Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991
Afmæliskveðja:
Ottó Gíslason
verkstjóri
Öðru hveiju er maður minntur
mlisóþyrmilega á þá staðreynd, að
það hlýtur að koma að þeim degi
að veröldin verði að bjargast af án
manns sjálfs. Þó skilur maður í
rauninni ekkert í því hvernig veröld-
in ætlar að fara að því, þvi maður
sjálfur og heimurinn er eitt og hið
sama.
Auðvitað gildir þetta sama um
þá menn sem manni eru samtíða
og manns eigin orka beinist að og
öfugt. Fyrir áhrif samferðamanna
hangir maður í sínu eigin gervi.
Sumir menn eru hreint ómissandi
að manni finnst, slík er þeirra per-
sóna.
Þessu líkar hugrenningar sóttu
eitt sinn á Alexander mikla. Hann
lést sjálfur aðeins 33 ára gamall
eftir að hafa gersigrað heiminn. Á
hátindi ferils síns horfði hann yfir
breiðurnar af sínum sigursælu her-
sveitum búnum til orrustu. Þá brast
Alexander í grát. Aðspurður sagði
hann, að skyndilega hefði hann
gert sér ljóst, að eftir 100 ár yrði
enginn viðstaddra á lífi.
Það var hlutskipti, Alexanders að
stýra stórum og sigursælum lið-
sveitum. Það getur verið snúið á
stundum og sagt er að það sé van-
þakklátt starf að vera foringi í
heimskum her. List leiðtogans er
þá að halda niðri kurri liðsmann-
anna, þannig að þeir geri hans vilja,
þó misglaðir séu þeir sjálfir. Til
þess þarf foringinn að vera bæði
við alþýðuskap og höfðingja, bæði
góður og grimmur, af hjarta lítillát-
ur en vera þó ekki svo skaplaus,
að enginn óttist hann.
Ekki er vitað hvort menn séu
fæddir leiðtogar eða tillærðir. Frið-
rik mikli vildi í æsku heldur spila
á flautu en vera hermaður, þó háði
hann æsilegri stríð og tvísýnni um
sina daga en flestir aðrir. En það
er samt einhvernveginn þannig, að
það er eins og að sumum mönnum
sé ekki hægt að halda frá manna-
forráðum. Þau safnast að þeim.
Ottó Gíslason fæddist 9. apríl
1921 í Viðey, sonur hjónanna Gísla
Gíslasonar verkamanns og Svövu
Sigurðardóttur. Það leyndi sér ekki,
að þarna var eitthvað að gerast.
Hið danska strfðsskip Fylla var
stöðvuð á sundunum og látin varpa
15 15 15 15 15 15 /5 J 5 15
15 ár eru langur tími í
heimi tölvuviðskipta
I B M
Um þessar mundir eru 15 ár Jiðin frá
stofnun Sameindar hf. 15 ár er vissidega hár
aldur þegar um er að ræða fyrirtæki á sviði
tölvu- og upplýsingatækni og í tilefni af
afmælinu bjóðum við þér og þínum
hinn vandaða IBM PS/2 tölvu-
búnað á verði s'em ekki á
sér neina hliðstæðu.
1 sTlLBpV
Tilboð okkar er svohljóðandi:
IBM PS/2 30-021 (20 MB) m/8503 s/h skjá
IBM PS/2 30-021 (20 MB) m/8513 Iitaskjá
IBM 4019-E01 Geislaprentari
o
kr. 89.900
kr. 124.200
IBM PS/2 55.-X31 (386SX, 30 MB) m/8503 s/h skjá IBM PS/2 55-X31 (386SX, 30 MB) m/8515 litaskjá kr. 155.700 kr. 181.600
IBM PS/2 55-X61 (386SX, 60 MB) m/8503 s/h skjá IBM PS/2 55-X61 (386SX, 60 MB) m/8515 litaskjá kr. 178.200 kr. 199.900
kr. 129.900
Verð er með 24.5% virðisaukaskatti
SAMEIND
BRAUTARHOLTI 8, SÍMI 615833
—i—i4--44--1 • I
15 /5 15 15 15 15 15 15 15 15
akkerum meðan skipslíflæknirinn
tók á móti Ottó Gíslasyni til þessa
heims dvalar. Þetta má ef til vill
kallast táknrænt, því það hefur
aldrei verið neitt logn né neinir
smáskammtar í kring um sveininn
síðan.
í þann tíð voru umsvif Kárafé-
lagsins mikil í Viðey og þar í eyj-
unni stunduð bæði mikil útgerð og
búskapur. Ottó fór snemma að taka
til hendinni. Strax um 8 ára aldur
var hann farinn að breiða fisk og
sinna öðru dútli. Hann var í Viðey
til 18 ára aldurs, gekk í skóla á
vetrum en stundaði fiskvinnu og
bústörf hjá Hafberg í Viðey og Jón-
asi í Stardal á sumrum. Ottó er því
með réttu innfæddur Viðeyingur
fremur en Reykvíkingur, þó þar
hafi hann haft aðsetur í hálfa öld.
Því hefur Ottó verið framarlega í
röðum Viðeyingafélagsins og sýnt
varðveislu minja í Viðey mikinn
áhuga.
1939 sigldi Ottó yfir á fasta-
landið og hóf störf í Stálsmiðjunni.
Þar lærði hann ýmis vinnubrögð
sem fáir kunna nú til dags, t.d. eins
og heithnoða. Getur hann br.ugðið
fyrir sig þeirri list enn. 1942 fór
hann svo að vinna hjá Ingólfi heitn-
um í Söginni, sem þá rak mokstur
og keyrslu í sandnámum Reykjavík-
ur í Ártúnshöfða. Að undantekinni
veru á síldarbátnum Guðnýju 1946-
1947, þá hefur Ottó starfað á þessu
veðursæla og fagra svæði í Ártúns-
höfðanum allar götur síðan.
Um haustið 1947 byijaði Ottó
að vinna í Steypustöðinni hf. sem
þá var að taka til starfa. Steypu-
stöðin hf. mun vera fyrsta fyrirtæki
sinnar tegundar í Evrópu. Menn
voru fljótir að koma auga á dugnað
og ósérhlífni þessa manns og var
hann svo til strax settur í afgreiðsl-
una. Þar með er Ottó örugglega
fyrsti „dispatcher“ hjá steypustöð í
Evrópu og örugglega sá sem lengst-
an starfsaldur hefur f greininni.
Ottó er því einstakur í sinni röð.
Á þessum áram vann hann einn
störf sem margir menn vinna" í dag
og spurði aldrei hvað kiukkan væri
eða hvaða dagur væri. Ef einhver
vill steypa þá er Ottó Gíslason
mættur fyrir allar aldir og telur
ekki eftir sér að vera sólarhringun-
um saman í brúnni ef með þarf.
Þetta var svona 1947. Þetta er
svona enn 1991. Þjónustulundin er
einstök og hann er með snerpu og
úrræðasemi sinni hinn dæmigerði
reddari, sem allir treysta á. Honum
hefur varla orðið misdægurt allan
þennan tíma, slíkt hefur þrekið ver-
ið.
Ottó kvæntist 27. janúar 1950,
Magneu Vilborgu Þórðardóttur og
þau 3 börn, sem öll eru hin mann-
vænlegustu.
Ottó Gíslason er löngu orðinn
þjóðsagnapersóna í byggingariðn-
aði höfuðborgarsvæðisins. Hugur-
inn er geysimikill. Það getur verið
fljótt að hvessa ef eitthvað fer ekki
eins og hann vill. Þá stafar þrumum
og eldingum úr eternum enda stýr-
ir Ottó hersveitum sínum dreifðum
frá Reykjanestá til Hvalfjarðar-
botns með loftskeytum milli þess
sem símarnir á borðinu hans hringja
viðstöðulaust. Það hafa fáir þolað
álag þessa starfs lengi, þegar mikið
er að gera.
Alexander hafði ekki loftskeyta-
tæknina aðgengilega og varð að
treysta á ríðandi hraðboða. Ekki
hefði það dugað í starfi Ottós Gísla-
sonar, þar sem allt byggist upp á
hraða í viðbrögðum og kapphlaupi
við binditíma sementsins. Hver
hefði gangur heimssögunnar getað
orðið ef Alexander mikli hefði haft
aðgang og bandalag við Ottó Gísla-
son og hinar talstöðvavæddu her-
deildir hans? Báðir þurftu þessir
menn að taka skjótar ákvarðanir
oft á sinni ævi og leysa margar
þrautir, þó starfsævi Ottós Gísla-
sonar sé nú orðin líklega þrisvar
sinnum lengri en Alexanders og
hefur auðvitað miðast meira við
uppbyggingarstörf í borgum en brot
þeirra.
En þó stundum hvessi í snörpum
lægðum, þá er sólin líka fljót að
bijótast fram. Ottó er gull að manni
þegar þrumuskýin leggur frá. Hann
má ekkert aumt sjá og vill allt fyr-
ir alla gera. Við höfum nú starfað
saman í 27 ár og fyrir mína parta
mega þau gjarnan verða fleiri, því
Ottó Gíslason er maður jákvæður,
opinn fyrir nýjungum og jafnan
boðinn og búinn að vinna fyrirtæk-
inu allt það gagn sem hann má.
Ottó er vinmargur. Það er því
ekki að efa að það verður margt
um manninn, þar sem þau hjón
taka á móti vinum og vandamönn-
um í Akoges-salnum í Sigtúni 3
milli kl. 17.00-19.00 á afmælisdag-
inn.
Ég vil fyrir hönd Steypustöðvar-
innar hf. og samstarfsmanna flytja
Ottó Gíslasyni okkar beztu árnaðar-
óskir í tilefni dagsins. Lifðu heill
Ottó! Hamingjan fylgi þér og fjöl-
skyldu þinni.
Halldór Jónsson
DUDBDflD
FRAMRÚÐUVIÐGERÐIR
FOLKSBILALAND H.F.
FosshálsM, (Ðílaborgarhúsinu)
Sími 67 39 90