Morgunblaðið - 09.04.1991, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991
Morgunblaðið/KGA
ORYGGISSKOR — Fyrir nokkru var haldin kynning á veg-
um Dynjanda, þar sem sýnd var nýjasta framleiðsla franska fyrirtækis-
ins Jallatte á öiyggisskóm. Að sögn forsvarsmanna Dynjanda er Jall-
atte fyrsti framleiðandi öryggisskófatnar sem fær viðurkenningu skv.
staðli tækninéfndar Evrópu, en framleiðendur innan EB verða að hafa
fengið þessa viðurkenningu árið 1993; Fyrirtækið rekur verksmiðjur
í Frakklandi, Þýskalandi og á Spáni. Á myndinni eru Steindór Gunn-
laugsson sölustjóri Dynjanda og Coutenceau markaðsstjóri Jallatte.
Keflavíkurflugvöllur
Mikilvægt að fá staðfest
að gjöldin eru ekki of há
— segir Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða um athugun opinberr-
ar nefndar á afgreiðslugjöldum í Keflavík
EINAR Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir mikilvægt að opin-
ber nefnd hafi staðfest að afgreiðslugjöld á Keflavíkurflugvelli séu
ekki óeðlilega há. Nefndin, sem skipuð var af stjórnvöldum til að
gera tillögur varðandi flugafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli, hefur
lagt til að afgreiðsla í vöruflugi á Keflavíkurflugvelli verði gefin
frjáls. Jafnframt telur hún sýnt, að lendingar- og afgreiðslugjöld
séu ekki hærri en gengur og gerist í nágrannalöndunum.
Leiðrétting
I. GUÐMUNDSSON & Co. hf.
er íslenskur umboðsaðili fyrir Hexa-
glot tungumálatölvuna ’sem er ný-
komin á markað og inniheldur
íslensku auk fimm annarra tungu-
mála. í frétt Morgunblaðsins sem
birtist þriðjudaginn 26. mars sl. eru
upplýsingar úr fréttatiikynningu
Flugleiða þar sem segir að tungu-
málatölvan kosti tíu þúsund krónur
í verslunum í Reykjavík, en í flug-
búð Flugleiða í millilandaflugi fáist
hún á sérstöku kynningarverði fram
í miðjan apríl og kosti þannig 6.500
krónur. Haukur Backman hjá I.
Guðmundssyni vildi koma því á
framfæri að smásöluverð tungu-
málatölvunnar á íslandi væri 8.500
krónur miðað við tollgengi í mars sl.
Telur nefndin að vegna lítils
umfangs í vöruflugi megi ætla að
það þyrfti ekki að auka verulega á
starfsemi flugmálayfirvalda á vell-
inum. Gætu þau samið við Flugleið-
ir um að inna þjónustuna af hendi
gegn gjaldi sem ella væri gerð krafa
til þeirra um. Þá vill nefndin að því
verði komið á framfæri við Flugleið-
ir að félagið sníði gjaldtöku sína á
vellinum að flutningsmagni í stað
fastagjalds.
Einar sagði að gildandi samning-
ur, um einkaleyfisafgreiðslu Flug-
leiða á veilinum væri gerður til að
tryggja umferð árið um kring. „Ef
það er ætlun stjórnvalda að breyta
tekjuforsendum samningsins verður
annað hvort að skoða reksturinn frá
grunni eða fínna nýja tekjumögu-
leika því þær tekjur sem félagið
hefur haft af þessu hafa gengið til
að standa undir rekstrinum á vellin-
um. Það hefur verið tap á honum
á undanfömum árum og ef gerðar
verða breytingar verður jafnframt
að tryggja að reksturinn standi
undir sér,“ sagði Einar.
í nefndinni sátu; Árni Sigurðs-
son,_frá samgönguráðuneyti, Þröst-
ur Ólafsson, utanríkisráðuneyti og
Bolli Héðinsson, forsætisráðuneyti,
sem var formaður nefndarinnar.
Samkvæmt núverandi fyrir-
komulagi hafa Flugleiðir allan
nauðsynlegan búnað á vellinum til
að sinna eigin flugvélum og ann-
arra samkvæmt samningum þeirra
við flugmálayfirvöld. Hefur félagið
lagt í fjárfestingar í fasteignum,
vélum og tækjum til að sinna þessu
hlutverki. Kemur fram í skýrslu
nefndarinnar að flugvallarstjórinn
á Keflavíkurflugvelli telur að núver-
andi fyrirkomulag sé hagstætt þar
sem starfsmannafjölda hins opin-
bera á flugvellinum sé haldið í lág-
marki því Flugleiðir sinni störfum
við flugafgreiðslu sem alla jafna
eigi heima hjá opinberum flugvall-
arstjórnum, skv. kröfum Alþjóða
flugmálastofnunarinnar.
Nefndin skoðaði ýmsar leiðir sem
til álita voru og hafnar þeim kosti,
að gefa afgreiðslu í farþegaflugi
fijálsa. Telur hún að með því fyrir-
komulagi yrðu yfiivöld á Keflavík-
urflugvelli að taka sjálf að sér rekst-
ur flugstöðvarinnar, annast um-
ferðarstjórn á flugvélastæðum og
starfrækja þjónustudeildir fyrir
flugáhafnir.
„Þrátt fyrir að Flugleiðir haldi
sig við staðlaða samninga IATA um
tilhögun afgreiðslu vörulfutninga
og taki mið af tilhögun gjaldskrár
sem tíðkast á stærri flugvöllum (til-
tölulega hátt fastagjald án tillits til
flutningsmagns), hentar það fyrir-
komulag illa, þar sem aðilar með
lítinn flutning eiga hlut að máli.
Heppilegast væri, að fá Flugleiðir
til að sníða gjaldtökuna að því flutn-
ingsmagni sem fermt er eða af-
fermt, eins og kostur er, þó að
haldið yrði við hið staðlaða form
IATA - samningsins um afgreiðslu-
þætti. Utanríkisráðuneytið ætti að
koma þessum sjónarmiðum á fram-
færi við Flugleiðir hf.,“ segir í
skýrslunni.
Þá leggur nefndin til að lögum
og reglugerðum verði breytt þannig
að ekki þurfi nauðsynlega að tollaf-
greiða og tollskoða vöru sem flutt
er innsigluð í tollvörugeymslu í
Reykjavík til að forðast tvöfalda
tollafgreiðslu.
Lnmci
Selja ekki
ósvikið
Beaujolais
París. Reuter.
Helstu vínsalar í Ástralíu
hafa fallist á að selja ekki
Beaujolais-rauðvín, nema það
komi sannanlega frá sam-
nefndu héraði. Þar unnu fran-
skir vínbændur orustu í stríði
við erlend fyrirtæki sem
kenna framleiðslu sína við
fræg vínræktarhéruð í
Frakklandi.
Samkomulagið er sátt í máli
sem Vínsamband Beaujolais
höfðaði gegn 11 áströlskum fyr-
irtækjum. Frakkar hafa reynt
að ná svipuðu samkomulagi í
öðrum löndum. Nýlega tókst
þeim að fá japönsk fyrirtæki til
að hætta að flytja inn bandarískt
vín sem merkt er Chablis eða
Campagne. Því er haldið fram
að Bandaríkjamenn selji tuttugu
sinnum meira Chablis-hvítvín en
Frakkar.
í hugum Frakka er nafn
vínræktarhéraðs heiiagt mál.
Franskt vín má ekki kenna við
ræktunarhérað nema það upp-
fylli ströng skilyrði. Fylgja verð-
ur til hlítar aldagömlum aðferð-
um við framleiðslu og markaðs-
setningu. Beaujolais fertil dæm-
is á markað skömmu eftir upp-
skeru.
Lotus hugbúnaður
IBM á íslandi hefur tekið við umboði fyrir Lotus hugbúnað.
Það eru góðar fréttir fyrir LOTUS aðdáendur á íslandi og alla þá sem hafa gert sér
Ijóst að í heimi harðrar samkeppni skiptir sköpum að nota eingöngu bestu og
áreiðanlegustu atvinnutækin.
Lotus 1-2-3 töflureiknirinn er langvinsælasta
einmenningstölvuforrit heims og vinnur
árlega til helstu verðlauna sem veitt eru fyrir
notagildi og sveigjanleika. Notendur eru yfir
12 milljónir í 65 löndum.
Lotus Symphony er alhliða hugbúnaður sem
sameinar í eitt töflureikni, gagnagrunn,
ritvinnslu, og grafTk.
Lotus Magellan er hjálparforrit fyrir harða
diskinn. Með Magellan má skoða skrár úr
meira en þrjátíu vinsælustu forritum heims,
gera öryggisafrit, þjappa skrám til að auka
pláss á disknum og margt fleira.
Lotus Freelance er fádæma öflugt
framsetningarforrit, fyrir texta, tölur, myndir
og grafík. Omissandi verkfæri fyrir alla þá
sem vilja setja fram upplýsingar á skipulegan
hátt.
IBM á íslandi afréð að taka að sér umboð
fyrir Lotus hugbúnað að vandlega athuguðu
máli. Við hvetjum þig til að sýna sömu
kostgæfni þegar þú velur þér hugbúnað til
framtíðar.
Eftirtaldir aðilar munu annast sölu á Lotus
hugbúnaði fyrir IBM á íslandi.:
Kerfl hf.
Sameind hf.
Strengur, verk- og kerflsfræðistofa.
Tölvumyndir hf.
Örtölvutækni — Tölvukaup hf.
FYRST OG FREMSÍ
SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVÍK SÍMI 697700