Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 12.04.1991, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐÍD PÖSTUDAGOR 12. AHIÍL 199U Þessir hringdu . . Tapaðiveski Pétur hringdi og hafði tapað svörtu seðlaveski fyrir utan Hard Rokk kaffí, andspænis Kringlunni 4. Þetta átti sér stað 8. apríl og voru bæði skilríki og peningar í veskinu. Finnandi vinsamlega snúi sér til Péturs sem er í síma 72207, helst á kvöldin. Lýst eftir hjóli Kristján í síma 20957 hringdi og sagði að hjóli sínu hefði verið sto- lið frá Sörlaskjóli aðfaranótt sunnudagsins. Hér er um gráleitt Muddy Fox hjól með hvítum gaffli að ræða, 18 gíra Courier. Hann biður þá sem geta gefið einhveijar upplýsingar að hringja hið fyrsta. Hjóli stolið Laufey hringdi og tilkynnti Um stolið hjóí. Það hvarf frá Blikahól- um skömmu fyrir páska. Um er að ræða svart og rautt fjallahjól. Laufey er í síma 78278. Fann húslykla Þuríður hringdi og sagðist hafa fundið húslykla á kippu skammt frá heimili sínu að Miðvangi 14 í Hafnarfirði. Kippan er með silfur- skildi og er nafnið Gunnar greypt á hann. Þuríður er á miðhæð í Miðvangi 14 ig getur Gunnar sótt lykilinn til hennar. Týndi gullarmbandi Berglind hringdi og sagðist hafa týnt gullarmbandi. Það væri um einn sentimetri á breidd og til skiptist gylit og matt á lit. Hún tapaði gi'ipnum annað hvort í Jöklafold, við Holliday Inn eða við Miðvang í Hafnarfirði. Berglind er í síma 53342 ef einhver hefur fundið armbandið. Heitið er góð- um f-undarlaunum. Hanskar hurfu Ragna hafði samband við okkur og hafði tapað brúnum fóðruðum skinnhönskum. Þetta átti sér ekki beint stað í gær, heldur þann 22. desember. Telur Ragna að han- skarnir hafí hrunið út úr bíl sínum er hún sté út úr honum við Bóka- búðina Vedu v/Hamraborg, við Rúmfatalagerinn í Auðbrekku eða við Lyngbrekku 2. Hún er í síma 42258 og heitir fundarlaunum. 53 Frelsi gegn ofbeldi Aukið ofbeldi í Reykjavík undan- farin misseri hefur valdið mönnum miklum áhyggjum. Margir telja að hér sé um að ræða óhjákvæmilega fylgikvilla stækkunar borgarinnar og bæta gjarnan við að aukin fíkni- efnaneysla sé annar fylgikvilli og halda því fram að hún stuðli að ofbeldi. Ég held þó að hvorugt séu neinar meginorsakir. Ofbeldi er alls ekkert einskorðað við stórborgir og er oft meira í minni byggðum, hvað varðar fíkniefnin þá gera þau menn ekkert ofbeldishneigðari en áfengi. Eg held að það mætti bæta ástand- ið töluvert með breytingum á réttar- kerfínu og að gera reglugerðir um sölu vöru og þjónustu í miðbænum fyjálslegri. Hvað varðar réttarkerfið þá var skýrt frá því í sjónvarpsfréttum um daginn að ofbeldismenn fengju yfir- jeitt væga skilorðsbundna dóma jafnvel þó að um síbrotamenn væri að ræða. Þarna er dómskerfið auð- vitað að bregðast skyldu sinni, að vernda borgarana. En það eru ekki öll vandamál leyst með því að senda menn bak við lás og slá, góð og réttlát refsing miðar auðvitað bæði að því að fæla menn frá glæpum °g að gera glæpamennina að betri einstaklingum. Hvað varðar menn sem eru lentir á villigötum og eru að fremja sín fyrstu brot, þá er auðvitað út í hött að halda þeim UPPÍ í ríkisfangelsum á kostnað skattgreiðenda, því þar eiga þeir samneyti við forherta glæpamenn og eru líklegir til að koma mun verri út en þeir voru þegar þeim var stungið inn. Nær væri að leigja glæpamenn út til fyrirtækja sem gætu notað vinnuafl þeirra, lögregl- an gæti keyrt þá og sótt í vinnu, hýst þá í fangageymslum sínum. Fangarnir myndu venjast fastri vinnu, öðlast starfsþjálfun, getað borgað skaðann af glæp sínum og jafnvel átt peninga þegar refsivist- inni lýkur. Annað sem gæti bætt ástandið eru fijálslegri reglugerðir um sölu á vöru og þjónustu í miðbænum. Öllum þeim sem eru að skemmta sér er fleygt út klukkan þijú um helgar, það eru þó ekki þreyttir kráareigendur sem vilja missa fólk- ið út heldur ríkið sem álítur það hlutverk sitt að hlutast til um það hvar og hvenær fólk skemmtir sér. Þegar út er komið er enga leigubíla að fá, en það er ekki vegna þess að það eru engir tilbúnir að vinna, það sýna harkararnir, nei, ríkið set- ur reglugerðir um leigubílaakstur og takmarkar fjölda leigubíla. Það þyrfti þó ekki að vera jafn hábölvan- legt og raun ber vitni ef það væri hægt að setjast einhver staðar inn og fá sér kaffi eða hamborgara, en enn og aftur bregður ríkið fæti fyr- ir þegnana og bannar matsölustöð- um að hafa opið. Því neyðast menn til að þvælast um bæinn fullir og slæptir og eru ofbeldismönnum auð- veld bráð. Ef ríkið hætti að hlutast til um þessi mál og leyfði fólki að ráða sér sjálft myndi ástandið batna. Ríkisforsjá hefur hvarvetna beðið skipbrot. Éini valkosturinn og eina lausnin er frelsi, sjálfræði ein- staklinganna. Þórður Pálsson Leiðrétting Tvö nöfn féllu niður í Velvakanda fimmtudaginn 11. apríl, nafn Al- berts Jensens sem skrifaði greinina „Um hjartahlýtt hjúkrunarfólk“ og nafn höfundar sem skrifaði greinina „Get ekki orða bundist". Er hann beðinn að hafa samband við Velvak- anda. Er beðist velvirðingar á þess- um mistökum. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásfdum Moggans! y - fj Skemmtun fyrir eldri borgara í Reykjavík Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra og frambjóðendur B-listans í Reykjavík bjóða til skemmtunar og kaffiveitinga í veitingahúsinu Glœsibæ, sunnudaginn 14. apríl kl. 15:00 Skemmtiatriði. Verið velkomin. Framsóknarfélögin í Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.