Morgunblaðið - 12.04.1991, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 12. APRÍL 1991
27; ■
i' ;-íI'" '
fím
^vorar
i Oðinsveum
Vorið nálgast og mannlífið tekur fjörkipp. Laxinn
fer að ganga í Elliðaárnar og jafnvel bragðlaukarnir
fyllast nýju lífi.
Hjá okkur er það árviss vorboði þegar nýr matseðill
lítur dagsins Ijós, svo nú er kjörið tilefni að gera sér
dagamun og fagna vori í Óðinsvéum, með Ijúffengum
mat og drykk.
Verið velkomin. Við erum alltaf í sólskinsskapi, í
hvaða veðri sem er.
iffi
ÍPW
ítölsk ferja sigldi á olíuskip:
Breyttíst í logandi
víti á svipstundu
Aðeins einn maður bjargaðist af 142 um borð
Livorno. Reuter.
OTTAST er, að um 140 manns hafi farist, ýmist drukknað eða brun-
nið til bana, þegar ítalska ferjan Moby Prince sigldi í fyrrinótt í
svartaþoku en á fullri ferð á olíuskip, sem lá fyrir akkeri í Livorno-
flóa. Hefur aðeins tekist að bjarga einum manni af ferjunni, sem
varð strax alelda við áreksturinn. Þetta er mesta sjóslys við Ítalíu
eftir stríð.
Hafnarstjórinn í Livorno sagði í
gær, að ástandið á slysstað hefði
einna helst minnt á víti Dantes,
feijan logandi stafna í milli og
brunnið brak, björgunarbátar og
annað, allt umhverfis. Sagði
hann og talsmenn björgunar-
manna, að borin von væri að
finna fleiri á lífi en sá eini eftir-
lifandi af feijunni er 24 ára gam-
all háseti, Alessin Bertrand að
nafni.
„Við vorum allir í matsalnum
að horfa á sjónvarp þegar gífur-
legar drunur kváðu við og skipið
skókst og skalf eins og lauf í
vindi. Matsalurinn fylltist af reyk
og eldi og við reyndum að forða
okkur. Á göngunum og á dekkinu
lá fólkið deyjandi eða dáið, sum lí-
kanna virtust þá þegar vera brunn-
in til ösku,“ sagði Bertrand, sem
komst frá borði og var bjargað úr
sjóiium.
ítalska feijan Moby Prince er
rúmlega 6.000 tonn og voru 68
menn í áhöfninni og farþegar að
þessu sinni 74, allir ítalskir. Olíu-
skipið, sem heitir Agip Abruzzo, er
tæplega 100.000 tonn en skipveija
á því, 36 að tölu, sakaði ekki.
Við áreksturinn rifnaði gat á olíu-
skipið og á einn tankinn og steypt-
ist þá olían, sem gneistaflugið
kveikti strax í, yfir feijuna eins og
logandi foss. Áhöfnin og farþegarn-
ir áttu sér því ekki undankomu
auðið og það þykir ganga krafta-
verki næst, að einn maður skuli þó
hafa komist lífs af.
Reuter
ítalska feijan Moby Prince á Livornoflóa í gær. Hún er brunnin
stafna í milli og var hitinn frá henni svo mikill, að áhöfnin á slökkvi-
bátnum komst ekki um borð fyrr en seint og um síðir.
Pólland;
Nýríkir
Pólverjar
vilja Benza
Varsjá. Reuter.
NÝJU milljónamæringarnir í
Póllandi bíða í röðum með
úttroðnar stresstöskur af
seðlum fyrir utan umboðs-
sölu Mercedes Benz í Varsjá.
í sýningarsölum fyrirtækis-
ins er nú boðið upp á glæsi-
vagna á kynningarverði.
Yfir 20 bílar, hver að verð-
mæti milli 190 og 350 milljón
zlotía (um 1200.000—2100.000
ísl. kr.), þegar 10% afslátturinn
hefur verið dreginn frá, seldust
fyrstu tvo dagana.
„Fólk hefur beðið í röðum
fyrir utan verslunina," sagði
Tadeusz Zakrazewski, upplýs-
ingafulltrúi fyrirtækisins í gær.
„Margir komu með stresstö-
skurnar fullar af peningum."
Meðallaun í pólskum iðnaði
eru um 1,5 milljónir zlotía (um
9000 ísl. kr.) á mánuði, en ijöldi
dýrra erlendra bíla í Póllandi
hefur margfaldast að undanf-
örnu vegna örrar fjölgunar í
stétt kaupsýslumanna sem
þurfa á stöðutákni að halda.
Sovétríkin:
Skildu borgar-
fulltrúana eft-
ir í myrkrinu
Moskvu. Reuter.
RAFVIRKJAR í bænum Samara
sem stendur á Volgubökkum
höfðu sinn hátt á að mótmæla
verðhækkun sem bæjarstjórnin
fyrirskipaði í mötuneytum bæj-
arins — þeir dokuðu aðeins við
með viðgerð á smávægilegri raf-
magnsbilun og létu hina kjörnu
fulltrúa sitja eftir í inyrkrinu.
„Það hefði ekki tekið nema fáein-
ar mínútur að gera við bilunina,"
sagði Tass-fréttastofan, „en rafvir-
kjarnir ákváðu að fara sér að engu
óðslega og sögðu að rétt væri að
borgarfulltrúarnir fengju að velta
fyrir sér í næði hvernig unnt væri
að borga fimm rúblur fyrir hvern
hádegisverð af 60 rúblna fæðispen-
ingum á mánuði."
Fréttastofan sagði að atvikið sem
komið hefði mótmælunum af stað
hefði valdið myrkvun í ráðhúsinu
og nágrenni þess í nokkrar klukku-
stundir.
^SKIPAPLOTUR - INNRÉTTIN6AR
PLÖTUR í LESTAR
d I • im SERVANT PLÖTUR
■ I 11 I I SALERNISHÓLF
BAÐÞIUUR
ELDHÚS-BORÐPLÖTUR
^ ÁLAGER-NORSKHÁGÆÐAVARA
Þ.Þ0R6BIHSS0H&CD
Ármúla 29 - Múlatorgi - s. 38640