Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991 Stefna Sjálfstæðisflokksins: S K O S N Valddreifing í heilbrigðisþj ónustu eftir Sigurbjörn Sveinsson Menn leita sífellt leiða til að bæta hag sinn og velferð. Þáttur í því er að sjá sér og sínum fyrir eins góðri heilbrigðisþjónustu og unnt er. Góð heilsa er ein af grunnþörfum manns- ins til að ná þroska og lifa fulinægðu lífi. Þá, sem brestur heilsu, má nú á dögum styðja bæði með góðri heil- brigðisþjónustu og annarri félags- legri hjálp, þannig að virkir einstakl- ingar nútímaþjóðfélags eru mun fleiri, en þeir, sem heilsuhraustir eru. Við viljum að allir njóti þeirra mögu- leika, sem heilbrigðisþjónustan hefur að bjóða og að enginn þurfí að fínna til öryggisleysis vegna skertrar þjón- ustu. Til þess höfum við valið þá leið að standa saman um rekstur þessar- ar þjónustu og greiða hana að mestu úr sameiginlegum sjóði. Um það er lítill ágreiningur. Sá er þó hængur á, að heilbrigðis- þjónustan kostar mikla peninga. Hvort hún sé dýr er umdeilanlegt, en hitt er víst, að þjóðfélagið greiðir tíund af framleiðslutekjum sínum tii að standa undir rekstri hennar. Þess- ara fjármuna þarf að afla með einum eða öðrum hætti. Er það nú gert með skattheimtu og síðan framlögum af fjárlögum ríkisins. Aimennt má segja, að skattheimta sé óvinsæl. Hins vegar þykir okkur gott að njóta góðrar þjónustu svo sem eins og hér um ræðir. Því er uppi sífelld tog- streita milli þess, sem við óskum eftir, og þess, sem við viljum leggja af mörkum. Togstreita þessi endur- speglast síðan í störfum þeirra stjórnmáiamanna, sem við höfum kjörið til að fara með þessi mál. Þeir taka ákvarðanir til að sætta þessi sjónarmið, hver eftir sinni lífs- skoðun. Og þessar ákvarðanir eru stundum rangar. Miðstýring síðustu ára Sú stefna, sem ráðið hefur liðin ár um framkvæmd heilbrigðisþjón- ustunnar, er vafalítið stefna miðstýr- ingar. Hún á sér pví miður mjög djúp- ar rætur í stjórnkerfinu og rætur hennar liggja dýpra, en í tíð ríkjandi stjórnarherra. Það er eðli miðstýring- aráráttunnar að safna til sín valdi. Svörin, sem hún gefur við hveijum vanda, eru aukið vald í færri hönd- um. Störf Alþingis seinni ára hafa og einkennst af þessari tilhneigingu, að halda fast í það vaid, sem þing- menn hafa og ná því, sem þeir hafa ekki. Þessi viðhorf hafa ráðið um úr- lausnarefni heilbrigðisþjónustunnar. Umræðan hefur snúist um vaxandi útgjöld til þessa þáttar og hvemig ná mætti fram betri afköstum í heil- brigðiskerfínu. Stjórnarstefnan hefur öll verið á þá lund að benda á kosti miðstýringarinnar bæði hvað varðar rekstur sjúkrahúsa, sérfræðiþjónustu og heilsugæslustöðva. Því hefur ver- ið haldið fram, að eina leiðin til að ná tökum á kostnaði við heilbrigðis- þjónustuna, án þess að hún verði skert, sé, að ríkið ráði sem flestum þáttum hennar. Tekist hefur að koma fram lögum, sem lúta að þessu. Ný lög um heilbrigðisþjónustu eru gott dæmi um þetta. Sjálfstæðisflokkurinn vill söðla um Sjálfstæðisflokkurinn vill taka upp nýja og djarfa stefnu í þessum efn- um. Með samþykkt landsfundar Sjálfstæðisflokksins hefur um síðir rofað til í því svartnætti, sem ríkt hefur á undanförnum árum. Þar er reynt að nálgast viðfangsefnið bæði hvað varðar fjármögnun og stjórnun á alveg nýjan hátt. Þó er gömlum verðmætum alis ekki varpað fyrir róða. Fer vel á því í þessum flokki grósku, sem á rætur í gamalli og fijórri jörð. Sjálfstæðisflokkurinn vill koma á fót almannatryggingum að nýju. Með því er bent á og viður- kennt, að núverandi sjúkratrygging- akerfi hefur ekkert yfirbragð trygg- inga lengur. Tryggingastofnun ríkis- ins hefur það eitt hlutverk að vera eins konar veitustofnun fyrir fjár- muni hins opinbera til sjúkraþjónustu skv. þeim reglum, sem henni eru settar. Enginn hefur þá tilfinningu lengur, að hann sé tryggður fyrir áföllum og fái nauðsynlega þjónustu, þegar hennar er þörf. Á það er fólk óþyrmiiega minnt, þegar það lendir á biðlistunum frægu. Stefna Sjálfstæðisflokksins er ný byggðastefna Sjálfstæðisflokkurinn vill, að tryggingar verði landshlutatrygging- ar. Tekjur þeirra verði hlutfall af almennum skatttekjum ríkisins og aðstöðumun einstakra landshluta jafnaður. Allir eigi sama rétt óháðan tekjum. Stjórn þessara nýju sjúkra- samlaga yrði að sjálfsögðu í höndum íbúanna sjálfra. Samlögin myndu Sigurbjörn Sveinsson „Við viljum að allir njóti þeirra möguleika, sem heilbrigðisþj ónustan hefur að bjóða og að enginn þurfi að finna til öryggisleysis vegna skertrar þjónustu.“ greiða alla sjúkraþjónustu íbúanna á hvaða stigi heilbrigðisþjónustunnar sem væri. Það er auðvelt að sjá í hendi sér, hvaða kostir fylgdu þessu fyrirkomu- 'lagi og til hvaða breytinga það myndi leiða. I slíku kerfi eru allar ákvarðan- ir um ráðstöfun fjármuna teknar mun nær þeim, sem þiggja þjón- ustuna. Hægt verður að snúa af þeirri braut, sem lögð var, þegar ábyrgð á rekstri heilsugæslustöðv- anna var tekin af sveitarfélögunum. Tryggingarnar geta samið við sveit- arfélögin eða aðra aðila um rekstur heilsugæslustöðvanna og greitt fyrir það, sem það kostar á hveijum stað. Þá yrði miklu hægara, en það er í dag, að gæta að staðbundnum vand- amálum við þennan rekstur og leysa þau. Önnur þjónusta utan sjúkrahúsa t.d. á landsbyggðinni myndi vafalítið batna. Það yrði augljóslega hagur trygginganna á hveiju svæði, að þjónustan færi þar fram. Áhersla yrði einnig á, að öll sjúkrahúsþjón- usta önnur en sú, sem ekki yrði við komið að dreifa, yrði í landshlutun- um. Með þessu myndi hagur manna batna hvað þjónustu varðar og einn- ig yrði heilbrigðisþjónustan eðlilegri þáttur í hagkerfi hverrar byggðar. Stefnan er því um byggðasamlög í heilbrigðisþjónustu. Er það alveg í samræmi við óskir um aukið forræði sveitarfélaganna í opinberri þjónustu og ábendingar um, að slík skref séu nauðsynlegur þáttur í að snúa byggðaþróuninni hér á landi til betri vegar. Að loknum kosningum Enginn annar stjórnmálaflokkur hefur haft þor til að setja fram jafn skörulegar og skiljanlegar tillögur í heilbrigðismálum og Sjálfstæðis- flokkurinn fyrir þessar kosningar. Veita þarf flokknum brautargengi til að koma þeim fram að kosningum loknum. Höfundur er læknir í Reykja vík ogfyrrum íBúðardal. Hann starfar með málefnanefnd Sjálfstæðisflokksins um heilbrigðis- og tryggingamál. • Grill • Lúðrasveit • Vísnasöngur • Gísli Snorrason frambjóðandi á G-listanum ávarpar gesti Útileikhús: Ýmsir leikhópar koma • "Karnival": Leikarar farða krakkana • Rokkhljómsveit og fleiri tónlistaratriði • Hestar: Börnin geta komist á hestbak • Brúðuleikhús: Sögusvuntan kemur í heimsókn með tröllastelpuna leiðindaskjóðu Blústónleikar um kvöldið í Þrúðvangi: K.K.-bandið og fleiri tónlistarmenn frá klukkan 21:00 ALÞYÐUBANDALAGIÐ ö 'fm FJÖLSKYLDUHATIÐ IALAFO SSKVO SINNI Allir íbúar í Mosfellsbæ og Reykjaneskjördæmi velkomnir til hátíðarsamkomu G-listans í Álafosskvosinni á laugardaginn klukkan fjögur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.