Morgunblaðið - 12.05.1991, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.05.1991, Blaðsíða 10
reei íam .si. HUOAauMviua aiGAjaMUoaoM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. MAI1991 ENGIN BIBUA Tli AÐ FLETTA UPPI eftir Kristínu Morju Baldursdóttur MEÐ TILKOMU nýrrar ríkis- stjórnar áleit almenningur að nú kæmi betri tíð með hærra kaupi og lægri sköttum, en Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra segir það fyrsta verkefni ríkissljórnarinnar að koma böndum á útgjöldin áður en skattalækkanir koma til álita. Ríkiskassinn er tómur, búið er að hækka vexti og yfir vofir niðurskurður og erlendar lán- tökur. Mig skorti hugmynda- flug fyrir kosningar til að sjá fyrir mér það ástand sem blas- ir við í efnahagsmál- um,“ segir íjármála- ráðherra á skrifstofu sinni í Arnarhváli. — Er það ekki sama sagan, heyr- ir það ekki til undantekninga að aurar séu í kassanum þegar ný stjóm tekur við? „Nei, munurinn á þessu núna og áður er sá að fólki finnst að það hafi lagt á sig miklar byrðar í þess- ari þjóðarsátt, og að nú sé kominn tími til að það fái þessa fóm endur- greidda. Þjóðarsáttin, sem var gerð til þess að veija kjör fólks gegn verðbólgunni, var í raun engin fóm heldur samningur gerður með þess- um hætti, með þessu markmiði og það hefur náðst. Þjóðarframleiðslan hefur hins vegar ekki vaxið að ráði og því ekki enn komin sú stund að til séu umtalsverð viðbótarverðmæti til að skipta milli landsins barna.“ Margir hafa spurt sig hvort Frið- rik Sophusson verði nógu grimmur í embætti fjármálaráðherra og lýsir það best viðhorfi fólks til embættis- ins. Ég spyr hann hvemig það hafi verið að setjast í þennan harða stól? „Ég hefði kosið annað ráðuneyti, þetta er ekki það sem ég hefði val- ið mér.“ - Hvað þá? „Það er ekki lengur til umráða. Embætti fjármálaráðherra er hins vegar mikii áskorun og snúið verk- efni sem meðal annars byggist á samstarfí við önnur ráðuneyti. Mað- ur kastar sér út í þetta í þeirri von að það samstarf skili árangri. Ef illa gengur í þessu ráðuneyti þá skilar það sér alls staðar, þannig að mikið er í húfi. Það er einnig gott að vita að hér í ráðuneytinu er traust starfsfólk." Friðrik segir að breyting hafi orðið á efnahagsástandi. I kosning- um hafí stjórnmálamenn tilhneig- ingu til að mála framtíðina skærum og björtum litum. „Þjóðin fær bjart- sýniskast fyrir kosningar. Og þegar lokið er tekið af þjóðarpottinum kemur i ljós að fólk hefur snúið af braut spamaðar, hann er minni en menn gerðu ráð fyrir á þessu ári, og eyðsla hefur aukist. Það er ekk- ert á bak við þessa eyðslu, hvorki hærri laun né verðmætasköpun. Fólk virðist til dæmis hafa tekið lán Morgunblaðið/Kristján Arngrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.