Morgunblaðið - 15.10.1991, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
Meitillinn áfram í Þorlákshöfn:
Unnið að 150 milljóna
króna hlutafj áraukningn
Skuldir fyrirtækisins um 560 milljónir kr.
en hrein eign yfir 600 milljónir
Fallið hefur verið frá hug- muni leita eftir þátttöku annarra
myndum um sölu Meitilsins í
Þorlákshöfn og fyrirtækið verð-
ur starfrækt áfram á staðnum.
Unnið er að aukningu hlutafjár
um 150 milljónir króna. Það er
Útvegsfélag samvinnumanna hf.
sem stendur fyrir hlutafjáraukn-
ingunni í framhaldi af því að
félagið hefur hafnað sameining-
arhugmyndum við önnur fisk-
vinnslufyrirtæki á Árborgar-
svæðinu. Skuldir Meitilsins nema
nú um 560 milljónum króna en
hrein eign er nokkuð yfir 600
milljónir króna.
Ríkharð Jónsson framkvæmda-
stjóri Útvegsfélagsins segir að þeir
hluthafa auk heimamanna og sveit-
arstjórnar í hlutafjáraukningunni.
Hluthafafundur verður haldinn í
dag, þriðjudag, í Meitlinum og þá
munu þessi mál væntanlega skýrast
betur. Útvegsfélagið er næst
stærsti hluthafinn með 32,5% hluta-
fjár.
Stærsti hluthafínn í Meitlinum
er Hlutafjársjóður og ljóst er að
hann muni ekki leggja meira fé til
fyrirtækisins. Guðmundur Malm-
quist forstjóri Byggðastofnunar
segir að sjóðurinn hafí einfaldlega
ekki bolmagn til að setja meira fé
í fyrirtækið eins og staðan er nú.
Marteinn Friðriksson stjórnar-
formaður Meitilsins segir að ef fyr-
irhuguð 150 milljón króna hluta-
fjáraukning náist muni það þýða
stóra breytingu á skuldastöðu fyrir-
tækisins. „Þessi ákvörðun Útvegs-
félagsins þýðir að mínu mati að
þeir hafa gefið frá sér hugmyndina
um að selja Meitilinn norður til
Dalvíkur,” segir Marteinn. „Og þar
sem þeir hafa einnig hafnað því að
sameinast öðrum fiskvinnslufyrir-
tækjúm var þetta eini möguleikinn
í stöðunni.”
Rekstur Meitilsins hefur verið
mjög erfiður undanfarin ár og
véitufjárskortur er viðvarandi.
Skuldir nema um 560 milljónum
króna en eignastaðan er nokkuð
góð því hlutafé Meitilsins er nú
metið á tvö- til þreföldu nafnverði
eða á bilinu 600-750 milljónir
króna. Er þá kvóti Meitilsins metinn
til íjár. ' >
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 15. OKTÓBER
YFIRLIT: Við Jan Mayen er 399 mb. nærri kyrrstæð lægð, en yfir
Grænlandi er 1027 mb. hæð. Önnur lægð, 1000 mb. djúp, um 600
km. suður af Reykjanesi þokast hægt austur á bóginn.
SPÁ: Norðaustan og austan kaldi víðast hvar á landinu. Él norðan-
lands og lítilsháttar slydda eða rigning við suðurströndina. Hiti +5
til 4 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Hvöss norðanátt og kalt. Snjókoma um
norðanvert landið en vfðast þurrt syðra.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðan kaldi eða stinningskaldi og kalt.
Él um norðanvert landið en þurrt og víðast léttskýjað sunnanlands.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
V Skúrir
*
V .H
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 2 skýjað
Reykjavík 2 úrkomafgrend
Bergen 10 alskýjað
Helsinki 13 þokumóða
Kaupmannahöfn 12 súld
Narssarssuaq +2 úrkoma
Nuuk +3 hálfskýjað
Osló 8 súld
Stokkhólmur 13 þokumóða
Þórshöfn 0 skúr
Algarve vantar
Amsterdam 16 mistur
Barcelona 20 hátfskýjað
Berlín 16 skýjað
Chicago 10 rigning
Feneyjar 19 skýjað
Frankfurt 11 þokumóða
Glasgow 13 skýjað
Hamborg 14 þokumóða
London 16 mistur
Los Angeles 16 þoka
Lúxemborg 14 léttskýjað
Madríd 16 alskýjað
Malaga 20 skýjað
Mallorca 21 skýjað
Montreal 0 léttskýjað
NewYork 7 heiðskírt
Orlando vantar
París 19 skýjað
Madeira 21 hálfskýjað
Róm 22 rigning
Vín 18 léttskýjað
Washington 6 léttskýjað
Winnipeg +1 skýjað
Síldarsöltun hafin í Voerum
Vogum. °
SÍLDARSÖLTUN hófst hjá Valdimar hf. í Vogum á sunnudaginn
eftir að annar báta fyrirtækisins, Ágúst Guðmundsson GK, kom með
um TOO tonn af síld til Grindavíkur á laugardagskvöld. Ríflega helm-
ingur aflans fór til söltunar hjá Valdimar hf., þar sem síldin er haus-
skorin og léttsöltuð fyrir Pólland. Hinn hluti aflans fór til sölu á
Fiskmarkað Suðumesja.
- E.G.
Tíu stöðvar byrjaðar að salta síld:
Góða síld að finna
í Berufjarðarál
- segir skipstjórinn á Hábergi GK
„VIÐ erum komnir með um 300 tonn af Stórri og fínni síld, sannkall-
aðri demantssíld. Það er síld að finna hér í Berufjarðarál, en það gekk
erfiðlega að ná henni í nótt, vegna mikils straums og hversu djúpt hún
stóð,” sagði Sveinn ísaksson, skipstjóri á Hábergi GK 299, í samtali
við Morgunblaðið í gær. Um tugur báta var þá við síldveiðar í Beru-
fjarðarál og einn eða tveir í Hornarfjarðardýpi. Byrjað er að salta síld
í tíu söltunarstöðvum.
Sveinn sagði að aðrir bátar á sömu
miðum hefðu fengið ágæta síld, en
hann vissi ekki hversu mikið. „Þeir
fara jafnóðum með slatta í land hér
á Austfjörðunum, en við erum með
lengra úthald, enda förum við alla
leið til Grindavíkur með aflann. Bát-
um hér er að fjölga hægt og rólega.
Núna eru þeir um tíu í Berufjarðarál
og einn eða tveir í Hornafjarðardýpi.”
Kristján Jóhannesson hjá síldarút-
vegsnefnd sagði að tíu stöðvar, frá
Seyðisfirði til Voga, væru nú byrjað-
ar að salta síld. „Flestar þeirra, eða
átta, eru á Austfjörðum, en tvær á
Reykjanesi,” sagði hann. „í fyrra var
saltað í 37 stöðvum og ég reikna
með að þær verði svipað margar á
þessari vertíð, eftir að allt kemst á
fullan skrið.”
Sjávarútvegsráðuneytið sendi i
gær frá sér fréttatilkynningu, þar
sem vakin er athygli skipstjóra síld-
arbáta á ákvæðum reglugerðar um
bann við veiðum á smásíld. Þar seg-
ir, að smásíld teljist sú síld, sem er
27 sm eða minni, mæld frá tijónu-
odda að sporðsenda. Fái veiðiskip
síldarkast, sem bersýnilega er að
mestu leyti smásíld, sé skylt að
sleppa sfldinni þegar úr nótinni. Ef
vafí leiki á hlutfalli smásíldar í afl-
anum beri, áður en þrengt hafi verið
verulega að síldinni, að taka sýnis-
horn í smáriðinn háf og mæla 100
síldir af handahófi. Reynist fleiri en
25 síldar 27 sm eða minni beri að
sleppa síldinni þegar í stað. Þá er
minnt á, að brot á ákvæðum reglu’-
gerðarinnar geti varðað sviptingu
veiðileyfis og upptöku andvirðis afla.
Per OlofForshell
sendiherra látinn
SENDIHERRA Svíþjóðar á Is-
landi, Per Olof Forshell, andað-
ist mánudaginn 14. október í
Stokkhólmi 63 ára að aldri.
Per Olof Forshell var fæddur
23. maí 1928. Hann hóf störf hjá
utanríkisráðuneyti Svíþjóðar árið
1954 og starfaði m.a. í Róm, Genf,
París og New York. Hann var aðal-
ræðismaður Svía í Minneapolis frá
1973 til 1977 og sinnti ýmsum
trúnaðarstörfum á vegum utanrík-
isþjónustunnar hjá Sameinuðu
þjóðunum fram til ársins 1987. Það
ár var hann skipaður sendiherra á
íslandi.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Helena Forshell fomleifafræðing-
ur.