Morgunblaðið - 12.04.1991, Page 32
£2
i .MORGUNBLAÐIÐ .FÖSTUDAGUR ,4/2. APRIl 1991
Þn rvínr innsiglið og
átt von i vinning
Á næstu dögum áttu von á
nýstárlegum bæklingi inn um
lúguna. Þar gefst þér tækifæri
til að krossa við rétt svör í
skemmtilegri getraun. Það
eru 10 sólarlandaferðir fyrir
tvo í verðlaun.
Ferðagetraun íA-flokki
Karlakórinn Heimir er hann söng í Höfðaborg. Morgunbiaðið/Emar jóhannsson
Hofsós:
Karlakórinn Heimir
syngnr í Miðgarði
Hofsósi.
KARLAKORINN Heimir er sá félagsskapur sem hvað mest hefur
látið að sér kveða í tónlistar- og menningarlífi Skagfirðinga um langt
árabil, og er starf hans mjög öflugt nú sem endranær. 60 söngmenn
eru í kórnum sem eru viðsvegar úr Skagafirði. Söngstjóri er Stefán
R. Gíslason og undirleikarar Richard Simm og Jaqueline Simm.
Föstudaginn 15. mars hélt kórinn
tónleika í Akureyrarkirkju ásamt
Karlakór Akureyrar, Geysi, við
góða aðsókn og undirtektir áheyr-
enda.
Miðvikudaginn 27. mars hélt
kórinn Heimiskvöld (söng- og
skemmtikvöld) í Félagsheimilinu
Höfðaborg, Hofsósi, og í félags-
heimilinu Miðgarði laugardaginn
30. mars.
Þessar skemmtanir voru vel sótt-
ar og var söng kórsins afar vel tek-
ið og varð kórinn að endurtaka
mörg lög fyrir þakkláta áheyrendur
og syngja aukalög, einnig var kórfé-
lögum sem sáu um gamanmál mjög
vel tekið. Einsöngvarar með kóm-
um voru Pétur Pétursson og Ásgeir
Eiríksson, auk þeirra sungu saman
tvísöng Gísli Pétursson og Sigfús
Pétursson einnig Björn Sveinsson
FÉLAGAR úr Óperusmiðjunni
ásamt þeim Rúnari Vilbergssyni
Leiðrétting-
ÞVI miður féll niður setning úr
grein Þorgríms Daníelssonar í þlað-
inu sl. miðvikudag. Þar átti að
standa:
„Tökum fyrst höfuðborgarsvæð-
ið: Uppbygging þess hefur verið
hröð síðustu áratugi. Þar hefur
myndast öflugt þéttbýli þar sem
fjölþætt þjónustustarfsemi, menn-
ing, listir og vísindi hafa blómstrað.
slíkt öflugt þéttbýli er hverri þjóð
nauðsyn. Það sýnir m.a. reynsla
nágranna okkar Færeyinga, þar
sem slíkt þéttbýli hefur ekki mynd-
ast. Þar hafa stórir hópar fólks flutt
úr landi.“
Blaðið biðst velvirðingar á þess-
um mistökum.
og Sigfús Pétursson. Þá sáu konur
kórfélaga um kaffiveitingar sem
gestir kunnu vel að meta.
Karlakórinn Heimir hefur í mörg
ár staðið fyrir miklu tónleikakvöldi
á Félagsheimilnu Miðgarði á laug-
ardagskvöldi í sæluviku og nú seinni
árin í samvinnu við Rökkurkórinn
í Skagafirði þá hafa oftast tveir
aðkomukórar einnig tekið þátt í
tónleikunum.
Þessir tónleikar verða nú haldnir
í Miðgarði laugardaginn 13. apríl
kl. 20.30. Þar koma fram auk
Karlakórsins Heimis og Rökkur-
kórsins, Rarikkórinn úr Reykjavík
og Söngbræður úr Borgarfirði.
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur
fyrir dansi að loknum söng.
En Karlakórinn Heimir lætur
ekki staðar numið að svo stöddu
heldur ætlar kórinn að syngja í
fagottleikarar og Bjarna Jónat-
anssyni píanóleikara munu laug-
ardagskvöldið 13. apríl skemmta
gestum Hótel Borgar með léttri
dagskrá.
Flutt verða ljóð þýska tónskálds-
ins Bertholts Brecht við lög þeirra
Kurts Weil og Eisler. Húsið verður
opnað kl. 19.00 og er aðgangseyt'ir
fyrir skemmtun og dans 1.200 kr.
Boðið verður uppá fjölbreyttan
matseðil í stíl við tónlistina, s.s sal-
öt, súpur, osta, omelettur, steikur
og kökur.
Dagskrá sem þessi er þægileg
tilbreyting í skemmtanalíf borgar-
innar, flutt verða verk í léttari kant-
inum eins og Makki hnífur úr Tú-
skildingsóperunni. Haukur Morth-
ens og hljómsveit leika svo fyrir
dansi til ki. 3.00 og er húsið opnað
kl. 23.00 fyrir dansgesti.
Borðapantanir eru daglega á
Hótel Borg.
Hlíðarbæ við Akureyri og Félags-
heimilinu Ýdölum í Þingeyjarsýslu
1. maí, ef til vill mun kórinn einnig
syngja víða á næstunni.
Þá mun kórinn fara í söngferð
til þriggja Norðurlanda 5. júní nk.
en honum er boðið að taka þátt í
móti 13 kóra í Stryn í Noregi 9.-10.
júní nk. Hann mun einnig halda
sjálfstæða tónleika á nokkrum stöð-
um í Noregi, Svíþjóð og Danmörku
í ferðinni sem tekur 14 daga. Þetta
verður þriðja utanlandsferð kórsins
en hann hefur áður farið til Noregs
og ísraels og Egyptalands í söng-
ferðir.
Þá má geta þess að lokum að
söngur kórsins hefur nýlega verið
hljóðritaður vegna fyirhugaðrar
útgáfu hljómplötu á þessu ári.
Formaður kórstjórnar er Þorvald-
ur G. Óskarsson á Sleitustöðum og
hefur verið það um árabil og er það
ekki hvað síst honum að þakka
hvað starf kórsins er gróskumikið.
- Einar
Ráðstefna um
villt spendýr
LÍFFRÆÐIFÉLAG íslands efn-
ir til ráðstefnu um villt íslensk
spendýr í Norræna húsinu
12.-13. apríl næstkomandi. Á
ráðstefnunni verður í 24 fyrir-
lestrum fjallað um rannsóknir
á refum, minkum, flökkuspen-
dýrum, hvölum, selum og hrein-
dýrum.
Sambærileg ráðstefna hefur
aldrei áður verið haldin hér á landi
en undirbúningur hennar hófst á
síðasta ári. Undirbúningsnefnd
,sem séð hjefur um efnisval og efni-
stök á ráðstefnunni skipa dýra-
fræðingarnir ERlingur Hauksson,
Jóhann Siguijónsson, Karl Skírn-
isson, Páll Hersteinsson og Skarp-
héðinn Þórisson.
Meðal erinda á ráðstefnunni
má nefna erindi Páls Hersteins-
sonar um félagskerfi íslenska mel-
rakkans, tímgun villtra minka á
íslandi eftir Karl Skírnisson, leður-
blökur á íslandi eftir Ævar Peters-
en, rannsóknir á hvölum við ísland
eftir Jóhann Siguijónsson, rann-
sóknir á selum við ísland eftir
Erling Hauksson og geislavirk efni
í hreindýrum eftir Sigurð Sigurð-
arson.
Ráðstefnan er öllum opinn og
aðgangur er ókeypis. Bæklingur
með útdráttum erindanna liggur
frammi í Norræna húsinu
ráðstefnudagana.
Hótel Borg
Óperusmiðjan á Hótel Borg