Morgunblaðið - 12.04.1991, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991
i iMORÍiUNBLAÐIÐ; FÖSTUÐAGÍÍRI121 lAPRÍli01991
29
Q
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst IngiJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Launamál opinberra
starfsmanna og hug-
myndir Davíðs
Það er tvennt sem ræður öðru
fremur lífskjörum fólks: 1)
verðmætasköpunin í þjóðarbú-
skapnum, 2) viðskiptakjörin við
umheiminn (söluverð útflutnings-
framleiðslu okkar og kaupmáttur
gjaldeyristekna).
Við höfum því miður ekki lagað
atvinnulíf okkar nægilega að efna-
hagslegum veruleika í umheiminum
hin síðari árin. Afleiðingin er lítill
hagvöxtur og lakari lífskjör en ella.
Slæm rekstrarleg staða undirstöðu-
greina, sem afkoma fólks í stijál-
býli hvílir nær alfarið á, hefur og
stuðlað að fólksflótta af lands-
byggðinni. Þá hefur því verið haldið
fram að kjarastaða ríkisstarfs-
manna undir „félagshyggjustjórn",
ekki sízt sérmenntaðs fólks, hafí
leitt til atgervisflótta frá hinu opin-
bera.
Það hefur á skort, að hið opin-
bera - og raunar samtök launþega
einnig - hafi mótað markvissa
launastefnu, sem m.a. taki á því,
hvem veg ábyrgð, menntun og sér-
hæfð starfsþekking skuli metin til
launa. Kjaramál opinberra starfs-
manna hafa, m.a. af þessum sökum,
verið um árabil í kreppu, sem ítrek-
að hefur valdið illleysanlegum
vanda. Davíð Oddsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hefur nú sett
fram hugmyndir um uppstokkun á
launakerfi hins opinbera, „þannig
að samið verði á hveijum stað fyrir
sig og síðan hefðu forsvarsmenn
fyrirtækjanna ákveðið svigrúm til
þess að umbuna góðum starfsmönn-
um ... Við hjá borginni finnum veru-
lega fyrir því að það er alltaf hætta
á að einkaaðilar kaupi frá okkur
góða starfskrafta ...“ Davíð segist
gera sér grein fyrir því, að það sé
hægara sagt en gjört að gjöra hið
opinbera samkeppnishæfara um
gott starfsfólk, „en ég er sannfærð-
ur um að það er framkvæmanlegt,“
segir hann.
Formaður BHMR segist vera
ánægður með það, að Davíð Odds-
son geri sér grein fyrir því að stokka
verði upp launakerfi opinberra
starfsmanna. Það þjóni ekki ríkisbú-
skapnum að opinberar stofnanir séu
nánast þjálfunarbúðir fyrir
hinn almenna markað. Formaður
BSRB segir og sjálfsagt að skoða
allar hugmyndir um þetta efni með
opnum huga, en leggur höfuð-
áherzlu á almenna hækkun kaup-
taxta.
Mergurinn málsins er þó að leysa
með viðunandi hætti - og með hlið-
sjón af viðblasandi efnahagsstað-
reyndum í þjóðarbúskapnum - þann
rembihnút, sem ríkisstjórnir hafa
hnýtt á kjaramál hins opinbera.
Davíð Oddsson hefur velt upp nýjum
hugmyndum til lausnar á vandan-
um, til þess m.a. að gera opinberum
stofnunum betur kleift að halda
hæfum starfskröftum og tryggja
þann veg meiri starfsárangur
og betri þjónustu við almenning.
Vel menntað gg hæft starfsfólk er
arðgæfasti auður samfélagsins. Það
gildir jafnt um hið opinbera og at-
vinnuvegina í þjóðarbúskapnum.
Náið samráð
við Steingrím
Jón Baidvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, upplýsti í grein
í ivíorgunbiaðinu í gær, að hann
hefði haft náið samráð við Steingrím
Hermannsson, forsætisráðherra, um
öll samskipti okkar við Evrópu-
bandalagið. Utanríkisráðherrann
segir í grein sinni: „Sem utanríkis-
ráðherra hef ég haft frumkvæði um
stefnumótun og reyndar borið
ábyrgð á verkstjórn við undirbúning
samninga íslands við EB um stofn-
un evrópsks efnahagssvæðis. Þetta
hef ég gert í umboði ríkisstjórnar-
innar allrar. Þetta hef ég gert í
nánu samráði við forsætisráðherra
og ekki staðið þar hnífurinn í milli.
Ég hef mokað skýrslum og greinar-
gerðum um þetta mál fyrir ríkis-
stjóm, utanríkismálanefnd og Al-
þingi. Aldrei - segi og skrifa aldrei
- hefur komið upp nokkur ágrein-
ingur milli mín og hæstvirts forsæt-
isráðherra."
Samkvæmt þessum ummælum
utanríkisráðherra, er Steingrímur
Hermannsson meðábyrgur um allt,
sem gert hefur verið og ekki gert
í samskiptum okkar við EB á undan-
förnum misserum. Hvað er það í
verkum þeirra tveggja, sem veldur
því, að forsætisráðherra telur nauð-
syn á þjóðaratkvæði um þau verk
eftir rúma viku?!
Sjálfstæðis-
menn mundu
segja nei
j~^e\r H. Haarde, alþingismaður
Itt og einn af frambjóðendum
Sjalfstæðisflokksins í Reykjavík,
gaf afdráttarlausá yfirlýsingu um
afstöðu Sjálfstæðisflokksins tíl að-
ildar að Evrópubandalaginu á fundi
viðskiptafræðinema í fyrradag.
Þingmaðurinn sagði að Sjálfstæðis-
flokkurinn mundi segja nei, ef spurt
væri nú. Orðrétt sagði Geir H.
Haarde:
„Ég segi fyrir mig og sjálfstæðis-
menn, ef við ættum í dag að svara
spurningunni um það, hvort við vild-
um ganga í EB, þá segðum við nei.
En það væri auðvitað óskynsamlegt
að gera það, sem Framsókn og Al-
þýðubandalag vilja gera að segja,
að það nei gildi um aldur og ævi.“
Þessi yfirlýsing eins frambjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins er ótví-
ræð: Sjálfstæðisflokkurinn mundi
segja nei við aðild að Evrópubanda-
laginu, ef flokkurinn stæði frammi
fyrir þeirri ákvörðun nú.
Skoðanakönnun um viðhorf til þróunaraðstoðar:
Nærri 60% telja framlag ís-
lands hæfilegt eða of mikið
Kostar 13.400 krónur á hvern skattborgara að ná marki SÞ
NIÐURSTÖÐUR könnunar Fé-
lagsvísindastofnunar Háskóla
Islands á viðhorfum íslendinga
til þróunaraðstoðar sýna að 52%
svarenda telja framlag íslands
til þróunaraðstoðar vera hæfi-
legt og 5% telja það vera of
mikið. 43% telja framlagið of
lítið. Fram kom á blaðamanna-
fundi, þar sem niðurstöðurnar
voru kynntar, að framlag ís-
lands er nú um tíundi hluti þess,
sem iðnríki innan Sameinuðu
þjóðanna hafa gengist undir að
leggja fram og fer framlagið
að stórum hluta í skyldubundnar
greiðslur til alþjóðlegra stofn-
ana sem ísland á aðild að. Til
þess að ná marki SÞ, 0,7% af
þjóðarframleiðslu, þarf að
ieggja fram fjárhæð sem svarar
til þess að hver skattborgari í
landinu greiði að jafnaði 13.400
krónur á ári. í könnuninni kom
einnig fram að talsverður mun-
ur er á afstöðu fólks eftir aldri,
kynferði og menntun.
Könnunin var gerð að beiðni
nefndar sem forsætisráðherra
skipaði í desember síðastliðnum til
að gera tillögur um framtíðarskip-
an þróunaraðstoðar íslendinga.
Hún fór fram dagana 23. til 26.
mars 1991. Leitað var til 1.500
manna á aldrinum 18 til 75 ára
af öllu landinu. Alis fengust svör
frá 1.094 ogerþað 72,9% svarhlut-
fall. Nettósvörun er 75%.
Stefán Ólafsson forstöðumaður
Félagsvísindastofnunar sagði að
niðurstöður könnunarinnar ættu
að gefa nokkuð rétta mynd af af-
stöðu þjóðarinnar á þessum tíma.
Af þeim 1.094 sem til náðist
neituðu 63, eða 5,8% að svara eða
voru óvissir, um hvort framlag ís-
lendinga til þróunaraðstoðar væri
of mikið, hæfilegt eða of lítið. Hlut-
fall þeirra sem tóku afstöðu var
þannig, að 5,1% sögðu framlagið
of mikið, 51,9% hæfilegt, 43,0%
of lítið.
Tveir af hveijum þremur að-
spurðra, eða 66,4%, kváðust
hlynntir því að beitt verði skattafs-
lætti til að örva fijáls framlög ein-
staklinga og/eða fyrirtækja til þró-
unaraðstoðar.
Lítil þekking
Spurt var hvort svarendur gætu
nefnt einhver þróunarverkefni og
47,3% nefndu ekkert, 32,6%
nefndu Grænhöfðaeyjar einar sér
eða ásamt öðrum verkefnum,
20,1% nefndu önnur verkefni og
neyðarhjálp.
Flestir töldu að þau verkefni sem
þeir nefndu hefðu tekist vel eða
sæmilega. Sama var uppi á ten-
ingnum þegar spurt var hvort
neyðarhjálp fijálsra félagasam-
taka hefði tekist vel, sæmilega eða
illa. 90% þeirra sem tóku afstöðu
töldu að vel eða sæmilega hefði
tekist til.
Tæp 80% aðspurðra kváðust
telja mikilvægt að íslendingar ráði
sjálfir ráðstöfun þess fjár sem þeir
leggja í þróunaraðstoð og rúm 70%
kváðust telja æskilegt að íslend-
ingar reyni að bæta eigin hag um
leið og þeir hjálpa þróunarlöndum,
til dæmis með því að kaupa vörur,
tæki, tæknilega ráðgjöf og þjón-
ustu hér.
Talsverður munur milli hópa
Talsverður munur kom fram á
afstöðu fólks eftir því hvernig það
greinist í hópa. 42% karla telja
hlut íslands í þróunaraðstoð hæfi-
legan, en 62,7% kvenna. 51,6%
karla telja hann of lítinn, en 33,6%
kvenna.
Yngra fólk telur hlut íslendinga
fremur hæfilegan en eldra fólk,
sem telur hann fremur vera of lít-
inn. Tæp 70% í aldurshópnum
18-24 ára telja hlut íslands hæfi-
legan, en 27% of lítinn. Tæp 43%
í aldurshópnum 60-75 ára telja
hlut íslands hæfilegan, en 50,6%
of lítinn.
Þegar hópar eru greindir eftir
stétt kemur fram að þeir sem helst
telja hlut íslands hæfilegan eru í
hópi heimavinnandi, 66%, tæp 60%
verka- og afgreiðslufólks og meira
en helmingur iðnaðarmanna og
sléttur helmingur skrifstofu- og
þjónustufólks er sömu skoðunar.
Atvinnurekendur og sérfræðingar
eru flestir á því að hlutur íslands
sé of Htíll, rúm 64%, og helmingur
sjómanna og bænda.
Þá kom fram í könnuninni að
þeim mun meiri skólagöngu sem
fólk á að baki, því fremur telur
það framlag Islands of lítið, en
þeir sem eiga styttri skólagöngu
að baki telja það fremur hæfilegt.
Stærsti hlutinn til
Alþjóðabankans
í frétt frá forsætisráðuneytinu
er minnt á þingsályktun frá 28.
maí 1985 um að opinber framlög
íslands til uppbyggingar í þróun-
arríkjunum verði 0,7% af þjóðar-
framleiðslu. „Þrátt fyrir markmið
Opinber þróunaraðstoð 1988
(sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu, og
hlutfall framlaganna til fjölþjóöastofnanna)
% af VÞF % til fjölþjófla- stofnana
Danmörk 0,89 47
Finnland 0,59' 38
ísland 0,05 64
Noregur 1,10 41
Svíþjóð 0,87 33
Austurríki 0,24 36
Bandaríkin 0,21 28
Belgía 0,40 34
Bretland 0,32 46
Frakkland 0,72 18
Holland 0,98 31
írland 0,20 54 .
Ítalía 0,39 26
Japan 0,32 30
Kanada 0,49 33
Nýja Sjáland 0,27 17 :
Sviss 0,32 28
ViyOrO.7%
ofangreindrar þingsályktunar, að
hinu alþjóðlega viðmiðunarmarki
yrði náð á næstu sjö árum frá
samþykkt hennar, hefur raunin
orðið önnur,“ segir þar. „Fjárveit-
ingar hafa staðið í stað og námu
árið 1990 0,07% af þjóðarfram-
leiðslu, en hefðu með réttu átt að
nema 0,5% það ár, ef fýlgt hefði
verið einróma viljayfirlýsingu Al-
þingis frá 1985.“
Fram kom á blaðamannafundin-
um um skoðanakönnunina, að á
þessu ári er framlag íslands til
þróunaraðstoðar um 260 milljónir
króna. Stærsti hluti þess fjár fer
í skyldubundin framlög til alþjóða-
stofnana sem ísland á aðild að,
einkum til Alþjóðabankans, en
þangað renna á annað hundrað
milljóna króna af þessum 260.
Verði framlag Islands 0,7% af
þjóðartekjum, yrði það um hálfur
þriðji milljarður króna.
Nefndin sem forsætisráðherra
skipaði mun starfa áfram að at-
hugunum og tillögugerð varðandi
þróunaraðstoð og er stefnt að því
að hún leggi ákveðnar tillögur fyr-
ir ríkisstjórn í haust um það leyti
sem Alþingi kemur saman.
Listhúsið Nýhöfn:
Sýning á dönskum
steinþrykksmyndum
SÝNING á steinþrykksmyndum frá U.M. grafíkverkstæðinu í Kaup-
mannahöfn opnar á morgun í listhúsinu Nýhöfn. Á U.M. grafíkverk-
stæðinu þrykkja feðgarnir Carl og Rasmus Urvald steinprentsmynd-
ir, þeir bjóða listamönnum, einum í einu og frá ýmsum þjóðlöndum,
að koma og vinna myndir sem síðan eru þrykktar í 90 til 220 mynd-
um hver. Verkstæðið heldur myndunum flestum og selur þær til list-
húsa víðsvegar um Evrópu. Hér á landi er staddur Lars Köhler,
forstöðumaður verkstæðisins. Hann hélt í vikunni fyrirlestur um
steinþrykk og starfsemi fyrirtækisins og vann við það að hengja upp
sýninguna í Nýhöfn, myndir eftir 12 danska listamenn.
Lars Köhler segir að í Evrópu í
dag séu um 15 steinþrykksverk-
stæði. „Það er mikill munur á því
þegar listamenn taka sig til öðru
hveiju og gera steinþrykksmyndir,
og handbragði fagmanna sem
vinna við það eingöngu að
þrykkja", segir Lars. „Munurinn
felst ekki síst í því að við getum
gert allt að 200 myndir sem eru
alveg jafnar að gæðum, með 20
litum, á meðan listamaðurinn ræð-
ur yfirleitt hvorki við að gera mörg
eintök né að nota marga liti. Stofn-
andi verkstæðisins, en það hefur
verið starfandi í 32 ár, hefur gegn-
um tíðina undirbúið 25.000 steina
og prentað af þeim, og það hlýtur
að segja eitthvað um kunnáttu
hans!
Enginn listamaður vinnur eins á
steinana. Sumir helia miklu af bieki
á þá meðan aðrir vanda sig ákaf-
lega og vinna í fínlegum blæbrigð-
um. Við erum nokkuð sérstakir að
því leyti að við bjóðum listamönnum
að koma og vinna með okkur, en
þeir geta ekki pantað aðstöðu og
tíma. Við bjóðum evrópskum lista-
mönnum í auknum mæli að koma
og vinna með okkur, en til þessa
hafa listamennirnir mestmegnis
verið frá Danmörku og Nörðurlönd-
unum. Við seljum einnig meira og
meira suður til Evrópu, og til dæm-
is seljum við um 30% af fram-
leiðslu okkar til Þýskalands í dag.
Og það er gott fyrir norræna Iista-
menn, því um leið er þetta útflutn-
ingur og kynning á norrænni list.
Kannski er það undarlegt að við
skulum geta selt svona mikið af
myndum eftir listamenn sem eru
yfirleitt lítt þekktir í Þýskalandi,
en ég held að þar ráði gæði mynd-
anna og þrykksins mestu.
Við höfum boðið tveimur íslensk-
um listamönnum að vinna mcð
okkur upp á síðkastið, þeim Hauki
Dór og Tolla, og við erum þegar
farnir að selja myndir þeirra og það
gengur vel. Tolli var hjá okkur í
mánuð og gerði á þeim tíma fimm
myndir, en við gefum listamönnun-
um allan þann tíma sem þeir þurfa.
Sumir gera eina mynd á tveimur
dögum og svo er einnig til dæmi
um listamann sem var heilan mán-
uð að gera eina mynd!“
— Hvaða myndir verða á sýn-
ingunni hér í Nýhöfn?
„Myndir eftir tóif danska nú-
tímalistamenn. Þijár til fimm
myndir eftir hvern, svo þetta verða
eitthvað um sextíu myndir í allt, í
þremur stærðum.“
— Hveijir eru það sem kaupa
grafíkmyndir, þessi steinþrykk til
dæmis?
„Venjulegt fólk. Grafík má
skipta í tvennt; annarsvegar mjög
dýrar myndir frægra listamanna,
en myndirnar sem við framleiðum
eru fyrir venjulegt fólk. Ef þú ert
áhugamaður um myndlist og lang-
ar ákaflega mikið í mynd eftir ein-
hvern ákveðinn listamann, þá er
ekki víst að þú getir keypt málverk
eftir hann. Það gæti kostað
400.000 íslenskar krónur. En hér
getur þú keypt steinprent í sömu
stærð fyrir 20.000. Það kann að
vísu að vera gert í 150 eintökum,
en það er eðli prentlistar. Og ég
kann vel að meta þesskonar list,
hún er heiðarleg og tæmir ekki
Morgunblaðið/Einar Falur
Lars Köhler og Tolli skoða myndirnar sem sá síðarnefndi vann á
U.M. grafíkverkstæðinu nýverið. Svala Lárusdóttir í Nýhöfn fylgist
með.
pyngju þeirra sem kaupa! Fólk fær
eitthvað fyrir peningana sína. Um
leið hjálpum við listamanninum,
seljum myndir hans og hjálpum til
við að auka hróður hans.“
Það er sendiherra Dana á ís-
landi, Villads Villadsen, sem opnar
sýninguna klukkan 14 á morgun,
laugardag.
-efi
Afurðastöðvar í mjólkuriðnaði:
Allt að 220 milljóna sparnaður
næst með fækkun mjólkurbúa
SAMKVÆMT niðurstöðum nefndar um hagræðingu og breytingu
á skipulagi í mjólkuriðnaði er afkastageta greinarinnar umfram
þarfir, og því hægt að lækka fastan kostnað með fækkun mjólk-
urbúa. Telur nefndin að ná megi 165-220 milljóna króna sparnaði
með fækkun mjólkurbúa um 3-5, en sparnaðurinn samsvari 5-6%
af vinnslu- og flutningskostnaði mjólkur.
í fréttatilkynningu frá land-
búnaðarráðuneytinu kemur fram
að nefndinni þyki ekki réttlætan-
legt að gera tillögur á grundvelli
útreikninga um það hvaða mjóik-
urbú eigi að hætta rekstri, þar sem
útreikningar hafi leitt í ljós að
svipuðum sparnaði megi ná með
mismunandi fækkunarmynstri.
Telur nefndin að ná megi auknum
sparnaði í rekstri með aukinni
verkaskiptingu. milli mjólkurbúa,
en til þess þurfi þó sterkari yfír-
stjórn í mjólkuriðnaðinum og ýms-
ar skipulagsbreytingar.
í skýrslu nefndarinnar kemur
fram að mjólkuriðnaðurinn hafi
sterka stöðu um þessar mundir,
en umhverfí hans mótist mjög af
lögum og reglugerðum ríkisvalds-
ins.
Ástæða sé til þess að óttast að
rekstrarumhverfi iðnaðarins geti
versnað á komandi árum vegna
aukins innflutnings á unnum
mjólkurvörum og samkeppnisvör-
um þeirra, og að dregið verði úr
almennum stuðningi við
mjólkurframleiðsluna.
Vegna þessa sýnist nefndinni
nauðsyn svo mikillar hagræðingar
í mjólkuriðnaði að slíkt náist að-
eins með róttækum skipulags-
breytingum. Heppilegasta leiðin
að því marki sé að stofna eitt fé-
lag með samruna allra mjólkurbúa
landsins, en þó svo viðamikil
Landssamband iðnaðarmanna hef-
ur gert könnun á því meðal aðildar-
fyrirtækja sinna hvort þau hafi verið
heimsótt af fulltrúum skattrannsókn-
arstjóra, hvort athugasemdir hafi
verið gerðar við söluskráningu og
hvers efnis þær hafa verið. Könnun-
in náði eingöngu til aðildarfyrirtækja
í iðngreinum sem selja fyrst og
fremst vöru eða þjónustu til neytenda
og er því skylt að skrá sölu í sjóðvél.
í úrtaki könnunarinnar voru 413
fyrirtæki. Svör bárust frá 117 aðilum
eða 28,3% þeirra sem leitað var til.
Af þeim 117 fyrirtækjum sem
svöruðu höfðu 53 fengið heimsókn
fulltrúa skattrannsóknarstjóra eða
ríflega 45%. Gerðar voru alls 40 at-
hugasemdir við söluskráningu hjá
31 fyrirtæki. Þar af fengu 19 fyrir-
tæki bréflega athugasemd með hótun
um lokun. Algengustu athugasemd-
irnar voru að formi sölureikninga var
áfátt, kennitölu kaupanda vantaði á
reikning, póstkröfur voru ekki rétt
skráðar og viðskiptavinur sá illa eða
ekki á glugga sjóðvélar.
Þau fyrirtæki sern könnunin náði
til selja að mestu til endanlegra neyt-
enda og er skylt að færa alla smá-
sölu í sjóðvél. Jafnframt er þeim
ætlað að gefa út sölureikning þegar
selt er til annars skattskylds aðila.
Formagallar á reikningum þeirra fela
því ekki í sér vanhöld á söluskrán-
ingu þeirra sjálfra heldur varða fyrst
og fremst það hvort reikningarnir
eru fullnægjandi gagn í bókhaldi
kaupanda. Líklegt er að suma þess-
ara formgalla megi rekja til ófull-
nægjandi upplýsingagjafar seljanda,
t.d. þegar reikningar eru ekki gefnir
út á nafn og kennitölu kaupanda og
skipulagsbreyting sé erfíð í fram-
kvæmd, þá muni hún skila mestum
árangri og því sé rétt að reyna
hana til þrautar.
Takist ekki að stofna eitt félag
er að mati nefndarinnar næsti
kostur að efia Samtök afurða-
stöðva í mjólkuriðnaði og fá þeim
félagsskap viðtækari völd til
stjórnunar.
Við eflingu SAM yrði að gæta
þess að mjólkurframleiðendum
„ÞAÐ er æskilegast í þessari stöðu
að enginn framlciði umfram sinn
rétt, en menn hafa ennþá þessa
mánuði sem eftir eru verðlagsárs-
ins til að bregðast við. Þess vegna
ættu þeir nú að slátra þeim grip-
um sem stendur til að slátra, en
það er helsta leiðin sem menn
hafa til að bremsa sig af,“ segir
Guðmundur Lárusson, formaður
Landssamtaka kúabænda, en eins
ætla verður að það sé ekki síður
skylda kaupanda en seljanda í tilvik-
um sem þessum að tryggja að slíkir
reikningar uppfylli formkröfur um
sölureikninga.
Landssambandið bendir á að krafa
um glugga á sjóðvélar sé tiltölulega
nýlega til komin og margir verið
brýndir á því að fjárfesta í sjóðvélum
áður en slík krafa kom til. Það hljóti
því að teljast óhóflega harkalegar
aðgerðir að siga lögreglu á fyrirtæki
vegna þess að þau noti sjóðvélar sem
töldust löglegar fyrir fáeinum árum.
yrðu tryggð meiri áhrif í stjórn
samtakanna en nú er.
í nefndinni um hagræðingu og
breytingu á skipulagi í mjólkuriðn-
aði áttu sæti þeir Oskar Gunnars-
son forstjóri Osta- og smjörsölunn-
ar, sem var formaður nefndarinn-
ar, Ari Teitsson ráðunautur, Guð-
mundur Þorsteinsson bóndi, Gísli
Karlsson framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs, Guðmundur Sig-
þórsson skrifstofustjóri landbún-
aðarráðuneytisins, Bjarki Braga-
son hagfræðingur og Þórður Skúl-
ason sveitarstjóri.
Ritari nefndarinnar var Pálmi
Vilhjálmssón mjólkurverkfræðing-
og fram kom í Morgunblaðinu í
gær stefnir í verulega offram-
leiðslu mjólkur á yfirstandandi
verðlagsári.
Guðmundur sagði að þeir framleið-
endur, sem langt væru komnir með
framleiðslurétt sinn, ættu nú þegar
að draga úr kjarnfóðurgjöf, en næst-
um öruggt væri að þeir fengju ekk-
ert fyrir það sem þeir framleiða
umfram réttinn. Hann sagði að
birgðir mjólkurafurða væru nú í hám-
arki bæði hvað varðar smjör og
mjólkurduft, og því þyrfti sennilega
að beina umframmjólkinni til osta-
gerðar, en það kallaði á útflutning.
„Það fæst ekkert verð fyrir þann ost
sem væntanlega verður að flytja út.
Hluti af þessu er reyndar innan
samnings, en sú framleiðsla sem er
utan hans kemur alfarið til með að
lenda á framleiðendum. Menn eru
því þarna í býsna slæmu máli.“
Hann sagði að margir framleið-
endur virtust halda að þrengingum
í mjólkurframleiðslu væri lokið og
því gætu þeir nú framleitt nánast
ótakmarkað magn. Staðreyndin væri
hins vegar sú að afkastagetan væri
langt umfram það sem þörf væri
fyrir á markaðnum í dag.
„Ég tel því æskilegt að þeir fram-
leiðendur, sem sjá fram á að fram-
leiða umfram fullvirðisrétt sinn, taki
nú þegar ákvörðun um að slátra
þeim gripum sem til stendur að
slátra, frekar en að þurfa jafnvel að
grípa til þess ráðs að hella niður
mjólk, sem ekki er nógu góð ráðstöf-
un sama hvernig menn líta á það,“
sagði Guðmundur.
Ábendingar frá
LÖGREGLUNNI:
Gætið reiðhjólanna
Á síðasta ári var tilkynnt um stuld á 384 reiðhjólum til lögreglunn-
ar í Reykjavík. Flestar tilkynningarnar bárust í maí, 61, í júní 52 og
í júlí 58. Á þremur fyrstu mánuðum þessa árs hefur verið tilkynnt
um stuld á 52 reiðhjólum. Svo virðist sem fólk sé allkærulaust gagn-
vart þessum eigum sínum. Fullorðnir skilja hjólin eftir fyrir fótum
akandi og gangandi, börn henda þeim frá sér þegar þau hafa ekki
þörf fyrir þau og óprúttnir leika sér að því að fá hjólin „að láni“
og skilja þau síðan eftir í reiðileysi.
Það er full ástæða fyrir fólk að gæta reiðhjóla sinna betur. Öll
reiðhjól eiga að vera útbúin með lásum og þá á að nota þegar hjólin
eru ekki í notkun. Enn betra er að útbúa reiðhjólin með þannig lás-
um að hægt sé að læsa þau við jarð- eða veggfasta hluti þegar þau
eru ekki í notkun. Að kvöld- og næturlagi ætti það fremur að vera
regla en undantekning að reiðhjól séu geymd innan dyra þar sem
því verður við komið.
Landssamband iðnaðarmanna um söl-
uskráningu fyrirtækja:
Athugasemdir skattrann-
sóknarstjóra tilefnislausar
LANDSSAMBAND iðnaðarmanna telur að verulegur hluti athugasemda
fjármálaráðuneytisins vegna söluskráningar fyrirtækja séu ýmist tilefn-
islausar eða formsátriði sem ekki hafa efnislega þýðingu fyrir öryggi
í söluskráningu og skatteftirliti. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu
sem landssambandið hefur sent frá sér.
Aukin mjólkurframleiðsla:
Bændur slátri strax
þeim gripum sem til
stendur að slátra
- segir formaður Landssamtaka kúabænda