Morgunblaðið - 24.04.1991, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL-1991
MEÐAL EFNIS:
íslensk hjón
lýsa viðureign
sinni við
Ef þú hyggur ó
hóskólanóm
skaltu lesa
nýjustu Vikuna
VIKAN Á SLÓÐUM
SIOUX-INDÍANA
- þar sem myndin
Dansar við úlfa
á sér stað
STEPHEN KING
sem nefndur hefur veriö
meistari hrollvekjunnar er
höfundur framhaldssögu
Vikunnar, Dead Zone.
FEGURÐAR-
SAMKEPPNIN
Lokakynning Vikunnar
á þátttakendunum, sem
nú bírtast á sundbolum.
ATHUGID:
Þau leiðu mistök áttu
sér stað að myndir víxluðust af
þeim Selmu Unnsteinsdóttur og
Selmu Stefánsdóttur.
ÁSKRIFTARSÍMI
83122
ffclk í
fréttum
VANDRÆÐI
Bakkus karlinn kom við sögu
Nú hefur komíð í ljós,
að fyrirmyndarhjóna-
bandið, samkrull þeirra
Jane Seymore og Davids
Flynn flosnaði ekki einvörð-
ungu upp vegna dýrkunnar
Flynns á Bakkusi. Seymore
er nú ölium stundum í fylgd
Peters Cetera, poppsöngv-
ara sem gerði garðinn fyrst
frægan sem söngvari hljóm-
sveitarinnar Chicago og síð-
an sem sólólistamður. Hún
heldur því til streitu að sam-
band hennar og Cetera sé
ekki alvarlegt á þessu stigi,
en þeim líði vel í návist
hvors annars og ást gæti
blómstrað. „Þó verður það
erfitt, því ég bý í Santa
Barbara, en Peter í Idaho,“
segir Jane Seymore.
Seymore og Flynn áttu að
því að talið var fyrir-
myndarhjónaband. Svo gott
þótti það, að Seymore ritaði
David Flynn, Sey-
more og börnin.
metsölubók sem fjallaöi
um galdurinn að við-
halda rómantík í sam-
böndum. Byggði hún
kverið á hjónabandi sínu
og Flynns. Hætt er við
að bókin fari fyrir lítið
þessa daganna. Aðspurð
segir hún að áfengissýki
Flynns hafi verið rót
meinsins, hún hafi
grasserað um nokkurra
ára skeið og sífellt graf-
ið undan sambandinu.
Ekki batnaði sambandið
þótt Flynn færi í með-
ferð og bragðaði ekki
áfengi svo mánuðum
skipti eftir tömina, Sey-
more segir hann hafa
breyst svo að hún þekkti
hann ekki lengur sem
þann David Flynn sem
hún þekkti áður og elsk-
aði. Hún útskýrir það
ekkert nánar. Hvort að
hún sjái sig í framtíðinni
sem konu Peters Cetera
og skilnaðurinn að borði
og sæng frá Flynn sé
endanlegur segir hún að
ekkert sé hægt að full-
Jane Seymore með Peter Cet-
era.
yrða á þessu stigi. Um tilrauna-
skilnaðinn frá Flynn vill hún
ekkert segja. Hvað Cetera varð-
ar þá segist hún vera hrifin af
honum og hanh sé hin vænsti
maður og skemmtilegur.
Tíminn muni leiða framvinduna
í ljós.
ELDVARNIR
Slökkviliðið á Kefla-
urflugvelli heiðrað
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli
vann nýlega samkeppni sem
haldin er milli allra slökkviliða
bandaríska flotans og landgöngu-
liðs flotans. Hér er um að ræða
samkeppni á vegum samtaka um
brunavarnir innan bandaríska flot-
ans og landgönguliðsins og kennd
er við stofnanda samtakanna, Allan
G. Ogden. Það eru hundruð slökkvi-
iiða sem taka þátt í samkeppninni.
Keppt er um besta viðbúnað og
árangur í brunavömum mannvirkja
í flotastöðvum og á skipsfjöl og
hlaut Slökkvilið Vanarliðsins þriðju
verðlaun að þessu sinni.
Auk þess að sjá um brunavarnir
allra fasteigna á varnarsvæðunum
og flugvéla á Keflavíkurflugvelli,
að meðtalinni Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, sér Slökkviliðið á Keflavíkur-
flugvelli um hreinsum hættulegra
efna, fermingu og affermingu her-
flutningsvéla, afgreiðslu og þjón-
ustu við herflugvélar sem leið eiga
um flugvöllinn, rekstur sérstakra
þotugildra sem strengja má yfir
flugbrautir vallarins og herþotur
geta gripið til að stöðva ferðina líkt
og gerist á flugmóðuraskipum, að
ógleymdum ísvörnum og snjóruðn-
ingi á öllum athafnasvæðum flug-
véla á Keflavíkurflugvelli.
Frá verðlaunaafhendingunni í Slökkvistöðinni á Keflavíkurflugvelli
8. apríl síðast liðinn. F.v. Thomas F. Hall flotaforingi, yfirmaður
Varnarliðsins, Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri og James Munst-
erman, kapteinn, yfirmaður flotastöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli.
COSPER
im
— Hellið ekki meira vatni í, ég kann ekki að synda.
DEILUR
Böms Hensons segja
minningu hans sverta
Fimm böm hins látna brúðu-
gerðameistara Jims Henson
hafa látið í ljósi megna óánægju
með það uppátæki framleiðenda
„Teenage mutant ninja turtles 2:
The secret of the ooze“ að þakka
Henson hlut hans í kvikmyndinni.
Henson og starfsfólk hans á
furðufígúruverkstæðinu í Lundún-
um hönnuðu fatnað skjaldbakanna
í fyrri kvikmyndinni sem sló ræki-
lega í gegn. Henson og hans fólk
komu hins vegar hvergi nærri
gerð síðari myndarinnar.
Börnin fímm sem eru á aldrinum
18 til 31 árs segja ástæðuna fyrir
reiði sinni vera að Henson hafí
haft mikla óbeit á því ofbeldi og
blóðsúthellingum sem sjá má í
kvikmyndunum um umræddar
bardagaskjaldbökur. „Slíkt var
honum mjög á móti skapi og hann
lét hafa það eftir sér opinber-
lega,“ er haft eftir ónafngreindum
talsmanni hins látna Henson og
barna hans. Talsmaður kvikmynd-
aframleiðendanna sagði á blaða-
mannafundi vegna málsins, að
„lykilmenn" í Henson-fyrirtækjun-
um hefðu vitað um hvað til stóð
og ekki hreyft andmælum. Leitt
væri ef að uppátækið særði börn
hans, hugmyndin hefði verið að
heiðra minningu frábærs lista-
manns.