Morgunblaðið - 09.04.1991, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991
Bretland:
John Major g’agnrýndur
af eigin flokksmönnum
Forsætisráðherrann sagður óákveðinn o g sitja aðgerðalaus
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðslns.
JOHN Major, forsætisráðherra Breta, var gagnrýndur harkalega
af eigin flokksmönnum um helgina. Stuðningsmenn forsætisráð-
herrans hafa látið í ljós megna óánægju með þessar árásir.
í síðustu viku lýsti Margaret
Thatcher, fyrrum forsætisráð-
herra, yfir stuðningi við málstað
Kúrda í írak og hvatti til þess, að
þeim yrði send hjálp. Yfirlýsing
hennar var skilin sem árás á að-
gerðaleysi ríkisstjórnarinnar. Fá-
einum klukkustundum síðar lýsti
John Major yfir því, að hjálp yrði
send til Kúrda umsvifalaust.
Á ráðstefnu ungra íhaldsmanna
um helgina réðist formaður þeirra
harkalega að John Major fyrir
óákveðni og aðgerðaleysi og taldi
það slæm skipti að hafa ekki That-
cher lengur. Enoch Powell, fyrrum
þingmaður íhaldsflokksins, lýsti
hins vegar þeirri skoðun sinni að
Evrópustefna ríkisstjórnarinnar
væri í andstöðu við vilja þjóðarinn-
Moskva:
Deilt um skipun í em-
bætti lögreg’lustjóra
Moskvu. Reuter.
Innanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, Borís Pugo, hefur í annað
sinn komið í veg fyrir að skipað-
ur yrði nýr og lýðræðissinnaður
lögreglusljóri í Moskvu. Fyrir er
í embættinu harðlínukommúnisti
sem meirihluti borgarstjórnar,
þar sem lýðræðissinnar ráða
ríkjum, vill losna við.
Fulltrúi í borgarstjórninni sagði
í símaviðtali við Eeuíers-fréttastof-
una að líklega yrði gripið til þess
ráðs að setja á stofn nýja lögreglu-
stofnun í von um að liðsmenn núver-
andi löggæslu myndu ganga til liðs
við nýju stofnunina. Hann sagði að
Míkhaíl S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi
og Pugo gætu ekki komið í veg
fyrir þetta með neinum lögum. „Sé
Gorbatsjov ekki algert fífl efnir
hann ekki til slíkra átaka,“ sagði
borgarfulltrúinn, Míkhaíl Shneider.
Verkföll halda áfram í landinu
og kröfum um afsögn Gorbatsjovs
og allrar Sovétstjórnarinnar vex
fylg. Einn talsmanna verkfalls-
manna segir að Borís Jeltsín Rúss-
landsforseti sé nú eini maðurinn
sem gæti .stöðvað verkföllin með
áhrifum sínum, a.m.k. um hríð. í
gær bættust í hópinn verkamenn í
verksmiðju í Azerbajdzhan sem
framleiðir um 60% af tækjum sem
notuð eru við olíuvinnslu Sovét-
manna. Dick Cheney, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, telur mikl-
ar líkur á að Gorbatsjov verði hrak-
inn frá völdum á næstunni. Efna-
hagsumbætur virðist ekki ætla að
takast undir stjóm forsetans. Che-
ney hefur áður sagt að efnahags-
hrun í Sovétríkjunum gæti leitt til
borgarastyijaldar.
ar.
:1§tuðningsmenn nefskattsins
halda uppi hörðum vömum fyrir
þá meginreglu í fjáröflun sveitar-
félaga, að allir sem njóta þjónustu
þeirra, greiði til hennar. Þeir leggj-
ast gegn ýmsum hugmyndum
Michaels Heseltines, umhverfis-
málaráðherra, sem er fylgjandi því
að stærsti hluti nýs skatts til sveit-
arstjórna verði fasteignagjald.
John Major hefur verið gagn-
rýndur fyrir að vita ekki í hvorn
fótinn hann á að stíga vegna fyrir-
hugaðrar nýskipanar á tekjuöflun
breskra sveitarfélaga.
Stuðningsmenn Johns Majors
hafa látið í ljós megna óánægju
með þessar yfirlýsingar flokks-
manna. Þeir segja, að nauðsynlegt
sé að ráðfæra sig vandlega um
tekjuöflun sveitarfélaga, áður en
ákvörðun verður tekin um sam-
setningu hins nýja skatts. Sömu-
leiðis hafa þeir látið yfirlýsingar
Thatcher fara í taugarnar á sér,
segja að stuðningur við Kúrda
hafí verið í undirbúningi, þegar
hún gaf yfirlýsingu sína.
Reuter
Kúrdískur drengur frá Irak borðar skítuga brauðmylsnu á meðan
aðrir Kúrdar tína mylsnu af veginum við flóttamannabúðir við landa-
mæri Tyrklands að Irak. Brauðmylsnunni var sturtað úr vörubíl
eftir að brauðhleifum hafði verið dreift til svangra flóttamanna.
A
Uppreisnin gegn Saddam Hussein Iraksforseta:
Flóttamenn skýra frá fjölda-
aftökum í suðurhluta Iraks
Rúm milljón hrjáðra íraskra flóttamanna komin til írans og Tyrklands
Nikosíu. Reuter.
IRASKIR flóttamenn, sem komið hafa til Irans, hafa skýrt frá því
að íraskir hermenn hafi tekið fjölda manna af lífi í helgri borg
shíta, Najaf, í suðurhluta íraks og brennt heilu fjölskyldurnar lif-
andi í bænum Arbat í norðurhlutanum. Fjöldaflóttinn frá írak
hélt áfram í gær og voru þá hátt í 800.000 flóttamenn komnir til
írans og um 250.000 til Tyrklands.
íranska fréttastofan IRNA hafði
í gær eftir íröskum flóttamönnum
að hermenn írakshers hefðu tekið
4.000 shíta af lífi undanfarna tíu
daga í borgunpm Najaf og Talme
í suðurhluta íraks vegna andófs
gegn Saddam Hussein, forseta
landsins. Iranska sjónvarpið hafði
eftir flóttamanni að 45 fjölskyldur
í Arbat hefðu verið brenndar lifandi
á heimilum þeirra eftir að þær hefðu
verið sakaðar um samvinnu við
kúrdíska uppreisnarmenn.
Flóttamennirnir komu til bæjar-
ins Susangerd í Khuzestan-héraði
í íran á sunnudag og sögðu að her-
rríenn umkringdu enn heimili Abol-
qassem al-Khoei erkiklerks, eins af
helstu trúarleiðtogum shíta, í Naj-
af. Erkiklerkurinn er sagður vera í
stofufangelsi en áður hafði hann
komið fram í sjónvarpi með Saddam
Hussein og lýst yfir stuðningi við
forsetann.
Vahid Dastjeridi, yfirmaður
Rauða hálfmánans, sagði í gær að
búist væri við að um milljón íraskra
flóttamanna yrði komin til írans í
lok vikunnar og 1,5 milljónir síðar
í mánuðinum. Hann sagði að hjálp-
arstofnunin hefði sent allar birgðir
sínar til fjallahéraða í vesturhluta
landsins, þar sem flóttamennirnir
Geimfeijan Atlantis:
37 milljarða hnetti komið á braut
^ Kanaveralhöfða. Reuter.
ÁHOFNIN á bandarísku geimferjurvni Atlantis kom rannsóknar-
hnetti á braut um jörðu á sunnudag sem ætlað er að auðvelda
vísindamönnum að átta sig á upphafi alheimsins og hvar upp-
sprettur svokallaðra gammageisla er að finna.
Hnötturinn, sem komið var á
braut, kostar 617 milljónir doll-
ara eða jafnvirði 37 milljarða
ÍSK. Ekki gekk það átakalaust
að skjóta honum á braut úr vöru-
lest feijunnar, því íjarskiptaloft-
net hnattarins stóðu á sér. Urðu
tveir geimfaranna á Atlantis að
bregða sér útfyrir geimfarið og
gera við bilunina en eftir að því
var lokið gekk allt að óskum.
Það tók þá innan við klukku-
stund en fyrst þeir voru komnir
í geimgöngufötin var tækifærið
notað og þeir látnir gera tilraun-
ir í þijár stundir til viðbótar með
ýmiss konar tækjabúnað sem
ætlunin er að nota við samsetn-
ingu fyrirhugaðrar geimstöðvar.
Ekki hafði verið gert ráð fyrir
því að geimfararnir þyrftu að
fara út geimgöngu í þessari ferð
en fulltrúar bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar, NASA,
sögðu að hún hefði heppnast
mjög vel. Bandarískur geimfari
hefur ekki farið í geimgöngu frá
því 1985.
Reuter
Geimfarinn Jerry Ross fikrar sig að loftneti gervihnattar sem
skotið var á braut um jörðu á sunnudag úr bandarísku geimfeij-
unni Atlantis.
eru, og hvatti erlend ríki og hjálpar-
stofnanir til að senda tafarlaust
hjálpargögn til landsins. Flótta-
mennirnir þyrftu að minnsta kosti
150.000 tjöld og tvær milljónir
teppa vegna mikilla kulda í fjalla-
héruðunum.
Útvarpið í Teheran hafði eftir
flóttamönnum að allt að 100.000
írakar, sem væru á leiðinni til
landamæranna að íran, kynnu að
deyja af völdum hungurs og vosbúð-
ar. Um 200 manns, einkum börn,
hefðu látist á undanförnum dögum.
Flóttamenn hafa einnig beðið
bana vegna jarðsprengna frá stríði
írana og íraka, auk þess sein þyrl-
ur írakshers eru sagðar halda
áfram árásum sínum á varnarlausa
Kúrda.
Irönsk stjórnvöld eru gröm yfir
því að hjálpargögn hafa ekki enn
borist frá erlendum ríkjum og hjálp-
arstofnunum. Mun meiri birgðir
hafa verið sendar til Tyrklands,
þótt flóttamennirnir þar séu þrisvar
sinnum færri. íranir eru illa í stakk
búnir til að taka við öllum þessum
fjölda þar sem 500.000 íranir
misstu heimili sín af völdum land-
skjálfta nýlega, auk þess sem efna-
hagur landsins er enn í lamasessi
eftir átta ára stríð gegn írökum.
Bandarískar, breskar og fransk-
ar herflugvélar hafa flutt matvæli,
tjöld og svefnpoka til flóttamanna
við tyrknesku landamærin frá því
á sunnudag. Marlin Fitzwater, tals-
maður Bandaríkjaforseta, sagði að
flutningarnir kynnu að taka tíu
daga.
írösk stjórnvöld fordæmdu þessa
flutninga á sunnudag og sögðu þá
fáránlega þar sem þeir stuðluðu að
enn meiri flótta.