Morgunblaðið - 09.04.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991
41
MYND 2:
Tilhögun asparræktar J.G.O og Þ.H.J.
©ooooooooo
momomomomo
momomomomo
oooooooooo
momomomomo
oooooooooo
Gróðursetning: 2.500 plöntur/ha, plöntubil 2m
1. GRISJUN, höggvin önnur hver röð (merkt O)
1.250 trélha = 13 tonn/ha
2. GRISJUN, höggvin önnur hver röð (merkt ®)
625 tré/ha = 18 tonn/ha
LOKAHÖGG, höggvin 625 tré/ha (merkt •).
Verðmæti kr. 900 þús./ha
MYND 3:
Kostnaður við ræktun eins hektara
af ösp á flötu mýrlendi
Ár Kostnaðarliður Kr./ha
0 lllgresi eytt 12.500,00
0 Stungið græðlingum 10.000,00
2 Plöntum bætt inn í 5.000,00
2 Áburðargjöf 5.000,00
18 Áburðargjöf 5.000,00
25 Áburðarqjöf 5.000,00
Samtals Kr. 52.500,00
Gert er ráð fyrir að illgresi sé eytt í rákum með „Roundup“ úðað úr
handvirkri ördropadælu. Græðlingarnir eru 25-50 cm langir og stungið
beint í iandið. Notaðir eru 2.500 (tii 5.000) græðlingar á hektarann.
Græðlingunum er handstungið í kostnaðaráætlun, en vélstunga er
nokkuð hagkvæmari. Afköst við handstungu eru 2.000-3.000
græðlingar á mann á dag.
Á öðru ári er fjolpottaöspum bætt inn í þar sem drepist hefur. Gert er
ráð fyrir að fjölpottaplöntur og góðir græðlingar kosti kr. 2,50 stykkið.
Afköst við íplöntun eru um 800 plöntur á dag. Líkleg afföll eru inan við
15% ef græðlingum er stungið snemma vors eða síðla hausts.
Áburði er dreyft eftir íplöntun og báðar grisjanir. Gert er ráð fyrir
áburðarskammti sem nemur um 300 kg/ha af köfnunarefni og 50 kg/ha
af fosfór. Áburði verði dreyft af dráttarvél sem aki milli raða.
Öspin er grisjuð á 18. og 25. ári. Þá er hún vélskorin og tekin önnur
hver röð, þ.e 50% hvoru sinni. Gert er ráð fyrir að iðnviðurinn borgi
kostnað við grisjun að fullu. Þ.H.J. 1989
og komst að þeirri niðurstöðu, að
ársvöxtur lundarins væri um þær
mundir 43 m3/ha. Bestu asparlund-
ir i Danmörku hafa náð 30 mVha
ársvexti og í Hollandi um 35 mVha.
Verðuiy að fara til Suður-Frakk-
lands, Ítalíu eða Brasilíu til þess
að sjá sambærilegar tölur og í
Laugarási.
Svo sem flestum er kunnugt, er
Island á mörkum þess að vera heim-
skautaland. Þetta þýðir það, að lág-
lendi hériendis er nálægt skógar-
mörkum, ýmist nokkuð fyrir neðan
þau, eða ofan þeirra. Vegna ein-
angrunar landsins síðan að ísöld
leið, vex hér aðeins ein tijátegund,
sem myndar skóga. Þetta er birkið,
sem jafnvel hefur þraukað af ísald-
irnar og er meðal þeirra skóg-
aitijáa, sem minnstar kröfur gera
til sumarhita. Veðurfarssaman-
burður við ýmis norðlæg lönd eða
fjalllendi nokkuð suðlægari landa
sýnir, að hér geta margar aðrar
tijátegundir vaxið og þetta hefur
reynslan sannað. Á þessu sviði hef-
ur verið unnið mikið brautryðjenda-
starf sem seint verður fullþakkað.
Fyrsta alaskaöspin kom hingað
árið 1944 og var gróðursett í græði-
reit í Múlakoti í Fljótsdalshlíð, sem
þar hafði verið starfræktur um ára-
bil. Veðursældin í Múlakoti er
annáluð, og sennilega geta fáir
staðir hér á landi státað af henni
meiri. Þar undir berginu er mjög
skjólsælt, fijór jarðvegur pg frískur
jarðraki. Þessari fyrstu alaskaösp
var því ekki í kot vísað, enda þakk-
aði hún fyrir sig, með því að vaxa
betur en nokkur tré höfðu geii á
íslandi fram til þessa. Árið 1962
var öspin mæld, þá 18 ára. Meðal-
hæð var þá 11 m og meðalársvöxt-
ur 7,0 mVha eða 2,6 tonn/ha. Við
þessa mælingu verður að gera sama
fyrirvara og nefndur var hér að
framan, vegna smæðar lundarins.
Svo gerðist það í aprílhreti 1963
eftir langvarandi hlýindakafla, að
öspin stáféll í Múlakoti og á lág-
lendi undir 100 m h.y.s. víða um
Suður- og Suðvesturland. Þá um
haustið var sóttur nýr efniviður til
Alaska, sem líklegt þótti að þyldi
ámóta hret. Nú brá svo við, að upp
af rótarkerfi asparinnar í Múlakoti
uxu nýjar aspir, og þær uxu sem
aldrei fyrr. Þessi ösp var mæld
1989, og var þess getið að hér að
framan. Meðalhæð var þá 15 m við
25 ára aldur.
Niðurstaða þessara hugleiðinga
um vöxt asparinnar í Múlakoti er
sú, að mjög varhugavert sé að gera
ráð fyrir_ meiri meðalvexti í upp-
sveitum Árnessýsiu en 2 tonnum/ha
að hámarki og þá með góðri jarð-
vinnslu og áburðargjöf.
Til ræktunar hafa þeir félagar
ásamt samstarfsmönnum valið
nokkra einstaklinga úr nýja aspar-
safninu frá 1963, sem hafa vaxið
mjög vel. Ek,ki er ástæða til þess
að efast um. það, að vandað hafi
verið til þessa vals. Sagt var að
þessi efniviður hefði verið frostpróf-
aður og myndi standast hret eins
■og í apríl 1963. Vonandi er að svo
sé.
Um aspárrækt
Þar sem asparrækt er stunduð,
ekki bara á íslandi, heldur um allan
heim, er vitað að öspin gerir miklar
krþfur til fijósemi jarðvegs. Sú ösp,
sem hér er um að ræða, alaskaösp,
er sótt til staðar í Alaska, sem svip-
ar til íslands hvað veðurfar snertir.
Á þeim stöðum vex hún einkum á
áreyrum, en einnig á þurrari jarð-
vegi, þar sem skógareldar hafa
geisað. Alaskaöspin vex hvergi á
mýrum frekar en annar tijágróður
(svartgreni þó undanskilið), og á
þessum slóðum er hvergi framræst-
ar mýrar að finna. Þar sem þessi
ösp eða blendingar af henni eru
ræktaðir í Evrópu, er þeim jafnan
sjá bls 43
Ný myndbönd
með
íslenskum
texta
á myndbandaleigurnar í dag
CIC MYNDBÖND,
SÍMI679787
Aðalfundur
1 AA1 Slysavarnadeildin
lyy 1 Ingólfur, Reykjavík
Fundurinn verður haldinn 18. apríl næstkomandi.
Fundarstaður er skólaskipið Sæbjörg við Norðurgarð.
Fundurinn hefst kl. 20.00 stundvíslega.
Dagskrá fundarins mun liggja frammi
á skrifstofu Slysavamafélags Islands,
Grandagárði 14, félögum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Stjórn slysavarnadeildar Ingólfs.
HIN GEYSIVINSÆLU
FÖRÐUNARNÁMSKEIÐ
Kristínar Stefóns, snyrti- og förðunarfræðings,
byrja nú að nýju.
Kennd er dag- og kvöldförðun, litaval og það
nýjasta nýtt frd NO NAME „cosmeticks", ásamt
persónulegri tilsögn hvers og eins.
Ath. Loksins er boðið upp á upprifjunarnám. Tek
hópa, einkatíma, fyrirtæki, saumaklúbba o.s.frv.
Ef þú hefur áhuga á förðun, þá er þetta námskeið-
ið fyrir þig.
í tilefni af 5 ára starfsafmæli, fær hver þátttak-
andi óvæntan glaðning.
Innritun og nánari upplýsingar i
sima 26525 f rá kl. 9-17.