Morgunblaðið - 17.04.1991, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 17.04.1991, Blaðsíða 57
MONGíÍNBMÐE iMIÐVHKGDAGKR :17v'Af’KÍI. 1«9V I>essir hringdu .. Góð þjónusta A.L. hringdi: „Mig langar að koma fram þakklæti til verslunarinnar Dúks fyrir góða og snögga þjónustu. Eg átti dýnu frá þeim og þar sem nokkrir gormar höfðu stungist upp úr dýnunni, hringdi ég í þá til að athuga hvort hægt væri að gera við hana. Og eigandi verslun- arinnar brást snöggt við og kom innan fárra klukkustunda. Hann úrskuðaði dýnuna ónýta og skipti á henni og nýrri dýnu, sem hann hafði með sér. Fleiri verslunareig- endur ættu að taka hann tii fyrir- myndar og gera viðskiptavini sína jafn ánægða og ég er nú.“ Gleraugu Lesgleraugu í rauðbrúnu hulstri töpuðust í Bjórhöllinni í Breiðholti 17. mars. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 13831. Lyklar Daihatsu lyklakippa með fjór- um lyklum fannst í Elliðaárdal um helgina. Upplýsingar í síma 72492. Högni Ársgamall gulbröndóttur Högni hvarf frá heimili sínu í Kópavogi miðvikudaginn 10. apríl sl. Hann er með grænbláa hálsól. Finnandi er vinsamlegast beðinn um að hringja í síma 46948. JAFNAÐAR- STEFNAN í REYND í forustugrein Alþýðublaðsins nýlega er fjallað um séreinkenni jafnaðarstefnunnar. Þar stendur meðal annars: Jafnaðarstefnan stendur á gömlum grunni en er samt síung. Það er akkúrat það! Standi jafnaðarstefnan á gömlum grunni þá er sá grunnur löngu brot- inn í smá mola svo gjörsamlega er búið að skrumskæla þá ímynd fólks um stefnu jafnaðar í reynd, að ekki nokkur maður trúir því að sú stefna hafi verið til. Ekki þeir er þekkja nútíma jafnaðarstefnu eins og hún er rekin í dag, hún er blekking ein. Að halda því fram að hún byggi á jafnaði og mannúð er fjarstæða. Islenskir kratar bera sig gjarnan saman við krata á Norðurlöndum. Af því að í forustugreininni í Al- þýðublaðinu segir að þetta sé mann- úðarstefna sem skeri sig úr frá hinu gömlu flokkunum skal nefnt dæmi um systurflokk krata. Ef maður vitnar í sænska krata sem eru senn- ilega fjölmennastir af Norðurland- akrötum, kratar hafa farið með stjórn landsins þar að mestu í hálfa öld. Kratar í Svíþjóð hafa leikið svo tveim skjöldum í friðar- og mannúð- armálum að ekki er dæmi um slíkt annars staðar nema hjá stórveldum sem skeyta lítt um alþjóðaálit. Al- þýðublaðið hælir krötum fyrir frið- arstefnu (þvílík friðarstefna). Sæn- skir kratar hafa lýst land sitt hlut- laust í áratugi en er það svo? í sein- ustu styrjöld seldu Svíar nasistum hugmyndir að segulmögnuðum tundurduflum sem var geigvænlegt vopn, komu svo eins og frelsandi englar til bandamanna og seldu þeim vömina við þeim vopnum. Þeir seldu nasistum járngrýti til vopnaframleiðslu fluttu það í gegn- um hernumið vinarland. í sjónvarp- inu mátti sjá í vetur stríðstól Iraka á geysistórum bílum merktum Sa- ab-Skania Er þetta friðelskandi jafnaðarstefna? Varnarmálaráð- herra ísraela sagði á Sky-sjón- varpsstöðinni: Lái manni nokkur þótt við viljum svara fyrir okkur þegar skotið er á okkur rússneskum eldflaugum með háþróuðum sænsk- um stýribúnaði. Þetta er sú jafnaðarstefna sem Alþýðublaðið dásamar í leiðara sín- um, þetta er sú sérstæða jafnað- arstefna sem ber af öðrum flokkum, þegar kratar á íslandi hafa setið í stjórn, og hafa haft tækifæri til að jafna lífskjör er allt á heljarþröm, aflaleysi og sölutregða. En þegar þeir eru utan stjórnar er allt hægt að gera fyrir launþega. Alþýðublað- ið nefnir séreinkenni krata í um- hverfismálum. Er umhverfismála- ráðherra Júlíus Sólnes bar upp á krata í Svíþjóð að þeir geymdu geislavirkan úrgang frá kjarnorku- verum neðansjávar á botni Eystra- salts kom Svíum þetta mjög á óvart, að ráðherra vissi um slíkt athæfi en sögðu að úrgangurinn væri ekki neðansjávar heldur grafinn í gam- alli saltnámu á landi. Þetta eru umhverfismálin sem kratar segja í Alþýðublaðinu að séu séreinkenni jafnaðarstefnunnar. Af mörgu er að taka, en hér skal látið staðar numið. Karl Ormsson, raftækjavörður Bjór- inntil óheilla Til Velvakanda. Nú er komið á þriðja ár síðan bjórinn var leyfður í landinu en ég man ekki betur en að það hafi átt að prófa bjórinn í eitt ár og sjá til hverju hann breytti. En það er eins og aldrei megi breyta lög- um hvemig sem þau eru úr garði gjörð og þótt þau séu þjóðinni til óheilla. Nú er þjóðin búin að sjá hvaða afleiðingar bjórinn hefur haft — aukið fyllirí, ofbeldi og manndráp. Svo ætla ég að minnast á lögin sem sett voru varðandi ljósanotk- un í umferðinni, að ljósin verða að vera kveikt allan sólarhringinn ef bíll er í keyrslu. Það víta víst flestir hver kom með þessa tillögu og þetta átti að draga úr árekstr- um og slysum. En hvað hefur gerst. Árekstrum hefur ijölgað og slysum bæði á mönnum og skepn- um. Eg hef minnst á það að það mætti hafa ljóslausan tíma í þijá til fjóra mánuði að sumrinu, því það eru flestir bílstjórar sem fara eftir veðurfari og aðstæðum með ljósanotkun. Já, það er ljótt til þess að vita að það séu sett lög sem eru þjóð- inni til bölvunar. Ég sá í DV föstu- daginn 15. mars grein eftir Aðal- heiði Jónsdóttur verslunarmann sem er mjög góð og vil ég leyfa mér að taka nokkur orð upp úr henni. Ábyrgð kjósenda. Getur nokkur treyst þeim stjórnmála- flokkum sem vilja sækja um inn- göngu í EB! Mér sýnist að ef ís- lendingar gerðu það gæti svo far- ið að það jafngilti þjóðarmorði. Danmörk, Noregur og Svíþjóð geta ef til vill komist klakklaust út úr þess konar samhæfingu en varla okkar fámenna, einhæfa samfélag. Því sýnist mér heilög skylda kjósenda að afskrifa flokka sem fylgja slíkri stefnu. Þetta eru nokkur orð úr greininni og er ég sammála henni að þjóðin ætti ekki að kjósa þá flokka sem vilja ganga í EB. Það er ekki gott að glata sjálfstæði landsihs. Ingimundur Sæmundsson Askriftarsíminn er 69 11 22 Kosningaskýrslur 1874-1987 Ómissandi rit í komandi aiþingiskosningum Hagstofa í slands hefiir gefíð út allar skýrslur sem gerðar hafa verið um kosningar til alþingis og sveitarstjóma, forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslur á þessu tímabili. Skýrslumar em ljósprentaðar og innbundnar með gyllingu í tveimur bindum. Verð aðeins kr. 3.855. Kosningaskýrslur 1874-1987 eru til sölu í afgreiðslu Hagstofunnar að Skuggasundi 3. Hægt er að panta skýrslumar í síma91-60 98 66 eða um bréfsíma 91-62 33 12. œ- Innilegar þakkir til allra, œttingja og vina, sem glöddu okkur á gullbrúðkaupsafmceli okk- ar 9. apríl sl. Guð blessi ykkur öll. Elísabet Jónsdóttir, Halldór M. Ólafsson, ísafirði. Innilegar þakkir til a/Ira, sem heiðruðu mig á sjötugsafmœli mínu, þann 9. apríl sl., með heimsóknum, heillaskeytum, blómum og gjöf- um og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Sérstakar þakkir til stjórnenda og starfsfólks Steypustöðvarinnar hf. Lifið heil. Ottó Gíslason. Heiðnabergi 12. Sportblússur Buxur - skyrtur - peysur Aldrei meira úrval aiísm PHILIPS RYKSUGA Lítil um sig en fjöihæf meö kraftmikinn mótor, 1100 Wött. Hljóðlát og létt í taumi. Heimilistæki hf SÆTÚNI8 SÍMI691515« KRINGLUNNI SlMI 6915 20 ÍSOHUUKQMK/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.