Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 09.04.1991, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991 €> 1990 Jim Unger/Distributed by Universal Press Syndicate ót'Sasíi i/inncjisej6arcLi þinn. /iit f&i cué í/itct (v/aé þii gc.ráhr</iémcKt&rpeningc**1^- /> Ást er... 3-13 ... að umbera fiðluleikinn. TM Reg. U.S. Pat Off. — all rights reserved ® 1991 LosAngeles Times Syndicate 3Í2 Ég gleymdi að setja á vara- tankinn, held ég ... HÖGNI HREKKVÍSI Að deyja heiðarlega Mér þykir tilhlýðilegt að þakka Halldóri Kristjánssyni frá Kirkju- bóli kveðjuna í Velvakandadálki 22. f.m. Það er ánægjulegt að nú getum við lagt pennann á hilluna út af frumvarpinu, sem stefndi að lækk- un á leyfilegum þúsundasta hluta áfengis í blóði ökumanns, en bein afleiðing samþykktar þess hefði orðið aukin óþarfa afskipti lögreglu af borgurunum. Ljóst er að þorra þingmanna hefur ekki þótt mál þetta eiga er- indi á Alþingi, því það var alls ekki tekið á dagskrá. Vonandi verða engir þeir kosnir á Alþingi í næstu þingkosningum, sem forheimska sig á því að taka svona firru upp aftur. Hitt þykir mér dapurlegt hve H. Kr. hlýtur að líða illa yfir því að sjá helst fyrir sér „drykkjumanna- dauða“ í sambandi við sum ástsæl- ustu ljóðskáld okkar. Líkt og það hy.fi verið það markverðasta sem minnast mætti í fari þeirra. Þessi hugsun um drykkjumannadauða þeirra, er auk þess að verulegu leyti úr lausu lofti gripin og óvíst að forsjónin hafi ætlað þessum bestu sonum þjóðarinnar. lengri lífdaga. Um það verður ekkert fullyrt, en afrek þeirra eru miklu meiri en alls fjölda þeirra manna, sem náðu hærri aldri og dóu „heiðarlega" að mati H. Kr. Það er engu líkara en að H. Kr. haldi að þeir væru sprell- lifandi í dag, ef þeir hefðu aldrei Besta jólagjöfin nun Til Velvakanda. Ég ft' búin að fá jólagjöfina mína í ár. Þannig er mál með vext.i, að kona nokktir, sem les fyrir sjúklinga á öldrunardeild B-5 á Borgarspítal- r.ittim, gaf mér óværta jólagjöf. Eg hafði rant um það við þessa ko.nu, að ég ltafi verið búiri að hjálpa börn- um i vanþróuðum löndum í 12 ár rneð því að sehda mánaðarlega greiðslu (i dag 1.300 kr.) bréf, myndir og gjafir sem allt hefur koinist til skila, og var þessi elsku- lega kona glöð að til væri leið að hiálpa þessum börnum á persónu- itgan hátt. Iiafði hún strax áhuga á að taka eitt barn að sér, og gerði hún sig, mig og vænl anlegt fóstur- A Svona eru Islendingar Um jólin skrifaði ég smá grein með fyrirsögninni „Besta jólagjöfin mín“. Með því vildi ég gefa fóiki tækifæri til að hjálpa börnum í vanþróuðum löndum á persónuleg- an hátt. Nú höfum við, sem hjálpum útlendingum, hins vegar orðið fyrir aðkasti fyrir það að hjálpa þeim frekar en íslendingum. En hvað getur fátækur íslendingur gert fyr- irþær 1.300 krónur sem við sendum mánaðarlega út með einu barni? Það er varla nóg fyrir nærfatnaði. En í útlöndum getur barnið fyrir 1.300 krónur gengið í skóla, fengið mat og læknishjálp. Það þýðir, að ég get bjargað einu mannslífi með 1.300 krónum á mánuði. Einfaldara getur drottinn ekki gert þetta fyrir okkur. Ég skil ekki svona hugsunarhátt hjá fólki hér, það er eitthvað svo ókristilegt og eigingjarnt við þetta. Hann Gústi guðsmaður frá Siglu- firði prédikaði ekki aðeins Guðs orð í góðu og vondu veðri. Hann hjálp- aði einnig 50 indíánum til að kom- ast í skóla. Samt varð þessi guð- hræddi maður fyrir aðkasti og háði allt sitt líf. Svona hugarástand hjá fólki hér er dapuriegt. í mesta lagi lætur það nokkrar krónur af hendi rakna einu sinni á ári, rétt fyrir jólin handa hungruðum heimi, og það er aðeins til að friða samvisk- una vegna allsnægtanna hér heima. Já, svona eru Islendingar. S.R. Haralds dreypt á guðaveigum. Dánarorsök þeirra er algjört aukaatriði og það magnaðasta er að þessir snillingar lifa í dag með íslensku þjóðinni, þrátt fyrir sinn umdeilda dauða. _ _ G.Þ. Þetta með eft- irlitið Til Velvakanda. Ökumaður spyr Ómar Smára lög- reglumann: Ómar, ég ias ágætis grein eftir þig í Mbl. fyrir fáum dögum um akstur á rauðu ljósi. Hvað hafa margir ökumenn verið teknir þar sem vantar beygjuljós á götuvita? Hvað margir á dag að jafn- aði? Nú hefur stefnuljósanotkun á bílum stórminnkað. Hver er sekt við því? I fréttum hefur verið sagt að nú ætti að herða eftirlit við gatna- mót og annars staðar til að draga úr keyrslu yfir á rauði ljósi. Ég spyr, hefur orðið aukning á mannafla hjá ykkur? Ég hringdi á föstudagskvöldi fyrir stuttu og spurði af hvetju ekki væru radarmælingar við Sæbraut eða undir brúnni við Bústaðaveg. Þá svaraði þreytuleg rödd að því miður væri enginn mannskapur til slíks og aðeins 3 bílar úti. Svo boðið þið hert eftirlit. Ég ek daglega marga kílómetra og sé aldrei lög- reglu við eftirlit. Því miður. Hins vegar sé ég að jafnaði 5—6 Ijót umferðarlagabrot á dag á þeim kafla sem ég ek. Og hvað þá um öll hin ljótu brotin sem framinæru hér af ökumönnum sem aka á eineygðum og óskoðuðum bílum á fantahraða án tillits til annarra. Ómar, það verð- ur að taka á þessu fyrr en síðar. Ökumaður Endursýna Elvis Ég ætla að biðju um endursýningu á þáttum Stöðvar 2 um Elvis Pres- ley sem hétu „Elvis og ég“. Eg er mikill Elvis-aðdáandi en ég missti af þessum þáttum sem sagðir voru mjög góðir. Mér þætti mjög vænt um það ef Stöð 2 gæti endursýnt þessa þætti. „Elvis Presley-aðdáandi" Víkverji skrifar Margir hafa haft orð á því við Víkvetja, að kosningabarátt- an fari hægt af stað og finnst hún hefjast síðar en áður. Þetta er mis- skilningur. Það er liðin tíð, að kosn- ingabarátta standi vikum og jafnvel mánuðum saman og fjölmiðlar, og þá ekki sízt dagblöð, séu fullir af kosningafréttum og áróðri. Þróunin hefur verið sú, að tími hinnar eigin- Iegu kosningabaráttu hefur stytzt og ljóst, að það eru fyrst og fremst síðustu tvær vikurnar fyrir kosning- ar, sem máli skipta. Stjórnmálaflokkarnir sjálfir hafa bersýnilega komizt að þeirri niður- stöðu, að löng kosningabarátta væri ekki endilega hagstæð fyrir þá. Það er einna helzt Alþýðubanda- lagið, sem hefur hafið kosningabar- áttuna fyrr en aðrir með bæklin- gaútgáfu og auglýsingum á vegum f'áðuneyta flokksins. Þetta hefur hins vegar haft neikvæð áhrif fyrir flokkinn, þar sem fólk lítur almennt svo á, að um misnotkun aðstöðu sé að ræða. xxx Talsmenn Sjálfstæðisflokksins eiga augljóslega í vandræðum með að svara spurningum um fisk- veiðistefnu flokksins. Samþykkt landsfundarins hefur ekki skapað frambjóðendum sterka stöðu til þess. Líklega er bezt fyrir frambjóð- endur Sjálfstæðisflokksins að segja eins og er: innan flokksins eru skoð- anir mjög skiptar um fiskveiðistefn- una. Þar er bæði að finna harða stuðningsmenn og eindregna and- stæðinga kvótakerfisins. Það mun augljóslega taka Sjálf- stæðisflokkinn nokkurn tíma enn að ná samstöðu um nýja fiskveiði- stefnu. En í því sambundi var þó athyglisvert að heyra Davíð Odds- son segja í sjónvarpinu í fyrradag, að ný fiskveiðistefnaþyrfti að viður- kenna á borði eignarrétt þjóðarinn- ar allrar að fiskimiðunum. Þetta er auðvitað kjarni málsins, hvernig svo sem að því verður staðið. Þeim, sem telja, að eitthvert endui-gjald eigi að koma fyrir fiskveiðiréttinn, leik- ur áreiðanlega forvitni á að vita frekar um þessar hugmyndir for- manns Sjálfstæðisflokksins. xxx Olafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, er fyrirferðarmikill í þessari kosn- ingabaráttu a.m.k. það, sem af er. Þeir sem muna kosningamar vorið 1987 minnast þess, að Olafur Ragn- ar fór þá einnig hratt yfír og rak allt öðru vísi kosningabaráttu í Reykjaneskjördæmi en Alþýðu- bandalagið gerði í öðrum kjördæm- um. Afrakstur hans var þá lítill, sem enginn. Reynslan sýnir, að honum er ýmislegt betur gefið en að afla atkvæða fyrir sjálfan sig eða flokk sinn. En hann er góður í línuritum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.