Morgunblaðið - 12.04.1991, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 12.04.1991, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUft 12. APRÍL 1991 23 DavíðOddsson á Egilsstöðum Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, efnlr til almenns stjómmá/afundar í Valaskjálf á Egilsstöðum laugardaginn 13. apríl. Fundurinn hefst kl. 13:30. Egilljónsson flyturstutt ávarp og Kristinn Pétursson lokaorð. Fundarstjóri: Hrafnkell A.jónsson. Allir velkomnir. Kristinn nrafnkell FRELSI OG MANNÚÐ „Við tökum þátt í við- ræðum Efta-ríkjanna við Evrópubandalagið um Evrópskt efnahags- svæði og við tökum þátt í Gatt-viðræðunum. Þannig reynum við að tryggja að þrátt fyrir Sameiginlegan markað E vrópubandalagsins, verði viðskiptahags- munum okkar borgið innan þess.“ Það eru minnst 6 til 7 ár, þar til við þurfum að taka afstöðu til inn- göngu í EB. Þann tíma eigum við að nota og vinna okkar heimavinnu. Um 70% af okkar útflutningsafurð- um fer til Evrópubandalagsins. Við erum öll sammála því að útflutning- ur þarf að aukast og eflast á næstu árum. Samkeppnin mun harðna, áætlað er að vöruverð innan Evrópu- bandalagsins muni lækka um 6%. Við tökum þátt í viðræðum Efta- ríkjanna við Evrópubandalagið um Evrópskt efnahagssvæði og við tök- um þátt í Gatt-viðræðunum. Þannig reynum við að tryggja að þrátt fyrir Sameiginlegan markað Evrópuband- alagsins, verði viðskiptahagsmunum okkar borgið innan þess. En ekki er sppið kálið þótt í ausuna sé kom- ið. íslensk stjórnvöld verða að búa fyrirtækjunum sambærileg rekstrar- skilyrði og em hjá EB. Það verða settar kröfur um aukið eftirlit með innflutningi til EB, t.d. um öryggis- staðla. íslensk fyrirtæki verða því að sníða sína framleiðsluvörur að reglum EB og er ekkert nema gott um þær að segja, þar sem þær koma öllum neytendum til góða. íslensk fyrirtæki verða líka að koma á meiri hagkvæmni í rekstri ef þau ætla að halda markaðshlutdeild sinni. Þeim er nauðsynlegt að auka hlutdeild sína og ná fram meiri framlegð til að vega upp á móti lægra vöruverði. Kostir — Ókostir Hvað um veiðiheimildir EB-togara innan okkar fiskveiðilögsögu. Við erum ekki tilbúin til að slaka á í þeim efnum, enda um að ræða undir- stöðuatvinnuveg þjóðarinnar og við höfum ekki efni á að veita erlendum aðilum aðgang að okkar fiskimiðum. Við erum til viðræðna um samskipti í menningar- og menntamálum, eða sættum við okkur við t.d. að íslensk- ir námsmenn verði útilokaðir frá evrópskum háskólum? Við viljum gjarnan opna landið fyrir erlenda íjáfesta á sama hátt og við viljum eiga kosta á að fjárfesta erlendis. Við viljum eiga kost á að búa erlend- is um lengri eða skemmri tíma, það þýðir að við verðum að bjóða útlend- ingum það sama. Ábyrg afstaða Við tökum þátt í viðræðum um Evrópskt efnahagssvæði, við tökum þátt í öðrum viðræðum við Evrópu- bandalagið. Við viljum vita hvað okkur stendur til boð og hvað við verðum að greiða fyrir það. Það getur engin hrifsað af okkur sjálfs- ákvörðunarrétt okkar, við göngum með opnum huga til viðræðna, vegna þess að við höfum ekki áhuga á að verða einhver nátttröll norður í Dumbshafi. Það er auðvelt að koma með fullyrðingar rétt fyrir kosning- ar, sem hafa þann eina tilgang að slá ryki í augu kjósenda. Það getur hver og einn sagt sér, hversu mikil ábyrgð býr þar að baki. Við íslend- ingar eigum því að venjast að stjórn- Hver trúir Fram- sóknarflokkmim? eftir Maríu E. Ingvadóttur Framsóknarflokkurinn slær um sig þessa dagana með slagorðinu X-B ekki EB, vegna þess að þeir álíta það hljóma vel í eyrum kjós- enda. Sama gamla brellan, loforð í dag, gleymt á morgun. Þeim finnst þetta slagorð auðvitað mjög sniðugt og státa sig af því að hafa þor til að taka afstöðu til inn- göngu í Evrópubandalagið. En hvað felst í þeirri afstöðu þeirra, núna á árinu 1991 að vera á móti inngöngu í Evrópubandalagið. Telja framsókn- armenn virkilega að íslendingar séu svo vitlausir að þeir viti ekki að ómögulegt er að hafna tilbooði sem ekki hefur litið dagsins ljós. Evrópubandalagið — okkar stærsti útflutningsmarkaður málamenn slái um sig með stórum orðum rétt fyrir kosningar, jafnvel að ráðherrar ausi út kosningavíxlum síðustu lífdaga sína eins og nýleg dæmi sanna. Ég tel að það sé kominn tími til að stjómmálamenn verði að standa við stóru orðin og það er ein auð- veld leið til að sýna það og sanna að stjórnmálamenn geta staðið og fallið með gjörðum sínum. Sú leið er að tryggja Sjálfstæðisflokknum hreinan meirihluta á þingi. Þá er ekki hægt að skýla sér á bak við málamiðlun og millivegi. Sjálfstæð- isflokkurinn er tilbúinn til að taka á sig slíka ábyrgð. Höfundur skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi fyrir næstu Atþingiskosningar og er formaður málefnanefndar Sjálfstæðisflokksins um viðskipta- og neytendamál. María E. Ingvadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.