Morgunblaðið - 09.04.1991, Síða 22
2&
MORGUNBLAÐIÐ þRIÐJUPAGÍJR 9,; APRÍL )1991’
Framtíðin felst í
sjálfstæðisstefnunni
eftir Láru Margréti
Ragnarsdóttur
Á undanfömum árum höfum við
strítt við mjög erfitt efnahags-
ástand. Auðvitað er skýringin
margþætt en fullyrða má að ein
meginorsök þessa samdráttar hafi
verið staðnað hagkerfi sem ýtti
undir rangar og ómarkvissar fjár-
festingar í atvinnulífinu.
Nauðsyn á breyttri hagstjórn
Á stjómarárum sínum 1983-88
gerði Sjálfstæðisflokkurinn heið-
virðar tilraunir tii að ná fram nauð-
synlegum breytingum í átt að nú-
tíma efnahagsstjórn sem sam-
ræmdist þeirri stefnu sem ríkir í
nágrannaríkjum okkar. Þessar
breytingar áttu að búa í haginn
fyrir uppbyggingu atvinnulífs fram-
tíðarinnar. Fyrirsjáanlegt var að
ekki nægði eitt kjörtímabil til að
koma hagkerfinu á réttan kjöl og
skapa skilyrði fyrir markvissa já-
kvæða þróun.
Sjálfstæðisflokkurinn var á þessu
tímabili í samstarfi við Framsókn
og hagsmunir og völd Framsóknar
lágu í því að halda óbreyttu fyrir-
komulagi með tilheyrandi milli-
færslum og sjóðafargani. Slíkt kerfí
býður hins vegar ekki uppá fyrir-
hyggju og forsjá í uppbyggingu
fyrirtækja.
Spornað við eðlilegum
framgangi
Sjálfstæðisflokkurinn undir for-
ystu Þorsteins Pálssonar forsætis-
ráðherra studdi eindregið þá grund-
vallarstefnu að ekki skyldi auka við
sjóðafarganið. Eðlilegt væri að at-
vinnulífið fyndi sjálft lausn á þeim
vanda sem við blasti. Hlutverk ríkis-
ins væri að búa atvinnulífinu eðlileg
og heilbrigð rekstrarskilyrði. Auð-
vitað var slík stefna ógnun við hags-
muni Framsóknar og þeirra sem
áttu millifærslusjóðunum völd sín
að þakka og spornuðu þeir við hug-
myndum sjálfstæðismanna. Því fór
sem fór.
Hefur verið gengið til góðs?
— I skjóli hvers hreykja
menn sér?
Nú höfum við horft upp á hand-
verk ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonar í tæp þijú ár. Hvar
stöndum við eftir þann tíma? Ná-
kvæmlega í sömu sporum — nema
hvað þjóðin er skuldugri, skattar
hafa hækkað, kjör launafólks rýrn-
að verulega og hagvöxtur er eng-
inn. íslenskt hagkerfi á enn langt
í land til að verða sambærilegt við
það sem við sjáum hjá nágranna-
þjóðum, enda hafa núverandi
stjómarherrar ekki áhuga á að nýta
sér vestræna stjórnarhætti. Það
eina sem þessi ríkisstjórn getur
hreykt sér af er stöðugra verðlag.
SMIÐSBUD
bygginga vöruverslun
opnar í dag aftur á gamla staðnum,
í Smiðsbúð 8, Garðabæ.
OPNUNARTILBOÐ
1. Grenipanell= 12x95 á 650.00 pr. m2
2. Hvitt hilluefni, báöir kantar kantlímdir.
Stærðir 16/30, 16/40, 16/50 og 16/60, lengd 2,5m.
Verð aðeins kr. 560,-, 700,- 835,- og 970,- pr. plata.
3.„Gori” fúavörn>u^tL//pFf afsláttur,
nokkrir litir í 1,0 I, 2,5 I og 5,0 I
Ath. Þetta tilboð stendur út þessa viku.
Verslunin hefur mjög breytt um áherslur hvaö vörur snertir.
NÝJAR VÖRUR:
Mótatimbur, sperru- og píankaviður, steinull, spónarplötur,
loftaplötur, tjörutex, krossviöur, hilluefni plasth., pappi,
þakjárn, rennur o.m.fl. Verð eru sérleaa haastæð.
Gerið verðsamanburð — verðsamanburð
Trésmiðir — húsbyggjendur
Gerið timburpantanir ykkar með 1-2ja mánaða fyrirvara,
þá er tryggt að þið fáið réttar lengdir og stærðir og
jafnframt á lægra verði.
SMIÐSBUÐ
Smiðsbúð 8, Garðabæ, sími 91-656300. Fax. 91-656306.
Lára Margrét Ragnarsdóttir
„Á stjórnarárum sínum
1983-88 gerði Sjálf-
stæðisflokkurinn heið-
virðar tilraunir til að
ná fram nauðsynlegum
breytingum í átt að nú-
tíma efnahagsstjórn
sem samræmdist þeirri
stefnu sem ríkir í ná-
grannaríkjum okkar.“
En í skjóli hvers hreykja menn sér?
Jú, menn hreykja sér í skjóli at-
vinnulífsins sem tók verðlagsmálin
að stærstum hluta í sínar hendur
með þjóðarsáttinni. Sem sagt, eina
jákvæða sporið sem mætti hreykja
sér af á þessu tímabili var ekki ríkis-
stjórnarinnar heldur þess sem Sjálf-
stæðisflokkurinn hafði lagt til að-
leysti efnahagsvandann: atvinnu-
lífsins sjálfs. Hins vegar er það at-
hyglisvert að meðan á þjóðarsátt
hefur staðið hafa stjórnvöld ítrekað
átt frumkvæði að skatta- og verð-
hækkunum og þar með hækkandi
verðlagi.
Framsóknarmaddaman í
sjálfstæðiskápunni
Ríkisstjórnin hefur á undanförnu
ári fengið nægilegan umþóttun-
artíma tii að snúa þjóðarskútunni í
nýja og farsælli framtíðarstefnu.
Því miður hefur hún glutrað niður
þeim kostum sem þó var völ á eins
og nefndasvæfing álmálsins er gott
dæmi um. Það er kaldhæðnislegt,
en líklegast hefur éini vottur að
framtíðarsýn þessarar ríkisstjórnar
komið frá framtíðarnefnd forsætis-
ráðherra, sem nýverið skilaði af
sér, íklæddri sjálfstæðiskápu en
nefndin var auðvitað að meiri hluta
skipuð sjálfstæðismönnum. Fram-
tiðarhugmyndimar komu því ekki
frá Framsókn. Framhaldið að því
starfi hefur ekki gert vart við sig,
enda varla von á að hugmyndir sem
byggjast á fijálsu fmmkvæði verði
framkvæmdar í þessum herbúðum.
Afram með sjálfstæða
framtíðarþróun
Þjóðin á nú kost á að virkja aft-
ur það afl sem býr í því sjálfstæði
og frumkvæði sem fijálst atvinnulíf
og haftalaus stefna gefur.
Sjálfstæðisflokkurinn vill horfa
fram á við undir þessum formerkj-
um og taka markvissa stefnu að
uppbyggingu og eflingu atvinnulífs-
ins.
★ Við viljum halda áfram þar sem
frá var horfið og færa íslenskt hag-
kerfi áfram í átt að því sem við-
gengst í öðrum siðmenntuðum þjóð-
féiögum.
★ Viðviljumveitavaxandikynslóð
fjölbreytt tækifæri til að skreyta
sig og njóta þeirra kosta sem þjóð-
in í svo ríkum mæli hefur.
★ Við viljum veita stafandi kyn-
slóð tækifæri til þess að njóta hæfí-
leika sinna og þeirrar þekkingar
sem hún býr yfir.
★ Við viljum veita eldri kynslóð
samboðið ævikvöld með þeirri full-
vissu að þjóðin eigi sér bjarta fram-
tíð.
Framtíðin felst því í sjálfstæðis-
stefnunni.
Höfundur er hagfræðingur og
skipar 8-. sæti framboðslista
Sjáifstæðisflokksins í Reykjavík.
Fundir með fram-
bjóðendum haldnir
víðs vegar um land
Fundað á Vesturlandi í dag
Fundir með frambjóðendum
flokkanna verða haldnir víðs
vegar um land á næstunni. í dag
verða fundir á Vesturlandi og
á morgun auk þess í Reykjavík
og á Norðurlandi-eystra. Sam-
eiginlegir framboðsfundir
verða svo næstu daga í flestum
öðrum kjördæmum. Dagskrá
sjónvarps mun á næstunni einn-
ig bera þess merki að kosningar
eru í nánd.
Viðskiptafræðinemar við Há-
skóla íslands munu standa fyrir
fundi með frambjóðendum allra
flokka í Háskólabíói (sal 2) á
morgun og hefst hann kl. 12:15.
Á fimmtudag hefst framboðsfund-
ur í Norræna húsinu kl. 20:00 og
á sama tíma munu frambjóðendur
VINKLAR Á TRÉ
ÁRMÚLA29, SÍMI 38640
flokkanna mætast á fundi um
Evrópubandalagið í BSRB-húsinu
að Grettisgötu 89.
Á Vesturlandi verða fundir með
frambjóðendum í Breiðabliki á
Snæfellsnesi í dag kl. 14:00 og í
Ólafsvík kl. 20:30. Á morgun verð-
ur svo fundur í Stykkishólmi kl.
20:30.
Á Vestfjörðum hefjast fram-
boðsfundir næstkomandi fimmtu-
dag og verða þeir fyrstu í Árnesi
kl. 14:00 og í Hólmavík sama dag
kl. 20:30.
Á Dalvík verður fundur með
frambjóðendum á morgun og hefst
hann kl. 20:00.
Þá verður sameiginlegur fram-
boðsfundur á Vopnafirði næst-
komandi fimmtudag og hefst hann
kl. 20:30.
I Ríkissjónvarpinu verða þættir
tileinkaðir hveiju kjördæmi fram
að kosningum. I kvöld verður þátt-
ur um Vestfirði.
Á Stöð 2 hefjast n.k. föstudags-
kvöld þættir með flokksformönn-
um þeirra flokka sem samkvæmt
nýjustu skoðanakönnunum hafa
reynst með meira en 5% fylgi, þ.e.
Sjálfstæðisflokks, Aiþýðuflokks,
Alþýðubandalags, Framsóknar-
flokks og Samtaka um kvenna-
lista. ^,,, ,. ...