Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 54
54 Stóðhesta- stöðin og ~ Kirkjubær FÉLAGAR í Fáki fara sunnudag- inn 14. apríl í fræðsluferð til Stóðhestastöðvarinnar í Gunn- arsholti og hrossaræktarbúsins í Kirkjubæ á Rangárvöllum. Farið verður í rútu frá félagsheimili Fáks kl. 13.30. í Gunnarsholti munu tamninga- mennirnir Rúna Einarsdóttir og Eiríkur Guðmundsson sýna stóð- hestana. Stóðhestastöðin verður skoðuð og ennfremur fræverkunar- stöð landgræðslunnar. Sveinn Run- ólfsson landgræðslustjóri segir frá landgræðslunni. Veitingar verða á staðnum. Eftir heimsóknina í Gunnarshplti verður farið til Kirkjubæjar, þar sem Sigurður Haraldsson sýnir rauðblesóttan hrossastofn sinn og segir frá honum. Þátttakendur verða að skrá sig á skrifstofu Fáks ekki síðar en mið- vikudaginn 10. apríl. Fyrirlestur og* > fræðslufund- ur um stærð- fræðikennslu OLE Haahr, námsstjóri í stærð- fræði við danska menntmálaráð- uneytið, dvelur hérálandi 11.-13. apríl nk. Hann á einnig sæti í prófanefnd ráðuneytisins og hef- ur tekið virkan þátt í dörisku stærðfræðikennarasamtökunum —x um áratuga skeið og verið í norr- ænu samstarfi um stærðfræðin- ám og kennslu. Hann er einn höfunda skýrslunnar „Matemat- ik - kvalitet i uddannelse og undervisning", sem út kom í des-/ ember sl. en þar er gerð grein fyrir úttekt sem gerð var á stöðu stæðfræðikennslu í dönsku menntakerfi árið 1990. Á fræðslufundi föstudaginn 12. .apríl kl. 14-18 fjallar Oie Haahr um námsmat í stærðfræði. Rætt verður um hvernig byggja má upp námsmat í stærðfræði þannig að það gefi sem bestar vísbendingar um nemandann og kennsluna og lögð áhersla á mikilvægi þess að námsmat sé fjölbreytt bæði hvað varðar form og val efnisþátta. Fræðslufundurinn er ætlaður stæðfræðikennurum í 7.-10. bekk og þar sem þátttaka er takmörkuð verða kennarar að tilkynna þátt- töku á skrifstofu Kennaraháskóla íslands í seinasta lagi miðvikudag- inn 10. apríl. Fimmtudaginn 11. apríl kl. 16.00 heldur Ole Haahr fyrirlestur í Kenn- araháskóla íslands um gæði stærð- fræðikennslu. Fyrirlesturinn er í stofu B-201 og er öllum opinn. (Fréttatilkynning) ' Námskeið í Skálholti FÉLAG leiðbeinenda um tóm- stundastarf aldraða, fatlaðra og geðsjúkra, standa fyrir nám- skeiði í Skálholti dagana 20.-21. apríl nk. Á námskeiðinu verður kennd postulínsnælugerð. Auk þess verður sýnt flos, silkimálun, dúkkugerð, silkiblómasteypa, taukörfur o.fl. Þá verður kvöldvaka með heimatilbúnu efni. Markmiðið er að efla samstarf leiðbeinanda og gera félagið virkt, öllum til hagsbóta. Vinsamlegast skráið ykkur fyrir miðvikudaginn 10. apríl. Dóra 91-10636, Sigurbjörg 98-34889, Sigrún 91-39404. (Fréttatilkynning) MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991 AF INNLENDUM VETTVANGI PÉTUR GUNNARSSON Málflutningur í Hafskipsmáli hefst í Hæstarétti í dag: Fjórir enn ákærðir en horf- ið er frá hluta sakargifta HAFSKIPSMÁLIÐ verður tekið til málflutnings í Hæstarétti næst í dag, þriðjudag, og er áætlað að flutningi málsins verði lokið 19. þessa mánaðar. Nú standa eftir ákærur gegn fjórum hinna sautján sakborn- inga og einnig hvað þá varðar hefur sérstakur saksóknari, Páll Arnór Pálsson, fallist á forsendur sýknudóms sakadóms Reykjavíkur í ýmsum veigamiklum atriðum, þótt krafist sé refsingar vegna flestra umfangs- mestu þátta málsins, sem lúta að reikningsskilum félagsins. Þeir sem enn eru ákærðir vegna Hafskipsmálsins eru Ragnar Kjart- ansson fyrrum stjómarformaður félagsins, Björgólfur Guðmundsson, fyrrum forstjóri þess, Páll Bragi Kristjónsson fyrrum framkvæmda- stjóri fjármála- og rekstrarsviðs og Helgi Magnússon fyrrum löggiltur endurskoðandi Hafskips. í saka- dómi var Ragnar sem kunnugt er sýknaður af öllum ákærum en hinir þrír sakfelldir fyrir hluta þess sem þeim var gefið að sök og Helgi dæmdurtil 100 þúsund króna sekt- argreiðslu en Páll Bragi og Björg- ólfur til skilorðsbundins fangelsis í tvo og fimm mánuði. Ríkissaksókn- ari undi sýknudómi yfir 13 sakbom- ingum, þremur starfsmönnum Haf- skips, bankastjórn Útvegsbanka, bankaráði og endurskoðanda bank- ans. Flestir þeir liðir sem ákæravaldið hefur nú fallið frá vora mikið í þeirri fjömiðlaumræðu sem fram fór um það leyti sem Hafskip varð gjald- þrota og í þann mund er opinber rannsókn hófst á rekstri þess. í upphaflegri ákæra ríkissaksóknara, sem síðar var vísað frá með dómi Hæstaréttar, var Hafskipsmönnum gefið að sök að hafa oftalið raun- virði skipastóls félagsins um 130 milljónir króna í ársreikningi félags- ins árið 1984. í ákæru sérstaks saksóknara í nóvember 1988 var raunvirðið talið ofmetið um 40,6 milljónir króna, og kom fram að ákæruvaldið teldi aðeins um ofmat að ræða í tilfelli Rangár, nýjasta skips félagsins. Ákæran byggðist á því að færa ætti niður bókfært verð- mæti fastafjármuna ef markaðs- verð þeirra félli af ástæðum sem ekki yrðu taldar skammvinnar. í dómi sakadóms Reykjavíkur frá 5. júlí síðastliðnum var komist að þeirri niðurstöðu að ákæruvaldið hefði ekki sýnt fram á að það verð- fall sem varð á kaupskipamarkaði hefði ekki verið skammvinnt og fallist var á skýringar hinna ákærðu. í dóminum er rakið að eft- ir að skipaverð hafi verið í lág- marki á heimsmarkaði um tveggja ára skeið hafi það farið hækkandi skömmu eftir að Hafskip varð gjald- þrota. í öðrum kafla ákærunnar var Ragnari, Björgólfi og Páli Braga gefið að sök að hafa gerst brotleg- ir við lög um hlutafélög með því að veita bankastjórn Útvegsbanka rangar eða villandi upplýsingar frá október 1984 til janúar 1985 um líklega rekstrarafkomu Hafskips með bréfum og áætlunum sem reist hafi verið á röngum eða villandi forsendum um þá flutninga sem félagið var þá að hefja milli Banda- ríkjanna og meginlands Evrópu. Einnig var Björgólfi og Ragnari gefið að sök að hafa á hluthafa- fundi í febrúar 1985 vísvitandi flutt hluthöfum rangar eða villandi upp- lýsingar um sennilega afkomu og efnahagsstöðu félagsins og Ragnari var gefið að sök að hafa vísvitandi tilgreint hlutafé félagsins 95,6 milljónir í tilkynningu til hlutafélag- askrár þegar það í raun var 92,5 milljónir króna. Þeir voru sýknaðir Norrænt ungbændaþing: Offramleiðsla og umhverfismál Laugarvatni. NORRÆNT ungbændaþmg var haldið í Iþróttamiðstöðinm a Laugar- vatni fyrir nokkru undir yfirskriftinni „Offramleiðsla og umhverfis- mál í landbúnaði". Þingið sátu fulltrúar ungliðahópa bændastéttarinn- ar á hinum Norðurlöndunum, fulltrúar svokallaðra 4H-hópa sem vinna að ræktun einstaklingsins til jákvæðra viðhorfa gagnvart náttúrunni og fulltrúar ungmennafélagshreyfingarinnar. Frá Islandi voru tveir ungir bændur fengnir til þátttöku á vegum UMFÍ. Morgunblaðið/Kári J.ónsson Atli Vigfússon, Laxamýri, og Hafdis Sturlaugsdóttir, Húsavík á Ströndum, voru í undirbúningsnefnd fyrir þing norrænna ungbænda og voru fulltrúar íslands á þinginu. Helle Juel Knudsen, Danmörku, og Ragnhild Hammer, Noregi, voru fulltrúar sinna landa á þingi norrænna ungbænda á Laugarvatni um helgina. Þinginu var skipt í þijá megin- hluta. Fyrst var fjallað um stöðu landbúnaðar í dag og viðhorf almenn- ings til landbúnaðarins. I öðru lagi var ijallað um umhverfismál og í þriðja lagi um mengun ýmiskonar sem snertir landbúnaðinn, bæði hvað varðar afurðimar eins og það sem skilað er aftur til náttúrannar. Á vegum UMFÍ var starfandi undirbúningsnefnd fyrir þingið sem í voru Atli Vigfússon frá Laxamýri í Þingeyjarsýslu og Hafdís Stur- laugsdóttir í Húsavík í Stranda- sýslu. Þau voru jafnframt fulltrúar íslands á þinginu. Þau eru sjálf starfandi bændur og vilja að ungir bændur láti sig málefni framtíðar- innar meira máli skipta. Á þingi ungbændanna voru fluttir nokkrir fyrirlestrar sem tengjast málefnum bænda og náttúruvernd. Frá Bændaskólanum á Hvanneyri fluttu Bjarni Guðmundsson, Magnús Óskarsson og Aðalsteinn Geirsson erindi um umhverfismál og landbún- að. Bentu þeir á frárennslismál sem dæmi um samspil manns og náttúru. Ótrúlega mikil mengun getur verið frá sveitabýlum og smákauptúnum. Margir bændur lifa af fískirækt í ám og vötnum og því mikilvægt að vernda vatnasvæðin. Fram kom að hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa lagt mun meira í forvarnir og fræðslu á sviði umhverfismála en við. Stjórn- völd þar reyna að hafa áhrif á notk- un efna, s.s. fosfors með sérsköttun þeirra vara sem innihalda fosfór. Þannig hafa Finnar minnkað notkun fosfórs um 30% á skömmum tíma. Frá Landvernd flutti Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt, er- indi um landvemd, vemdun menn- ingar og byggðar og samspil mann- virkja við náttúruna. Kom hún inn á hvernig bændur geta unnið með nátt- úrunni við uppgræðslu og ræktun. Helga Guðrún Jónasdóttir frá upp- lýsingaþjónustu landbúnaðarins, kynnti stöðu landbúnaðarins í dag með tilliti til kvótakerfis og niður- skurðar í sauðfjárrækt. Kom hún inn á starf sjömannanefndar og nýgerð- an landbúnaðarsamning. Kom fram nýmæli sem ekki hefur verið í fyrri búvörasamningum, ákvæði um stjómun beitarálags á ýmsum land- svæðum þar sem hætta er á ofbeit. Markaðsmál landbúnaðarafurða voru mikið rædd út frá aukinni mengun í öðrum löndum. Atli og Hafdís telja lykilatriði í markaðsmál- um framtíðarinnar vera þessa hreinu náttúru sem við enn höfum og þær afurðir sem hún gefur af sér. Sval- ara loftslag hefur kosti fram yfir heitari svæði. Við notum minni eitur- efni við okkar framleiðslu vegna færri skordýra og baktería sem þarf að eyða. Mikil úrkoma hjá okkur tryggir einnig hraðari útþynningu þeirra efna sem notuð eru. Við þurf- um að vinna betur í upplýsinga- streymi til fólksins um gildi landbún- aðar fyrir menningu og sjálfstæði íslands. Bætt menntun og símenntun ungra bænda sem eru að taka við og fleiri tækifæri til skoðanaskipta milli þeirra eru meðal þess sem þau Atli og Hafdís telja vera grundvöll nýrra tíma í landbúnaði á íslandi. Byggðamál tengjast óneitanlega nýt- ingu landsins gæða og var um þ'au mál nokkuð fjallað, einkum út frá sjáifstæði þjóða og þjóðmenningu landanna. Vöruðu menn við því að gera sveitabýlin of sérhæfð í sinni framleiðslu, það veikti þau þegar illa áraði á einhvetju sviði eða treysta um of á innflutning frá öðram þjóð- um, með því glataði þjóðin miklu af sjálfsforræði sínu og erfiðara væri að fylgjast með gæðum framleiðsl- unnar. Ragnhild Hammer frá Noregs bygdeungdomslag var þátttakandi á þinginu. Hvatti hún mjög til þess að landsbyggðinni væru sköpuð skilyrði til að viðhalda byggð. Hún lagði mikla áherslu á að við héldum sér- kennum okkar og um leið menningu, t.a.m. ferðamannaþjónusta gæti ekki komist af án þess að þjóðin byggi í öllu landinu. Hver þéttbýliskjarni hefði sitt þjónustusvæði sem byggð- ist á sveitunum í kring, þannig væru sveitirnar undirstaða mannlífs. „Ekki koma ferðamenn til að skoða Reykja- vík frekar en Ósló, þeir koma til að skoða sérkenni lands og þjóðar og þurfa þjónustu um allt landið til þess.“ Ragnhild lýsti furðu sinni á því að ferðum um hálendi íslands væri ekki stjórnað meira en raun væri, þá sérstaklega með tilliti til átroðnings og mengunar. Helle Juel Knudsen frá Danmarks landboungdom sagði þeirra starf miðast að því að aðstoða unga bænd- ur til að hefja búskap. „Ungbændur í Danmörku eru vel meðvitaðir um samspil sitt með náttúrunni. Þeir nýta náttúruna og gefa henni til baka en nota hana ekki bara upp,“ sagði Helle. Hún segir að sér komi á óvart hve afslappaðir íslendingar eru í sinni afstöðu til náttúrunnar sem þó er svo mikilfengleg, sér sýn- ist íslendingar hafi meiri tilfinningu fyrir sinni náttúru en t.d. Danir. - Kári
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.