Morgunblaðið - 24.04.1991, Síða 9
ÍvtÓktí^NBLADIÐ MIÐVÍKUDaÍUR'ií.'APRÍL 1991
VORFAGNADUR
Vorfagnaður í Félagsheimilinu í kvöld. Boðið verð-
ur upp á léttar veitingar milli 21.00 og 23.00 (sjáv-
arréttadisk). Hljómsveitin INIæturgalar leikurfyrir
dansi. Húsið opnað kl. 20.30. Félagarfjölmennið
og takið með ykkur gesti.
Skemmtinefnd.
Lattu reglulegan
sparnað verða að
veruleika og
pantaðu áskrift að
spariskírteinum
ríkissjóðs
ÞJ0NUSTUMIÐST0Ð
RÍKISVERÐBRÉFA
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6,2. hæð. Sími 91-62 60 40
Áskriftar- og þjónustusímar:
91-62 60 40 og 91-69 96 00
,MmMúísínoG
STJÓRNARMYNDUN
Kosningar - stjórnar-
myndun
Forystugreinar dagblaðanna í gær [DV í
fyrradag] fjalla um niðurstöður nýafstað-
inna kosninga. Þær eru túlkaðar með
mismunandi hætti. Staksteinar glugga í
þessi misvísandi skrif, sem öll skarast
við myndun nýrrar ríkisstjórnar.
„Stjómin hélt
velli“
Tíminn segir:
„Á það skal þó bent
að hinir raunverulegu
stjórnmáhiflokkar, sem
stóðu að myndun núver-
andi ríkisstjómar, og
Borgaraflokkurimm þá
ekki meðtalinn, komu vel
út úr kosningunum ...
Samanlagt hafa þessir
flokkar meirilduta á Al-
þingi, þ.e. 32 þingsæti.
Ef þessir flokkar eru td-
búnir að halda áfram
stjórnarsamstarfi verður
að gefa þeim tíma td
þess að ræða sín á milli
um það mál áður en rikis-
stjórnin hugsar td þess
að biðjast lausnar.
l)m það er óþarfi að
deUa að úrslit kosning-
aima urðu þau að ríkis-
stjómin hélt velli, þ.e.
ríkisstjórnin er signrveg-
ari, og þeir, sem að henni
standa, eiga kröfu til
þess að fá tækifæri tU
að fylgja þeim sigri eft-
ir...“
Alþýðubanda-
lagið tryggði
stjórnarsigur
Forystugrem Þjóðvilj-
ans e'r á svipuðum nótum:
„Kosningamar á laug-
ardagimi voru mikill sig-
ur fyrir Alþýðubandalag-
ið ...
Fylgisaukning Alþýðu-
bandalagsins .varð tU
þess að stjórnarflokkarn-
ir, að Borgaraflokknum
slepptum, liafa meiri-
hluta á þingi, nauman að
vísu, en fullnægjandi, og
gildir einu, hversu oft
formaður Sjálfstæðis-
flokksins fullyrðir hið
gagnstæða. Ríkisstjórnin
hefur m.ö.o. haldið velli
í kosningunum, sem
skapar skilyi-ði tU þess
að lialdið verði áfram á
svipaðri braut og verið
liefur. Því til viðbótar
hefur Kvennalistinn lýst
yfir vilja sínum til að
ræða við flokkana um
stjórnaésamstarf ... Odd-
vitar stjórnai-flokkanna
munu ræða saman næstu
daga. Vonandi tekst þeim
að ná saman um áfram-
haldandi samstarf, enda
er það í eðlilegu sam-
ræmi við kosningaúrslit-
in ...“
Trompin hjá
Alþýðuflokki
Dagblaðið Vísir segir
í forystugrein:
„Kosningaúrslitin eru
um margt sérkennUeg og
þverstæðukennd. Sjálf-
stæðisflokkurinn verður
að tcljast sigurvegari
kosningamia með þvi að
bæta við sig 11,4% frá
siðustu þingkosningum.
Samt eru sjálfstæðis-
menn óánægðir með úr-
slitin og sigur þeirra er
langt frá því sem vænt-
ingar og kamianir gáfu
tíl kyima ...
Alþýðuflokkurinn
stendm- og i stað og get-
ur varla talizt tU sigur-
vegara kosningamia.
Niðurstaða kosnhigaúr-
slitaima er engu að síður
sú að Alþýðuflokkurinn
hefur óskastöðu, þegar
kemur að myndun nýrr-
ar ríkisstjóriuir. Hann
hefur öll tromp á hendi.
Hann getur samið í báðar
áttir. AJþýðuflokkurimi
hefur beztu vígstöðu
allra flokka og það er
fyrst og fremst undir
afstöðu hans komið,
hvernig og hvaða ríkis-
stjórn tekur við.“
Hveraig ríkis-
stj’órn tryggii'
framgang bar-
áttumálanna?
í forystugrein Alþýðu-
blaðsins segir m.a.:
„Á endaspretti ríkis-
stjómarinnar voru
Framsóknarfiokkur og
Alþýðubandalag erfiðir
Alþýðuflokki í veigamikl-
um málum, eins og stór-
iðjumálum og Evrópu-
málum. Kosningabarátta
þessara tveggja flokka
var einnig þess eðlis, að
-jafnaðarmenn hljóta að
staldra við þegar kemur
að áframhaldandi sam-
starfi. Formaður Fram-
sóknarflokksins og for-
maður Alþýðubandalags-
ins sneru kosningabar-
áttunni upp i hræðslu-
bandalag gegn ímynd-
aðri aðild Islands að Evr-
ópubandalaginu; máli
sem aldrei hefur verið á
dagskrá neins stjóm-
málaflokks. Samstarfs-
fiokkar Alþýðufiokks í
ríkisstjóm komu því í
bakið á flokknum, aðal-
lega formanni Alþýðu-
fiokks, og þvílík fram-
koma hlýtur að gera það
að verkum, að forystu-
menn Alþýðuflokks
spyiji sig, hvort Fram-
sóknarflokknum og Al-
þýðubandalagi sé treyst-
andi í áframhaldandi
samstarfi.
Alþýðufiokkurinn
gekk til kosninga með
nokkur meginmál í
brennidepli: að Ijúka ál-
málinu á næsta kjörtíma-
bili, að sanmingnum um
Evrópska efnahagssvæð-
ið yrði lokið, að upp-
stokkun eigi sér stað í
landbúnaði og sjávarút-
vegi, að kjör og lífsgæði
yrðu bætt, skattbyrði
jöfnuð og félagsmál
treyst. Kosningayfirlýs-
ingar Framsóknarflokks
og Alþýðubandalags
hafa hins vegar verið
þess eðlis, að þessir tveir
fiokkar virðast vera á
andstæðri skoðun við Al-
þýðuflokkinn - og hafa
sýnt það í verki - í öllum
veigamestu málunum.
Forystumenn Alþýðu-
flokksins hljóta því að
spyija sig, hvort hægt sé
að ná samstöðu í fjögurra
fiokka vinstri stjórn um
þessi mál ... Það er fyrst
og fremst þessi stað-
reynd sem forystumenn
Alþýðuflokksins verða að
hafa i huga þegar þeir
freista þess að ná sam-
stöðu um hugsanlega
þátttöku í næstu ríkis-
stjóm.“
N Ý BÓK U M HLUTABRÉFAMARKAÐ
ERU REGLUR OG LOGGJOF
FULLNÆGIANDI?
I bókinni „Hlutabréfamarkaðurinn á íslandi“ er
m.a. að finna erindi sem Árni Vilhjálmsson prófessor
flutti á ráðstefnu sem VÍB hélt í tilefni af 5 ára afmæli
Hlutabréfamarkaðarins hf., HMARKS. Þar íjallar Árni
um mótun reglna um starfsemi hlutabréfamarkaðar
og ber reglur Verðbréfaþings íslands saman við reglur
á þroskuðum mörkuðum erlendis.
Bókin fæst í helstu bókaverslunum, en þeim sem
óska að fá bókina eða kynningarbækling sendan í
pósti er bent á að hafa samband við Framtíðarsýn
hf. í síma 91-678263.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Símsvari 68 16 25.