Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991
HARAIDUR
ÍANDRA:
FALLANDI
STJARNA
‘Er %eyíqavííqir-
stúííqin
jafn fieittancíi
0sfyrr?
Vilhjálmur Svan, Bjarni
Óskarsson,
Sveinn Úlfarsson og fleiri
veitingarnenn
Á FIILLU í REKSTRI
ÞRÁTT FYRIR
RÖÐ GJALDPROTA
Þuríður Izzat
Skjaldmeyjan
sem býr fyrir
neðan
dópgrenið á
Hverfisgötunni
Náttúrulækningafélagið
PDNRAR ÁSAKANIR
UM FJÁRMÁLAÓREIBU
í EINU RÍKASIA
FÉIAfil IANDSINS
Stjórnmálamenn
frá A til Ö
fullt blað cif slúðri
KORFUKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI URVALSDEILDARINNAR
Friðrik Rúnarsson, þjálfari UMFN:
„Var að
fara yfirum"
Friðrik Rúnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga og yngsti þjálfari
deildarinnar, var borinn í gullstól
af leikvelli eftir sigurinn. Hann tók
við liðinu í byijun vetrar og hefur
náð frábærum árangri: „Ég fann
það í úrslitakeppninni hvað þetta
getur verið erfitt og álagið mikið.
Síðustu dagar hafa verið ótrúlegir
og á tímabili var ég að fara yfir-
um,“ sagði Friðrik.
Hann sagðist ekki hafa átt von
á því að Keflvíkingar breyttu leik
sínum: „Við fórum yfir kerfín sem
þeir hafa verið með í vetur og þau
byggja nær öll á skotum. Það er
ekki auðvelt fyrir lið að breyta því
strax og því gerðum við ráð fyrir
að þeir myndu spila eins og þeir
hafa gert og vorum tilbúnir,“ sagði
Friðrik. Hann sagðist vera mjög
ánægður með liðið, sérstaklega
bræðurna: „Þeir eru með sjálfs-
traustið í lagi og það hefur mikið
að segja. Allt liðið spilaði vel. Við
vissum að við þyrftum að bæta við
sóknirnar og gerðum það. Annars
er það ótrúlegt að vera yfir í 195
af 200 mínútum en samt tapa
tveimur af fimm leikjum."
Friðrik sagði að Iiðið hefði æft
sérstaklega með úrslitakeppnina í
huga: „Við ætluðum að vera í topp-
formi í úrslitunum og höfum ekki
slegið af. Menn hafa verið duglegir
og lagt sig alla fram og það skilaði
sér núna.“
ff Er itl ■ 1
að >e ta íí
Það var erfitt að vera ellefu stig-
um undir í hálfleik og þurfa
alltaf að elta þá. Þetta var níundi
úrslitaleikurinn okkar á fjórum vik-
um og það hafði mikið að segja.
En liðið hefur staðið sig frábærlega
og það er gott -að komast í úrslit í
URSUT
Körfuknattleikur
Leikir í NBA-deildinni í fyrrinótt:
Cleveland - Detroit ......... 94: 90
Miami Heat-Washington ......112:106
Philadelphia-NewYork .......100: 84
Chicago-Indiana .............101: 96
Portland - San Antonio .....105:100
UtahJazz-DalIas ............ 97: 91
Seattle - LA Clippers .......140108
Íshokkí
Leikir I úrslitakeppni NHL í fyrrinótt:
Minnesota - Chicago Blackhawks......2:1
(Jafntefli er 2:2)
Detroit Red Wings - St. Louis BIucs.4:3
(Detroil er yfir 3:1)
LA Kings - Vancouver Canucks ...6:1
(Jafntefli er 2:2)
Edmonton Oilers - Calgary Flames.5:2
(Edmonton er yfir 3:1)
Knattspyrna
Holland
Undanírslitin I bikarkeppninni:
PSV Eindhoven - Feyenoord.......0:1
- Henk Fraser (46.).
BFeyenoord leikur gegn BVV den Bosch
til úrslita 9. maí.
Reykjavíkurmót
Valur-Fylkir....................1:0
Jón Grétar Jónsson. Áhorfendur: 90.
Golf
Staðan cftir fyi-stu 18 holurnar á US Mast-
ers í Augusta í Bandaríkjunum:
67 Lanny Wadkins
67 Jim Gallagher
67 Mark MeCumber
68 Tom Watson
68 Fred Couples
68 Jack Nieklaus, Masashi Ozaki (Japan)
Jose-Maria Olazabal (Spánn)
69 Phil Mickelson, Wayne Levi, Mark
Brooks. Scott Simpson
70 Ben Crenshaw. Mark Calcavecchia,
Fuzzy Zoeller, Tommy Aaron, Craig
Stadler, Andrew Magee, Jodie Mudd,
Hale Irwin
71 Morris Hatalsky, David Frost, (S-
Afríka), Bernhard Langer (Þýskaland),
Lee Trevino, Jeff Sluman, Manny Zer-
man (S-Afríka), Tom Kite, Ian Baker-
Finch (Ástralía), Raymond Floyd
72 Gary Player (S-Afrfka), Ian Woosnam
(Bretland), Curtis Strange, Steve Elking-
ton (Áslralía), Rocco Mediate, Billy
Mayfair, Bili Britton, Nick Faldo (Bret-
land), Lany Mize, Davis Love, Steve
Pate, Don Pooley, Röbert Gamez.
■Seve Ballesteros (Spánn) lék á 75 högg-
um.
bikarnum og deildinni," sagði Jón
Kr. Gíslason, þjálfari ÍBK.
„Njarðvíkingar hafa verið yfir nær
alla leikina en misst það niður tvi-
svar og einbeitingin hjá þeim jókst
með hverjum leik. Við höfum spilað
mikið uppá skytturnar en í síðari
hálfleik reyndum við að breyta og
spila meira inní teiginn en það gekk
ekki.“
Jón sagðist vera ánægður með
úrslitaleikina: „Leikirnir hafa verið
frábærir, skemmtilegir og spenn-
andi. Það sem kemur kannski mest
á óvart er hve vel liðin hafa spilað,
miðað við hve mikið var í húfi. En
það sýnir hve miklar framfarir hafa
orðið í körfuboltanum. Þegar ég var
að byija voru yfirleitt tveir góðir
leikmenn í hverju liði en nú eru sjö
góðir menn í liðum,“ sagði Jón.
UMFN-IBK 84:75
íþróttahúsið í Njarðvík, Islandsmó-
tið í körfuknattleik, úrslitakeppni
úrvalsdeildar, 5. leikur, fimmtudag-
inn 11. apríl 1991.
Gangur leiksins: 0:4, 9:4, 16:8,
16:13, 26:17, 32:25, 37:27, 41:28,
41:32, 46:36, 49:43, 55:45, 63:50,
63:57, 67:62, 71:69, 73:71, 79:71,
82:83, 84:75.
Stig UMFN: Gunnar Örlygsson 27,
Rondey Robinson 17, Teitur Örlygs-
son 15, Kristinn Einarsson 12,
Hreiðar Hreiðarsson 6, Friðrik
Ragnarsson 5, Ástþór Ingason 2.
Stig ÍBK: Tairone Thornton 25,
Guðjón Skúlason 16, Jón Kr. Gísla-
son 11, Albert Óskarsson 8, Falur
Harðarson 7, Sigurður Ingimundar-
son 6, Júlíus Friðriksson 2.
Dómarar: Jón Otti Ólafsson og
Kristinn Albertsson og verður ekki
annað sagt en þeir hafi skilað hlut-
verki sínu með glæsibrag.
Áhorfendur: Um 850.
Morgunblaðið/Einar Falur
Friðrik Rúnarsson, hinn ungi þjálfari Njarðvíkinga, hampar íslandsbikarn-
um við mikinn fögnuð félaga sinna í Njarðvík.
Sártífyrra,
miklu verra nú
Það var sárt að tapa í fyrra en
miklu verra í þetta skipti. Við
lögðum áherslu á að stoppa Teit, það
tókst ágætlega en þá losnaði um
aðra. Þegar við skiptum svo um vörn
var það orðið of seint,“ sagði Falur
Harðarson. „Gunni [Gunnar Örlygs-
son] er svipaður leikmaður og Teitur.
Vill vera í sviðsljósinu, og tókst það
mjög vel nú. En ég er sannfærður
um að okkur hefði gengið betur ef
ísak hefði ekki meiðst. Þá hefði Gunni
ekki spilað eins mikið með og þar
af leiðandi ekki skorað svona mikið.“
Nær sigri nú en í fyrra
„Það var miklu verra að tapa þessu
nú en í fyrra. Við vorum mun nær
sigri nú en þá,“ sagði Guðjón Skúla-
son. „Við áttum að klára þetta heima
í fjórða leiknum. Þá vorum við ekki
nógu rólegir í lokin og nú „klikkaði"
vörnin — við gleymdum vissilm mönn-
um. Við erum með nokkuð gott varn-
arlið, þó svo margir haldi annað;
baráttan í vörninni hefur verið góð.“
Hvað sóknarleikinn varðar sagði
Guðjón: „við skjótum of fljótt fyrir
utan — þau skot ættu að vera síðasti
möguleikinn. Við ættum að spila
meira inn í teiginn. En Njarðvíkingar
spiluðu mjög vel í kvöld, voru betri.
Þetta var þeirra dagur, heimavöllur-
inn var þeim mikilvægur. Gunni Örl-
ygs var frábær er hann kom inn á.
Við höfðum ekki gert sérstaklega ráð
fyrir því að hann kæmi inn svo
snemma. En ég held þessir leikir
sýni að körfuboltinn hér á landi er
bestur á Suðurnesjunum. Ég vil óska
Njarðvíkingum til hamingju með titil-
inn. Þeir hafa staðið sig vel og Frið-
rik Rúnarsson á skilið að vera valinn
þjálfari ársins," sagði Guðjón.
Spilum of mikið uppá skytturnar
„Það var sárt að tapa eftir mikla
vinnu en leikurinn var góður. Það var
synd að annað liðið skyldi þurfa að
tapa; sérstaklega af því að það vorum
við,“ sagði Sigurður Ingimundarson,
fyrirliði Keflvíkinga. „Njarðvíkin'gar
eru með gott lið og það kemur alltaf
einhver sem heldur liðinu á floti.
Núna var það Gunnar og hann var
sá eini hjá þeim sem gerði eitthvað
í fyrri hálfleik. Við áttum ekki von á
því og gerðum bara ekki ráð fyrir
þvi að hann gæti þetta.
Við höfum spilað of mikið uppá
skytturnar. Ef illa gengur förum við
að skjóta og það á ekki bara við um
bakverðina. En þrátt fyrir allt hefur
þetta verið góður vetur og við getum
verið sáttir við árangurinn."
KNATTSPYRNA
Rúnar var hjá Frankfurt
Rúnar Kristinsson, landsliðs-
maður úr KR, kom frá
Þýskalandi í gær, þar sem hann
var hjá úrvalsdeildarfélaginu
Frankfurt. Forráðamenn félags-
ins buðu Rúnari til að koma og'
æfa með félaginu.
„Það var gaman að kynnast
félaginu, en ég æfði með Frank-
furt fjórum sinnum. Berger, þjálf-
ari Frankfurt, sagði að erfitt yrði
að segja um framhaldið eftir
nokkrar æfingar, en sagðist hafa
áhuga á að sjá mig i leik með KR
í sumar,“ sagði Rúnar, sem hefur
mikinn áhuga á að víkka sjón-
deildarhringinn og spreyta sig í
útlöndum eftir keppnistfmabilið
hér heima.