Morgunblaðið - 12.05.1991, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.05.1991, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. MAÍ 1991 Aðalfundur KFUM: Heilbrigt æskulýðsstarf þarf stuðning NÝLEGA var haldinn 700. stjórn- arfundur. Brýnasta verkefni fé- lagsins nú er uppbygging nýrrar aðalstöðvar v/Holtaveg. Formaður KFUM er Arnmundur Kr. Jónsson. Aðrir stjórnarmen eru: Aðalsteinn Thorarensen, Björgvin Þórðarson, Einar Guðjónsson, Ólafur Jóhannsson, Pétur Ásgeirsson og Willy Petersen. Á aðalfundi KFUM í vor var sam- þykkt eftirfarandi ályktun: Margir hafa áhyggjur af þeim aðstæðum sem börnum og unglingum eru búnar í íslensku samfélagi samtímans. Nei- kvæðar afleiðingar þessa virðast smám saman koma skýrar í ljós. í ljósi þess beinir aðalfUndur KFUM í Reykjavík þeim tilmælum til stjórn- valda að þau geri sitt til að aðstæður barna og unglinga lagist, m.a. með því að stórefla stuðning sinn við starfsemi æskulýðsfélaga sem hafa það að markmiði að stuðla að alhliða uppbyggingu og þroska æsku lands- ins. Gildi heilbrigðis og þroskandi æskulýðsstarfs verður seint metið tii fulls og ætti það að vera sjálfsagður hlutur að efla slíka starfsemi. ■ ■ Stolt þj óðar og s ameiningartákn Einstök n áttúrufegurð og friðsæld ■ -_;;.. Bátsferð, göngutúr, rómantík og fuglasöngur Gómsætar veitingar ■ I I wa ■ I H m ■ fgf m mk ...og gisting í fallegu umhverfi II V ÍTASIJ NNIJ H K KG I N N Á LGAST Þ a ö t e k ti r ekk i n e m : i 3 5 m í n ú t u r a (1 a k a f r: t Kev k j a v í k t i i i> i n g v n 11 a HOTEL yALHOU ÞlNGVÖLLlIM ■ SÍMI 98 22622 Nj óttu þess b est a njóttu þess á Hótel Valhöll Morgunblaðið/PPJ Rannsóknaflugvél háskólans í Washingfton-fylki á Reykjavíkurflug- velli. Reykjavíkurflugvöllur: Fljúgandi rann- sóknastöð kom við GÖMUL Convair 240-flugvéI í eigu háskólans í Washington- fylki í Bandaríkjunum átti leið um Reykjavík nú í vikunni. Flug- vélin, sem er útbúin sem fljúg- andi rannsóknastofa, var á leið frá Seattle til Kuwait við Persa- flóa. Þar verða framkvæmdar margvíslegar mælingar í háloft- um í kjölfar olíueldanna sem þar hafa geisað undanfarið. Munu m.a. verða gerðar mæling- ar á áhrifum eldanna á veðurfar með tilliti til kenninga um kjarn- orkuvetur. Einnig verða könnuð almenn áhrif reykjarmakkarins á umhverfið. Ellefu vísindamenn og þriggja manna áhöfn vélarinnar munu starfa við þetta verkefni sem stendur yfir í um mánaðartíma og munu þeir hafa bækistöðvar sínar á Bahrein. Flugvél þessi hefur farið víða um lönd við rannsóknir á um- hverfisslysum af náttúru- og mannavöldum, m.a. til Alaska þar sem áhrif skógarelda og eldgoss hafa verð mæld. Síð.ar á þessu ári er ráðgert að vélin fari annars veg- ar til Brasilíu og hins vegar til Convair-flugvél háskólans í Washington-fylki er hlaðin mæl- inga- og tilraunatækjum og m.a. notuð til að rannsaka áhrif um- hverfisóhappa á veðurfar. Síberíu að rannsaka áhrifa skógar- eyðingar á umhverfið. Þátttaka var góð í firmakeppni Smára Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Þrír efstu í fullorðinsflokki: Birgir Örn Birgisson á Glæsi, Einar Logi Sigurgeirsson á Lyftingu og Sigmundur Jóhannesson á Skugga. Syðra-Langholti, Hrunamannahreppi. HESTAMENN í hestamannafélag- inu Smára héldu sína árlegu firma- keppni á Flúðum 1. maí. Þátttaka var góð, ein 119 fyrirtæki voru skráð og þátttaka hestamanna var einnig góð en fjöldi fólks á fé- lagssvæði Smára, sem er Hreppar og Skeið, stundar hestamennsku sér til ánægju og heilsubótar. Þá er í þessum sveitum veruleg hrossa- rækt og tamningar sem er nokkur aukabúgrein hjá allnokkrum bændum. Úrslit keppninnar urðu á þann veg að í barnaflokki varð í efsta sæti Flúðaskóli, keppandi_ Sigfús Brynjar Sigfússon á Skenk. í öðru Pípulagn- ir Stefáns Jónssonar, keppandi Alf- heiður Viðarsdóttir á Fífli, og í þriðja Leiðrétting í minningargrein um Friðrik Guðjónsson útgerðarmann á bls. 56 í fimmtudagsblaði er rangt farið með nafn fóstursystur hans. Hið rétta er að hún hét Magða- lena Hinriksdóttir. Þá má geta þess að fósturfaðir Friðriks hét fullu nafni Gunnar Frímann Jóhannsson. Þetta leiðréttist hér með. Félagsbúið Unnarholtskoti, keppandi Ása Oðinsdóttir á Sneglu. í unglinga- flokki varð í fyrsta sæti Félagsbúið Efri-Brúnavölluro, keppandi Birna Káradóttir á Brönu. í öðru sæti Bún- aðarfélag Gnúpverja, keppandi Erna Óðinsdóttir á Breka, og í þriðja sæti Heysalan Ásólfsstöðum, keppandi Hulda Hrönn Stefánsdóttir á Pannadís. í fullorðinsflokki varð Vátryggingafélag Islands hlutskarp- ast en Sigmundur Jóhannesson keppti fyrir það á Skugga. í öðru sæti Hússjóðurinn Brautarholti, keppandi Einar Logi Sigurgeirsson á Lyftingu, og í þriðja sæti Foreldrafé- iag Skeiðahrepps, en fyrir það keppti Birgir Örn Birgisson á Glæsi. Þá fór fram gæðingaskeið en þar varð sig- ursælastur Magnús Gunnlaugsson á Skugga, annar Birgir Örn Birgisson á Kóngi og þriðja Guðrún Helga Helgadóttir á Feyki. - Sig. Sigm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.