Morgunblaðið - 12.04.1991, Side 45

Morgunblaðið - 12.04.1991, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1991 45 mun hafa verið um 1950 að leiðir okkar liggja fyrst saman, við áttum þá heima í Nökkvavoginum sem var í friðsælu úthverfi í uppbyggingu. Þá veittum við athygli tveimur mönnum sem komu daglega að afloknum vinnudegi og alla helgi- og frídaga og voru að sýsla á næstu lóð við okkur. Þar voru á ferð feðg- arnir Eggert Guðmundsson og Jón- as Eggertsson. Eins og gengur byij- uðu þeir að reisa vinnuskúr og að því loknu hófu þeir ótrauðir að koma upp myndarlegu íbúðarhúsi, reis það ótrúlega fljótt af grunni og fyrr en varði flutti fjölskyldan inn. Fljótlega kyntumst við ijöl- skyldunni, leiddu þau kynni til órjúfanlegrar vináttu sem aldrei bar skugga á. Eru gleðistundir okkar óteljandi, einnig samskipti barna okkar sem ég tel að hafi verið til fyrirmyndar. Jónas tók ungur til hendinni og fljótlega að afiokinni skólagöngu hóf hann ungur störf í Bókabúð Braga. Alla tíð síðan var bóksala hans starfsvettvangur, var m.a. verslunarstjóri Bókabúðar Máls og menningar og fulltrúi Innkaupa- sambands bóksala. Þá veitti Jónas árlegum bókamarkaði Félags ís- lenskra bóksala forstöðu um langt árabil ásamt vini sínum Lárusi Blöndal bóksala. Ungur gekk Jónas að eiga Ólöfu Magnúsdóttur en hún er ættuð frá Flateyri við Önundarfjörð, glæsileg og mikilhæf kona, er óhætt að segja að hún hafi staðið vel við bakið á bónda sínum t.d. þegar þau stóðu í húsbyggingunni kom hún sér upp smáiðnaði sem hún vann við myrkr- anna á milli, var það dijúgt búsílag fyrir heimilið. Jónas og Ólöf áttu miklu barnaláni að fagna. Börn þeirra eru Magnús, heilsugæslu- læknir í Reykjavík, kvæntur Sig- t'únu Sigurðardóttur, hjúkruna- rfræðingi, Signrrós, meinatæknir, gift Ólafi G. Flóvens, jarðeðlisfræð- ingi, Elín. læknir, starfandi í Kaup- mannahöfn, gift Torsten Sörensen viðskiptafræðingi, danskrar ættar, yngstur er Eggert, viðskiptafræði- nemi, allt mikið mannkostafólk. Jónas lét sér afar annt um böm sín og barnabörn enda sóttu þau mikið til afa og ömrnu. Eftir að Ólöf og Jónas höfðu búið um árabil í Nökkvavoginum reistu þau sér glæsilegt einbýlishús í Árbæjarhverfinu og fljótlega eftir að þau fluttust þangað settu þau á stofn bókabúð sem nefndist Bóka- búð Jónasar og þá sem fyrr stóðu hjónin saman og dafnaði verslunin vel í höndum þeirra. Jónas var maður sem tekið var eftir, hár og myndarlegur, röddin djúp og karlmannleg, yfírbragðið drengilegt var orðlagður fyrir orð- heldni og heilbrigða viðskiptahætti, enda fór það svo að stéttarbræður hans leituðu til hans að taka for- ystu í samtökum þeirra. Hann var formaður Félags íslenskra bóka- verslana um árabil. Hann var vara- maður í framkvæmdastjórn Kaup- mannasamaka íslands og síðar gjaldkeri. Hann var um skeið vara- maður í bankaráði Verslunarbank- ans. Þótt Jónas væri oftast störfum hlaðinn átti hann sín hugðarefni. Pyrr á árum tók hann mikinn þátt í kórstarfsemi var um árabil félagi í kór Fríkirkjusafnaðarins og öðrum kórum. Sér til ánægju lagði hann stund á söngnám en hann hafði góða söngrödd og unni fögrum söng. Nú á síðustu árum eignaðist fjöl- skyldan unaðsreit í Grímsnesinu og reisti sér fallegan sumarbústað, leitaði fjölskyldan þangað í öllum frístundum. Jónas var ekki fyrr kominn á staðinn að hann var kom- inn í vinnugallann, gróðursetti og hlúði að gróðri sínum. Sú skemmti- lega hefð komst á hjá okkur þrenn- um hjónum að fagna þorra til skipt- is á heimilum okkar og við bættist að halda Jónsmessuhátíð í sumar- bústaðnum hjá Lou og Jónasi. Síð- asta þorrablót okkar var haldið fyrsta laugardag í þorra 1991. Þá voru veikindin búin að ná heljartök- um á vini okkar. Var það í síðasta skipti sem við sáumst. Nokkrum dögum síðar lagðist hann á sjúkra- hús og, átti þaðan ekki afturkvæmt.. Nú að leiðarlokum kveð ég vin minn með miklum söknuði. Við Dadda og börnin okkar sendum Lóu, börnum hennar og öðrum ást- vinum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Jakob Tryggvason Foreldrar: Eggert Guðmundsson, verkamaður, og Sigurrós Jónsdótt- ir. Eftirlifandi eiginkona Ólöf Jó- hanna Magnúsdóttir. Börn þeirra: Magnús, læknir; Sigurrós, húsmóð- ir; Elín, læknir, búsett í Danmörku, og Eggert, viðskiptafræðingur. Þegar íslendingar taka á móti erlendum gestum sínum hefur það verið nánast föst venja að byrja landkynningu með upptalningu á áhugaverðustu stöðum landsins: Hekla, Geysir, Þingvellir, hitaveitan og svo næst það sem við höfum verið einna stoltastir af, yfir 100 bókabúðir og þar af yfir 30 þeirra á einum stað, í Reykjavík. Flestir erlendir menn hafa nánast tekið frásögn af 30 bókabúðum á einum litlum stað, sem skemmtilegar ýkj- ur. Við vitum hinsvegar að ekki er um ýkjur að ræða. Nú hafa mál hinsvegar þróast á þann veg, að með hinum miklu umbrotum í þjóð- félaginu, og sem ekki síst er að finna í verslun, eiga bókabúðirnar, stolt okkar, mjög í vök að veijast og týna nú tölunni, þar sem bók- sala færist í auknum mæli inn í stórmarkaði og tvær þijár stórar bókaverslanir. Þessari þróun fylgir að raunverulegir bóksalar týna tölunni og í dag er þannig komið að bóksalar — eins og við skiljum það orð — má telja á fingrum ann- arrar handar. Og nú hefur stórt skarð verið höggvið í þennan litla hóp, er Jónas Eggertsson hverfur af vettvangi. Þetta er þróun er ekki var honum að skapi og hann hafði miklar áhyggjur af. Honum var ljóst að sú þjónusta er bóksalinn hefur veitt íslenskum lesendum í tugi ára með persónulegum upplýsingum og oft á tíðum með nauðsynlegri ráð- gjöf, hverfur með öllu er bóksalan fer að mestu fram í stórmörkuðum, þar sem bókinni er hent í matar- körfuna með smjörlíki og kartöflum og virðingin fyrir bókinni er rokin út í veður og vind. Jónas var ekki myrkur í máli er hann ræddi þessi mál. Eldri Reykvíkingar muna eflaust enn einn af þekktustu bóksölum Reykjavíkur um miðbik aldarinnar; Braga heitinn Brynjólfsson, en hann stofnsetti og rak bóksölu sína í Smjörhúsinu í Hafnarstræti. Bragi var mjög fær í sínu starfi og valdi ekki aðra sér við hlið en þá sem vissu um hvað starfið snerist og voru reiðubúnir að taka það alvar- lega og hann vissi að þar var Jón- asi að treysta. Jónas hóf starf í Bókabúð Braga 1944 og vann þar til ársins 1954 — eða í tíu ár. — En Bragi var ekki einn um að koma auga á manninn með bóksalann innra með sér. Á þessum árum vann Kristinn E. Andrésson af sínum alkunna krafti að uppbyggingu Bókmenntafélagsins Máls og menn- ingar og bókabúðarrekstri á þess vegum. Kristinn var sem kunnugt er mikill mannþekkjari og vissi for- sendu þess að hugsjónir hans um fyrirmyndar útgáfufélag og bóka- verslun, var að hafa góðum mönn- um á að skipa í forystu fyrirtækj- anna. Það kom því engum á óvart að Kristinn lagði leið sína í Bóka- búð Braga og leitaði liðsinnis hjá Jónasi Eggertssyni. Þó vitað væri að samvinna þeirra Jónasar og Braga væri með ágætum, ákvað Jónas þó að ganga til liðs við Krist- in og taka þátt í uppbyggingu Máls og menningar með því að gerast framkvæmdastjóri bókabúð- ar félagsins, sem er langstærsta fyrirtæki í sinni grein á Islandi í dag. Jónas starfaði síðan sem fram- kvæmdastjóri Bókabúðar Máls og menningar til ársins 1962. Er hér var komið höfðu samtök bóksala stofnað eigið innflutningsfyrirtæki. — Innkaupasamband bóksala — er annast skyldi innflutning blaða og bóka fyrir bókabúðirnar. Það þótti því eðlileg ákvörðun er Jónas ákvað að fylgja eftir starfi sínu fyrir bók- sala með því að flytja sig til fyrir- tækis þeirra sjálfra. Hann gerðist því fulltrúi hjá Innkaupasamband- inu 1962 og starfaði þar til ársins 1972. 1967 stofnaði hann eigin bókabúð, en hélt samt áfram í hlut- astarfi hjá Innkaupasambandinu til ársins 1972. Eftir það sinnti hann aðeins sínu eigin fyrirtæki. Það kom engum á óvart að hann var fljótur að ávinna sér virðingu og vináttu' viðskiptavina sinna og ekki síst skólamanna er störfuðu í næsta nágrenni. Þeir fundu fljótt að þar var kominn nágranni er treysta mátti í hvívetna og engin fyrirhöfn var spöruð til að samvinna bóksal- ans og skólans mætti verða báðum til ánægju og hagsbóta. Jónas tók virkan þátt í félags- starfi bóksala. Hann var m.a. for- maður í 'Félagi íslenskra bókaversl- ana. Varamaður í framkvæmda- stjórn Kaupmannasamtakanna og gjaldkeri sömu samtaka. Ennfrem- ur varamaður í bankaráði Verslun- arbanka íslands. Ekki verður skilið svo við þessi fáu minningarorð, að ekki sé minnst á það starf, sem Jónas er e.t.v. þekktastur fyrir í hugum Reykvík- inga. En þar á ég við samstarf þeirra Jónasar og Lárusar Blöndals, bóksala, við framkvæmdastjórn hins landskunna árlega bókamark- aðar Félags íslenskra bókaútgef- enda. En sá markaður var frá árinu 1962 sem nokkurskonar framhald bókaveislu jólanna. Það var með ólíkindum hvað þeim félögum tókst að draga að sér þús- undir manna til þessarar bókaveislu án þess að til kæmi litaauglýsingar í sjónvarpi kvöld eftir kvöld. Eg held að þótt enn séu haldnir bóka- markaðir hér og þar, að þá náist ekki aftur þessi sérstaka og ósvikna markaðsstemmning, sem við minn- umst frá þessum árum. Með þessum fljótfærnislegu minningarorðum vil ég þakka Jón- . asi langa og fölskvalausu vináttu. Eiginkonu, börnum og öðrum aðstandendum votta ég dýpstu samúð mína og konu minnar. Jónsteinn Haraldsson Þegar Jónas Eggertsson bóksali verður kvaddur hinsta sinni frá kirkjunni sinni í dag má greina að vorið er í nánd, þessi einstöku um- skipti frá dvala vetrarins til vor- gróðurs alls þess sem móðir jörð elur og nærir. Það var líkt þessum svipbjarta vini mínum að deyja inn í vorið. í ljóði Steins Steinarrs skálds, í vor, segir m.a. svo: „og máttur hins gróandi lífs ljómaði úr augum þínum." Glampi augna Jónasar Eggerts- sonar var hrífandi og máttugur, ógleymanlegur þeim sem þekktu hann. Atgervi og persónutöfrar Jónasar hefðu nýst honum vel hver sem starfsvettvangur hans hefði orðið. En í starfi verslunarmanns- ins, sem dag hvern stendur and- spænis fyölda fólks, eru glaðlyndi, einlægni, hisjiursleysi mikilsverðir eðliskostir. Eg man Jónas fyrst, þegar hann stjórnaði bókabúð Máls og menningar við Laugaveginn. Eg held að ég hafi ekki vitað nafn hans á þeim tíma, hvað þá að ég þekkti hann nokkuð. En ég man glöggt hvað mér þótti hann bjartur og hrífandi í önnum hversdagsins. Síðar sátum við í nokkur ár við sama borð,- þar sem margvísleg málefni kaupmanna bar á góma og urðum miklir mátar. Hreinskiptinn var hann og talaði ekki neina tæpi- tungu ef honum bauð svo við að horfa. En drenglyndi hans, einlægni og heiðarleika dró enginn í efa. Rösklega gekk hann að hveiju verki og var á stundum sem ákefð og eldhugur bæru hann hálfa leið. Það þreifst engin lognmolla í návist Jón- asar Eggertssonar, hann hreif allt og alla með sér til starfs og at- hafna. Viðmót hans var öðru frem- ur ljúft, hjartahlýjan ómæld, glað- værðin fölskvalaus og smitandi. Jónas Eggertsson var bóksali eins og þeir gerast bestir, nánast sérfræðingur um þær fjölskrúðugu bækur sem í boði voru hveiju sinni. Hann kynnti sér efni þeirra bóka, sem voru til sölu hveiju sinni og hafði trausta dómgreind. Jónas var um langt skeið formað- ur í Félagi bókaverslana og starfs- bræður hans litu alltaf til hans sem foringja í sínum hópi. Honum var auk þess margvíslegur trúnaður falinn^ á vegum Kaupmannasam- taka íslands. Hann átti um langt skeið sæti í stjórn þeirra, í stjórn Almenna stofnlánasjóðsins átti hann lengi sæti, hann var um ára- bil varafulltrúi í bankaráði Verslun- arbanka Islands hf. og er ekki allt þar með tekið. Jónas var sæmdur æðsta heiðursmerki Kaupmanna- samtakanna. Við leiðarlok eru bornar fram þakkir þeirra Ijölmörgu, sem með honum unnu að málefnum kaup- manna, þakkir starfsbræðra og starfsmanna KÍ. Fráfall Jónasar í miðri starfsönn er augljóst harms- efni. Lífsþróttur hans var mikill en varð að lúta í lægra haldi fyrir ofur- efli illvígs sjúkdóms. Elskulegri eiginkonu Jónasar og fjölskyldunni allri, sem hann unni svo heitt, er vottuð einlæg og djúp samúð. Bjart ljós augna hans og minningin um góðan mann mun lifa í vitund okkar allra. Sigurður E. Haraldsson Þegar mér barst til eyrna að heiðursmaðurinn Jónas Eggertsson bóksali væri látinn staldrar hugur- inn óneitanlega við. Ekki mun ég reyna að rekja lífs- hlaup Jónasar hér en kunnugt er að hann starfaði mikið fyrir bók- sala. Okkar kunningsskapur hófst vegna stofnunar íþróttafélags í Ár- bæjarhverfi. Fæðing íþróttafélags- ins Fylkis var erfið og hálfgerður gjörningur í hverfi þar sem flestir voru í byggingarbasli. Fáir fullorðn- ir fengust til starfa en sægur barna og unglinga voru tilbúin til átaks. Jónas var þó fljótur að átta sig á þörfinni á félaginu og frá stofnun þess hefur hann verið haukur í horni og rétt fram margvíslega hjálp í formi sölu getraunaseðla, happ- drættismiða svo eitthvað sé nefnt að ógleymdum öllum þeim auglýs- ingum sem Bókabúð Jónasar hefur styrkt Fylki með. Jónas átti einnig sæti í stjórn Fylkis. Jónas var orð- heppinn maður enda greindur vel og skapstór þegar á þurfti að halda. Við köstuðum stundum íslenskum lýsingarorðum á milli okkar og voru þau fallegustu oft ekki höfð með. Var þetta þó alltaf í góðu og aldrei bar skugga á okkar samskipti. Eitt er það atvik sem mér hverfur seint úr minni og þegar Jónas var minnt- w ur á það þá kom gletta í auga og smáglott fylgdi með. Atvikið átti sér stað á Framvellinum við Stýri- mannaskólann. Var þetta fyrsta keppnisár Fylkis og var 3. aldurs- flokkur félagsins að k'eppa. Jónas stóð á línunni og fylgdist vel með leiknum. Dómgæslan var slök og óneitanlega Fylki í óhag. Var nú farið að þykkna í mörgum og loks sauð uppúr hjá Jónasi og eftir nokk- ur vel valin orð til dómarans var leikurinn stöðvaður og dómarinn gekk til Jónasar og vísaði honum frá línunni. Það er skarð fyrir skildi að Jón- asi brottgengnum og er mér efst í huga þakklæti til hans fyrir góðan kunningsskap. Ólöfu og fjölskyldu sendi ég innilegar samúðarkveðjur og vona að minningin um góðan dreng verði þeim huggun harmi gegn. Theodór Oskarsson í dag verður gerð frá Árbæjar- kirkju útför Jónasar Eggertssonar bóksala sem lést 1. apríl sl. Jónas fæddist í Reykjavík 10. ágúst 1925. Kona Jónasar, Ólöf Magnúsdóttir, f lifir mann sinn en þeim varð fjög- urra barna auðið. Ætt Jónasar og lífshlaupi verða ekki gerð skil í þeim fáu orðum sem hér verða sett fram, það munu aðrir gera sem betur þekkja til. íþróttafélagið Fylkir varð þeirrar gæfu aðnjótandi í bernsku sinni að hafa Jónas í for- ystusveit sinni og það vita þeir sem með honum störfuðu að í kringum hann var aldrei nein lognmolla og þótti sumum nóg um ákveðni hans og baráttukraft þegar málið snerist « um það að sækja eitthvað það í hendur borgaryfirvalda, sem mátti verða til þess að bæta aðstöðu æsk- unnar í okkar unga og ört vaxandi félagi. Þó að Jónas hyrfi úr stjórn Fylkis fylgdist hann ávallt með gangi félagsins á íþróttasviðinu og var ófeiminn við að segja sína mein- ingu á málunum bæði í meðbyr og andstreymi. Okkar síðasta samtal átti sér stað í búðinni hans um jól- in og sem oft áður snerist það um stöðu mála hjá Fylki. Jónas óskaði félaginu til hamingju með það að hafa lokið framkvæmdum við vell- ina og hafa þar með eignast þrjá grasvelli auk malarvallarins. Síð- ustu orð hans við mig voru þessi: „Jóhannes minn, stattu þig, íþrótta- húsið verðum við að fá.“ Þannig var hagur félagsins ávallt ofarlega í huga Jónasar. Megi fordæmi hans og eldlegur áhugi verða okkur hjá Fylki það leiðarljós sem lýsir okkur fram á veginn. Jónasi Eggertssyni eru hér með færðar þakkir fyrir öll hans störf og margháttaðan stuðning við félagið. Eiginkonu, börnum og öðrum aðstandendum sendum við samúð- arkveðjur. Megi minningin um góð- an dreng verða ykkur styrkur á sorgarstund. íþróttafélagið Fylkir Jóhannes Oli Garðarsson Verslanir Hagkaups og Ikea verða lokaðar f dag, föstudaginn 12. apríl, frá kl. 14.00-16.00 vegna jarðarfarar Pálma Jónssonar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.