Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 33
/ MÖR'tíUN'BLÁÐIÐ 'PÖSÍUÐAGUÉ 12: APáÍL 1991 33 Mikil vinna hjá Kaldbak: Mannskapurinn furðu bratt- ur eftir þetta langa vinnutöm - Segir Hrafnhildur Askelsdóttir verkstjóri MIKIL vinna liefur verið í frystihúsi Kaldbaks hf. á Grenivík allt frá því vinnsla hófst þar upp úr niiðjum janúar. Unnið var í húsinu í tvo daga um páskana og hafa krakkar úr skólanum unnið sér inn vasapeninga með vinnu í frystihúsinu um helgar. Togarinn Frosti ÞH er bilaður í slipp, en hráefni fæst af trillum og á fisk- mörkuðum. Starfsfólkið vonar þó að frí verði um þessa helgi svo það geti notið veðurblíðunnar. Morgunblaðið/Rúnar Þór Sigríður Stefánsdóttir forseti bæjarsljórnar Akureyrar og Sigmund- ur Þórisson formaður KA tóku fyrstu skóflustunguna að nýju íþrótta- húsi, sem reist verður á félagssvæði KA. Hrafnhildur Áskelsdóttir verk- stjóri í frystihúsinu sagði að allt frá því vinnsla fór í gang uppúr miðjum janúar hefði mikil vinna verið í húsinu, iðulega unnið í tíu tíma á dag og um helgar jafnvel líka. Starfsfólkið vann til að mynda á skírdag og síðan hófst vinna aftur á annan í páskum, þannig að páskafríið var stutt. „Við erum að gæla við að það verði frí hjá okkur á laugardag- inn,“ sagði Hrafnhildur. Togarinn Frosti ÞH er bilaður og er í slipp á Akureyri, en hann landaði rúmum 100 tonnum í síðustu viku og var lokið við að vinna aflann í frystihúsinu í gær. „Við höfum allar klær úti við að Félagssvæði KA: Bygging íþróttahúss að hefjast FYRSTA skóflustungan að nýju íþróttahúsi sem reist verður á félagssvæði Knattspyrnufélags Akureyrar, KA, var tekin fyrir skömmu, en félagið hefur tekið að sér að reisa húsið á grund- velli rammasamnings um sam- starf á milli þess og Akureyrar- bæjar. Það voru þau Sigríður Stefáns- dóttir forseti bæjarstjórnar Akur- Vortónleikar strengja- deildar Tónlistarskólans Síðari vortónleikar strengja- ur á fiðlu, lágfiðlu, selló og deildar Tónlistarskólans á Akur- kontrabassa, fjölbreytta efnis- eyri verða á morgun, laugardag- skrá, m.a. verk eftir Hándel, inn 13. apríl, í Safnaðarheimili Bach, Fauré, Wienawsky, Lalo Akureyrarkirkju og hefjast þeir og Oliver Kentish. kl. 15.00. Þar leika eldri nemend- eyrar og Sigmundur Þórisson for- maður KA sem sameinuðust um að taka fyrstu skóflustunguna að húsinu. Stærð þess verður 1.740 fermetrar auk tengibyggingar þannig að heildarstærð þess verð- ur um 2.500 fermetrar. Áætlaður byggingarkostnaður er tæplega 150 milljónir króna og tekur Ákur- eyrarbær þátt í kostnaði við 2.200 fermetra en hlutdeild bæjarins er 75% þannig að um 110 milljónir króna verða greiddar af bænum. Framkvæmdum við byggingu íþróttahússins verður hraðað sem kostur er og er áætlað að taka það í notkun fyrir 1. október næst- komandi. Búsetukönnun í Eyjafirði: Atvinna og launakjör aðal- ástæða búseturöskunar Ibúar á Akureyri og- Svalbarðseyri telja sig búa á láglaunasvæði ÍBÚAR á Akureyri og Svalbarðseyri eru sammála um að þeir búi á láglaunasvæði, en aðeins 5% íbúa þessara staða telja að laun í þeirra sveitarfélagi séu góð samanborið við aðra staði. íbúar þessara staða eru einnig sammála því að næg atvinna sé ekki í boði. Þetta kemur fram í búsetukönnun sem nemar á fjórða ári á félagsfræðibraut Menntaskólans á Akureyri gerðu í nóvember og desember síðastliðn- um, en niðurstöður hennar liggja nú fyrir. Könnunin náði til íbúa á þéttbýlisstöðum við Eyjafjörð, alls sjö talsins, Akureyrar, Dalvíkur, Olafsfjarðar, Hauganess, Árskógssands, Grenivíkur og Svalbarðs- eyrar. Þeir sem í úrtakinu lentu voru m.a. spurðir um skoðanir á atvinnumálum og kjörum. í niðurstöðunum kemur fram að langflestir telja atvinnu- og launa- kjör aðalástæðu þeirrar búseturösk- unar sem orðið hefur í landinu und- anfarinn áratug og töldu t.d. 86% Akureyringa það meginástæðuna, um 80% Dalvíkinga og íbúa Hauga- ness og Árskógssands og 92% Gren- víkinga. Þegar spurt var hvort fólk teldi næga atvinnu í boði á staðn- um, kom í ljós að Grenvíkingar og Dalvíkingar eru nokkuð einhuga um að þar sé nóg að gera, en aftur á móti var það samdóma álit Akur- eyringa og Svalbarðseyringa að þar sé ekki nóg atvinna, en 16% þeirra sem spurðir voru á Akureyri töidu næga vinnu í boði. Þegar spurt var hvort fólki þættu laun á staðnum góð í samanburði við aðra staði varð niðurstaðan sú að almennt þótti þátttakendum grasið grænna handan við lækinn. Helst voru það íbúar á Hauganesi og Árskógssandi og í Ólafsfirði eða röskur þriðjungur sem voru ánægð- ir með sinn hlut, en einnig kom fram i könnuninni þegar spurt var um lífskjör og vinnutíma, að vinnu- tími manna á útgerðarstöðunum var afla okkur hráefnis," sagði Hrafn- hildur, en m.a. hafa trillurnar fengið þokkalegan afla þegar gef- ið hefur á sjó og eins hafa þeir Grenvíkingar keypt fisk á Fisk- markaðnum á Dalvík og jafnvel hefur komið fyrir að hráefni hefur verið keypt á fiskmörkuðum fyrir sunnan. „Þetta hefur verið mikil törn' og það er eiginlega furðulegt hvað mannskapurinn er brattur, það má segja að við höfum fengið eina rólega viku frá áramótum, annars hefur allt verið hér á fullu,“ sagði Hrafnhildur, en elstu krakkarnir í skólanum hafa hlaupið undir bagga og lagt frystihúsafólki lið um helgar. Kristjana F. Arndal. Morgunblaðið/Rúnar Þór Eftirprentanir Krist- jönu F. Amdal gefnar út býsna langur, algengt var að sjó- menn segðust vinna yfir 80 vinnu- stundir í viku. Þá var fólk spurt hvort fólk teldi betri störf bjóðast annars staðar, hvort fólk fengi ekki vinnu við hæfi og hvort sú vinna sem í boði væri fældi fólk frá staðnum. Niður- staða könnunarinnar bendir til þess að almennt séu Eyfirðingar ekki yfir sig hrifnir af starfskjörum sem bjóðast, en nokkur munur er á eft- ir stöðum, því á minni útgerðarstöð- um telja menn nóg af einhæfri vinnu, en launin séu lág. Ólafsfirð- ingar eru ánægðir með laun og vinnuframboð, en telja störfin sem í boði eru einhæf og fráhrindandi. Einna ánægðastir voru Dalvíkingar, með atvinnuástandið, laun og magn og gæði vinnunnnar sem í boði er. Akureyringar eru óánægðir með vinnuframboð og laun en fremur jákvæðir miðað við aðra hvað fjöl- breytni starfanna varðar. Á Sval- barðseyri er fólk mjög óánægt með atvinnuástandið. KRISTJANA Finnbogadóttir Arndal myndlistarmaður hefur gefið út þrjár myndir sem prent- aðar eru í 300 tölusettum eintök- um. Myndirnar bera heitin Ósk, Von og Trú. Þær eru til sölu í Gallerí Allrahanda á Akureyri og hjá Kristjönu. Kristjana hlaut starfslaun bæjar- listamanns á Akureyri á síðasta ári. Hún stundaði nám við Myndlist- arskólann í Reykjavík og Listahá- skólann í Stokkhólmi auk þess sem hún hefur sótt fjölda námskeiða. Hún hefur haldið tíu einkasýningar bæði á íslandi og erlendis og tekið þátt í fjölda samsýninga. Myndir Kristjönu heita Ósk, Von og Trú og segir hún að margvísleg- ar tilviljanir hafi ollið því a(Hiún réðst í útgáfu eftirprentana þeirra. Myndirnar eru unnar hjá Prentverkj Odds Björnssonar á Akureyri. „Myndirnar urðu til eftir að ég Eitt af þeim verkum seni nú hafa verið gefin út eftir Kristjönu. vann að verkefni fyrir Kvennalist- ann fyrir síðustu kosningar, en þá vann ég mynd á forsíðu eins þeirra blaða sem listinn gaf út. Þetta þró- aðist, myndirnar skerptust, en þær túlka óskir mínar, vonir og trú á að við skiljum að náttúra landsins og jarðarinnar allrar sé hluti af okkur. Þetta eru þrjú einstök verk, en standa vel saman sem heild,“ sagði Kristjana. Leiguskipti Akureyri - Reykjavík 5 herbergja íbúðarhæð á Akureyri til leigu frá júní/júlí 1991 í skiptum fyrir 3ja-4ra herbergja íbúð í Reykjavík. Leigutími a.m.k. 2 ár. Upplýsingar í síma 95-36601. Minar hjartans þakkir til allra þeirra, erglöddu mig á 80 ára afmælisdegi mimun þann 5. april sl. með heimsöknum, góðum gjöfum, blómum og heillaskeytum og heiðruÖu mig á annan hátt. Guö blessi ykkur öll. Laufey Tryggvadóttir, Austurbyggd 17, Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.