Morgunblaðið - 09.04.1991, Side 35
MORGUNBLAÐl© MUOJUIMÖUK 9; APRIL 1991
35
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
IÐNAÐUR — Níels Hjaltason og Björn Ingi Björnsson formaður Meistarafélags kjötiðnaðarmanna.
Iðnaður
Verðfelling kjöts í sláturhús-
um nemur 35-50 millj. kr.
Mikil þörf á að slátrnn verði iðngrein
Selfossi.
MEISTARAFÉLAG kjötiðnaðarmanna vinnur að því að stjórnvöld
komi á fót aðstöðu til menntunar slátrara og bættri aðstöðu til
menntunar kjötiðnaðarmanna. Málaleitan félagsins hefur fengið
góðar undirtektir. Talið er að verkunargallar í sláturhúsum verð-
felli kjöt um sem nemur 35-50 milljónuin króna á ári, þar af 29
milljónum í sauðfjárslátrun.
Landbúnaður
Sala unninna mjólkur-
vara eykst en minnk-
ar í hefðbundnum
Hagnaður ársins um 37 milljónir
SALA á hefðbundnum mjólkurvörum hjá Mjólkursamsölunni drógst
saman um 0,9% á sl. ári en sala á sérunnum mjólkui-vörum jókst
um 11% frá fyrra ári og nemur söluvelta þeirra nú tæpum 30% af
heildarveltu injólkurvara, að því er fram kemur í frétta frá Mjólkurs-
amsölunni. Þar kemur einnig fram að afkoma MS liafi verið góð á
árinu 1990 sem rakið er aðallega til stöðugs verðlags og hagstæðrar
vaxta- og gengisþróunar.
Aðalfundur Meistarafélags kjöt-
iðnaðarmanna sem haldinn var í
nóvember á síðasta ári ályktaði um
nauðsyn menntunar slátrara. í
greinargerð með ályktuninni kemur
meðal annars fram að hér á landi
er aðeins starfandi einn menntaður
slátrari. Þar segir einnig að kunn-
átta og fagmennska varðandi rétt
vinnubrögð og hreinlæti skipti höf-
uðmáli við kjötframleiðslu. Félagið
leggur mikla áherslu á að komið
verði upp námi í slátrun og hún
gerð að iðngrein í nánum tengslum
við aðrar greinar matvælaiðnaðar-
ins.
„Það vantar alveg menntun í
slátrun og við viljum gera það starf
að iðngrein," sagði Björn Ingi
Björnsson formaður Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna. Hann sagði að
miklar kröfur væru gerðar til allra
aðila varðandi framleiðslu kjötvara
en slátrarinn sjálfur væri veiki
hlekkurinn í keðjunni þar sem ekki
væru gerðar neinar sérstakar fag-
kröfur til hans. Slátrarinn þyrfti að
fylgjast með flutningi gripanna í
Verðbréfaþing
Handsali
veitt aðild
STJÓRN Verðbréfaþings íslands
samþykkti á fundi í lok mars
aðild Handsals hf. að þinginu.
Einnig var samþykkt nýlega að-
ild Verðbréfamarkaðs Fjárfest-
ingarfélagsins hf. sem kemur í
stað Fjárfestingarfélags íslands
hf.
Fyrir nokkru fór fram stjórnarkjör
hjá Verðbréfaþingi og er núverandi
stjórn þannig skipuð: Eiríkur
Guðnason, Seðlabanka íslands,
formaður, Gunnar Helgi Hálfdanar-
son, Landsbréfum hf., varaformað-
ur, Vilborg Lofts, VÍB h'f., Jón
Snorri Snorrason, Kaupþingi hf.,
og Árni Vilhjálmsson, Háskóla ís-
land&.................
sláturhús, annast slátruniria sjálfa
og feril kjötsins í gegnum slátur-
húsið, alveg þar til kaupandinn,
vinnslustöðvarnar, tækju við því.
„Þessa grunnmenntun vantar inn
í matvælaframleiðsluna," sagði
Níels Hjaltason deildarstjóri gæða-
eftirlits Sláturfélags Suðurlands en
hann og Björn vinna að þessu máli
fyrir hönd stjórnar Meistarafélags-
ins.
Jákvæð svör um málið hafa bor-
ist frá menntamála-, heilbrigðis-,
iðnaðar-, og landbúnaðarráðuneyt-
inu varðandi þennan menntunarþátt
slátrara svo og frá öðrum aðilum
sem málið varðar. Þeir Björn og
Níels sögðu það reynslu frá öðrum
löndum að þar sem menntaðir slátr-
arar kæmu við sögu ykjust gæði
kjötsins til mikilla muna. Og mennt-
un slátrara væri hugsuð til þess að
mæta aukinni samkeppni í framt-
íðinni, ef til innflutnings kæmi á
kjötvörum. Þeir sögðu að stefnt
væri að því að koma kennslu í slátr-
uri inn í Iðnskólann í Reykjavík því
þar væru nú þegar kenndar greinar
sem nýttust slátrurum. Til að byija
með þyrfti að koma á námskeiðum
fyrir starfsfólk sláturhúsa. Einnig
þyrfti að ná samstarfi við erlenda
aðila um gerð kennsluefnis og þjálf-
un kennara. Þeir sögðust vonast til
að unnt yrði að koma á námskeiðum
fyrir næsta haust og að bókleg
kennsla í slátrun gæti orðið að veru-
leika 1992 miðað við þær góðu
undirtektir sem málið hefði fengið
hjá öllum þeim aðilum sem það
snerti.
Björn sagði- að með aukinni
menntun slátrara yrði meira horft
til gæða kjötsins en magnafkasta
eftir feril þess í gegnum slátur-
húsið. Hin mikla verðfelling sem
kæmi til vegna rangra vinnubragða
væri og hvetjandi í þessu efni fyrir
slátúrhúsin.
— Sig. Jóns.
Sala MS á hefðbundnum mjólkur-
vörum hefur verið svipuð eða um
30 milljón lítrar á ári sl. níu ár. Á
sama tíma hefur íslendingum fjölg-
að um 8,6% og íbúum á höfuðborg-
arsvæðinu um 15% Mestu munar á
neyslu nýmjólkur. Sala á léttmjólk
og undanrennu hefur á hinn bóginn
aukist jafn og þétt. Var rúmum 7
millj. lítra af léttmjólk pakkað í
fyrra en það er um 8,2% aukning
milli ára og hálum millj. líta af
undanrennu sem er 14,8% aukning.
Fram kemur einnig að mælingar
á vegum rannsóknarstofu MS sýni
að hitastig í mjólkurkælum sé of
hátt í sumum verslunum en það
geti spillt gæðum mjólkurafurða.
Þá kemur fram að mjólkurkælar
verslana þurfi víða að stækka þar
sem úrvala mjólkurvara hafi aukist
til muna undanfarin ár og verslanir
almennt orðið stærri að gólffleti en
áður.
MS sett alls 13 nýjar mjólkurvör-
ur á markað í fyrra eða svipaðan
flölda og undanfarin ár. Fram kem-
ur að aukin eftirspurn og fjölbreytt-
ara framboð geri það að verkum
að líftími hverrar nýrrar vöru verð-
ur stöðugt skemmri. Nýjungarnar
í fyrra voru 4 tegundir af skólajóg-
úrt, 2 tegundir af eðaljúgurt, smá-
máli, þykkmjólk og 2 nýjar gerðir
af ídífum.
Rekstrartekjur MS á sl. ári námu
alls um 4,3 milljörðum en rekstrar-
gjöld um 4,2 milljörðum, og eigin-
legur hagnaður ársins eftir skatta,
sem heitir „til ráðstöfunar" í árs-
reikningi MS, er um 37 milljónir á
móti um 45 millj. króna tapi á
síðasta ári. Heildar eignir MS eru
röskir 3 milljarðar og eigið fé alls
um 2,1 milljarður, þannig að eiginfj-
árhlutfallið er um 70% og veltufjár-
hlutfallið er um 1,35 samkvæmt
ársreikningnum. Þess bera að gæta
þegar þessar kennitölur eru skoðað-
ar að MS situr eitt að markaði
sínum.
Stjórnarformaður MS er Magnús
Sigurðsson í Birtingarholti en for-
stjóri er Guðlaugur Björgvinsson.
Hjólamarkadurinn
erbyrjaður!
Notud reiðhjól vantar
í umboðssölu.
SPORT|
MARKAÐURINN
SKIPHOLTI 50C, SÍMI 31290
(Nýja húsið gegnt Tónabíói)
Umbúðir og framtíðin
Ráðstefna um nýjar kröfur til umbúða
áð Höfða, Hótel Loftleiðum
fimmtudaginn 11. apríl kl. 13:15-16:15
DAGSKRA
Kl. 13:15 Ráðstelnan sett
Egí’erl Haukssun. stjórnarformadur
Plaslprents hf.
Kl. 13:25 General Outlook on Packaging
Development
Almenn þróun í umbúðamálum
Beni’t Lindberg, Emballage- ug
Transportinstitultel i Danmörku
Kl. 14:00 Legislation and Reguiation on Packaging
Products,
Environmental Aspects
Lög og reglugerðir um umbúðir m.t.t.
umhverfissjónarmiða
Bengt Lindberg. Emballoge- ug
Transpurtinstituttet í Danmörku
Kl. 14:30 Kaffihlé
Umbúðir á íslandi
Kl. 14:50 Hönnun umbúða
Kristin Þorkelsdóttir. AUK hf uuglýsingastofa
Kristinar
Kl. 15:15 Umbúðir og dreifing neysluvöru
Valdemar Gunnarsson. Umbúðaval bf.
Kl. 15:40 íslenskt fyrirtæki og umhverfisvernd
Jón Sch Thorsteinsson. Smjörlíki-Sól hf
Eftir hvert erindi gefst tækifæri til spurninga.
Ráðstefnustjóri: Eggert Huuksson. stjórnurforrnuður
Plastprents hf.
Þáfttaka tilkynnist til Félags íslenskra iðnrekenda
is. (91) 2-75-77.
Allar nánari uppiýsingar veittar á sama stad.
Þátttökugjald er kr. 4.500,-
&í
FELAG ISLENSKRA IÐNREKENDA