Morgunblaðið - 12.04.1991, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL ,1991
'25
Olafur G. Einarsson:
Veljum sjálfir við-
mælendur okkar
Boði um fund með sljórnarflokkunum hafnað
ÓLAFUR G. Einarsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi, sagði á opnum fundi sjálfstæðismanna í
Garðabæ í fyrrakvöld að frambjóðendur flokksins hefðu skipulegt
vinnu sína fram að kosningum með kosningafundum og heimsókn-
um á vinnustöðum og hefðu því ekki getað þegið boð frambjóð-
enda Alþýðuflokksins um að skiptast á skoðunum við þá á fundum
dagana 8.-13. þessa mánaðar.
„Við eigum líka ýmislegt van-
talað við hina stjórnarflokkana,“
sagði Ólafur. Hann sagði að því
hefði Alþýðuflokknum verið gert
gagntilboð um kappræður við full-
trúa stjórnarflokkanna þann 18.
apríl, eina daginn sem hægt hefði
verið að hliðra til fyrir slíkan fund.
Því boði hefði Alþýðuflokkurinn
hafnað, sagt að sá dagur hentaði
þeim ekki.
„Við veljum okkar viðmælendur
sjálfir, en látum ekki aðra segja
okkur fyrir verkum með það. Mér
sýnist að fulltrúar ríkisstjórnar-
flokkanna kæri sig ekki um að
koma saman til fundar með okk-
ur. Þeir virðast eiga ýmislegt van-
talað hver við annan,“ sagði Ólaf-
ur.
Munum ekki aðhafast neitt það
sem kemur verðbólgunni af stað
- sagði Olafur G. Einarsson efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi
FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi eru
á ferð um allar byggðir kjördæmisins. Þeir heimsækja fólk á vinnu-
stöðum og halda opna stjórnmálafundi. A miðvikudag voru þeir
í Garðabæ og Bessastaðahreppi og héldu fund í Garðalundi um
kvöldið. Þrír efstu frambjóðendurnir fluttu framsöguræður og á
eftir ræddu frambjóðendur við fundarmenn yfir kaffisopa.
Ólafur G. Einarsson svaraði
ýmsum ummælum sem frambjóð-
endur annarra flokka hafa viðhaft
um Sjálfstæðisflokkinn að undan-
förnu. Hann vitnaði m.a. til þeirra
ummæla Jóns Baldvins Hannibals-
sonar utanríkisráðherra að þjóðar-
sáttin væri Sjálfstæðisflokknum
ekki að þakka og kjósendur ættu
að þakka fyrir óþjóðlega afstöðu
flokksins meðþví að kjósa flokkinn
ekki. Sagði Ólafur að allir vissu
hvemig þjóðarsáttin hefði orðið
til. Hún varð ekki til á borði ríkis-
stjórnarinnar, heldur með samn-
ingum á milli aðila vinnumarkað-
arins, þrátt fyrir ríkisstjórnina en
ekki vegna hennar. Hún varð til
fyrir stuðning sjálfstæðismanna,
sagði Ólafur. Hann sagði að flokk-
urinn hafi verið andvígur því að
samningur ríkisins við BHMR
væri svikinn en það og þjóðarsátt-
in væru tvö óskyld mál.
Síðar á fundinum sagði hann
að andstæðingarnir væru að halda
því að fólki að verðbólguholskefla
gangi yfir ef Sjálfstæðisflokkurinn
kemst til valda. Þetta væri
ódrengilegur málflutningur því
Sjálfstæðisflokkurinn hefði í
stjórnarandstöðu stutt ráðstafanir
vegna þjóðarsáttarsamninganna.
„Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki
aðhafast neitt það sem kemur
verðbólgunni af stað ef hann tekur
við stjórnartaumunum eftir kosn-
ingar. En það verður fylgst með
þeim sem þá verða í stjórnarand-
stöðu, hvort þeir sýna sömu þjóð-
hollustu í stjórnarandstöðu og
Sjálfstæðisflokkurinn," sagði Ól-
afur.
Ólafur sagði að allir vissu að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði stutt
byggingu álvers á Keilisnesi af
heilum hug, og var þá að svara
þeim ummælum Jóns Sigurðsson-
ar iðnaðarráðherra að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði sýnt honum
næsta lítinn stuðning í álmálinu
þegar á reyndi. Sagði Ólafur að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði einn
flokka stutt þingsályktunartillögu
um að iðnaðarráðherra mætti
halda áfram viðræðum við útlend-
inga, það hefði reyndar enginn
bannað honum, sem ráðherra hefði
reynt að koma í gegn um þingið
á síðustu dögum þess. Þetta hefði
verið gert þrátt fyrir að þessi til-
laga hafi verið óþörf, en það hefðu
verið samstarfsaðilárnir í ríkis-
stjórninni sem komu í veg fyrir
samþykkt hennar. Sagði Ólafur
að auk þess lægi fyrir að frambjóð-
endiir Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi væru einu
frambjóðendurnir í kjördæminu
sem ekki hefðu gert tilraunir til
að koma álverinu fyrir annars
staðar en á Keilisnesi.
Hann gagnrýndi þau ummæli
Steingríms Hermannssonar að
kosningarnar nú væru þjóðarat-
kvæðagreiðsla um aðiid okkar að
Evrópubandalaginu. Það væri al-
veg út í bláinn að segja þetta því
ekki væri hægt að bera málið
undir þjóðaratkvæði fyrr en samn-
ingur lægi fyrir og það gæti aldr-
ei orðið fyrr en um aldamót. Það
væri annað mál að menn gætu
haft efasemdir um það hvort rétt
væri að sækja um aðild að EB.
„Ég hef haft mjög miklar efasemd-
ir um EB,“ sagði Ólafur, en bætti
því við að svo mörg atriði væru
óljós að ekki væri hægt að aftaka
það með öllu.
Salome Þorkelsdóttur alþingis-
maður ijallaði m.a. um málefni
fjölskyldunnar. Hún tók sérstak-
lega fyrir stöðu heimavinnandi
fólks sem hún sagði að hefði orðið
útundan og þyrfti að laga. Börnin
þyrftu fleiri valkosti, m.a. að for-
eldri geti verið heima. Hægt væri
að stuðla að því með ýmsum ráð-
um, barnabótum, skattafslætti og
niðurgreiðslum dagvistargjalda
beint til foreldra.
Árni M. Mathiesen, þriðji maður
á lista Sjálfstæðisflokksins, ræddi
m.a. um nauðsyn nýsköpunar í
atvinnulífinu. Sagði að ekki væri
nóg að byggja eitt álver ííeldur
þyrfti þijú á næstu tíu árum. Hann
kom fram með þá hugmynd að
stuðlað yrði að stofnun eignar-
haldsfélaga til að fjárfesta í ný-
sköpun í atvinnulífinu.
■ BÆJARRÁÐ Vestníanna-
eyja mótmælir harðlega tillögu
fjárveitinganefndar um úthlutun á
100 milljónum sem voru ætlaðar
þeim höfnum landsins sem urðu
fyrir mestum tekjumissi vegna
mikils samdráttar í loðnuveiðum.
Vestmannaeyjar hafa undanfarin
ár verið eins stærsta löndunarhöfn
loðnu en í tillögu nefndarinnar er
ekki gert ráð fyrir úthlutun til
Vestmannaeyjahafnar, þrátt fyrir
að samdráttur í loðnuveiðum hafi
bitnað einna mest á Vestman-
neyjahöfn, segir í frétt sem blaðinu
hefur borist.
Aðrir
Norhurland
eystra
AS neðon eru úrsíit skoSanakönn-
unar, sem Gallup á íslandi aerSi fyrir
RÚV, um viShorr fólks í Norourlands-
: kjördæmi eystra til þeirra flokka, sem
bjóSa fram í komandi kosningum.
'83 '87 '91*
Alþýðuflokkur A 11,0% 14,3% 12,5%
Framsóknarflokkur B 34,7% 24,9% 33,2%
Bandalag jafnaðarmanna C 4,5% — —
Sjálfstæðísflokkur D 27,2% 20,9% 28,0%
Frjálslyndir F — — 1,1%
Alþýðubandalag G 16,8% 13,1% 10,6%
Heimastjórnarsamtök H — — 2,6%
Somtök um jafnréttl og félagshyggju J — 12,1% —
Flokkur mannsins M — 1,3% —
Borgaraflokkur S — 3,6% —
Samtök um kvennalista V 5,8% 6,4% 6,9%
Þjóðarflokkur 0 — 3,4% 5,2%**
'Collup i) Islondi gciii könnmiim lyiírm/.-10.«,
enióoilinu 1-4%. Hl sambaiSai m kosoingamt l9SSogl987."
\ en 607jx6mSu edo um 71%. SkekkjumSrk
“'ikui mannsins.
Frábærír frúarbolir frá
ÚthJf
Glæsibæ, sími 82922.