Morgunblaðið - 12.04.1991, Page 24

Morgunblaðið - 12.04.1991, Page 24
' MÖRÖÍ)NJBLÁÉ)ÍÉ> FÖSTUÖÁÖÚft' 12. ÁPrIÍL ÍÖ91 Morgunblaðið/KGA Kosningaskjálfti? Svavar Gestsson menntamálaráðherra og efsti maður á lista Alþýðu- bandalagsins í Reykjavík hélt í gær kosningafund með starfsfólki Veðurstofu íslands. Hér rýna þeir Svavar og flokksbróðir hans Ragn- ar Stefánsson jarðskjálftafræðingur saman í eitthvert plagg — kannski línurit yfir kosningaskjálfta. Útvarpsráð; Útvarpsstjóri ábyrgiir fyrir skoðanakönnunum Á FUNDI útvarpsráðs á miðviku- dag var samþykkt samhljóða ályktun þar sem allri ábyrgð á framkvæmd og birtingu niður- staða skoðanakannana, sem fréttastofa Sjónvarpsins lætur nú gera á fylgi stjórnmálaflokka í einstökum kjördæmum, er vísað á hendur útvarpsstjóra. Útvarpsráð segir það skoðun sína að óeðlilegt sé að RÚV standi fyrir gerð skoðanakannana um fylgi flokka í einstökum kjördæmum fáum dögum fyrir kosningar. Þetta álit ráðsins hafi komið skýrt fram á fundi þess með viðkomandi embættis- mönnum. Þar eð þeir hafi ekki séð ástæðu til að virða það álit, sé allri ábyrgð vísað á hendur útvarpsstjóra. O S N I N G A R Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra: Seðlabankastjóri staðfestir að ríkið heldur ekki uppi vöxtum ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjármálaráðherra segir að Jóhannes Nordal seðlabankastjóri hafi staðfest í ræðu sinni á ársfundi Seðla- bankans að það sé rangt hjá talsmönnum Sjálfstæðisflokksins og fleiri að ríkissjóður haldi uppi vöxtum í landinu. „Hann hafnar algjörlega þeirri kenningu forystumanna Sjálfstæðisflokksins að ríkissjóður hafi verið ieiðandi undanfarna mánuði í vaxtahækkun- um,“ sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann kvaðst jafnframt telja það ýkjur hjá seðlabankastjóra, að skuldasöfnun ríkisins við Seðlabankann valdi hættu á þenslu. „Á síðustu vikum þingsins fluttu talsmenn Sjálfstæðisflokksins mikl- ar ræður um það aá ég hefði sem fjármálaráðherra verið leiðandi í vaxtahækkunum," sagði Ólafur. „í ræðu sinni ávítar seðlabankastjór- inn hins vegar fjármálaráðuneytið nánast fyrir það að hafa haldið niðri vöxtunum, eins og segir orðrétt: „Vextir af nýjum spariskírteinum og ríkisvíxlum hafa dregist aftur úr öðrum vaxtakjörum.“ Það kemur sem sagt skýrt fram í þessari ræðu að ríkissjóður er langt á eftir banka- kerfinu og öðrum ijármagnsstofn- unum í vaxtamálum og ríkissjóður hefur lagt sig í líma við að halda niðri vöxtunum og meðal annars tekið á sig ýmsa erfiðleika vegna þeirrar viðleitni." Ólafur sagði seðlabankastjórann hins vegar hafa bent á að ávöxtun húsbréfanna hafi verið leiðandi í hækkun vaxtanna á verðbréfa- markaði. „Það kemur auðvitað rekstri ríkissjóðs ekkert við, því að húsbréfín eru markaðsbréf í hús- næðiskerfínu og eru þar alveg sér á báti, en lánsfjárþörf ríkisins og sú stýring í vaxtamálum sem er héðan úrfjármálaráðuneytinu hefur þvert á móti verið á þann veg að menn hafa lagt sig í líma við að vera með lága vexti.“ Ólafur var spurður um þau um- mæli Jóhannesar Nordals, að hætta sé á þenslu vegna skuldasöfnunar ríkisins við Seðlabankann. „Hann ýkir það nú að mínum dómi,“ sagði Ólafur. „Það voru mjög svipuð ummæli viðhöfð um sama árstíma í fyrra.“ Hann sagði það vera venju, að á fyrstu mánuðum ársins safni ríkis- sjóður skuld við Seðlabankann. „Við höfum fylgt þeirri stjórnlist að megintíminn í sölu spariskírteina og ríkisvíxla er um mitt ár og á seinni hluta ársins og við höfum reiknað með því í markaðsáætlun- um lánasýslunnar að það verði eins í ár og í fyrra að meginsölutími ríkisverðbréfa sé frá sumri til loka ársins." Ólafur kvaðst telja fyllilega raun- hæft að ná lánsfjárþörf ríkissjóðs að fullu innanlands eins og hann sagði að tekist hefði í fyrra. „Ég held að þau ummæli Einars Odds til dæmis að það sé einhver marg- föld seðlaprentun út úr Seðlabank- anum á við það sem var í fyrra séu byggð á misskilningi. Hann hefur einfaldlega ekki aflað sér réttra talna í þeim efnum.“ Borgarráð: Sigrún Magnúsdótt- ir kærð af kjörskrá KÆRA hefur borist til borgarráðs, vegna Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. Því er haldið fram að lög- heimili hennar sé ekki í Reykjavík og eigi hún því ekki rétt á að kjósa þar. í íbúaskrá þjóðskrár er Sigrún skráð til heimilis í Reykjavík en eiginmaður hennar er Páll Peturs- son alþingismaður, sem á lög- heimili í A-Húnavatnssýslu. Lögum samkvæmt er öllum heimilt að kæra fólk inn á kjör- skrá og út af henni. Lög sem nýlega voru sett gera ráð fyrir að taka eigi á kjörskrá alla þá sem eru íslenskir ríkisborgarar og hafa náð 18 ára aldri þegar kosning fer fram og skráðir eru með lög- heimili í sveitarfélaginu sam- kvæmt íbúaskrá, þjóðskrár, sjö vikum fyrir kjördag. Borgarráð kemur saman til fundar í dag og sker úr um kærur sem borist hafa végna alþingis- kosninganna 20. apríl næstkom- andi. Halli og Laddi þeirra krata KRATAR hafa valið sér nýtt fundaform í kosningabaráttunni fyrir þessar alþingiskosningar, þar sem tvær stjörnur, þeir Guð- mundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði og fjórði mað- ur á lista Alþýðuflokksins í Reykjaneskjördæmi, og Ossur Skarp- héðinsson, doktor í fiskeldi og þriðji maður á lista Alþýðuflokks- ins í Reykjavík, leika aðalhlutverkin - leika mjög vel ef marka má frammistöðu tvístimisins á fjölmennum kratafundi í Hafnar- firði í fyrrakvöld. Formið er afskaplega líflegt. Ræðumennirnir standa við sitt- hvort púltið og þruma yfír lýðnum boðskap sinn, kryddaðan bröndur- um og gífuryrðum um pólitíska andstæðinga og grípa orðið hvor af öðrum, en alltaf á hárréttum stöðum, eins og um þaulæft leik- rit sé að ræða. Einþáttungurinn varði í klukkutíma, og skemmtu Hafnarfjarðarkratar sér augljós- lega sem þeir væru á góðu gaman- leikriti. Mér er til efs að Halli og Laddi hefðu hlotið betri viðtökur. Guðmundur Árni hélt því fram fullum fetum að sjálfstæðismenn í Reykjaneskjördæmi fengjust ekki til þess að rökræða við jafn- aðarmenn. „Þeirra stefna er sú að hafa enga stefnu ... Þeir þora ekki að takast á við okkur - þeir víkjast undan.“ Guðmundur Ámi kemur fram í hlutverki hins gallharða krata- foringja, sem hrópar óbanginn yfir salinn: „Við Reyknesingar hljótum að trúa því að Alþýðu- flokkurinn sé Ijöldaflokkur - flokkur 30 til 50% kjósenda og við ætlum að gera hann það á landsvísu!" Guðmundur Árni hnýtti ekki einungis í Sjálfstæðisflokkinn í máli sínu, þótt hann liti augljós- lega á þann flokk sem höfuðand- stæðing í þessari kosningabar- áttu. Aðrir pólitískir andstæðing- ar fengu vissulega sinn skerf. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum formaður meðleikanda Guðmund- ar Árna, Össurar, fékk einnig sinn skammt: „Hvað þá með þennan gamla flokk hans Össurar, Al- þýðubandalagið og Ólaf Ragnar Grímsson? ... Nú stefnir óðfluga í það í uppdráttarsýkinni hjá Al- þýðubandalaginu að hann sitji þar einn eftir. Þá skulum við jafnaðar- menn vera algjörlega klárir á því að hann bankar auðvitað á dyr hjá okkur. Hvert á hann annað að fara? Við þurfum að velta vöngum yfír því hversu mikill mannúðarflokk- ur Alþýðuflokk- urinn er. Opnar hann faðminn fyrir öllum? Ég segi það fyrir mína parta, að ég vil að maðurinn skrifti og ég treysti engum betur en bróður mínum í Heydölum til að taka hann til skrifta!" Þessari yfirlýs- ingu bæjarstjórans var tekið með lófataki og hlátrasköllum af Hafn- arfjarðarkrötum. Össur gerði stuttlega grein fýr- ir því hvers vegna hann hefði horfið úr Alþýðubandalaginu og gengið til liðs við Alþýðuflokkinn: „Mér er það ekkert launungar- mál, þegar múrarnir voru að hrynja í Austur-Evrópu, þá tóku þeir sig til og fóru að reisa þá aftur í Alþýðubandalaginu. Múrarnir sem ég vildi bijótá niður á milli flokka, þeir voru víggirtir enn frekar af hálfu margra þeirra sem núna ráða ríkjum í Alþýðu- bandalaginu. Ég hika ekki við að segja að ég vil búa til einn stóran flokk, eina stóra hreyfingu íslenskra jafnaðarmanna og ég tél að Alþýðuflokkurinn eigi að vera burðarásinn í þeirri hreyfingu. Sú hreyfíng á að taka yfir obbann af góðu fólki í Alþýðubandalag- inu, allan Kvennalistann og hún á líka að taka yfír væna sneið af fijálslyndum sjálfstæðismönn- um.“ Össur leikur hlutverk hins hnyttna, orðheppna grínista, með miklum pólitískum sjarma. I nán- ast öllum hans tilsvörum fær leiftrandi kímnigáfa hans að njóta sín og hann kemst upp með það eins og ekkert sé og fær meira að segja lof í lófa fyrir að segja: „Davíð segir ágæta brandara og hann segir þá prýðisvel. En hann á bara að halda sig við það!“ Öss- ur sagðist fremur vilja nota séra Gunnlaug (bróður Guðmundar Árna) til þess að biðja fyrir Al- þýðuflokknum, en taka Ólaf Ragnar Grímsson til skrifta. Guðmundur Árni fjallaði af al- vöruþunga um sjávarútvegsmál: „Auðvitað er það rosalegt að kvótakóngar skuli velta sín á milli afla sjávarins, skipta á veiðleyfa- heimildum fyrir peninga, sem samsvarar fimm milljörðum á síðasta ári. Þeir versluðu með kvóta upp á fímm milljarða - þeir versluðu með eign þjóðarinn- ar! ... Við Hafnfirðingar þekkjum mjög gott dæmi um þetta, sem er af Hvaleyrinni hf. Það eru tæp sex ár frá því að þetta fyrirtæki sem þá hét Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar var selt af þáverandi meiri- hluta Sjálfstæðisflokksins fyrir smánarlega upphæð. Núna ætla eigendurnir, Hagvirki og Sam- heiji að skipta upp reytunum sem eftir voru. í einhverri kerskni spurði annar aðaleigenda mig sem bæjarstjóra: „Jæja, viltu bara ekki kaupa þetta aftur?“ Þóttist viss um það að bærinn hefði ekki mik- inn áhuga á því að leggja í þenn- an atvinnurekstur. Eg sagði að ég skyldi kaupa þetta aftur, á uppreiknuðu söluverði frá 1985. Hann hló alveg rosalega og sagði „Nei. í millitíðinni hef ég náttúru- lega fengið hundruðir milljóna í formi framseljanlegs kvóta". Og þessi framseljanlegi kvóti sem fór með Bæjarútgerð Hafnarljarðar á sínum tíma, nemur á annan milij- arð króna í dag og hefur verið seldur norður yfir heiðar. Þetta er náttúrlega hrikalegt dæmi um þá misnotkun sem á sér stað varð- andi þessa þjóðareign okkar - Guðmundur Össur Arni Hnyttni grínist- Harði kratafor- inn inginn fiskinn í sjónum.“ Að sameiginlegum ræðuhöld- um loknum, svörðu þeir Guð- mundur Árni og Össur fyrirspurn- um í annan klukkutíma. Össur svaraði fyrirspurn um óheillavæn- lega þróun umferðamála áæftir- farandi hátt: „Ég hef lagt mitt af mörkum - ég hef ekki enn tekið ökupróf.“ Og fyrirspurn um afstöðu til gengismála: „Gengi Alþýðuflokksins fer hækkandi!“ Og fyrirspurn um hátt raforku- verð til fiskvinnslustöðva: „Flyttu bara til Reykjavíkur og kjóstu mig á þing og þá skal ég kippa þessu í liðinn!" Þeir Guðmundur Árni og Össur bjóða því upp á pólitískan skemmtifund upp á gamla móð- inn, þar sem alvaran er blönduð gamni, eða öllu heldur, þar sem gamanið tekur á sig alvarlegan blæ öðru hvoru. En þótt gamli stíllinn sé á fundum þeirra, þar sem málflutningur einkennist af gamanyrðum og stóryrtum yfír- lýsingum, þá er tónninn ekki alveg hreinn, því hér er ekki um hanaat pólitískra andstæðinga að ræða eða rökræður, heldur miklu frem- ur íjörlega sviðsetningu samherja. ■bDAGBÓKm STIÓRNMÁL eftir Agnesi Bragadóttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.