Morgunblaðið - 17.04.1991, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.04.1991, Qupperneq 3
HVÍTA HÚSIÐ/SÍA MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRIL 1991 3 IAmj BLENSKT FELAG OPNAÞÉRDYR •• AÐ MORKUÐIIM ERIENDIS! Gautaboig EIMSKIP hefur rekið eigin skrifstofu í Gautaborg frá 1986 oger hún í daglegu sambandi við flesta samsídptastaði Islendinga á Norðurlöndum. Starfsmenn eru 7 talsins. Hamborg er ein mest vaxandi viðskiptahöfn á meginlandi Evrópu, en mikill hluti flutninga frá Austur-Evrópu fer þar í gegn. Hamborg er einnig mikilvæg höfn fyrir íslenskan útflutning, þaðan dreifist íslensk útflutningsvara víðs vegar um heiminn. Á skrifstofu EIMSKIPS í Hamborg eru 11 starfsmenn. Rotterdam Rotterdam er stærsta höfn í Evrópu. Þar mætast flutninga- tæki frá öllum heimshomum og skiptast á vörum. Álls starfa 16 manns á skrifstofu EIMSKIPS í Rotterdam. Norfolk Frá skrifstofu EIMSKIPS í Norfolk er innanlandsflutningum víðs vegar að í Bandaríkjunum stjómað og viðskiptavinum aflað hagkvæmra flutninga til og frá höfnum Bandaríkjanna. Starfsmenn em 11. 1*1. Nýfondnaland Skrifstofa EIMSKIPS á Nýfundnalandi er ásamt Færeyjum nýjasti útvörður flutningaþjónustu fyrirtækisins. Á Nýfundnalandi hefur pIMSKIP sett upp flutningakerfi, þar sem leitast er við að nýta reynslu og þekkingu sem lslendingar hafa aflað, til að skapa aukin verðmæti erlendis. Á skrifstofunni em 3 starfsmenn. Færeyjar í Færeyjum er EIMSKIP virkur þátttakandi á flutninga- markaðnum, enda hefur EIMSKIP haft viðkomu í Færeyjum um fjölda ára. Starfsmenn EIMSKIPS í Færeyjum em 3 talsins. Bretland Breska flutningafyrirtækið MGH Ltd. er í eigu EIMSKIPS. Fyrirtækið annast flutningaþjónustu á Bretlandseyjum og tengda starfsemi, auk flutningaþjónustu við Islendinga. Alls starfa 60 manns í þjónustu MGH Ltd. Útverðir þinna hagsmuna Nú starfa á annað hundrað manns á vegum EIMSKIPS erlendis. Þessir starfsmenn eru ávallt reiðubúnir að greiða þér leið og miðla af reynslu sinni í alþjóðlegri flutningaþjónustu. Kjölfesta þjónustunnar er eigin skrifstofur fyrirtækisins ytra sem þjóna hagsmunum íslensks viðskiptalífs og þar með íslendingum öllum. Þekking á markaðsaðstæðum Með starfsemi EIMSKIPS erlendis hefur félagið öðlast góða þekkingu á markaðsaðstæðum, fylgst grannt með nýjustu straumum í flutningatækni og á hægara með að sinna staðbundnum þörfum íslenskra viðskiptamanna. Þannig hefur í senn tekist að veita aukna og hagkvæma flutningaþjónustu. Flest bendir til að þessi þjónusta reynist enn mikil- vægari á næstu misserum þegar íslensk fyrirtæki hasla sér traustari völl á erlendum vettvangi. EIMSKIP VIÐ GREIÐUM RÉR LEIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.