Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 82. tbl. 79. árg. FOSTUDAGUR 12. APRIL 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Verkföllum frestað í Hvíta Rússlandi: Viðræðum heitið um kröfur verkamanna Minsk. Reuter. VERKFALLSMENN í Hvíta Rússlandi ákváðu í gær að snúa aftur til vinnu en þá höfðu yfirvöld fallist á að taka upp viðræður um efnahagslegar og pólitískar kröfur þeirra, meðal annars um af- sagnir sumra ráðamanna í lýðveldinu og minni áhrif Kommúnista- flokksins. í Georgíu voru verkföll í gær í þeim starfsgreinum, sem stjórnað er beint frá Moskvu, meðal annars var allt járnbrautakerf- ið lamað. Yfirvöld í Hvita Rússlandi skrif- uðu i gær undir samkomulag um viðræður við verkfallsmenn og eiga þær að hefjast í dag. Var upphaflega boðað til verkfallanna til að mótmæla miklum verðhækk- unum á lífsnauðsynjum en síðan bættust við kröfur um afsögn Míkhaíls Gorbatsjovs forseta, ríkisstjómar Hvíta Rússlands og nýrra kosninga til sovéska þings- ins. Þá var þess einnig krafist, að allar flokkssellur, á vinnustöðum og innan lögreglunnar, yrðu lagð- ar niður og gífurlegar eignir Kornmúnistaflokksins þjóðnýttar. í Georgíu voru mikil verkföll í gær í þeim atvinnugreinum, sem er stjórnað frá Moskvu, og það voru ráðamenn lýðveldisins, sem stóðu fyrir því en þeir lýstu yfir sjálfstæði Georgíu nú í vikunni. Með verkföllunum vilja þeir knýja á um brottflutning sovéska hersins frá Suður-Ossetíu, sjálfstjórnar- svæði, sem Georgíumenn gera til- kall til þótt það sé byggt fólki af öðrum uppruna. Var járnbrautar- kerfið lamað vegna verkfallanna og engir flutningar til eða frá kola- og olíuframleiðslusvæðunum við Svartahaf. Sagði Zviad Gams- akhurdia, forseti Georgíu, að í raun ríkti stríðsástand í ríkinu og bað fólk um að búa sig undir „að- Baker reyn- ir að semja við Assad Damaskus. Reuter. JAMES BAKER utanríkisráð- herra Bandaríkjanna reyndi í gær að fá Hafez al-Assad Sýrlandsfor- seta til að fallast á að ganga til svæðisbundinnar ráðstefnu til að reyna að ná sáttum í deilumálum í Miðausturlöndum. Búist var við að fundur Bakers og Assads myndi standa langt fram á nótt og að þeir myndu skýra frá niðurstöðum viðræðnanna í dag. I gær hlaut Baker góðar undirtektir við tillögur sínar frá Saudi-Aröbum og Egyptar sögðu þær mikilsverðar. Eftir hálfrar annarrar klukkustundar fund Bakers og Hosni Mubaraks Egyptalandsforseta sagði háttsettur egypskur embættismaður að Banda- ríkjamönnum væri greinilega mjög áfram um að koma friðarsáttmála vegna deilna ísraelaog araba í höfn. " Af grannríkjum ísraels hafa Sýr- lendingar verið taldir einna fastastir fyrir gegn hugmyndinni um svæðis- bundna ráðstefnu. Málgagn stjórnar- innar í Damaskus sagði í gær, að Sýrlendingar myndu ekki sætta sig við neitt annað en að allar ályktanir Sameinuðu þjóðanna um deilur Isra- ela og araba yrðu uppfylltar. gerðir" Moskvustjórnarinnar. Hundruð þúsunda námamanna, alit frá landamærunum við Pólland í vestri og austur til Síberíu, hafa verið í verkfalli í nokkrar vikur og verða afleiðingar þess fyrir efnahagslífið alvarlegri með degi hveijum. Hefur Gorbatsjov lagt fyrir Sambandsráðið „neyðaráætl- un“ um aðgerðir í efnahagsmálum en samkvæmt henni verður komið- á markaðskerfi í Sovétríkjunum með valdboði og verkföll bönnuð í eitt ár. Eru taldar nokkrar líkur á, að hann geti náð samkomuiagi um hana við helsta andstæðing sinn, Borís Jeltsín, forseta Rúss- lands. Reuter Kona úr röðum íraskra Kúrda heldur á líki fimm mánaða gamallar dótturdóttur sinnar í flóttamanna- búðunum við Isikveren í fjallahéruðum á landamærum íraks og Tyrklands í gær. Barnið dó úr kulda en hundruð kúrdískra flóttamanna hafa dáið úr vosbúð undanfarna daga í fjallahéruðum í norðurhluta Iraks. Fréttamaður BBC lýsir bardögum í norðurhluta íraks: Kúrdar hafa betur gegn stórskotaliði írakshers Nikósíu, Ankara, Boston, Washington. Reuter. FRÉTTAMAÐUR RBC-útvarpsins, sem ferðast með Kúrdum í norður- hluta Iraks, sagði í gær, að til harðra bardaga hefði komið milli stór- skotaliðssveita Saddams Husseins íraksforseta og uppreisnarmanna norður af borginni Salahuddin, sem er skammt frá írönsku landamærun- um. Hefðu uppreisnarmenn farið með sigur af hólmi, því eftir nok- kurra klukkustunda bardaga hefði stjórnarherinn liörfað. Hefði tals- vert mannfall orðið í liði stjórnarhersins og á flóttanum hefðu sveitirn- ar skilið eftir fjölda skriðdreka og brynvagna í ljósum logum. Að sögn fréttamanns BBC sótti stórskotasveit stjórnarhersins í átt til borgarinnar í dögun en var á end- anum neydd til að hörfa. Árásin er gerð í trássi við viðvaranir Banda- ríkjastjórnar til íraka um að fara ekki með vopnum gegn Kúrdum norðan 36. breiddargráðu. Talsmenn Kúrda í Sýrlandi sögðu fyrr í gær, að íraski stjórnarherinn hefði ráðist með skriðdrekum, þyrl- um og stórskotaliðsvopnum á flótta- mannabúðir í nágrenni borgarinnar Irbil, sem er 30 km norðan við 36. breiddarbaug. Talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins sagðist ekki geta staðfest þessar fullyrðingar en sagði hins vegar í gærkvöldi, að harðir bardagar hefðu verið háðir í gær í nágrenni olíuborgarinnar Kirkuk. Einnig hefði komið til lítils háttar bardaga miili uppreisnar- manna og sveita stjórnarhersins í Mannskæð ásigling Reuter Um 140 manns drukknuðu eða urðu eldsvoða að bráð eftir ásiglingu farþegafeiju á olíuskip undan borg- inni Livorno á Ítalíu í fyrrinótt. Tankskipið lá við festar í svartaþoku er slysið varð og mun aðeins einn hafa komist undan af þeim sem um borð voru. Þá varð sprenging í stóru tanskipi í gær undan Genúa og var óttast að þar væri gífurlegt mengunarslys í uppsiglingu. Sjá „Breyttist í logandi víti á svipstundu" á bls. 27. suðurhluta íraks. George Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkjamenn og Evrópumenn væru samstiga í því að koma kúrdískum flóttamönnum í suðurhluta Tyrklands og norðurhluta íraks til hjálpar og hefði í því skyni verið hrundið af stað mestu loftbrú með neyðaraðstoð í áratugi. Væri henni ætlað að sjá 700.000 manns fyrir matvælum, fatnaði og skjóli í 30 daga. I'TSttamenn BBC og breska sjón- varpsins ITN sem eru í norðurhluta Iraks sögðu aðbúnað flóttamanna hörmulegan. Þúsundir hefðu dáið úr vosbúð eða hungri og tugþúsundir flóttamanna væru það hijáðir að ekkert biði þeirra nema dauðinn bærist ekki mikil og tafarlaus neyð- araðstoð. Bandaríkjastjórn hefur sætt vax- andi gagnrýni fyrir að koma Kúrdum ekki til hjálpar en þeir segjast hafa risið upp gegn Saddam að áskorun Bush. Tyrkneskur ráðherra sagði í gær, að meðan leiðtogar á Vestur- löndum liðu sálarkvöl vegna hör- munga flóttafólksins gleymdu þeir hveijar væru rætur vandans; valda- seta Saddams og útrýmingarherferð hans og nauðungarflutningar. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) lýsti formlega yfir vopnahléi í Persaflóastríðinu í gærkvöldi þar sem staðfesting hafði borist frá írök- um þess efnis að þeir gengju að vopnahlésskilmálum, sem áður höfðu verið settir. Sjá „Mikið mannfall á leið um jarðsprengjubelti á landamær- unum“ á bls. 26.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.