Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 52
, MQRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991 Aélt aB hér [/•seru cýnd Stcemm tiatné'i,." Ást er 3-S . . . að gera hana alveg mátt- vana. TMReg. U.S. Pat Off. — all rights reserved ® 1991 Los Angeles Times Syndicate innrás, er ákaflega þröngt um okkur mamma mín ... HÖGNI HREKKVÍSI M/EfZN/G GENGUPZ. £EPP/)NO*1 þ/NUM í HL yÐN/SKÓL 4NUM þ* HRETiM TlUVtLJUN FHJÐ- ^ < VITRÐ, RfifÐHE'RRR, ElNSOS- Ioó LYSTlR RFIUNRR SdRLFUR YRIR UM DflSr- IMM EM ÉTda- ER SPlMT HRÆDCXJR UM RO . éct VERÐl RÐ HRvÉScSiJR |PlcS- MEÐ PVl , k. RÐ Vl-Ð ERUM HÉR-NR TlLBÓIN MEÐ ENN EUNM BÆXLIN&INN litrtwa\wxT\ i iláior- iMMUl LfíHOOe\ oas MMrrM/N O /*//>*/» M/Át/ //fi/fir. zS->y,*//rw//fi/*///// /ir*T£/*í/t//& y£\\y&OMt i*x~ r±%%rT~** "*• \/yrjK ****"■/*//&# Kvenfyr irlitning Kæri Velvakandi. Nú er mér gjörsamlega nóg boðið. Föstudagskvöldið 5. apríl hugðist ég hafa það gott heima við og kom mér makindalega fyrir við skjáinn. Á Stöð 2 var að heijast kvikmynd sem bar heitið Ástarlínan. Ekki hafði áhorf- unin staðið lengi yfir þegar ég áttaði mig á því að þorri kvenpersóna myndarinnar virtist hafa lítið sem ekkert í kollinum og ef greindarvísit- ala einhvers af hinu kyninu virtist undir meðallagi var ávallt stúlka honum_ við hlið sem var honum fáv- ísari. Ég var fljót að færa mig yfir á hina stöðina þar sem var öllu betra efni. Mér finnst mjög lélegt af Stöð 2 að senda frá sér svona efni og er þetta ekki í fyrsta skipti sem þjóðin þarf að þola slíkt af þessari annars oft ágætu sjónvarpsstöð. Ráðamenn hennar verða að gera sér grein fyrir því hvaða ábyrgð þeir hafa tekið sér á hendur með rekstri stöðvarinnar, því nú er efni hennar inni á mörgum heimilum landsmanna þar sem börn eru stór hluti áhorfenda og víst læra þau það sem fyrir þeim er haft. Þá tel ég að það eigi að vera algert for- gangsmál slíks áhrifavalds sem stöð- in er að forðast eins og heitan eldinn efni þar sem kynt er undir hvers kyns misrétti líkt og t.d. í fyrr- greindri mynd. Hér með skora ég á ráðamenn Stöðvar 2 að bæta úr þessu allsnar- lega og ef ekkert verður að gert vona ég að jafnréttisráð kynni sér þessi mál til hlítar. Það er ekki hægt að bjóða fólki hvað sem er. Margrét Sigurðardóttir Víkverji skrifar Aborð Víkverja koma fjölmörg rit. Og sem betur fer eru þau fleiri þessa dagana en kosninga- plöggin. Fréttabréf MENOR, Menn- ingarsamtaka Norðlendinga, 3. tbl. 9. árgangs, er nýkomið út. Þar er tíunduð menningar- og listastarf- semi í Norðlendingaljórðungi og þegar blaðsíðunum 44 hefur verið flett, er ljóst, að þessi starfsemi er bæði fjölbreytt og mikil að vöxtum. Haukur Ágútsson, formaður MENOR, skrifar ritstjórarabb fréttabréfsins og segir: „Líttu í kringum þig, vinur góður. — Virtu fyrir þér umhverfi þitt og sann- færðu þig um það, að þrekið og viljinn til átaká í starfi að menningu og listum eru rík í gífurlegum fjölda manna í Norlendingafjórðungi. Ef til vill hefur þú lengi vitað þetta og gert þér fulla grein fyrir því. En finnst þér, eins og mér stundum, að í stað orðsins „gífur- legum“ hér á undan, hefði verið betur við hæfi að nota orðið „ótrú- legum“, eða eitthvað annað orð svipaðrar merkingar? Mér finnst þetta iðulega, þegar ég lít yfir aðstæður margra þeirra karla og kvenna, sem leggja frí- stundir sínar ómælt og algerlega endurgjaldslaust í félagsvinnu á ýmsum sviðum menningar og lista. Kemur fyrir, að þér þyki, eins og mér, þetta starf iðulega lítils virt og það oft vanþakkað? Þó þyk- ir það sjálfsagt, þegar það er unnið — og hefurðu tekið eftir því, hve sárlega þess er saknað, þegar það fellur niður? Við vitum þetta öll. Ekki endilga meðvitað — og ekki bara hinir al- mennu borgarar þess samfélags eða þeirrar byggðar, sem í hlut á, held- ur líka ráðamenn. Þeir, sem ráða fjármálum og geta skapað eða bætt aðstöðu. Allir vita hvern akk samfélagið hefur af því, að sjálfboð- aliðastarf áhugamannanna um menningu og listir sé sem samfelld- ast og markvissast. XXX En — sjáðu til — það er ekkert sjálfsagt við það, að áhuga- mannastarf sé unnið að menningu og listum. Samfélagið á enga kröfu á áhugasama einstaklinga um það, að þeir leggi tíma sinn til þessara mála, þegar aðrir hvílast. Framlag áhugamnna er miklu frekar gjöf til samfélagsins en nokkuð annað — og við eigum enga kröfu á það, að okkur séu gefnar gjafir — er það? Líttu í kringum þig, vinur góður — og gerðu þér í hugarlund um- hverfi þitt, eins og það væri, ef þar væri ekkert félagsstarf. Enginn áhugamannahópur um menningu og listir. Engir, sem legðu fram hvíldarstundir sínar frá erfiði dags- ins til þess að taka þátt í tónlist, kórstarfi eða leiklist. Engir, sem væru að fást við myndlist, kveð- skap, ritstörf, nytjalist eða nokkuð það annað, sem telst til lista og menningar. Engir, sem sinntu al- mennu félagslífi á hvaða sviði sem um er rætt. Allir hrærðust í brauðstritsönn sinni einni og engu öðru. Mundirðu ekki sakna einhvers? Þætti þér ekki tilveran, kringum- stæður þínar fátæklegri, en þær eru nú? Mér fyndist það — og ég held að þér hljóti að finnast það líka. xxx * Atyllidögum er gjarnan rætt fjálglega um gildi menningar og lista. Þá er minnt á menn, karla og konur, sem báru merki þessara þátta samfélagslífsins hátt, og þeim þakkað framlag sitt til auðugra mannlífs. Þessir forgöngumenn, sem oftast eru liðnir, eru nefndir hvatar til átaka og fyrirmyndir okk- ar um það, hveiju sé unnt að fá ágengt. Einmitt þetta er eitt höfuðgildi starfs að menningu og listum í hveiju samfélagi. Það felur í sér hvata til átaka á öllum sviðum mannlífsins. Það vekur okkur til umhugsunar um það, hverju sé unnt að fá ágengt. En einmitt vegna þessa, vegna þess hvata og þeirrar mögnunar sem felst í lifandi menn- ingar- og listalífi, er starf að þess- um málum og áhugi á þeim ekki bara tyllidagaefni og spariflík. Það er lífsvaki hversdagsins, sem við getum ekki verið án og sem við söknum sárlega, þegar það hverfur; þegar við hættum að njóta gjaf- mildi áhugamannsins. xxx sér gjöf til gjalda,“ segir í gömlu máltæki. Það felur ekki í sér það, að gefandinn eigi rétt á endurgjaldi, heldur hitt, að gjöfin getur af sér hlýtt hugar- þel hjá þiggjandanum. Hugarþel, vináttu, virðingu og jákvætt mat á því, sem gefið er og þeim, sem gefur. Þetta á að vera andsvar samfé- lagsins við framlagi áhugamanna um listir og menningu til auðgunar mannlífsins á hveijum stað. And- svarið á að vera það hlýja þel, sem gerir það sjálfsagt, að sköpuð sé aðstaða til þess að þiggjandinn geti haldið áfram að njóta gjafanna. Og við sjáum, að geri samfélagið þetta, nýtur gefandinn þess vitanlega, en fyrst og fremst er þiggjandinn, samfélagið sjálft, að búa í haginn fyrir sig.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.