Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRIL 1991
49
TÓNLIST
Kvartettaút-
setningar
Billichs gefn-
ar út í bók
Aárum áður nutu söngkvartettar
mikilla vinsælda og þær voru
margar söngsveitirnar sem fóru um
landið og sungu sig inn í hug og
hjörtu landsmanna á hinum ýmsu
mannamótum. Segja má að MA-
kvartettinn hafi riðið á vaðið í þess-
ari grein. Kvartettinn sá rann sitt
skeið síðla á fjórða áratugnum og
framan af þeim fimmta og margir
kvartettar fylgdu í kjölfarið. Einn
þeirra þekktustu voru Leikbræður,
kvartett sem fyrst söng í skemmti-
og söngför Breiðfirðingakórsins um
Breiðafjarðarbyggðir vorið 1945 og
átti síðar velgengni að fagna allt
fram til ársins 1955 en þá lauk sam-
starfi þeirra leikbræðra. Kvartettinn
skipuðu þeir Ástvaldur Magnússon,
Gunnar Einareson, Friðjón Þórðarson.
og Torfi Magnússon. Allir, að Gunn-
ari undanskildum, eru bornir og
barnfæddir Dalamenn. Árið 1977
ákváðu þeir að safna saman lögum
sem til voru hér og þar á segulbönd-
um og gefin var út hljómplata með
þessum lögum. Hún er fyrir löngu
uppseld og ófáanleg.
Sá maður sem öðram fremur átti
þátt í því að leggja gi-unn að þeirri
sönghefð sem kvartettsöngur er, var
Carl Billich. Hann lagði kvartettum
landsins til fjöimargar útsetningar
eða raddsetningar sönglaga sem
kenna má við stíl hins heimsfræga
kvartetts „Comedian Harmonists".
Carl hafði heyrt til þeirra i heima-
borg sinni Vín. Carl var óþreytandi
að leggja áhugafólki um söng hér á
landi lið með þjálfun, undirleik og
útsetningum. Hann eyddi starfsævi
sinni á Islandi, allt til dauðadags í
Leikbræður við píanóið hjá Gunnari Sigurgeirssyni píanóleikara sem
lék með þeim á hljómleikum í Gamla bíói í nóvember 1952. Myndin
er tekin þann dag á heimili Gunnars. Standandi f.v. eru Gunnar
Elnarsson l.tenór, Ástvaldur Magnússon 2. tenór, Torfi Magnússon
1. bassi og Friðjón Þórðarson 2. bassi. Gunnar lést árið 1970 og Torfi
á síðasta ári.
Leikbræður í dag, Friðjón Þórðarson, Gunnar Einarsson og Astvald-
ur Magnússon.
október 1989. Leikbræður nutu
krafta hans og fyrir nokkrum áram
ákváðu þeir að safna saman þeim
útsetningum sem hann lagði þeim til
í bók sem nú er komin út. Ber hún
heitið Söngbræðralög og hefur að
geyma 40 sönglög í kvartettsútsetn-
ingum við undirleik píanós.
Allt eru þetta lög sem flestir þekkja,
svo oft hafa þau verið sungin og
hljómað á öldum ljósvakans í gegn
um tíðina. Má nefna lögin „I Víði-
hlíð“, „Hanna litla“, „Oli lokbrá",
„Linditréð“, „Lítill fugl“, „Ég leitaði
blárra blóma“, „Ljósbrá", „Capri-
ljóð“, „Borgin við sæinn“, „Haf blik-
andi haf“, „Litla flugan“, „Drauma-
dísin“, o.fl. Lög af þessu tagi í söng-
kvartettsútsetningum hafa ekki fram
til þessa verið til í aðgengilegu formi.
Bókin verður til sölu í Tónstofunni
við Óðinstorg.
Ferðaviðtœki
Kjörin fermingargjöf.
Verö frö 6350,- kr.
SMrTH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMI 28300
COSPER
Þegar ég sagði þér að henda honum út, átti ég við um dyrn-
ar, ekki gluggann.
14Jeikvika - 6. apríl 1991
Röðin : XX1 -X22-111 -X21
HVERVANN ?
3.326.532- kr.
12 réttir: 1 röö kom fram og fær hver: 2.334.410 - kr.
11 réttir: 30 raðir komu fram og fær hver: 16.535 - kr.
10 réttir: 385 raöir komu fram og fær hver: 1.288 kr.
Röðin kostar 15 kr
í tilefni af því að
@ hefur
verið sýnt í l ár í
Háskólabíói við
geysilegar vinsældir
hefur framleiðandi
myndarinnar í
samvinnu við
ákveðið að bjóða
heppnum bíógesti ó
sýningu myndarinnar
[jjjmjgggjjl 9. apríl
kl. 20 í glæsilega
3ja vikna
PARADISARBIOW
PARADISARFERD
afíimb/
GIUSEPPE lORNATORE
Dregið verður úr
seldum miðum í
upphafi
sýningarinnar.
di'
PHILIPPE NOIRET JACQUES PERRIN