Morgunblaðið - 12.04.1991, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÓSTUDAGUR 12. APRIL 1991
Útúrsnúningar og dylgjur
Svar til Braga Ásgeirssonar
eftir Guðmund Rúnar Skóiakerfið
Lúðvíksson
í byrjun vill ég þakka ágætum
Braga Asgeirssyni fyrir ,að sjá til
þess að athugasemdir mínar við grein
hans voru birtar í Morgunblaðinu 28.
mars og um leið fyrir svargrein hans
þann 4. apríl.
Á þessari stundu hef ég ekki hug
á að fara í hártoganir eða ritdeilur
við ágætan Braga, því mér sýnist
að skoðanir okkar liggi nokkuð sam-
an að mörgu leyti í vissum málum
ef vel er að gáð. Þó kemst ég ekki
hjá því að svara að nokkru síðustu
g^rein þinni Bragi og upplýsa lesend-
ur um ákveðnar og réttar staðreynd-
ir. En fýrst vil ég vitna í þín orð úr
síðasta pistli sem var svar til mín.
Þú segir í lok greinar þinnar: „Tel
ég mig nú hafa svarað öllum útúr-
snúningum og dylgjum Guðmundar
Rúnars Lúðvíkssonar og legg frá
mér stílvopnið.“ Ég held að allir sem
hafí lesið þessar greinar okkar sjái
það í hendi sér að ég hafi hvorki
verið með útúrsnúning né dylgjur því
svargrein þín er nánast endurtekning
á því sem ég var að gagniýna.
Það sem virðist rugla ágætan
Braga í ríminu er að blanda saman
listamannalaunum, námslánum og
listmenntun. Enda þótt þessir þættir
séu náskyldir er engan veginn hægt
að fjalla um þá saman þegar um
stefnumörkun er að ræða. Eg spyr:
Er þá ekki alveg eins hægt að ræða
um á sömu nótum um listamanna-
laun og húsnæðisstjórnarlán, lista-
mannalaun og afurðalán eða lista-
mannalaun og bankalán? Nei, það
held ég ekki.
Það er rétt hjá ágætum Braga að
fáir eða engir hafa gagnrýnt og skrif-
að eins mikið um leiðir og til úrbóta
á skólakerfinu en B.Á. og er það
miður. Hér held ég nefnilega að við
séum komnir að kjama málsins. Það
er ekki sjálfu námslánakerfinu um
að kenna hvernig það er notað. Það
er miklu fremurþví kerfí sem ákvarð-
ar hverjir og hversu margir fari inn
í listaskólana (eins og t.d. MHÍ). Um
leið og umsækjandi hefur staðist inn-
tökupróf er það staðfesting á að við-
komandi hafí hæfileika til að stunda
námið og um leið að njóta þeirra
skilyrða sem LIN setur:
Ný-listadeild/nýlistadeild
Það olli mér nokkrum vonbrigðum
að þú ágætur Bragi skyldir ekki
svara mér ögn markvissara, heldur
halda áfram á fyrri braut. Mig lang-
ar því aðeins að upplýsa þig um eitt
mikilvægt atriði og um leið aðra les-
endur. En þú segir „hvort heldur
þeir telja sig feta hefðbundnar leiðir
eða séu að dýrka hinar svonefndu
nýlistir" (feitletrun G.R.L.). Ég veit
ekki hvort öllum er það kunnugt, en
þetta hugtak og orð „nýlistir" er að
mestu og algjörlega sér íslenskt og
á upptök sín innan veggja MHI og
því miður ýmsir sem rita rýni um
myndlist hafa etið upp og notað í
tíma og ótíma. Þannig var að stofn-
aður var á sínum tíma ný-listadeild
innan MHÍ. En smám saman annað
hvort af prakkaraskap eða deildin
fékk ekki nógu hefðbundið eða
óhefðbundið nafn (var kölluð um
tíma Deild í mótun) að bandstrikið
féll niður og úr varð Nýlistadeild.
FELAGSLIF
I.O.O.F. 12= 172412872 = Umr.
I.O.O.F. 1 = 1724128'A =
Frá Guöspeki-
félaginu
Ingóffsstraati 22.
Áskriftarsími
Ganglera er
39573.
í kvöld kl. 21.00 verða samræður
um andleg mál með Úlfi Ragn-
arssyni og Einari Aðalsteinssyni
í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22
(Veda).
Föstudaginn 19. apríl verða
samræður um nýöld með Guð-
rúnu og Guðlaugi Bergmann.
Á laugardögum er opið hús frá
kl. 15.00 til kl. 17.00 með stuttri
fræðslu og umræðum kl. 15.30.
Stórsvig 30 ára og eldri
Stórsvigsmót í flokkum karla og
kvenna 30 ára og eldri verður
haldið í Bláfjöllum sunnudaginn
14. apríl nk. Keppni hefst 11.00.
Skráning keppenda er við gamla
Ármannsskálann og hefst kl.
10.00. Mótið er opið öllu skíðaá-
hugafólki 30 ára og eldra.
Ffokkaskipting er: 30-34 ára,
35-39 ára o.s.f.v.
Ath. breyttan dag og tíma.
Nefndin.
NY-UNG
Samveran fellur niður í kvöld
vegna ráðstefnu í Borgarnesi.
H ÚTIVIST
GCÓFIHNII • IEYUAVÍK • SÍMI.AÍMSVAII14&06
Vorferð 12.-14. apríl
Spennandi ferð á suðurströnd-
ina og í Þórsmörk. Fteynishverfið
verður sótt heim og skoðaður
hellir þar sem Jón Steingríms-
son, eldklerkur, bjó um tíma.
Strandganga. Dyrhólaey og
Reynisdrangar. Komið við í
Byggðasafninu á Skógum. Sund
í Seljavallalaug. Gist i Utivistar-
skálunum í Básum. Kvöldvaka.
Varðeldur. Árdegisganga um
mörkina á sunnudag. Fararstjóri
Ásta Þorleifsdóttir.
Útivist.
4^ VEGURINN
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kóp.
Kl. 20.30. Lofgjörðarhátíð. Vick
og Carol Mandy þjóna.
Kl. 10-15 laugardag. Fræðslu-
stund. Námsefni: Englar - lof-
gjörð. Kennarar Vick og Carol
Mandy frá Rhema kirkjunni í S-
Afríku. Verið velkomin.
FERÐAFELAG
# ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Raðgangan1991
Gönguferð um gosbeltið hefst
sunnudaginn 14. apríl.
Verið með frá byrjun i þessari
skemmtilegu raðgöngu i 12
áföngum um gosbeltið frá
Reykjanesi að Skjaldbreið.
Brottförá sunnudaginn kl. 13 frá
Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Suðurnesjamenn og
aðrir, sem það kjósa, geta kom-
ið á eigin bílum að Reykjanes-
vita. I sunnudagsferðinni verður
gengið frá vitanum að Reykja-
nestá um Krossavíkurbjarg á
Háleyjabungu.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 8=11798 19533
Helgarferð í Tindafjöll
12.-14. aprfl
Skíóagönguferð i Tindafjöll -
spennandi ferð í stórbrotnu
landslagi. Ekið eins langt og
unnt er i átt að skála Alpaklúbbs-
ins, en þar verður gist. Takmark-
aður fjöldi - tryggið ykkur pláss
tímanlega.
Fararstjóri: Árni Tryggvason.
Farmiðar og upplýsingar á skrif-
stofu Ferðafélagsins, Öldu-
götu 3.
Ferðafélag islands.
En eins og allir sjá er hér um algjör-
lega sitt hvort hugtakið að ræða.
Ný-listadei!d eða Nýlistadeild. Því
miður hafa einhvetjir litið hornauga
þessa framsækni. Ég held að
þeir/þau sem hafa verið í þessari
deild innan MHÍ hafí ekki litið þann-
ig á málið að verið væri að skapa
„nýlist". Það fólk hefur viljað fara
aðrar leiðir í sköpun og talið sig ein-
faldlega til nútímalistar með alla þá
hefð að baki sem framsækin list
hefur verið og mun verða. Og ég er
sammála ágætum Braga að hún er
ekki bundin við unga listskapendur ■
og hún er ekki heldur sprottin frá
þeim sem lengur hafa verið við mynd-
listarsköpun. Sköpunin kemur innan
frá.
Hve margir og hverjir fá
námslán erlendis?
Það kann að vera að einhveijir
spytji hvers vegna ég sé að svara
þessum skrifum ágæts Braga Ás-
geirssonar. En um það vil ég segja
þetta: I tvígang með stuttu millibili
fullyrðir ágætur Bragi að um styrki
sé að ræða til þeirra er stunda list-
nám erlendis og að þeir séu um 750.
Ég taldi rétt að kanna þessa tölu og
fór því á stúfana og fékk óyggjandi
og staðfestar upplýsingar frá LÍN.
Og í ljós kemur einmitt það sem ég
hélt fram. Á síðasta ári stunduðu
245 listnám erlendis. Hvað felst í
þessari tölu? Jú, hér er um fimm
mismunandi anga listnáms, þ.e.a.s.
myndlist, leiklist, tónlist, sönglist og
listdans að ræða. Við þessa tölu er
svo hægt að bæta 40-50 sem stunda
nám við kvikmyndagerð en það nám
er tiltölulega nýtt. Og hveijir fá svo
þessi lán? Eingöngu er um fram-
haldsnám á háskólastigi, sem ekki
er hægt að stunda hér á landi. Eins
og sjá má er þetta ekki stór hópur
ef haft er í huga að manna þarf t.d.
Sinfóníuhljómsveit íslands, halda úti
leikhússtarfsemi, vera með óperuhús
og ballettdans og svo ekki síst að
hafa víðsýna og vel menntaða kenn-
ara við listkennslu skólanna.
Framtíðin
Að iokum vil ég segja þetta: Nú
er lag að marka framtíðarstefnu fyr-
ir listkennslu þegar fyrirséð er að
listskólarnir hafa fengið framtíðar-
húsnæði og munu sameinast. Það í
sjálfu sér er ekki lítið atriði fyrir
starfandi og rótgróna listamenn. Nú
er tækifærið að hlusta á menn eins
og ágætan Braga Ásgeirsson og fyr-
ir aðra að tjá sig um þessi mál. Ég
er sammála Braga að víða má betur
gera en ég held líka að sú hörmulega
aðstaða sem flestir listaskólamir
hafa búið við hafí staðið frekari fram-
þróun fyrir þrifum. Að síðustu langar
mig að leggja nokkur orð inn um
MHÍ. Ég tel t.d. að deildaskipting
skólans sé úr sér gengin. Það er mín
skoðun að sameina eigi listadeildir
skólans þ.a.e. flöltæknideild, grafík-
deild, málaradeild og skúlptúrdeild í
eina listadeild og jafnframt víkka
svið þessarar deildar og á ég þá
Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
„Nú er lag að marka
framtíðarstefnu fyrir
listkennslu.“
einkum við að val geti verið í mynd-
banda- og kvikmyndagerð svo og
einnig sviðsmyndagerð. Við eigum
nú þegar nokkuð af frábæru fólki í
þessum greinum sem hefur lokið
námi erlendis og er starfandi að ein-
hveiju leyti hér og er örugglega til-
búið að miðla sinni þekkingu. Eins
kæmi til greina að bæta við deildum
innan skólans eins og t.d. glerdeild
og auka verulega við hina nýju hönn-
unardeild MHI. Aðrar deildir fengu
að stækka og víkka sitt svið t.a.m.
textíldeild, keramikdeild og auglýs-
ingadeild.
Að svo mæltu læt ég staðar num-
ið og þakka ágætum Braga og um
leið fyrir mig.
Höfundur er myndlistarnemi.
Guðmundarbúð og
menningarfrömuðurinn
eftír Siglaug
Brynleifsson
í frægri og skemmtilegri bók,
Brekkukotsannál, er meðal persón-
anna Guðmundsen kaupmaður og
útgerðarmaður. Hann hafði mikinn
áhuga á físksölumálum og einnig því
að kynna landið og þjóðina sem
menningarþjóð. Hann taldi að fisk-
sala til útlanda og miðlun íslenskrar
menningar erlendis gætu hæglega
farið saman. Þetta rifjast upp vegna
skrifa Knúts Bruun og Svavars
Gestssonar í Mórgunblaðinu 16. og
21. febrúar sl. Knútur Bruun fjallar
einkum um baráttu menntamálaráð-
herra fyrir útbreiðslu íslensks popps
erlendis ogtelur að stofnun menning-
arskrifstofu erlendis sé einkum kom-
ið á fót til að kynna samtímis íslen-
skar fiskafurðir, popp og aðra menn-
ingu. Hann biður menntamálaráð-
herra að rugla þessu þrennu nú ekki
saman, „þessir merkilegu þættir í
þjóðlífi okkar eiga að vera aðskildir“.
Þetta er hógværlega skrifuð grein
og skoðun höfundar á poppi og popp-
„menningu“ er samkynja skoðunum
margra mætra manna um hinn vest-
ræna heim á þessu fyrirbrigði sem
heldur leiðinlegri uppákomu.
Menntamálaráðherra hefur sína
grein með því að lýsa hneykslun sinni
á því að K.B. skuli agnúast út í og
„reyna með því að koma í veg fyrir
að til verði ein lítil skrifstofa til að
sjá um kynningu á íslenskri menn-
ingu erlendis“.
S.G. telur að K.B. beini spjótum
sínum að forseta lýðveldisins með
því að skrifa (að) „einhver pólitíkus
eða háttsettur frammámaður slær
fram háleitri fisksetningu með menn-
ingarlegu ívafi... Yfírvöld ijúka þá
upp til handa og fóta galdra fram
nefnd til þess að setja upp sérstakt
nýtt allsheijarapparat sem gera á
poppara heimsfræga... og leyfa lista-
mönnum að vera með, þegar físk-
framleiðendur sýna afurðir sínar í
útlöndum“. S.G. gefur sér að K.B.
eigi hér við forseta lýðveldisins og
lofar forsetann og segir, að forseti
„beri hróður íslenskrar menningar í
orði og athöfn og í sjálfri sér víðs
vegar um heiminn". Með þessari
þulu virðist S.G. vilja gera forseta
lýðveldisins að einhverskonar lík-
aniningi íslenskrar menningar. Það
Siglaugur Brynleifsson
„Hugtakið alþýðutón-
list er skírt hugtak, sú
tónlist á sér oftast nær
mjög- langa sögu, og ef
tala á um íslenska al-
þýðutónlist þá eru það
helst rímnastemmur.“
er nú það. Er forseti lýðveldipins
ekki friðhelgur? Þar á meðal fyrir
þremur hæpnum samlíkingum
menntamálaráðherra. S.G. tíundar
umræður um Útflutningsráð og
kynningarátak forsætisráðherra,
„þar sem fjarvera íslenskrar menn-
ingar var blátt áfram átakanleg“.
Þessi „átakanlega fjarvera menning-
arinnar“ leiddi síðan til þess að nefnd
var skipuð og afrakstur vinnu þeirrar
„menningamefndar" var sú, „að sett
yrðu lög um stofnun menningarskrif-
stofu þannig að „menningarkynning
erlendis stæði a.m.k. jafnfætis kynn-
ingu á físki og ferðalögum". Þetta
er allt ágætt og framhaldið enn
betra: „Hér er með öðrum orðum
gerð tillaga um að tryggja að menn-
ingin sitji við sama borð og aðrir."
S.G. bætir við að hann vilji að „hún
eigi að vera í fyrirrúmi“.
Svo kemur poppið. S.G. átelur
K.B. fyrir að fara niðrandi orðum
um poppara og segist ekki vita hvað
„sjíkur málflutningur eigi að þýða“.
Jafnframt bendir hann á „að svoköll-
uð alþýðutónlist (sé) óhjákvæmilegur
hluti af hveiju menningarsamfélagi".
Hér því slegið föstu að poppflutning-
ur sé það sama og íslensk alþýðutón-
list. Hugtakið alþýðutónlist er skírt
hugtak, sú tónlist á sér oftast nær
mjög langa sögu, og ef tala á urn
íslenska alþýðutónlist þá eru það
helst rímnastemmur. Annars má
vitna í söfn íslenskra fræðimanna
sem tekið hafa upp stemmur á síð-
ari hluta þessarar aldar og Þjóðlög"
Bjarna Þorsteinssonar.
Því er hér um að ræða annað-
hvort mjög mikla vanþekkingu eða
beinlínis hugtakafölsun hjá mennta-
málaráðherra auk þess sem hann
virðist ekki vita hvaða aðilar miðla
og móta poppframleiðsluna í heimin-
um og til hvers.
Popptónlist er alþjóðlegt tískufyr-
irbæri meira og minna miðstýrt og
einkennið er eftirherman, hver lepur
eftir öðrum sama rytmann með til-
heyrandi leirburðarstagli og hnoði
ásamt sérstæðum tilburðum. Þessi
uppákoma á alls ekkert skylt við al-
þýðutónlist í neinu landi. K.B. telur
að „menningarskrifstofan“ eigi að
stuðla að söluátaki poppista á fram-
leiðslu sinni en S.G. fullyrðir að ekki
verði „um nein bein tengsl að ræða
vegna söluátaksins“. Einnig afneitar
S.G. að skrifstofan tilvonandi eigi
að sinna fískauglýsingum eða fisk-
söluátaki eða vörusýningum, sem
skilja má að eigi m.a. að vera hlut-
verk „menningarskrifstofunnar“ af
grein K.B.
S.G. klykkir út með því að fiskveið-
ar og fískvinnsla sé hluti af íslenskri
menningu „a.m.k. gildur þáttur ís-
lenskrar verkmenningar". Hugtakið
menning er oft notað all gáleysislega
og stundum svo að inntak hugtaksins
hverfur vegna þess að orðið þýðir
það sem hver vill láta það þýða, er
nokkurs konar allragagn og þar með
glatast merkingin. S.G. klykkir út
með hnjóðsyrðum um þroskinn, eink-
um vegna ætlaðs greindarskorts, en
samkvæmt kenningum S.G. er þessi
skepna eða lagardýr þrátt fyrir allt
hlutgengur aðili að íslenskri menn-
ingarstarfsemi.
í lokin er hér tillaga um heiti á
tilvonandi menningarskrifstofu:
„Guðmundsensbúð."
Höfundur er rithöfundur.