Morgunblaðið - 22.06.1991, Side 10
10
MQRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JUNI 1991
Róðukrossinn sem gefinn var Búðakirkju. Morgunblaðið/Þráinn Bjamason
Vegleg gjöf til Búðakirkju
Hlíðarholti, Staðarsveit.
Á hvítasunnudag 19. maí sl. fór
fram guðsþjónusta í Búðakirkju á
Snæfellsnesi. Sóknarpresturinn
séra Rögnvaldur Finnbogason á
Staðarstað predikaði en kirkjukór
Búða- og Hellnasóknar söng við
undirleik Key Wiggs frá Helliss-
andi.
Við þessa athöfn fór fram afhend-
ing á róðukrossi úr silfri sem er minn-
ingargjöf um hjónin Kristínu Þórunni
Kristinsdóttur, f. 6. sept. 1921, d.
26. mars 1955 og Helga Guðlaug
Salómonsson, f. 25. okt. 1915, d. 22.
júlí 1981, en þau voru búsett í Ól-
afsvík. Gefendur eru sex börn þeirra
hjóna en þau eru Ragnheiður, Erling-
ur, Svavar, Kristinn, Siguijón og
Kristín. Gefendur voru allir viðstadd-
ir athöfnina ásamt mökum sínum og
börnum. Þá var einnig viðstaddur
listamaðurinn sem gripinn smíðaði,
Jens Guðjónsson gullsmiður, ásamt
konu sinni.
Séra Rögnvaldur þakkaði fyrir
hönd safnaðarins, gefendum og lista-
manninum þennan fagra grip. Að
messu lokinni var öllum viðstöddum
boðið til kaffidrykkju á Hótel Búðum
í boði safnarstjórnar. - Þ.B.
Nýkomið í einkasölu gott steinhús, byggt 1953, með
þrem íbúðum, 2ja, 3ja og 4ra herb., alls 188 fm, á
góðum stað í miðbænum. Falleg 860 fm lóð.
Opið í dag Árni Gunnlaugsson, hrl.,
10—14 Og 18—19 Austurgötu 10, sími 50764.
Húseign íHafnarfirði
011 RH 01 01 fl L^RUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I IwU'klw/U KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.löggilturfasteignasali
Til sölu á fasteignamarkaðinn voru að koma m.a. eigna:
Nýleg og góð við Rekagranda
Rúmgóð suðuríbúð á 2. hæð 83 fm. Ágæt sameign. Tvennar svalir.
Stæði í nýju bílhýsi. Húsnæðislán kr. 2,2 millj. Ræktuð lóð. Laus strax.
Efri hæð í tvíbýlishúsi
5 herb. 138 fm við Hlíðarveg Kóp. móti suðri og sól. 4 svefnherb.
Allt sér. Bílsk. Glæsil. trjágarður. Húsnæðislán 2,3 millj.
Endaíbúð - gott lán
Á vinsælum stað við Laugarnesveg 4ra herb. endaíb. Töluvert end-
urn. 3 svefnherb. Sólsvalir. Ágæt sameign. 40 ára húsnæðislán kr. 3,1
millj. Skipti mögul. á sérhæð, einbýlis- eða raðhúsi, helst í nágr.
Stór og góð með stórum bflskúr
3ja herb. íb. á 2. hæð 86,8 fm í 3ja hæða blokk við Blikahóla. Ágæt
sameign. Góður bílsk. 31,7 fm. Laus fljótl. Ein bestu kaup á fasteigna-
markaðnum í dag.
2ja og 3ja herb. íbúðir á góðu verði
Bergþórugötu, Hverfisgötu, Miklubraut, Snorrabraut, Ránargötu,
Hraunbæ, Dalsel og Hringbraut. Vinsamlega leitið nánari upplýsinga.
Skammt frá „Fjölbraut11 í Breiðholti
5 herb. góð íb. á 3. hæð í 3ja hæða blokk við Hrafnhóla. Sérþvað-
staða. Góður sjónvskáli. Ágæt sameign. Mikið útsýni. Hagstætt verð.
Skipti mögul. á raðhúsi, helst í nágr.
í borginni og Garðabæ
Nýleg og vönduð steinhús með tveim íbúðum, stórum bílsk. og vinnu-
plássi á vinsælum stöðum. Eignaskipti mögul. Teikn. og nánari uppl.
aðeins á skrifst.
Þurfum að útvega fjárst. kaupendum
3ja herb. íb., helst í Fossvogí, á 1. hæð. Sérhæð við Stóragerði eða
nágrenni. Sérhæð í vesturborginni eða Nesinu. Ennfremur einbýlis-
og raðhús 110-150 fm. Miklar og góðar greiðslur í boðifyrir rétta eign.
• • •
Opið í dag frá kl. 10-16.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Almenna fasteignasalan sf. _____________________________
var stofnuð 12. júlí 1944. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150~21370
AIMENNA
FAST EIGNASAL AN
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra:
Hugsanlegt að krónan teng-
ist ECU innan tveggja ára
FRIÐRIK Sophusson fjármála-
ráðherra segir að gera megi ráð
fyrir því að íslenska krónan verði
tengd Evrópumyntinni ECU á
kjörtímabilinu, jafnvel innan
tveggja ára, ef jákvæðar niður-
stöður verða af úttekt Seðla-
bankans og Þjóðhagsstofnunar á
þessu máli, en ríkisstjórnin hefur
falið þessum stofnunum að kanna
áhrif þess að tengja krónuna við
ECU. Tenging við Evrópumynt-
ina hefði í för með sér að gengi
krónunnar fylgdi ECU og geng-
isfellingar íslenskra ríkissfjórna
yrðu á meðan úr sögunni, jafn-
framt að krónan yrði gjaldgeng
í Evrópu.
Friðrik ræddi meðal annars þessi
mál á fundi fjármálaráðherra Norð-
urlandanna í Stokkhólmi nú í vik-
unni. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri stefna
ríkisstjórnarinnar að kanna mjög
gaumgæfilega hvort ekki væri
ástæða til þess að tengja krónuna
ECU til þess að ná fram stöðug-
leika í efnahagslífinu. „Ríkisstjórn-
in hefur falið Seðlabankanum og
Þjóðhagsstofnun að gera úttekt á
þessu," sagði hann.
Hann sagði jafnframt að ef sú
úttekt verður jákvæð, þá mætti
gera ráð fyrir því að ríkisstjórnin
mundi ákveða tengingu krónunnar
við ECU, það væri bara spurning
um tíma. Hann kvaðst telja að það
yrði á kjörtímabilinu, jafnvel á
næstu tveimur árum.
Friðrik sagði ljóst að önnur Norð-
urlönd hafi verið að tengja sig
ECU. „Það er að vísu einfaldara
fyrir þessi ríki á suman hátt vegna
þess að skuldir þeirra eru kannski
ekki eins mikið í dollurum og hjá
okkur. En, það breytir ekki því að
þessar þjóðir sem ætla sér að vera
í einhvers konar Evrópusamstarfi,
viðskiptasamstarfi, næstu árin, þær
grípa til þessa ráðs til þess að ná
fram þeim stöðugleika sem er for-
senda hagvaxtarins að þeirra áliti.
Ég hygg að við séum ekki á öðrum
báti en þessar þjóðir. Það gilda í
meginatriðum sömu lögmál hér á
landi,“ sagði fjármálaráðherra.
Hann var spurður hvort hann
téldi að leita þyrfti eftir samstöðu
út fyrir stjórnarráðið, til dæmis
meðal aðila vinnumarkaðarins, til
að þessi tenging krónunnar geti
orðið að veruleika. „Formlega séð
þarf það sjálfsagt ekki,“ sagði Frið-
rik. „Eg á þó von á því að í þeim
miklu viðræðum sem hljóta að fara
fram á næstunni um kjaramál í
víðtækustu merkingu, þá hljóta
þessi mál að koma upp.“
Friðrik sagði athyglisvert hvern-
ig Finnar hafi farið að. „Þeir tengdu
finnska markið ECU á nánast and-
artaki og einmitt til þess að búa
jarðveginn undir kjarasamninga og
undirstrika það að ef atvinnulífið
semdi um meira en finnska markið
þoldi, þá mundi það kalla fram at-
vinnuleysi en ekki gengisfellingu
marksins. Þannig álíta þeir að þeir
geti náð fram ábyrgari kjarasamn-
ingum en ella.“
Fjármálaráðherra sagði að það
væri auðvitað erfiðara fyrir íslend-
inga að ná þessu fram, ekki ein-
göngu vegna skuldanna, heldur ef
til vill einnig vegna þess hve háðir
við íslendingar séum útflutningi á
fiski og hve miklar sveiflur séu
bæði á afurðaverði og afla. „Þess
vegna kann auðvítað að vera erfið-
ara fyrir okkur að finna viðmiðunar-
punktinn í upphafi heldur en fyrir
aðrar þjóðir. En, það breytir ekki
því, að það er úrelt hagstjórnartæki
að grípa sífellt til gengisfellinga til
þess að leiðrétta þá skekkju sem
kemur fram í efnahagslífinu og
miklu meira vit í því, að gera sem
flesta ábyrga fyrir ákvörðunum
sínum, þar á meðal þá sem standa
í kjarasamningum. “
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 594. þáttur
Enn skal ég beijast gegn
brottfalli eignarfallsendingar í
talmáli okkar. Hef ég að vísu
gert það fyrri, en sýnt er að
ekki fellur tré við fyrsta högg.
Margir góðir menn hafa komið
að máli við mig vegna þessa
fyrr og síðar og nú síðast Björn
Þórhallsson í Reykjavík. Þeir eru
jafnhneykslaðir og jafnundrandi
og ég.
Eg finn þess reyndar ekki
merki í lesmáli, að eignarfalls-
endingu sé sleppt, en hún á furðu
ógreiða leið út úr munni ýmissa
manna sem við vörpin vinna.
Síðasta dæmið eru útvarpsfrétt-
ir, þegar sagt var frá hæstarétt-
ardómi í Hafskipsmálinu. Oftar
en hitt sleppti fréttamaður s-i í
eignarfalli orðsins Hafskip, tal-
aði um þennan eða hinn starfs-
mann „Hafskip“. Þetta gengur
ekki, og ég bið nú málfarsráðu-
naut ríkisútvarpsins að taka
þetta mál fyrir og leiðrétta þá
vitleysu sem uppi veður.
Hér á ég aðeins við þess kon-
ar eignarfall, þar sem enginn
vafi getur leikið á, hvernig vera
skuli. Ekki fer milli mála að
skip er í eignarfalli eintölu
skips. Stundum kann hins vegar
að orka tvímælis hvort eignar-
fallsending karlkynsorða sé s
eða ar. Stundum má um slíkt
deila, og stundum verða breyt-
ingar á beygingu orða á löngum
tíma, þær sem að Jokum eru
látnar góðar heita. Ég ætla þó
að minnast hér á lítilræði sem
ég fæst ekki til að taka við
möglunarlaust;
1) Karlmannsnöfn, sem sam-
sett eru af Io. valdur (=voldug-
ur) enda á essi í eignarfalli, og
það þó vaffið hafi fallið brott
og eftir standi aldur. Haraldur
er þannig í eignarfalli Haralds,
og maður er Iiaraldsson. Þor-
valdur er í eignarfalli Þorvalds,
og kona er Þorvaldsdóttir.
Sama gildir þá um nöfn eins og
Ásvaldur, Ástvaldur, Bjart-
valdur, Gunnvaldur, Hervald-
ur, Osvaldur; Rögnvaldur,
Sævaldur og Ogvaldur.
2) Eitthvert fyrirbæri, að
nafni spölur, kom fyrir í sjón-
varpi. Eignarfall af því var haft
„spöls“. Ekki þóknast mér það.
Orðið spölur er í sama beyging-
arflokki og köttur. Eignarfall
er því spalar og fleirtala spelir.
3) í fréttaþættinum Að utan
var föstudagskvöldið næst-
síðasta talað um að „breyta um
skotspóna". En spónn, og þar
með skotspónn, er líka í sama
beygingaflokki og köttur.
Hljóðvarp verður í fleirtölunni,
svo að hún er í þessu dæmi
spænir, og eftir því lagi sem
nú er á komið, ætti því að breyta
um skotspæni.
Spölur merkir tvennt. Annars
vegar leiðarspotti, hins vegar
rimill í grind. eða hjóli. I Gylfa-
ginningu Snorra segir frá komu
Þórs til Útgarða. Var þar allt
stórskorið og grind mikil lokin
aftur fyrir borghliði. En Þór og
félagar hans smugu „milli spal-
anna“ og komust svo inn. Orðið
spölur á sér mörg frændyrði, svo
sem spilda, spjald, fjöl, spelka
og spjálk = sprauð í vef eða
spýta til þess að þenja út skinn.
Og þá man ég það, að sárþjáð
kona hafði aðspurð við mig það
hressilega orðalag um líðan sína,
að „hún (sjálf) væri eins og út-
spýtt tíkarskinn á kamarshurð".
Þá vissi ég að henni leið að
marki illa.
★
Spakmæli eigum við mörg og
sum ærið forn, svo sem úr Orðs-
kviðum Salómons og Háva-
málum. En íslendingar eru
hvergi nærri hættir áð segja
spakmæli. Þættinum barst fyrir
skemmstu lesmál með yfirskrift-
inni Eyðnihættir, og er frá
heilsugæslustöðinni í Bolung-
arvík frá þeim tíma er Pétur
Pétursson (f. 1947) var þar
læknir. Eyðnihættir merkir í
þessu sambandi málshætti
(spakmæli, orðskviðir) til þess
ætlaðir að vara menn við eyðni-
smiti. Víða er þar minnilega að
orði komist, og eru hér fjögur
dæmi: „Grandar heilsu grúppu-
sex. Gýs upp smit við gjálífi.
Stafar fár af stóðlífi. Töff er
gúmmígræjan."
Spurningar til ykkar allra:
1) Mállýskumunur eftir
landshlutum á íslandi er ekki
mikill. Eigum við að leitast við
að útrýma honum? Eigum við
að reyna að viðhalda honum?
Eða, eigum við að láta hann
hlutlausan og fara sem fara vill?
2) Hvaða skilyrði um íslenskt
mál ætti það fólk að uppfylla
sem ráðið er í starf þular eða
fréttamanns við vörpin (útvarp
og sjónvarp)?
3) Hvort er réttara (smekk-
legra) að segja vaskur eða
vaski, sós eða sósa, kökuform
eða kökuformur?
4) Hvernig beygist fuglsheit-
ið Ijaldur? Eins og faldur, eða
eins og Baldur?
★
Ennþá rignir yfir mig orðum
um það sem er auðfarga eða
torfarga í náttúrunni, eða skap-
legt eða óskaðlegt umhverfinu.
Halldór Þorsteinsson í Reykjavík
stingur upp á orðunum vistsæll
og óvistsæll. Þá hefur Halldór
í leikdómi búið til orðið geðsvið
fyrir e. range of emotion, og
enn málsháttinn Því verr
bragðast grauturinn sem
fleiri hafa hann í pottinn búið
(too many cooks spoil the broth).
★
Osvaldur ofan kvað:
Ég átti hjarðir af hyrndum svartkúm
og harem með 19 skartfrúm,
ég átti hæpnustu hótel
og helgarskotsmótel,
ég var hlutgengur suðrí Khartoum.
■k
„Takið þátt í fósturbörnum!“
Þvílíka hvatningu heyrði ég í
varpi. Er þetta nú ekki einum
um of? Skárra væri strax að
hvetja fólk til að taka þátt í
barnfóstri, ef aðhlynning land-
svæða réttlætir svo hæpið
líkingamál.
Ljót var fyrirsögn hér í blað-
inu sunnudaginn 9. þ.m.: „ís-
lenskum lækni var veitt verðlaun
fyrir rannsóknir.“ Hér á auðvit-
að áð vera voru veitt verðlaun.