengst
á þingi af þeim eða í 32 ár.
Kosið verður til Alþingis eftir
tæpan mánuð, eða 20. apríl. Þar
sem þing hefur verið rofið getur
atkvæðagreiðsla utan kjörstaðar
hafizt í öllum kjördæmum. Fram-
boðsfrestur rennur hins vegar
ekki út fyrr en 5. apríl.
Sjá þingfréttir á bls. 28, 30
og 40.
Álviðræður:
Lögfræðing-
ar hittust í
Amsterdam
LÖGFRÆÐINGAR Atlantsáls
og iðnaðarráðuneytisins áttu
með sér fund í Amsterdam í
Hollandi í gær, þar sem farið
var yfir allt samningasviðið
milli Atlantsáls og íslands.
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra sagði í samtali við Morg-
unbiaðið í gær að á fundinum
hefði verið skýrt frá því að Al-
þingi Islendinga hefði samþykkt
lánsfjárheimildir bæði vegna
frekari virkjanaundirbúnings og
lóðakaupa, ef þörf krefði.
Jón sagði að auk þessa væri
nú undirbúningur annarra funda
í fullum gangi. Samninganefndir
aðila myndu hittast á fundi í
New York 4. og 5. apríl næst-
komandi. Á þeim fundi yrði
kynnt frekari fundadagskrá út
aprílmánuð og fram í maí. Sú
dagskrá væri enn í vinnslu.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu:
Víilur á beinu brautinni
Morgunblaðið/Bjarni
Valsmenn sigruðu Víkinga 28:23 í úrslitakeppni
1. deildar í handknattleik í gærkvöldi. Staðan var
12:12 í hálfleik en Vaismenn gerðu sjö mörk í röð
í seinni hálfleik og tryggðu sér sigurinn. Valur er nú
á beinu brautinni, hefur þriggja stiga forystu á Vík-
ing. Á myndinni eigast þeir Jakob Sigurðsson, fyrir-
liði Vals, og Víkingurinn Bjarki Sigurðsson við.
Sjá íþróttafréttir á bls. 68-71.
Umferð vinnuvéla
takmörkuð í þéttbýli
STJÓRN Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) sam-
þykkti fyrir skömrnu að leggja það til.við þau sveitarfélög, sem aðild
eiga að samtökunum, að umferð vinnuvéla í þéttbýli verði takmörkuð
vei-ulega. Sveinn Andri Sveinsson, formaður SSH, segir aðgerðir af
þessu tagi vera orðnar löngu tímabærar enda tiðkist það hvergi í
nágrannalöndum að umferð vinnuvéla sé leyfð á fyrsta flokks stofn-
brautum. Slík umferð valdi umferðartöfum og auki slysahættu. Við
útfærslu takmarkananna hefði verið stuðst við þýskar leiðbeiningar.
Þá sagði Sveinn Andri að verið væri að athuga tillögur um að koma
upp sérstökum geymslusvæðum fyrir vinnutæki til að takmarka þau
óþægindi sem þessar takmarkanir myndu valda verktökum.
í þeirri tillögu sem samþykkt var
að leggja fyrir aðildarsveitarfélög
SSH er lagt til að akstur og dráttur
vinnuvéla og dráttarvéla verði við
fyrsta hentugleika bannaður allan
sólarhringinn á 1. fiokks stofnbraut-
um með mislægum gatnamótum.
Myndi það þýða að umferð vinnu-
véla yrði bönnuð á Kringlumýrar-
braut sunnan Listabrautar, Hafnar-
ijarðarvegi norðan Vífilsstaðavegar
og á Vesturlandsvegi milli Reykja-
nesbrautar og Höfðabakka.
Þá er lagt til að akstur og drátt-
ur vinnuvéla og dráttarvéla verði
bannaður á virkum dögum klukkan
7.30-9.00 og klukkan 16.30-18.30
á eftirfarandi stofnbrautum og 1.
flokks tengibrautum: Reykjanes-
braut, Vesturlandsvegi milli Höfða-
bakka og Langabakka, Hafnarfjarð-
arvegi milli Bæjarháls og Breið-
holtsbrautar, Hafnarfjarðarvegi
sunnan Vífilsstaðavegar, Bæjar-
hálsi, Höfðabakka norðan Stekkjar-
bakka, Miklubraut, Kringlumýrar-
braut norðan Listabrautar, Sæ-
braut, Hringbraut austan Suður-
götu, Bústaðavegi, Breiðholtsbraut,
Stekkjarbakka milli Reykjanes-
brautar og Höfðabakka, Sunda-
braut, Nýbýlavegi, Reykjavíkurvegi
norðan Strandgötu og Álftanesvegi
austan heimreiðar að Bessastöðum.
-------*-♦-«------
Morgunblaðiö/Árni Sæborg
Tveir þingmenn Vesturlandskjördæmis, Alexander Stefánsson og
Friðjón Þórðarson, sem báðir hætta þingmennsku.
Vaka er á
heimleið
FJÖLVEIÐISKIPIÐ Vaka, sem
smíðað var í Figueras á Spáni
fyrir Eskfirðing hf. á Eskifirði,
hefur verið skráð hér og leggur
af stað til Islands í dag. Reyðar-
fjörður verður heimahöfn Vöku
en hreppurinn keypti nýlega lítinn
hlut í Eskfirðingi hf.
Eskfirðingur hf. átti Eskfirðing
SU, sem sökk við Norðurland fyrir
nokkrum árum. Eskfirðingur hf. á
Hörpu RE, sem veitt hefur hluta af
aflakvóta fyrirtækisins en það á einn
og hálfan rækjukvóta, einn og hálfan
loðnukvóta og lítinn þorskkvóta.
Samningur um smíði á Vöku var
gerður 12. desember 1988 og hljóð-
aði upp á 922 milljónir peseta, eða
535 milljónir króna á núvirði.