Morgunblaðið - 09.04.1991, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRIL 1991
39
Dönsk kvikmyndavika:
Vistaskipti á viðkvæmum aldri
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
ísbjarnadans („Lad isbjörnene
danse“). Sýnd á danskri kvik-
myndaviku í Háskólabiói. Leik-
stjórn og handrit: Birger Larsen.
Aðalhlutverk: Tommy Kenter,
Anders Schoubyea, Birthe Neu-
mann. Danmörk, 1990.
Danska myndin ísbjarnadans
segir frá ungum dreng sem upplifir
skilnað foreldra sinna og fiytur
ásamt móður sinni í nýtt og honum
áður ókunnugt umhverfi. Hann
missir tengsl við föður sinn í því
nýja hlutverki sem hann telur sig
hafa að gegna. En brátt koma
brestir í hið nýja líf og drengsi sér
að hann getur ekki orðið það sem
aðrir vilja að hann sé, hann verður
að vera hann sjálfur. Þaðan er hið
forvitnilega nafn myndarinnar
dregið; leyfið hveijum að vera eins
og hann vill og hefur eðli til.
Danskir kvikmyndagerðarmenn
hafa verið mjög uppteknir af
bemskuárunum i myndum sínum
og nægir að nefna Bille August og
Sören Kragh-Jacobsen í því sam-
bandi. Reyndar standast þeim fáir
snúning í þessum efnum, allt um-
hverfi og efniviður er brakandi ekta
og hinir ungu leikarara standa sig
undanteknigarlaust með mestri
prýði.
Þessi mynd er engin undantekn-
ing. Lærlingur Kragh-Jacobsens og
leikari í Sjáðu sæta nafla minn,
Birger Larsen, gerir ísbjarnadans
þar sem lýst er lífi ungs drengs,
Lasse, sem takast þarf á við alvöru
lífsins, jafnvel áður en hann er fær
um það. Hann þarf að velja og
hafna, reynir nýja sjálfsímynd en
verður ekki breytt. Myndin er könn-
unarleiðangur um veröld hans og
um það hvernig fallvaltur heimur
hinna fullorðnu getur komið niður
á börnum þeirra.
Larsen hefur gert hér einkar
hugljúfa og skemmtilega húmor-
íska mynd með réttum snert af
dönskum blús, söknuði og ljúfsárum
svipmyndum af heimilislífi sem síð-
BIODROGA
Lífrænarjurtasnyrtivörur
E*
Snyrtilínan án ilm og litarefna
fyrir allra viðkvæmustu húð.
iilODRO
0)
55
2
'5
Utsölustaðir:
Stello, Bankastræti 3,
Ingólfsapótek, Kringlunni,
Bró, laugavegi 72,
Gresika, Rauðarórstíg 27,
Lilja, Grenigrund 7, Akranesi,
Kaupfélag Skagfirðinga,
Kaupfélag Eyfirðinga,
Húsavíkurapótek,
, .V.eítn]cinmy.ioa[tójek,..
ar sundrast. Þetta er frumraun leik-
stjórans en það er lítill byrjenda-
bragur á myndinni sem var framlag
Dana til Óskarsverðlaunanna 1991.
Tímabiiið sem myndin gerist á
er í kringum 1960 þegar Elvis
Presley er í öllum grammafónum
landsins en Larsen er einkar lagið
að hverfa aftur í tímann og skapar
mjög sannfærandi veröld sem var
og gætir að öllum smáatriðum.
Mjög er vandað til verka hvort sem
það eru lýsingar á kennslustundun-
um fyrir 30 árum, sem Larsen
spaugar talsvert með, eða innan-
stokksmunir og klæðnaður.
En það eru líka tveir ólíkir heim-
ar í myndinni sjálfri sem skapa
sterkar andstæður í lífi drengsins.
Annarsvegar er verkamannaheimili
hans sjálfs þar sem hann býr við
mikla ástúð föður síns, lítil regla
er á hlutunum og faðirinn kippir
sér lítt upp við það þótt honum
gangi illa í skólanum. Hin veröldin
er á heimili moldríks tannlæknis,
brothætt og sótthreinsað menning-
arheimili þar sem Lasse lærir nýja
siði. Það er alls ekki fjandsamlegt
honum én hann veit og fínnur að
þarna á hann ekki heima.
Persónurnar allar eru ljóslifandi
í höndum góðs leikarahóps.
Þessar myndir eru í dag:
Árósar um nótt, Jeppi á fjalli og
Isbjarnadans.
Fimmtudaginn 11. aprfl kl. 20.30 í Félagsheimíli Kópavogs
m ■*
I U» ivvU v
V :||Í?:|IIÍ55
J ■ s i \ 'v:
N "" ' .
S s
' i '' . x't'ii'"
: ' ■
s v. Cs s s s s s s ss<.
\ \ S ' - 's I
:
mmmmmmmm
-'
::V :..: ■■•
a
4 ' '
x v
• ::Un
‘ ■' •■. ".<•. • N .
S' ,S í ''
•:.■:• ■ :■
•VvV:;:.
dóna Ösk
Guðjónadóttir
H |fV | 'I ' >
' '' ' O' ' „ „ N \ 's S SN
J:'' \
s '' ' s ' S" s ' ' • S ' '
' í\V"-' ' s' '". " ' ' ss X'-
' ' ' '' ' ' " ' *'' X "'
f % ♦ ♦ t ♦ / /
\Þao sKtptir mali nverjvr s\ tjornal
- + + •*«■*<. <-'+.<■-» V < 'V * S * * x ♦ •*• v + " •»