Morgunblaðið - 09.04.1991, Síða 55
55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 1991
Frá vinstri: Helgi E. Kristjánsson, skólastjóri Tónlistarskólans, sr.
Friðrik J. Hjartar, sóknarprestur, og Kristín Kjartansdóttir, aðstoð-
armaður við sunnudagaskólann.
Ólafsvík:
Blómlegt safnaðarlíf
Ólafsvik. °
af öllum þessum sakargiftum.
Fallið er frá ákæru á hendur
Ragnari og Björgólfi, sem ásamt
starfsmanni Hafskips voru ákærðir
fyrir skilasvik í viðskiptum við
Reykvíska endurtryggingu síðustu
vikur fyrir gjaldþrot Hafskips. Þá
er, auk ákæru um ofmat skipastóls-
ins, fallið frá nokkrum liðum í þeim
kafla ákaérunnar þar sem fjallað
er um ársreikning Hafskips 1984.
Þar var Hafskipsmönnum gefið að
sök að hafa oftalið eignir og vantal-
ið skuldir félagsins um samtals 16
milljónir króna.
Páll Amór Pálsson, sérstakur
saksóknari, sagði ekki rétt að túlka
breytingar á ákærunni, eftir að lýst
hafði verið yfir áfrýjun á þann veg
að ákæruvaldið væri að draga enn
í land. „Þetta er hluti af áfrýjun-
inni. Það er fyrst áfrýjað gagnvart
ákveðnum mönnum og síðan er
þetta nánari útfærsla á áfrýjun-
inni,“ sagði hann.
„Ákæruvaldið er að minnsta
kosti búið að átta sig á því að þess-
ir kaflar ákærunnar hafa ekkert
hald,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugs-
son, hrl., þegar hann var spurður
hvernig hann túlkaði þessar breyt-
ingar á ákærunni. „Óneitanlega
hefði verið betra að það hefði áttað
sig á þessu áður en málið var höfð-
að í upphafi en hins vegar vantar
enn mikið á skilning ákæruvaldsins
á þessu máli. Að mínu áliti hefði
alveg átt að sleppa þessari áfrýjun."
Takist ekki að ljúka málflutningi
fyrir 19. apríl verður honum lokið
á síðustu dögum aprílmánaðar og
má því vænta endanlegrar dómsnið-
urstöðu snemma í sumar um öll þau
mál sem tengd hafa verið gjald-
þroti Hafskips, 6. desember 1985.
Prestsembætti
auglýst laust
til umsóknar
BISKUP íslands hefur auglýst
eftirtalin prestaköll og prestsem-
bætti laus til umsóknar:
Norðljarðarprestakall í Aust-
fjarðarprófastsdæmi. Séra Svavar
Stefánsson, fráfarandi sóknarprest-
ur hefur fengið veitingu fyrír Þor-
lákshafnarprestakall.
Langholtsprestakall í Reykjavík-
urprófastsdæmi vestra. Séra Sig-
urður Haukur Guðjónsson sóknar-
prestur hefur fengið lausn frá emb-
ætti frá 1. júlí nk.
Patreksfjarðarprestakall í Barða-
strandaprófastsdæmi. Sóknarprest-
urinn, séra Sigurður Jónsson, hefur
fengið veitingu fyrir Oddapresta-
kalli.
Tálknafjarðarprestakall í Barðá-
strandarprófastsdæmi.
Þá er auglýst til umsóknar hálf
staða aðstoðarprests í Ábæjarpre-
stakalli og í Seljaprestakalli í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra.
Einnig eru auglýstar tvær stöður
farpresta sem munu þjóna sem hér-.
aðsprestar eftir ákvæðum laga um
starfsmenn þjóðkirkjunnar sem
samþykkt voru á síðasta ári. Hér-
aðsprestur mun annast afleysingar
og sinna sameiginlegum verkefnum
á vegum prófastsdæmisins. Far-
prestsembættin sem nú eru auglýst
eru annars vegar í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi, eystra og vestra, hins
vegar í Kjalarnesprófastsdæmi.
Umsóknarfrestur um embættin
sem nú eru auglýst er til 1. maí
næstkomandi.
■ Á PÚLSINUM þriðjudaginn 9.
apríl verður djass- og blúshljóm-
sveitin KK-band með tónleika, þá
5. í röðinni, en tilraun til að gera
þriðjudagskvöld að föstum lið í
menningar- og borgarlífi Reykja-
víkur hefur gengið bærilega. Ekki
er ólíklegt að einhver góður gestur
skjóti upp kollinum á sviðinu með
þeim félögum þó ekki sé vitað nú
sem stendur hver það verður. Mið-
vikudaginn 10. apríl heldur svo
Kabarett 2007 tónleika.
SAFNAÐARLÍF stendur með
miklum blóma í Ólafsvík undir
handleiðslu sóknarprestsins sr.
Friðriks J. Hjartar.
Til dæmis er sunnudagaskólinn
mjög vel sóttur. Við það starf seg-
ist sr. Friðrik vera vel studdur af
áhugafólki. - Helgi
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Það eru jafnt ungir sem aldnir
sem sækja guðsþjónustur.
Nýr greiðslu-
dagur bóta
almanna- «•
trygginga.
FRÁ OG með júnímánuði nk.
verða bætur almannatrygginga
greiddar 3. dag hvers mánaðar
i stað 10. hvers mánaðar eins og
verið hefur. Eftir sem áður eru
bætur greiddar fyrirfram. Þann-
ig verða bætur fyrir júní greidd-
ar út 3. júní.
Þessi breytta tilhögun er ákveðin
í samráði fjármálaráðuneytis, heil-
brigðisráðuneytis og bankastoftr-—
ana. 3. dagur mánaðarins er m.a.
valinn til að reyna að forðast það
mikla álag sem er hjá öllum bönkum
um sjálf mánaðamótin.
Óskir um breytingu í þessa átt
hafa komið víða að t.d. frá Öryrkja-
bandalagi íslands og samtökum
aldraðra. Er niðurstaðan fengin í
samráði við fulltrúa þessa hópa.
(Fréttatilkynning)
ÞJOÐARSATTIN
ENDURGREIDD
Frjálslyndir hafa mótað tillögur um breytt staðgreiðslu-
kerfi tekjuskatts, sem gerir ráð fyrir breytilegum
persónuafslætti.
Skattleysismörk hækka í 90.000 krónur á mánuði, og
þeir sem hafa tekjur innan við 150.000 krónur á mánuði
greiða minni tekjuskatt, en í núverandi kerfi.
Með kerfi Frjálslyndra eru, að hluta til, endurgreiddar
þær fórnir sem þjóðarsáttin lagði á þá sem lægst hafa
launin.
FRJÁLSLYNDIR
fyrir fólk
Ef þú vilt vita meira um þetta skattkerfi eða önnur
stefnumál Frjálslyndra, hafðu þá samband við
kosningaskrifstofur okkar, eða óskaðu eftir að
frambjóðendur heimsæki vinnustað þinn.
ATKVÆÐI GREITT F-LISTANUM ER ATKVÆÐI GREITT SJÁLFUM ÞÉR