Morgunblaðið - 24.04.1991, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 24.04.1991, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRIL 1991 mmm Ást er... . . . að láta bakkelsið end- urspegla tilfinningarnar. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ©1991 Los Angeles Times Syndicate Nú er hreint enginri sjáanlegur Ég hringi á eftir. munur á görðunum! HÖGNI HREKKVÍSI Barnaskím HEILRÆÐI „Jóhannes skírari kom fram í óbyggðinni og prédikaði iðruna- rskírn til syndafyrirgefningar. Og margir létu skírast af honum í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.“ Markús 1:4-5. Jóhannes skirari skírði til synda- fyrirgefningar en ekki „til Jesú nafnsins“. Og Jesús sjálfur lét skír- ast af honum til syndafyrirgefning- ar, en ekki til Jesú nafnsins. J.H.: „Og hann var þegar skírður og allt hans fólk“, þ.e.a.s. allt það fólk sem hafði -vit og viljann til iðrunar, og það útilokaði einmitt börn frá skírn. Þess vegna er barnaskírn með öllu gagnslaus, því annars mundu menn eins og Hitler, Stalín, Mússólíni, Napóleon, Bokassa, Idi Amin, Sadd- am Hussein o.s.frv. og allur mafíuó- aldarflokkur og Ku Kux Klan og nasistar fá himnaríki sem „gjöf“. Það hlýtur að vera jafnvel hinni einföidustu sál augljóst að þannig fer Drottinn ekki að til að ná rétt- læti fram að ganga; Opinberun 20:11-15. En Jón Habets hefur hárrétt fyr- ir sér þegar hann segir: „Ef barn- askírnin gefur ekki réttinn til inn- göngu í guðsríki, þá hafa nær eng- ir kristnir menn tilheyrt kirkjunni frá fyrstu öidum. Allt frá þessa tíma væri svo bara ekki til kirkja, ef kenning Sóleyjar um kirkjunnar menn, sem fundu upp barnaskírn- ina“, stæðust." Já, þannig lítur þetta út í dag, fólk er blekkt í hinu allra mikilvæg- asta máli. En Jón Habets þarf ekki að örvænta lengur. Kirkja Krists mun verða. endurbyggð á íslandi, „og hlið Heljar skulu eigi verða henni yfirsterkari“. í bókinni „Hin mikla arfleifð ís- lands“ eftir Adam _ Rutherford stendur eftirfarandi: „ísland og ís- lendingum er í náinni framtíð ætlað að leysa af hendi mjög mikilvægt hlutverk í þágu alls mannkynsins. Nú á dögum eiga sér stað miklar hreyfingar, en ísland á bráðum, undir handleiðslu Guðs, að hefja hina mestu andlegu hreyfingu vorr- ar aldar. Partur af íslensku þjóðinni mun verða fyrst af öllum þjóðum ísraels til þess að kannast _við, að hún sé hluti af hinum mikla ísraels- lýð Guðs. Því að ísland er kjörið af Guði til þess að vera ljósberi fyrir hinar ísraelsþjóðirnar." Og hvað segir Drottinn við þessu? „Sjá, fyrir því munu þeir dagar koma, segir Drottinn, að menn munu eigi framar segja: Svo sann- arlega sem Drottinn lifir, sá ér leiddi ísraelsmenn út af Egyptalandi! Heldur: Svo sannarlega sem Drott- inn lifir, sá er leiddi og flutti heim niðja ísraels húss úr landinu norður frá og úr öllum þeim löndum, þang- að sem ég hafði rekið þá, svo að þeir mættu búa í landi sínu — Síon. Og þannig mun allur ísrael frelsað- ur verða, eins og ritað er: Frá Síon mun sá spámaður koma sem frels- a_r, og útrýmir guðleysi frá Jakob (ísland). Og þetta er sáttmáli minn við þá, þegar ég hefi tekið burt syndir þeirra. Sjá, ég set í Síon ásteytingarstein og hneykslunar- hellur, og sérhver, sem á þennan spámann trúir, mun ekki verða til skammar," Jeremía 23:7-8, Rómv. 11:26-27 og 9:33. S.R. Haralds Til afa og ömmu Hér er vinsamleg ábending til afa og ömmu. Geymið lyf á öruggum stað þannig að barndbörnin nái alls ekki til þeirra. Sykurhúðaðar pillur líta út sem sælgæti í þeirra augum. Lyf sem ykkur eru lífsnauðsynleg eru aftur á móti börnunum stórhættuleg og jafnvel banvæn. Leiðist þér einveran? Einmanaleiki er tilvera sem hijá-' ir margan manninn. Margir ein- angrast og sitja í sínu horni, með hugsanir sínar og þrár. Mörgum líður illa í þessum veruleika sínum, því maður er manns gaman, eins og segir í gömlu kvæði. En svona þarf þetta alls ekki að vera. Sá sem er einmana verður að leita sér fé- lagsskapar. Ekki með því að sitja og stara í gaupnir sér og gráta yfir tilbreytingarlausri tilveru, því oft er það svo að fáir leita þann uppi sem einmana er. Heldur með því að fara út á meðal fólks. Það er lykilatriðið. Öðruvísi kynnist hinn einmana ekki fólki. Margir eru að verða sér meðvit- andi um þörfina fyrir góðan félag- skap og þeim ijársjóði að eiga góða vini. í DV er m.a. auglýsing á hveij- um degi, er blaðið kemur út, sem er á þessa leið: „Leiðist þér einver- an og kynningar á skemmtistöð- um?“ Hjá Aðalstöðinni er einnig þáttur á þriðjudögum sem nefnist Vinafundur, og hefur Margrét Sölvadóttir umsjón með þessum þáttum og hjálpar einmana fólki að kynnast öðru einmana fólki. Þáttur Margrétar er lofsvert fram- tak í þjóðfélagi okkar þar sem svo margir eru einir og daprir, - en þurfa alls ekki að vera það. Einar Ingvi Magnússon Skrifið eða hringið til Yelvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- leyndar. Ekki verða birt nafnlaus bréf sem eru gagnrýni, ádeilur eða árásir á nafngreint fólk. Yíkverji skrifar Víkveiji átti þess kost á kjördag að fara á milli kosningaskrif- stofa Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík. Vakti undrun hans hve margt fólk var þar við störf og hve marg- ir lögðu þangað leið sína til að þiggja veitingar og ræða landsins gagn og nauðsynjar. Samkvæmt heimiidarmönnum sem eru kunnug- ir kosningastarfi sjálfstæðismanna létu nokkur þúsund manns að sér kveða með þátttöku í því á kjördag eða með því að heimsækja kosning- askrifstofurnar, sem voru á sjö stöclum úborginni. I tvær vikur fyrir kjördag voru Hvatarkonur með kaffiveitingar síðdegis í Valhöll, húsi Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Þangað komu hundruð manna, þáðu kaffi, hlu- stuðu á frambjóðendur flytja ræður eða ræddu við þá í einkasamtölum. Einnig komu fram listamenn og fluttu tónlist eða lásu ljóð. Skömmu fyrir kosningar opnaði hverfisélag sjálfstæðismanna í Grafarvogi til dæmis félagsheimili í verslanamið- stöð hverfisins. Við þá athöfn var mikið fjölmenni. Þessi þáttur í stjórnmálastarfi er ekki síður mikilvægur en hinn opin- beri málflutningur eða kynning á stefnu í ræðu og riti. Er ekki vafi á því að hinn glæsilega árangur sjálfstæðismanna í kosningunum í Reykjavík má meðal annars rekja til alls þessa starfs. xxx Iútvarpsþætti á sunnudaginn var meðal annars rætt við Þórólf Þórlindsson, prófessor í félagsvís- indadeild Háskólans, um það, hvað væri áhrifamest í kosningabaráttu. Hann taldi, að ekkert gæti komið í stað þess að frambjóðandi stofn- aði til persónulegs sambands við kjósendur. Þórólfur sagði að ekki hefðu ver- ið gerðar neinar rannsóknir hér á því, hver væru áhrif auglýsinga í kosningabaráttu. Er miður að nið- urstöður slíkra athugana skuli ekki vera tiltækar, því að hvers kyns auglýsingar eru einn helsti útgjald- aliðurinn í bókhaldi kosningabarát- tunnar. Blöstu þær við lesendum allra blaða síðustu dagana fyrir kjördag. Prófessorinn benti þó á, að athugun á framgangi manna í prófkjöri benti til þess, að frekar lítil tengsl væru á milli auglýsinga og árangurs í prófkjöri. Stundum læðist sú hugsun að þegar auglýsingar stjórnmálaflokka eru skoðaðar, að þær séu fremur birtar til að skapa öryggiskennd meðal tryggra stuðningsmanna og jafnvel hjá frambjóðendum sjálfum en til að ná til nýrra sálna! xxx Steingrímur Hermannsson var líklega mest auglýsti einstakl- ingurinn í kosningabaráttunni að þessu sinni. Árangur hans í Reykja- neskjördæmi var síður en svo glæsi- legur, þrátt fyrir allar auglýs- ingarnar. Framsóknarmenn aug- lýstu hins vegar Ólaf Þ. Þórðarson, þingmann sinn í Vestfjarðakjör- dæmi, lítið eða ekkert. Honum tókst þó að endurheimta gamla stöðu framsóknarmanna á Vestfjörðum, en þar hefur verið að fjara undan Framsóknarflokknum síðan Stein- grímur Hermannsson var þar í framboði. Fijálslyndir auglýstu ekki síður mikið en framsókn. Fijálslyndir brutu meðal annars gegn samkom- ulagi stjórnmálaflokkanna með því að auglýsa í sjónvarpi. Þrátt fyrir það þurrkaðist flokkur fijálslyndra út á kjördag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.