Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR'9. ÁPRÍL Í991 32 UA kaup- ir 90 tonn Útgerðarfélag Akureyringa hefur keypt 90 tonn af þorski úr Baldri EÁ frá Dalvík og er landað úr skipinu i dag. Gunnar Lórenzson yfírverkstjóri í frystihúsi ÚA sagði að hráefni hefði verið til í gær, frá því Hrímbakur og Kaldbakur lönduðu í síðustu viku. Vinnsla aflans úr Baldri tekur tvo til þrjá daga, en öllum aflanum er pakkað í dýrustu pakkningar sem fara á markað í Bandaríkjunum. Kaldbakur EA er væntanlegur inn til löndunar á fimmtudag, fyrstur ÚA-togaranna. Gunnar sagði engar aðgerðir í uppsiglingu hjá starfsfólki í kjölfar þess að sjómenn hafi samið við út- gerðina í liðinni viku. ♦ ♦ »---- Jafnréttis- og fræðslu- fulltrúi: Valgerður fékk stöðuna VALGERÐUR Bjarnadóttir fé- lagsráðgjafi hefur verið ráðin jafnréttis- og fræðslufulltrúi Ak- ureyrarbæjar. Jafnréttisnefnd samþykkti þetta á fundi í síðustu viku og bæjarráð einnig, en bæjar- stjóm mun væntanlega staðfesta ráðningu Valgerðar í stöðuna á fundi sínum í dag. Valgerður er Akureyringur, fé- lagsráðgjafi að mennt og hefur hún m.á. starfað sem félagsráðgjafi á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Þá var hún verkefnisfreyja norræna jafnréttisverkefnisins Bijótum múrana, en í vetur hefur hún starfað við Gagnfræðaskólann á Akureyri þar sem gerð er tilraun með kyn- skiptar bekkjardeildir. Valgerður tekur við stöðunni um mitt sumar. Sr. Gunnlaugnr Garðarsson: Fólkið ber góðan hug til kirkjunnar SÉRA GUNNLAUGUR Garð- arsson hefur verið kjörinn sóknarprestur í Glerárpresta- kalli, en hann hlaut lögmæta kosningu á kjörfundi sem hald- inn var á sunnudagskvöld. Hann mun væntanlega taka við starfinu í júní næstkomandi. Umsækjendur um stöðuna voru þrír, auk Gunnlaugs, sóttu þeir sr. Flosi Magnússon prófastur á Bíldudal og sr. Svavar A. Jónsson sóknarprestur í Olafs- firði um. „Okkur þykir þetta mjög gleði- legt og það er mikil tilhlökkun ríkjandi hjá fjölskyldunni,“ sagði sr. Gunnlaugur í samtali við Morgunblaðið í gær, en hann kem- ur ásamt eiginkonu sinni, Sigríði Halldórsdóttur lektor í hjúkrunar- fræðum við HI, og tveimur dætr- um, Sunnu Kristínu og Maríu Guðrúnu, til Akureyrar í byrjun sumars. Gunnlaugur fæddist í Reykja- vík árið 1950 og lauk guðfræði- prófi árið 1984. Hann var sóknar- prestur í Þingeyrarprestakalli í Isafjarðarprófastsdæmi árin 1984-86, en stundaði framhalds- nám í guðfræði í Kanada næstu tvö árin. Eftir heimkomuna árið 1988 hefur hann gegnt starfi KEA velti 10 milljörðum á síðasta ári: Sigursælir skíðamenn Morgunblaðið/Rúnar Þór Lið Akureyringa, sem var sigursælasta lið skíðalandsmótsins á ísafírði, kom heim á sunnudag. Forráðamenn Skíðaráðs Akureyrar tóku á móti þeim á flugvellinum og afhentu öllum eina rós í tilefni góðs árangurs. Akureyringar unnu flest verðlaun á mótinu, eins og fram kemur í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag. Tillögu um 10 þús. kr. bónus til starfsfólks vísað til stjórnar TILLÖGU Jónu Steinbergsdóttur um að starfsfólki Kaupfélags Eyfirð- inga verði greiddar 10 þúsund krónur í bónus vegna hagstæðrar út- komu síðasta árs var vísað til stjórnar félagins til umfjöllunar. Jóna bar tillöguna upp á aðalfundi KEA sem haldinn var á laugardag. Kaupfélagsmenn telja skynsamlegra að greiða niður skuldir félagsins fyrst áður en bónus til starfsfólks er greiddur út, en félagið hefur verið rekið með umtalsverðu tapi síðustu ár. Starfsmenn eru tæplega eitt þúsund þannig að um er að ræða 10 milljónir króna. Ýmsar aðhaldsaðgerðir sem gripið hefur verið til til að hagræða í rekstr- inum hafa m.a. skilað þeim árangri að framlegð í verslun hefur hækkað, með betri innkaupum, auknum bein- um innflutningi og minni rýmun. Sr. Gunniaugur Garðarsson, nýkjörinn sóknarprestur í Glerárprestakalli. safnaðarprests í Garðasókn og verið jafnframt starfsmaður Kjal- arnessóknar. „Þessi möguleiki kom ekki upp í huga mér fyrr en á þessu ári, þegar ljóst var að sr. Pétur Þórar- insson myndi hætta störfum. Við hjónin komum til Akureyrar fyrir eigi löngu og sóttum guðsþjónustu í Glerárkirkju. Þar rabbaði ég við nokkra aðila úr sóknarnefndinni og eftir þessa heimsókn fannst mér mjög eftirsóknarvert að ger- ast prestur í sókninni," sagði Gunnlaugur. „Þetta er stór og verkmikil sókn, en það vekur vissulega upp jákvæðar hugsanir er maður sér þann góða hug sem fólkið ber til kirkjunnar, sem m.a. endurspegl- ast í hinu fagra og veglega guðs- húsi.“ Þá hefur starfsfólki fækkað og dreg- ið hefur verið úr yfírvinnu þannig að heildarlaunakostnaður hefur lækkað um 5% á milli ára. Heildarvelta KEA og 14 sam- starfsfyrirtækja þess var ríflega 10 milljarðar króna á síðasta ári. Af- koma verslunar batnaði mjög og voru flestar deildir reknar með hagn- aði. Hætt var rektri tveggja verslana og þær leigðar einkaaðilum og þá vekur athygli að hagnaður varð af rekstri Byggingavörudeildar sem lengi hefur verið rekin með halla. Heildarvelta verslana KEA var um 3,6 milljarðar króna á síðasta ári. Fyrirtæki á sviði iðnaðar veltu 555 milljónum króna, sem er nokkru minna en á árinum á undan. Efna- gerðin Flóra var seld um mitt ár og rekstur Kjötiðnaðarstöðvar var erfiður framan af ári, en snérist til betri vegar á síðari hluta árs. Af- koma Brauðgerðar var viðunandi, en aðhald einkenndi reksturinn á árinu. Smjörlíkisgerð skilaði góðri afkomu, salan jókst og kostnaður við framleiðsluna minnkaði. Þjónustufyrirtæki veltu 371 millj- ón króna, sem er 4% samdráttur frá fyrra ári. Umfangsmesta þjónustu- fyrirtækið er Hótel KEA sem skilaði hagnaði í fyrra í fyrsta sinn í mörg ár. Rekstri flutningabifreiða var Hlutabréf keypt fyrir 175 milljónir KAUPFÉLAG Eyfirðinga keypti hlutabréf á síðasta ári fyrir 175 milljónir króna, en seldi hluta- bréf fyrir 128 milljónir króna. Félagið fjárfesti fyrir 255 millj- ónir króna á síðasta ári og seldi eignir fyrir 69 milljónir. KEA keypti hlutabréf í Útgerðar- félagi Dalvíkinga fyrir 86,4 milljón- ir króna, í Útgerðarfélagi Akur- eyringa fyrir 26,3 milljónir, í Þórs- hamri fyrir 24,7 milljónir og í Dags- prent fyrir 14,6 milljónir króna. Þá keypti félagið'hlutabréf í ístess fyr- ir 10 milljónir, Vélsmiðjunni Odda fyrir 8,1 milljón, Oslaxi fyrir 2,5 milljónir og í Fiskeldi Eyjafjarðar fyrír 2,4 milljónir. Hlutabréf voru seld fyrir 128 milljónir, en seld voru hlutabréf félagins í Samvinnubankanum fyrir 57,6 milljónir, en þau keypti Lands- bankinn, og hlutabréf í Söltunarfé- lagi Dalvíkur fyrir 63,3 milljónir til Samherja. Þá seldi KEA einnig hlutabréf fyrir 7,5 milljónir í Plast- einangrun. Fjárfestingar hjá félaginu námu 255 milljónum króna á árinu 1990, en stærstu liðirnir voru kaup á pökkunarlínu í frystihúsið á Dalvík og kaup á aflaheimildum. Eignir voru seldar fyrir 69 milljónir, en þar er lang stærsti liðurinn sala á togaranum Baldri EA. hætt á árinu og samið við Samskip um flutning vamings félagsins. Verðmæti sjávarafurða nam á síð- asta ári tæpum milljarði. Félagið keypti smábáta í nokkrum mæli á árinu, sem samtals fylgdu 340 tonna kvóti. Þá seldi KEA Snæfellið EA á árinu, fékk Eyfell upp í kaupin sem það seldi einnig. Loks seldi félagið togarann Baldur. Keypt var pökkun- arlína í Fiskvinnslustöðina í Hrísey, en þar er pakkað fyrir verslanakeðj- una Marks og Spencer í Bretlandi. Einnig festi félagið kaup á tækja- búnaði Hvaleyrar í Hafnarfírði, en hann var settur upp í Frysihúsi KEA á Dalvík þar sem fiski er pakkað í neytendaumbúðir. Velta KEA á sviði landbúnaðar var 2,6 milljarðar á síðasta ári, nokk- ur samdráttur varð þó í sauðfjár- slátrun eða 7,6%. Aukning varð hins vegar í mjólkurframleiðslu, samlag- inu barst aukið hráefni og það ásamt aðkeyptu skilaði meira afurðamagni en búist var við og betri afkomu. Samstarfsfyrirtæki, 14 talsins, veltu 1,7 milljörðum, en þau eru m.a Efnaverksmiðjan Sjöfn, Kaffi- brennsla Akureyrar, Útgerðarfélag Dalvíkinga, Vélsmiðjan Oddi, bif- reiðaverkstæðið Þórshamat og Vöruborg. Verslun KEA í Grímsey: Mjólkurskammtur vikunnar keyptur á einu bretti því enginn er kælirinn Grímsey. HEIMILD stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga hefur fengist til að gera lámarksendurbætur á verslunarhúsnæði KEA í Grímsey á þessu ári, en á síðasta ári var 12.000 krónum varið til endurbóta á húsnæðinu. Til margra ára hefur ekki fengist neitt fé til við- halds og endurbóta á húsnæðinu sem þó eru orðnar mjög brýnar. Kristín Óladóttir útibússtjóri í verslun KEA í Grímsey sagðist vonast til að endurbótum á versl- uninni yrði lokið fyrir 1. júní. Laga á innréttingar í búðinni og setja upp kæli, en enginn slikur hefur verið þar. Nú eru þrír stór- ir ísskápar í versluninni, fjórir frystiskápar og ein frystikista. Mjólk kemur einu sinni í viku út í eyju, og þar sem engin kæli- geymsla er til staðar til að geyma hana í kaupa flestir Grímseyingar mjólkurbirgðir til vikunnar á einu bretti. Hagnaður var af rekstri mat- vöruverslunar KEA í Grímsey á síðasta ári, en menn muna ekki til að það hafi áður gerst. -HSH
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.