Morgunblaðið - 12.04.1991, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991
43
Hann hafði þann sjaldgæfa kost að
eiga auðvelt með að hrósa öðrum
og benda á það sem vel væri. Mér
var það oft mikilvægur stuðningur.
Sjálfum sér hélt hann þó gjarnan
til baka, var frekar dulur um eigin
hagi og áhyggjur. Hann var hlýr
og glaður alla jafnan en það duldist
engum að hann var viðkvæmur og
næmur maður sem ekki mátti neitt
aumt sjá.
Fyrir rúmum mánuði stóðum við
Haddi frændi minn saman við gröf
yngstu dóttur þeirra Ritu, Hafdís-
ar, sem lést á voveiflegan hátt. Þá
var frændi minn þegar merktur af
sjúkdómnum ■ sem dró hann til
dauða. Ef til vill voru samveru-
stundir okkar nánastar undanfarn-
ar erfiðu vikur og mánuði. Þær
stundir eru mér mikils virði.
Með Hafsteini Sæmundssyni er
genginn heilsteyptur og góður mað-
ur. Við sem fengum að deila lífínu
með honum þökkum honum sam-
fylgdina og varðveitum alla tíð
minninguna um hann.
Elsku Rita mín, börn og tengda-
synir. Við samhryggjumst ykkur
innilega og biðjum þess að þið finn-
ið styrk í sorginni.
Álfheiður Steinþórsdóttir
Réttur áratugur er liðinn síðan
ég kynntist Hafsteini Sæmunds-
syni. Ef til vill er það ekki langur
tími af mannsævinni, en við vorum
orðnir sæmilega frjálsir til athafna
sem lífga upp á tilveruna og að
nokkru lausir við strit manndómsár-
anna.
Við bjuggum í sama bæjarfélagi
en fundum okkar bar saman úti á
rúmsjó, það umhverfi hæfði Haf-
steini betur en mér, enda var hann
vélstjóri til margra ára. Þarna skap-
aðist traust vinátta sem hélst alla
tíð. Ég er ekki gefinn fyrir að hlaða
lofi á fólk lífs eða liðið, en mér er
til efs að raunbetri manneskja verði
á vegi manns. Hafsteinn var tilfínn-
ingaríkur og hrifnæmur. Hinar
björtu hliðar mannlífsins voru hon-
um mikils virði og jafnframt áttu
framsæknar og róttækar skoðanir
stóran sess í huga hans. Hann var
vel lesinn og greindur, enda sigld-
ari en gengur og gerist. Knatt-
spyrnuleikur gat orðið honum upp-
spretta mikilla hughrifa og helst
mátti hann ekkert aumt sjá hvorki
hjá mönnum né málleysingjum.
Hafsteinn var léttur í sinni og bros-
mildur. Ekki veitti honum af þeim
eiginleikum og lærði hann þá ein-
stöku list að nýta sér þann kraft
sem fólst í jákvæðum lífsviðhorfum
og var hann í því tilliti, meira gef-
andi en þiggjandi.
Á stríðsárunum misstum við ís-
lendingar hundruð kvenna til fjar-
lægra landa. Hafsteinn jafnaði örlít-
ið metin og sótti sér góða og töfr-
andi konu til Englands. Þar eignað-
ist hann lífsförunaut sem hæfði
honum vel. Ég ætla ekki að orð-
lengja þá ástúð og umhyggju sem
þau sýndu hvort öðru og börnum
sínum, það vita allir er til þekkja.
Við Hafsteinn sigldum um lygn-
an sjó er við hittumst fyrst. Á lífs-
ins sjó er sjaldan logn. Fyrir fáum
vikum fengu Hafstejnn og fjöl-
skylda hans að reyna meira en al-
mennt er lagt á fólk. Illvígur sjúk-
dómur hefur nú tekið frá fjölskyld-
unni langt um aldur fram góðan
eiginmann og föður.
Hafsteinn er farinn í sína hinstu
ferð og ég hefi misst einn minn
besta ferðafélaga og vin. Okkar
ferð er við ráðgerðum nokkrum
dögum fyrir andlát hans verður
„Ferðin sem aldrei var farin“.
Ég óska mínum kæra vini góðrar
heimkomu til þess lands er okkur
öllum er fyrirheitið og bið allar
góðar vættir að styrkja konu hans,
börn og önnur skyldmenni og vil
enda mína kveðju á ljóði er gæti
átt við lífshlaup þessa drengskapar-
manns:
„Hann tignar þau lög sem lífið
með logandi eldi reit.
Hann lærði af styrkleika stálsins
að standa við öll sín heit.
Hann lærði verk sin að vanda
og verða engum til meins.
Þá væri þjóðinni borgið
ef þúsundir gerðu eins.“ (D.St.)
Gunnar R. Magnússon
Atvinnutæki-
færi í sveitum
FRAMLEIÐNISJÓÐUR landbún-
aðarins, landbúnaðarráðuneytið
og Samstarfsnefnd um atvinnu í
sveitum gangast fyrir námstefn-
unni „Má fjölga atvinnutækifær-
um í sveitum?" Námstefnan verð-
ur haldin í Húnvallaskóla í Aust-
ur-Húnavatnssýslu 13. apríl nk.
frá kl. 10-17.
Á fundinum fjallar Valgarður
Hilmarsson, formaður héraðsnefnd-
ar Austur-Húnavatnssýslu, um
Hlutverk sveitarfélaga í atvinnu-
málum, Arnaldur Bjarnason, at-
vinnumálafulltrúi: Þjónustuhlut-
verk atvinnumálafulltrúa, Karl Sig-
urgeirsson, átaksverkefnisstjóri:
Staðbundin átaksverkefni, Guð-
bjartur Guðmundsson, ráðunautur:
Búnaðarráðunautar og atvinnumál,
Jón Pálsson, iðnráðgjafi: Nýsköpun-
arvinnubrögð, Jóhannes Torfason,
form. Framleiðnisj. landb.: Hvar er
aðstoð að fá?, Valtýr Sigurbjarnar-
son, Byggðastofnun, Akureyri: At-
vinnuþróun, atvinnuráðgjöf, hlut-
verk Byggðastofnunar, Runólfur
Sigursveinsson, endurmenntunar-
stjóri: Fræðslumöguleikar, Ágúst
Sigurðsson, bóndi: Ferðaþjónusta
bænda og Jóhanna Pálmadóttir,
kennari, Hvanneyri: Nýjungar í ull-
arvinnslu.___'_______________
Þorleifur Björns-
son - Kveðjuorð
Fæddur 24. janúar 1926
Dáinn 24. mars 1991
Hann Leifi minn er farinn. Eftir
að ég heyrði frá andláti Leifa kom
upp í hugann söknuður mikill, já,
söknuður vegna þess skarðs sem
hann skilur eftir og aldrei verður
uppfyllt. Hann var einstakur mað-
ur, rólegur og hægur en samt húm-
oristi mikill. Hann sýndi best hvaða
persónuleika hann hafði að geyma
þegar hann barðist gegn sjúkdómn-
um sem síðan sigraði að lokum. Það
var aldrei að finna á Leifa að hann
ætti bágt eða liði illa. Umhyggjan
fyrir öðrum var alltaf í fyrirrúmi
og það hvernig aðrir hefðu það var
alltaf mikilvægara fyrir hann heldur
en það hvernig honum liði.
Það verður erfitt að koma heim
frá Þýskalandi þegar enginn Leifi
verður til þess að heimsækja í Leifa-
lund, þann sælureit sem hanri skap-
aði með ólýsandi dugnaði. Ég full-
yrði hinsvegar að hver þúfa, hver
steinn, hver hóll og sérhver hæð í
Leifalundi á eftir að minna okkur
hin á þennan stórbrotna mann sem
nú fær hvíld í öðrum heimi.
Ég vil með þessum fáu orðum
þakka fyrir að hafa fengið að kynn-
ast Leifa og hans fjölskyldu og
sendi Röddu og börnum þeirra mín-
ar innilegustu samúðarkveðjur með
von um að Guð styrki þau í sorginni.
Elísabet Sveinsdóttir
og fjölskylda.
Laugardaginn 30. mars var lagð-
ur til hinstu hvílu tengdáfaðir minn,
Þorleifur Björnsson, en hann andað-
ist á Borgarspítalanum á morgni
pálmasunnudags.
Það er margs að minnast á svona
stundu, svo margt ljúft og gott.
Hann var einstakur faðir, tengd-
afaðir og afí. Hann vildi ávallt fylgj-
ast vel með lífi okkar og rétti alltaf
hjálparhönd þegar þess þurfti.
Dóttir mín og Sigurgeirs sonar
hans, naut þess að hafa afa og
ömmu nálægt eftir að við fluttum
heim frá Danmörku eftir 9 ára dvöl.
Þó hún sé bara á þriðja aldursári,
þá var afi hennar mikill þáttur í
lífi hennar, enda voru barnabörnin
8 hans líf og yndi.
Eftir að afi, eins og við yfirleitt
kölluðum hann, þurfti að leggjast
inn á spítala þar sem hann dvaldi
síðustu vikur ævi sinnar, var hún
mjög dugleg að heimsækja hann.
Nánast daglega bað hún um að fá
að fara til afa á spítalann. Við vor-
um oft undrandi yfir hvað svona
lítið barn virtist skilja.
Það var líka gott að heimsækja
afa, því ávallt var stutt í góða skap-
ið og blíðu þó hann væri orðinn
mikið veikur. Það var ekki hægt
annað en að dást að dugnaði hans.
Hans kristna trú var sterk og
einnig styrkti hann okkur öll til að
nálgast trúna. Hann vissi að hveiju
stefndi og sennilega var hann að
undirbúa okkur undir það sem koma
skyldi með því að biðja bænir með
okkur. Það var ávallt hans hugsun
að okkur liði sem best.
Elsku tengdapabba á ég margt
að þakka, og þá sérstaklega fyrir
að hafa verið svo góður afi. Ég bið
góðan Guð að styrkja alla ástvini
hans og þá sérstaklega tengdamóð-
ur mína, því missir hennar er mik-
ill, þar sem þau voru sannir viniv
og félagar.
Nú kemur það í okkar hlut að
varðveita allar góðu minningarnar
og miðla þeim áfram til barna okk-
ar. Að lokum vil ég minnast vers-
anna úr Passíusálmunum sem hann
kenndi mér og við fórum svo oft
með.
Bænin má aldrei bresta þig,
búin er freisting ýmislig.
Þá líf og sál er lúð og þjáð,
lykill er hún að Drottins náð.
Vaktu, minn Jesús, -vaktu’ í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
Minningu hans geymum við í
hjarta okkar.
Þóra Harðardóttir
HJÓLASKÓFLUR
966 F 950 F
6 strokka, 235 hestafla vél — Skóflu- 6 strokka, 180 hestafla vél. — Skóflu-
stærðir: 3,3-4,0m3 — Lyftigeta: 15.000 kg. stærðir: 2,5-3,5m3 — Lyftigeta: 15.000 kg.
Olíukældir diskhemlar. — Fjöðrunarbúnaöur á skóflutjökkum „Ride con-
trol“. — Mismunadrif með tregðulæsingu. — Umhverfis-hljóðeinangrun.
— Sjálfvirkur loftþurrkari fyrir hemlaloft. — Auka vökvastjórnloki. — Bretti
yfiröllum hjólum. — Kaldræsibúnaður. — Hraðtengibúnaður á skóflu. —
Grjóthlífarundirmótorog glrkassa. — Nýrog öflugurvatnskassi. — o.m.fl.
ÖRYGGI OG ÞÆGINDI
— Hljóðeinangrað veltigrindarhús
með: lituðu gleri, öflugri miðstöð og
loftkælingu.
— Tölvustýrt aðvörunarkerfi tengt 11
skynjurum sem stanslaust skynja
ástand tækisins og láta stjórnand-
ann vita.
— Snúningshraða- og veghraðamæiir.
— Stereo útvarp með segulbandi.
— Þurrkur með vatnsskolun, að framan
og aftan.
— Besta fáanlega sæti fyrir stjórnand-
ann með fjölbreyttum möguleikum
á stillingum, auk öryggisbelta.
— Létt og þægilegt veltistýrishjól
með neyðarstýringu auk
nevðarhpmlnkArfi<?