Morgunblaðið - 09.04.1991, Qupperneq 53
K"%$ftGUNBLAÐIÐ ÞBIDJUDAGUR19: AiPR,ÍL l‘J91
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . . ,
Vísnabók tapaðist
María hringdi og sagðist hafa
tapað merktri vísnabók sem hún
saknaði ákafiega. Hafi einhver
bókina undir höndum eða veit eitt-
hvað um afdrif hennar, vinsam-
lega hringi í síma 22871.
Tapaði myndavél
Guðlaug hringdi og sagði svo frá
að hún hefði tapað myndavél er
hún skemmti sér á árshátíð á
Holliday Inn ann 14. mars síðast
Iiðinn. Þetta var lítil sjálfvirk
Yashika vél í svörtu og rauðu
hulstri. Viti einhver um myndavél-
ina þá er Guðlaug í síma 78537
á kvöldin.
Fann úr
Seiko Kvars gullúr fannst í Huldu-
landi u.þ.b. 10. febrúar síðast lið-
inn. Erna í síma 32607 gefur
nánari upplýsingar.
Lítill högni á villigötum
Svartur 3 mánaða gamall högni
laumaðist að heiman frá sér á
annan í páskum. Litla flónið er
svart með hvíta bringu og loppur.
Það er ekki með hálsól. Heimili
kattarins er Fagrihjalli 8 og sím-
inn 642436.
Úr fannst
Sunnudaginn 17. mars fannst
úr við Meistaravelli. Úrið er stálúr
með svartri ól. Eigandi hringi í
síma 25412.
Viðurkenn-
ing sem
aldrei kom
Er ég leit yfir íþróttasíðuna í
Morgunblaðinu 12.mars 1991 las
ég þetta: Elsta metið frá 1962.
Það íslandsmet sem lengst hefur
staðið í flokki 15 til 18 ára er
orðið 29 ára gamalt. Er það met
Óskars Alfreðssonar í sveinaflokki
er hann stökk 3,27 metra í lang-
stökki án atrennu árið 1962.
Á sínum tíma var methafinn
langeygður eftir viðurkenningu
sem aldrei kom. Þetta er ekki til
að hvetja unglinga til íþróttaiðk-
ana. í því tilefni spyr ég: Hver á
að sjá um að afhenda og koma til
skila verðlaunum fyrir íþróttaaf-
rek?
Burt með ríkissósíalism-
ann úr sj ávarútveginum
Það var góð grein hjá Þorsteini
Má Baldvinssyni í Mbl. fyrir pásk-
ana. Ef ég veit rétt, þá er þetta
einn þeirra frænda á Akureyri sem
hófu útgerð í upphafi kvótakerfisins
og eru nú með eitt stöndugasta og
best rekna útgerðarfyrirtæki lands-
ins. Þeir hafa afsannað eins ræki-
iega og kostur er þá kenningu há-
skólakratanna, að ungir og dugandi
athafnamenn gætu ekki unnið sig
upp þó að takmarka þurfi afla með
kvótaskiptingu. Einmitt með fram-
sýni, skynsemi og hagkvæmni í
rekstri, hafa þeir sýnt fram á hvern-
ig íslenskur sjávarútvegur getur
blómstrað í höndum réttra manna,
þegar almennar leikreglur heil-
brigðs atvinnurekstrar eru virtar.
Þorsteinn bendir réttilega á að
síendurteknar skuldbreytingar og
lánafyrirgreiðsla úr opinberum
sjóðum og jafnvel gjafafé getur
ekki bjargað illa reknum fyrirtækj-
um nema um stundarsakir. Von-
lausum fyrirtækjum í sjávarútvegi
verður ekki bjargað lengur með
opinberri aðstoð. Það sjá jafnvel
framsóknarmenn eins og Ámi
Benediktsson, framkvæmdastjóri
SÍS-frystihúsa.
Aftur á móti sýnir Þorsteinn fram
á að fyrirtæki eins og Grandi eða
Útgerðarfélag Akureyringa, sem
hafa hagrætt í sínum rekstri og
tekið mið af aðstæðum, standa vel,
svo vel að almenningur í landinu
vill gjarnan eignast hlutafé í þeim.
Með því móti getur fólk á eðlilegan
hátt fjárfest í sjávarútvegsfyrir-
tækjum, sér og þjóðinni allri til
hagsbóta. En ríkissósíalisminn, eins
og kratamir boða, þar sem ríkið á
að skattleggja sjávarútveginn fyrst
til að geta dreift þeim tekjum út
aftur, gengur aldrei upp.
Brandur
NÚ GETAALLIR* SENT 0G MÓTTEKK) TELEFAXSKJÖL
Lítið, ódýrt og einfalt „FaxModem" sambyggt telefax og Modem fyrir aiiar tegundir tölva*
• Þú sendir Fax beint af skjánum til viðtakanda og
færð Fax-sendingar beint á skjáinn eða i minni
og prentar síðan út á venjulegan pappír.
• FaxModem gefur þér samband við gagnabanka
og gagnanet Pósts og síma.
• Hægt er að senda sama skjalið á marga
staði með fjölsendingu.
Innbyggð símaskrá.
Allar valmyndir á íslensku.
Gæði sendinga eru meiri þar sem skjal er sent
út milliliðalaust.
*(IBM PC/XT/AT/ TÖLVUR)
Heimilistæki hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI 69 15 00
'■samMÍttgum,
4±Vt*ЫR:
34*80.
SIEMENS-^aeð/
STÓRGLÆSILEG
NÝ ÞVOTTAVÉL
FRÁ SIEMENS!
Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun
og hönnun heimilistækja.
í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur í
gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið-
endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð
tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem
býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur
þekkst.
Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og
þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt
svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og
þann hámarkshita sem hann þolir.
Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina
í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er
í gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því
sem þvegið er.
Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns-
hripum heldur vatninu á stöðugri
hreyfingu og tryggir þannig jafnt
gegnumstreymi á vatni um
þvottinn. Þessi nýjung sér til
þess að þvotturinn fær bestu
hugsanlegu meðhöndlun.
SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og
óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er
mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upþlýst
stjórnborð. (tarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð
tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með.
Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar
og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa
endingu.
Gæði á gæði ofan frá SIEMENS
. -
SMITH & NORLAND >
SMITH & NORLAND l
Nóatúni 4, 105 Reykjavík. |
Ég vil gjarnan fá sendan bækling með nánari upplýsingum ,
um þessa athyglisverðu vél. i
i
I
Nafn
Heimilisfang j
________________________________________________________________________________ I
* I
SMITH&
NORLAND