Morgunblaðið - 12.05.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.05.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDÁGUH 12. MAÍ 1991 13 Menntaskólinn á Egilsstöðum: Samstarf tekið upp við færeyska framhaldsskóla Egilsstöðum. MENNTASKÓLINN á Egilsstöðum og Föroya Studentskúla í Þórshöfn hafa gert með sér samning um aukin samskipti þess- ara skóla. Fyrr í vetur dvöidu 4 nemendur og tveir kennarar frá Menntaskólanum á Egilsstöðum í Færeyjum í hálfsmánaðar tíma til að kynna skólann ásamt landi og þjóð. Næsta vetur mun hópur frá Færeyjum dvelja hér í sama tilgangi. Áformað er að bjóða upp á færeyskan áfanga í öldungadeild ME næsta haust. Að sögn Emils Björnssonar kennara við Menntaskólann á Egilsstöðum var tilgangur farar- innar að efla tengsl landanna á sviði skólamála, læra af þeim og miðla þeim af okkar þekkingu. Jafnframt því að stuðla að föst- um samskiptum á milli Mennta- skólans á Egilsstöðum og færey- skra framhaldsskóla. Styrkir til fararinnar fékkst frá Norrænu ráðherranefndinni. Megin viðfangsefni nemenda og kennara á meðan á Færeyja- dvölinni stóð var að kynna íslenska náttúru fyrir færeysku krökkunum og kynna þeim íslenska menningu og íslenskt mál. Tóku þau öll þátt í íslensku- kennslu og framburðarkennslu en íslenska er kennd í færeysk- um framhaldsskólum. Einnig kynntu þau ítarlega möguleik- ana sem gefast í framhaldsnámi á íslandi. Voru nemendur og námsráðgjafar einkar þakklátir fyrir þá kynningu en hugur margra ungra Færeyinga virðist stefna til framhaldsnáms á Is- landi. Jafnframt fræddust þau heilmikið um Færeyjar, náttúru, sögu og tungumálið. Emil Björnsson menntaskóla- kennari segir það samdóma álit þeirra sem þátt tóku í Færeyja- ferðinni að hún hafi í alla staði heppnast vel og verið beggja hagur. Fróðlegt hafi verið að kynnast skólakerfi Færeyinga og gætum við sitthvað af þeim lært. Sem dæmi nefndi Emil að Færeyingar bjóða upp á fag er lítur að hafinu og nýtingu þess og taldi hann furðulegt að aust- firskir framhaldsskólar byðu ekki upp á slíkan áfanga eða sér braut um þetta efni. Emil segir færeyska skóla- kerfið standa á krossgötum og miklar breytingar á því séu ffam- Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson Færeyjafararnir úr ME, frá vinstri: María Markúsdóttir, Guðrún íris Valsdóttir, Einar Þór Þórar- insson og Sigríður Hafdís Benediktsdóttir. undan. Þeir hafa sýnt mikinn áhuga á íslenska áfangakerfinu. Markmið þeirra sé ekki að taka upp kerfí annarra óbreytt heldur að sníða sitt skólakerfi að þörf- um og aðstæðum sínum. Þannig telji þeir sig geta forðast mörg af þeim mistökum sem gerð hafi verið í nágrannalöndunum. Nemendurnir sem þátt tóku í ferðinni, þau Einar Þór Einars- son, Guðrún íris Valsdóttir, Maria Markúsdóttir og Sigríður Hafdís Benediktsdóttir, voru öll sammála um að þessi ferð hafi orðið til þess að þau endurskoð- uðu afstöðu sína og álit á Fær- eyjum og Færeyingum. Sögðu þau að færeysk ungmenni virtust búa yfir mun meiri þjóðemis- kennd en titt væri um jafnaldra þeirra á íslandi. Skólakerfi þeirra væri nokkuð frábrugðið því íslenska en þeim virtist sem fær- eyskir jafnaldrar þeirra væni komnir heldur lengra í námi á sumum sviðum en þau. Einkum ætti þetta við um raungreinafög- in. Þar væru þau komin veralega lengra í námi. — Björn Volvo hannar sína bíla tneð öryggi allrar fjölskyldunnar í huga, þess vegna kaupa fjölskyldur Volvo. Með Volvo 940 og 960 heldur Volvo áfram að ryðja brautina í öryggismálum. Nú hefur Volvo fyrstur allra bifreiðaframleiðenda í heiminum komið fyrir innbyggðum barnabílstól í aftursæti. Auk þess hefur Volvo kontið fyrir þriggja punkta öryggisbelti og höfuðpúða fyrir þriðja farþega í aftursæti. Þessi búnaður er ekki fáanlegur í nokkrum öðrum bifreiðum en Volvo 940 og 960 og því má með sanni segja að hér sé um að ræða öruggasta aftursæti í heimi. Það verður að teljast hálf einkennilegt að engum hafi dottið í hug að gera þetta fyrr, en það er aftur á móti ekki einkennilegt að það skuli fyrst vera Volvo! VOLVO - Bifreið sem þú getur treyst! FAXAFENI 8 • SIMI 91 • 68 58 70

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.