Morgunblaðið - 24.04.1991, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAÖUR 24. APRÍL Í991
Undirskriftum safnað
gegn Verðjöfnunarsjóði
Botnfiskvinnslan og ísfiskútflytjendur
hafa greitt rúman milljarð í sjóðinn
Þorstinn slökktur
Morgunblaðið/Júlíus
Slökkviliðið var kallað að Starmýri 2 í gær, þar sem eldur hafði komist að gaskút. Greiðlega gekk að
kæla kútinn til að hindra sprengingu. Þegar hættan var liðin hjá taldi slökkviliðsmaðurinn Kristján Ólafs-
son það ekki eftir sér að gefa þyrstum hundi vatnssopa.
Krían er komin
Höfn, Hornafirði.
KRÍAN er komin til landsins,
en hér á Höfn sáu menn til
hennar í fyrsta sinn á þessu
vori í gær.
Krían er þó ekki eini vorboð-
inn sem vart hefur orðið hér
um slóðir, því einnig hefur sést
til kjóa og maríuerlu. jgg
HAGSMUNANEFND Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda (SÍF)
safnar nú undirskriftum, þar sem skorað er á stjórnvöld að leggja
Verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins niður nú þegar og endurgreiða
verkendum og útflytjendum þá peninga, sem þeim hefur verið gert
skylt að greiða í sjóðinn frá því að hann hóf starfsemi sína 1. ágúst
1990. Greiddar hafa verið 1.050 milljónir króna í botnfiskdeild sjóðs-
ins frá 1. ágúst 1990, þar af 182 milljónir í ísfiskdeild.
Reykjavíkurborg hefur gert 244,9 milljóna króna tilboð í land Blika-
staða, sem Iiggur frá Korpu beggja vegna Vesturlandsvegar að byggð
í Mosfellsbæ. Tilboðið er gert með fyrirvara um að Mosfellsbær falli
frá forkaupsrétti sínum og að samningar takist milli sveitarfélaganna
um breytt lögsögumörk. Tilboð þetta var kynnt borgarráði í gær.
Blikastaðalandið er 170 hektar-
ar, þar af er 90 hektara bygginga-
land, sem skipulagt hefur verið á
aðalskipulagi Mosfellsbæjar, um 50
hektarar ofan vegar í Úlfarsfelli og
Gluggagæg-
ir handtekinn
MAÐUR var handtekinn á
Freyjugötu í fyrrinótt, eftir að
hafa verið staðinn að því að
gægjast á glugga.
Lögreglan var kölluð að Freyju-
götu klukkan 2.22 um nóttina. Þeg-
ar hún kom á staðinn handtók hún
manninn, sem hefur áður komið við
sögu vegna svipaðra mála.
einnig þijátíu hektarar neðan vegar
sem fyrirhugað er að verði grænt
svæði. Mun hærra verð er áætlað
að greiða fyrir hvern hektara bygg-
ingalands en aðra hluta landsins. í
tilboðinu eru hús á landinu undan-
skilin og gert ráð fyrir að skipulagð-
ar verði sérstakar lóðir í kringum
þau.
Eigendur Blikastaða eru hjónin
Helga Magnúsdóttir og Sigsteinn
Pálsson. Tilboðið gildir til næsta
mánudags.
Að sögn Hjörleifs Kvaran fram-
kvæmdastjóra lögfræði- og stjórn-
sýslusviðs Reykjavíkurborgar, hef-
ur tilboðið verið kynnt bæjarstjóra
Mosfellsbæjar og ráðamönnum bæj-
arins.
Ný sjónvarpsstöð í uppsiglingu?
Fyrirtæki í sjávarútvegi vilja
meðal annars nota þá peninga, sem
þau hafa greitt í Verðjöfnunarsjóð
sjávarútvegsins, til að greiða niður
um 7 milljarða króna lán, sem þau
fengu hjá Atvinnutryggingarsjóði
útflutningsgreina.
Ákveðið hefur verið að í næsta
mánuði verði greiðslur í botnfisk-
deild Verðjöfnunarsjóðs sjávarút-
vegsins 4,6% af fob-verði, svo og
að greiðslur í hörpudiskdeild sjóðs-
ins falli niður en þær hafa verið 1%
af fob-verði frá áramótum, samtals
1,3 milljónir króna, að sögn Olafs
Klemenssonar framkvæmdastjóra
Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins. .
Inngreiðsla í botnfiskdeild sjóðs-
ins er nú 5% af fob-verði. Ólafur
upplýsir að Verðjöfnunarsjóður
sjávarútvegsins hafí yfirtekið 537
milljóna króna inneign í Verðjöfnun-
arsjóði fiskiðnaðarins, aðallega úr
saltfisk- og humardeildum sjóðsins.
Greiðslur í Verðjöfnunarsjóð sjávar-
útvegsins renna inn á verðjöfnunar-
reikning á nafni viðkomandi fram-
leiðanda en greiðslur í Verðjöfnun-
arsjóð fiskiðnaðarins gerðu það hins
vegar ekki.
Olafur segir að meðalverð á unn-
um botnfiski, það er að segja fryst-
um fiski, saltfiski og skreið, hafí
hækkað um 22% á einu ári, þar af
1,4% í ár. Verðið hafí hins vegar
haldist stöðugt frá því í febrúarbyij-
un og búast megi við verðlækkun á
næstunni vegna aukins framboðs á
físki meðal annars frá Alaska,
Nýja-Sjálandi, Chile og Argentínu.
Meðalverð á unnum botnfísk-
afurðum þarf að lækka um 10% til
að greiðslur botnfískvinnslunnar og
ísfiskútflytjénda í Verðjöfnunarsjóð
falli niður en um 18% til að greitt
verði úr sjóðnum. Hins vegar er
botnfískvinnslan nú rekin með 3,7%
halla að meðaltali vegna mikilla
fískverðshækkana og greiðslna í
Verðjöfnunarsjóð en fískverð er nú
rúmlega 50% hærra en það var að
meðaltali á árinu 1989, samkvæmt
mati Samtaka fískvinnslustöðva.
Sjá nánar í Úr verinu, bls. C1.
Tvær umsóknir hafa
borist um rás sex
*
Sýn o g Islenska fjarskiptafélagið sækja um
Reykjavíkurborg;
244,9 míUjónír boðn-
ar í land Blikastaða
TVÆR umsóknir um leyfi til sjón-
varpsrekstrar liggja fyrir hjá út-
varpsréttarnefnd, ejn frá nýstofn-
uðu hlutafélagi, Islenska fjar-
skiptafélaginu, og önnur frá Sýn
hf. Aðeins ein rás á VHF-sviði er
til úthlutunar. Fjallað verður um
umsóknirnar á næstu dögum.
Gísli Baldur Garðarsson lögmað-
ur sótti um leyfið fyrir hönd ís-
lenska fjarskiptafélagsins en ekki
er vitað annað um aðstandendur
félagsins en að þar fara fjársterk-
ir aðilar, sem óska nafnleyndar.
Ráðgjafi fyrirtækisins er Jón Ótt-
ar Ragnarsson.
íslenska fjarskiptafélagið hyggst
hefja sjónvarpsrekstur með stuttum
fyrirvara verði því veitt leyfí til
þess. Jón Óttar sagði að það væri
hald manna að í ljósi nýrra kring-
umstæðna, sem ef til vill ættu eftir
að skapast hérlendis eftir nýaf-
staðnar kosningar, myndi hlutverk
ríkisins í útvarpsrekstri minnka
verulega og því hefðu fyrrgreindir
aðilar hug á því að hefja sjónvarps-
rekstur. Hann sagði að það væri
trúnaðarmál hveijir stæðu að ís-
lenska fjarskiptafélaginu. Hann
sagði að samgönguráðuneytið, sem
ásamt útvarpsréttamefnd veitir
leyfí til sjónvarpsreksturs, hefði
með öllu klúðrað þessu máli.
Leyfið var veitt Sýn hf. í desem-
ber 1989 en útsendingar á vegum
fyrirtækisins hófust aldrei og var
leyfið fellt niður átta mánuðum
síðar eins og útvarpslög kveða á
um. Eigendaskipti urðu síðan á fyr-
irtækinu og Stöð 2 eignaðist það.
Að sögn Þorbjöms Broddasonar,
formanns útvarpsréttarnefndar, var
fyrir umsókn um rás 6 sem var
lögð fram í nafni Sýnar en á sama
fundi lá jafnframt fyrir umsókn
íslenska fjarskiptafélagsins.
Þorbjöm sagði að þetta mál þurfi
mikla umljöllun í nefndinni og á
því væm ýmsar hliðar, t.d. hvemig
úthlutun sendirásar kæmi inn í það,
en hún er í höndum samgönguráðu-
neytis.
Benedikt Blöndal
hæstaréttardómari látinn
BENEDIKT Blöndal hæstarétt-
ardómari lést í Reykjavík sl.
mánudag, 56 ára að aldri, eftir
stutt en erfið veikindi.
Benedikt fæddist ll.janúar 1935
í Reykjavík. Foreldrar hans voru
Láms H. Blöndal mag. art., síðast
alþingisskjalavörður, og fyrri kona
hans, Kristjana Benediktsdóttir.
Benedikt lauk laganámi frá Há-
skóla íslands 1960 og var við nám
í sjórétti í London 1960-1961. Hann
varð héraðsdómslögmaður 1961 og
hæstaréttarlögmaður 1966. Harm
tók mikinn þátt í félagslífí stúd-
enta, var meðal annars ritstjóri
Úlfljóts 1956-1957 og formaður
Stúdentafélags Háskólans.
Benedikt var lögfræðingur Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur 1960-1965,
hann rak jafnframt lögmannsskrif-
stofu í Reykjavík frá 1961, um skeið
í félagi við Benedikt Sveinsson hrl.,
en frá 1. janúar 1966 í félagi við
Ágúst Fjeldsted hrl. og frá 1975
einnig í félagi við Hákon Árnason
hrl. Benedikt átti sæti í Kjaradómi
frá 1971 til 1988, þar af formaður
frá 1977. Hann var í kjaranefnd frá
stofnun 1976 til 1988 og formaður
frá 1978. Hann var formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar 1964-1966, í stjóm Lög-
mannafélags íslands í nokkur ár
og var formaður þess 1971-1973,
í stjórn Lífeyrissjóðs lögmanna um
skeið og um tíma í stjórn Stúdenta-
félags Reykjavíkur og formaður
þess 1970-1971. Hann átti sæti í
stjóm Rauða kross íslands frá 1973
og þar af formaður frá 1982 til
1986. Hann var safnaðarfulltrúi í
Dómkirkjunni 1975 til 1981. Bene-
dikt átti ennfremur sæti í stjómum
nokkurra hlutafélaga. Hann var í
Landskjörstjóm frá 1983, formaður
frá 1986. Benedikt Blöndal var
skipaður hæstaréttardómari í fe-
brúar 1988 og gegndi því embætti
til dauðadags.
Benedikt Blöndal
Benedikt kvæntist 6. febrúar
1960 Guðrúnu Karlsdóttur, f. 14.
september 1936, og lifir hún mann
sinn. Eignuðust þau þrjú böm,
Karl, Lárus og Önnu, sem öll eru
í háskólanámi.
Hjörleifur sagði að engar viðræð-
ur hefðu farið fram milli sveitarfé-
Iaganna um hugsanlega samninga
um breytt lögsögumörk. „Við emm
að kaupa þetta land að hluta til að
tryggja okkar framtíðarhagsmuni.
Við erum að byggja meðfram
ströndinni til norðurs og það er
byijað að skipuleggja land Korp-
úlfsstaða," sagði Hjörleifur.
Snjómokstur:
Kostnaður
Vegagerðar
83 milljón-
um minni
en í fyrra
KOSTNAÐUR Vegagerðar
ríkisins vegna snjómoksturs
var 83 milljónum króna
minni á tímabilinu janúar til
mars í ár en hann var á
sama tímabili í fyrra, en þá
var fremur snjóþungt á öllu
landinu.
Að sögn Sigurðar Hauksson-
ar, vegaeftirlitsmanns hjá
Vegagerðinni, var heildar-
kostnaður vegna snjómoksturs
á tímabilinu frá 1. janúar til
31. mars síðastliðins 125 millj-
ónir króna, en á sama tímabili
í fyrra var kostnaðurinn 208
milljónir reiknað á verðlagi í
mars 1991. Á Suðurlandi var
kostnaðurinn í ár 4 milljónir á
móti 15 milljónum f fyrra, á
Reykjanesi 15,5 milljónir á
móti 24,4, á Vesturlandi 12,5
milljónir á móti 27,1, á Vest-
fjörðum 34,9 á móti 52, á
Norðurlandi vestra 14,4 á móti
18,7, á Norðurlandi eystra 24,6
á móti 42,4 og á Austurlandi
18,8 milljónir á móti 28,5 millj-
ónum króna.