Morgunblaðið - 12.04.1991, Síða 4

Morgunblaðið - 12.04.1991, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIS FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991 Morgunblaðið/RAX Sinfónían leikur fyrir dansi Sinfóníuhljómsveit íslands hefur undanfarna morgna haldið skólatónleika í nokkrum grunnskólum í Reykja- vík og Kópavogi. Á efnisskrá tónleikanna hafa verið verk eftir Mozart, Smetana og Jón Leifs. Börnin tóku hljómsveitinni vel, sungu, stigu dansspor og skémmtu sér konunglega. Myndin var tekin við slíkt tækifæri í Vesturbæjarskóla í gærmorgun þegar börnin dönsuðu við undirleik Szymon Kuran fiðluleikara og Sinfóníuhljómsveitarinnar. VEÐUR Félagsmálaráðherra um Sæbraut 2: Sambýlið verður ekki lagt niður JÓHANNA Sigurðardóttir félagsmálaráðherra mun ekki taka til greina áskorun bæjarstjórnar Selljarnarness, um að Sæbraut 2 verði tekið til íbúðarafnota á ný og að sambýli einhverfra verði lagt niður. Ákveðið hafi verið að kaupa þriðja sambýlið og fækka heimilisfólki á Sæbraut úr sex I fjóra. Meirihluti bæjai’stjómar Sel- tjamamess samþykkti bókun með fímm atkvæðum en tveir sátu hjá, þar sem skorað er á ráðuneytið að fínna þeirri starfsemi, sem fram fer á Sæbraut 2, annan samastað. Fram kemur að ellefu húseigendur við Sæbraut og Sólbraut óski við- bragða bæjarstjórnar við grenndarkynningu, sem fram fór í janúar um viðhorf nágranna til tillagna starfshóps er vann að til- lögum um framtíð heimilisins. Hópurinn var ekki sammála og gerðu tillögur fulltrúa ráðuneytis- ins ráð fyrir að húsið nýttist sem sambýli en því höfnuðu fulltrúar bæjarstjórnar í nefndinni og töldu að taka bæri húsið aftur til íbúðar- afnota. Félagsmálaráðherra sagði, að þessi bókun kæmi sér mjög á óvart. Niðurstaða nefndarinnar hafi verið kynnt bæjarstjórn í febrúar. Ákveðið hafi verið að kaupa þriðja húsið undir sambýli fyrir þá þrett- án einstaklinga sem nú dvelja á heimilunum tveimur, við Sæbraut og Trönuhóla, þrátt fyrir biðlista. Er það gert svo unnt sé að breyta hópunum og fækka sambýlisfólki um leið. Jóhanna sagði að gengið yrði frá kaupunum á næstu dögum og þá mun núverandi meðferðar- heimili við Sæbraut leggjast niður. í stað þess verður þar sambýli fyr- ir fjóra, tveir sem þar eru nú verða áfram en tveir koma frá heimilinu við Trönuhóla. „Þetta er niðurstaða sem ég tel ásættanlega,“ sagði Jóhanna. „Þama er tekið tillit til íbúanna og þarfa barnanna." VEÐURHORFUR í DAG, 12. APRÍL YFIRLIT í GÆR: Við suðvesturströnd landsins er aðgerðalítil 998 mb lægð og 990 mb lægð skammt vestur af Skotlandi á hreyfingu norður. Vægt frost verður um allt land. SPÁ: Suðvestankaldi suðvestanlands en annars fremur hæg sunn- an- og suðaustanátt. Él sunnanlands og vestan en bjart veður að mestu á Norður- og Norðausturlandi. Hiti 0-4 stig að deginum en talsvert næturfrost, einkum norðanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Vaxandi suðaustanátt og hlýnandi. Snjó- koma og síðan slydda sunnanlands og vestan en úrkomulítið norð- austanlands. HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestlæg átt, slydduél eða skúrir sunn- anlands og vestan, skýjað en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti 2 til 5 stig. TÁKN: O Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r t r / / Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * -J 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Sktirir * V E' = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur [7 Þrumuveður VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltí veður Akureyri 0 léttskýjað Reykjavík 2 skýjað Bergen 15 þokumóða Helsinki 11 léttskýjað Kaupmannahöfn 13 skýjað Narssarssuaq +7 snjóél Nuuk -5-9 snjókoma Ósló 8 þokumóða Stokkhólmur 13 skýjað Þórshöfn 5 rigning Algarve 20 skýjað Amsterdam 20 mistur Barcelona 16 heiðskírt Beriín 16 iéttskýjað Chicago 3 alskýjað Feneyjar 15 léttskýjað Frankfurt 17 skýjað Giasgow 10 rigning Hamborg 17 skýjað Las Palmas vantar London 19 léttskýjað LosAngeles 14 helðsk/rt Lúxemborg 17 skýjað Madríd 20 hátfskýjað Malaga 17 léttskýjað Mallorca 18 léttskýjað Montreal 1 skýjað NewYork 7 heiðskfrt Orlando 19 heiðskírt París 22 léttskýjað Róm 8 rigning V/n 11 skýjað Washington 8 heiðskírt Winnipeg 1 léttskýjað Ný björgunarþyrla: Sendinefnd skilar áliti eftir helgina SENDINEFND skipuð fulltrúum Landhelgisgæslunnar og dóms- og fjármálaráðuneytis komu til landsins í gær úr 10 daga för til Banda- ríkjanna, Frakklands og Noregs. Þar skoðuðu þeir stórar björgunar- þyrlur sem ráðgert er að Landhelgisgæslan eignist á þessu ári. Að sögn Gunnars Bergsteinssonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar sem fór utan með hópnum, verður áliti skilað til ráðherra eftir helgi, en endanleg ákvörðun um hvaða tegund verður fyrir valinu er í þeirra höndum. í för með Gunnari frá Landhelg- isgæslunni voru Páll Halldórsson fiugstjóri og Þorsteinn Þorsteinsson flugvélfræðingur. Gunnar sagði að sendinefndin hefði farið í Sikorsky- verksmiðjurnar í Stanford og í flug- æfíngastöð bandarísku strandgæsl- unnar. Þaðan var haldið til Mar- seille í Frakklandi þar sem þyrlur af gerðinni Super-Puma voru skoð- aðar. Loks var farið til Noregs þar sem sendinefndin sá breskar Sea King og Bell-vélar og átti viðræður við rekstraraðila þar. Gunnar sagði að erfítt væri að bera saman verð á þessum vélum, það réðist fyrst og fremst af því hvaða tækjum þær yrðu búnar. Gera þyrfti töluverðan samanburð áður en það lægi fyrir. Stjórn Verktakasambands íslands: Brúarsmíði Vega- gerðarinnar mótmælt STJÓRN Verktakasambands ís- lands hefur samþykkt mótmæli gegn því að Vegagerð ríkisins vinni að gerð brúar yfir Markar- fljót í stað þess að brúarsmíðin sé boðin út. Stjórnin telur að með Samvinnuferðir-Landsýn: Hagnaður í fyrra 57,2 milljónir kr. HAGNAÐUR af reglulegri starf- semi ferðaskrifstofunnar Sam- vinnuferða-Landsýnar var 57,2 milljónir á síðasta ári. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins, sem var haldinn á Hótel Sögu í gær. Veltan í fyrra var rúmar 1500 milljónir, þar af var velta innanlands- deildar, sem sér .um móttöku er- lendra ferðamanná, 380 milljónir. Farþegar voru 41.132, þar af voru 14.6881 sumarleyfisferðum. Að sögn Helga Jóhannssonar framkvæmdastjóra er þetta bezta útkoma í sögu ferðaskrifstofunnar. Ákveðið var á aðalfundinum að greiða hluthöfum 15% arð. útboði hefði mátt smiða brúna fyrir minna fé en Vegagerðin kostar til verksins með því að annast smíðina sjálf. Áætlaður kostnaður við fram- kvæmdina er 300 milljónir króna, samkvæmt fréttatilkynningu frá Verktakasambandinu. Stjórnin ..mótmælir harðlega þeirri ákvörðun stjómvalda að bjóða ekki út þessa framkvæmd og telur að með því séu brotin skýr ákvæði laga um skipan opinberra fram- kvæmda." Stjórnin segir að fullvíst megi telja að hægt hefði verið að vinna verkið á mun ódýrari hátt með þeim hætti. „Nægir í því sambandi að benda á niðurstöður útboða hjá Vegagerð rík- isins á síðustu árum,“ segir þar. „Ákvörðun þessi er ekki síður undarleg í ljósi þess samdráttar sem orðið hefur í verklegum framkvæmd- um á síðustu 1-2 árum en einmitt af þeirri ástæðu hefði mátt búast við hagstæðum tilboðum í verkið af verk- tökum. Stjórn Verktakasambands íslands vekur athygli á því að á sama tíma og verktakar og ýmsir aðrir í þjóðfélaginu verða að búa við sam- drátt er hlutur opinberra fyrirtækja í framkvæmdum aukinn,“ segir í samþykkt stjórnar Verktakasam- bandsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.