Morgunblaðið - 15.10.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
17
þá er langt síðan ég sem félagsfræð-
ingur með hugsjónafræði að áhuga-
máli rýndi í hana af gaumgæfni. Það
vill meira að segja svo til að ég
hafði frumkvæði að því árið 1965,
að fá Geir Hallgrímsson til að flytja
erindi á vegum Félagsmálastofnun-
arinnar og ritstýrði því síðan sem
kafla í bók minni „Kjósandinn,
stjórnmálin og valdið”, fyrir liðlega
aldarfjórðungi. Er það að mínu viti
besta framsetningin á Sjálfstæðis-
stefnunni, sem til er á prenti, enda
segi ég svo í ritstjórnarkynningu á
kafla Geirs, sem ber heitið: „Sjálf-
stæðisflokkurinn, saga hans og meg-
instefna.”
„Svo sem lesandinn mun sann-
reyna er í eftirfarandi ritgerð Geirs
Hallgrímssonar að finna einhveija
einarðlegustu og gleggstu greinar-
gerð um stjórnmálastefnu sjálfstæð-
is og fijálslyndis, sem fram að þessu
hefur birst á íslensku. Byggist gildi
ritgerðarinnar ekki síst á því, að
höfundur útskýrir stefnuna í ljósi
reynslunnar af útfærslu hennar á
íslandi og túlkar hana með hliðsjón
af óskum manna um framfarir á
grundvelli frelsis og framtaks og
velmegun og öryggi án ofskipulagn-
ingar og hafta.”
Eg leyfi mér því að endurtaka:
Það-er andstætt grundvallaratriðum
Sjálfstæðisstefnunnar að samþykkja
takmarkað fullveldisafsal til Brussel
við gerð samninga um EES svo og
að gæði landsins verði notuð fyrir
útlendinga en ekki landsmenn eina.
Þetta á Björn að vita.
Lokaorð
Ég hef sýnt fram á það með gild-
um rökum í mörgum gréinum hér í
blaðinu, að EES-samningurinn eins
og hann liggur fyrir með samþykki
um 98% ákvæða hans sé slæmur
samningur fyrir ísland og honum
beri að hafna. Hann gengur þvett á
okkar helgustu hagsmuni, rýrir full-
veldi okkar með lögtöku EB-réttar-
ins, sem hafa á forgang fyrir íslensk-
um lögum á samningssviðinu. Einnig
stefnir hann með fjórfrelsinu efna-
hagslegu sjálfstæði okkar í hættu
með þvþað veita útlendingum sama
rétt og Islendingutn tit að kaupa og
nýta gæði lahdsins, stofna og reka
fyrirtæki, stunda hér atvinnu og
atvinnurekstur. Auk þess benda
sterkar líkur til þess að ímyndaður
ábati af honum sé mýrarljós eitt.
Þegar allt er réiknað inn í dæmið
hefðum við að líkindum tap en ekki
gróða af framkvæmd samningsins á
Islandi.
Ekkert af framangreindum nið-
urstöðum hefur Björn Bjarnason
hrakið með málefnalegum rökum.
Hann hefur heldur ekki fært gild rök
fyrir því, að það sé í þágu okkar
hagsmuna að gerast aðilar að EES
heldur aðeins sett fram órökstuddar
almennar staðhæfingar um málið,
sem ekki standast rökræna grein-
ingu.
Það má út af fyrir sig vera rétt
hjá Birni, að við höfum nú „einstakt
tækifæri til að tengjast (breytingun-
um í Evrópu) með samningum um
evrópskt efnahagssvæði”. En það
er bara ekki mergurinn málsins að
hafa þetta tækifæri heldur hitt, að
betra er að gera engan heldur en
lélegan milliríkjasamning og fórna
með honum helgustu hagsmunum
okkar.
Höfundur er félagsfræðingur og
fyrrv. sendiherra.
-----------------
Ráðstefna um
geðheilbrigðis-
mál á Austurlandi
AUSTURLANDSDEILD Hjúkr-
unarfélags íslands gengst fyrir
ráðstefnu um geðheilbrigðismál
á Austurlandi.
Markmiðið með ráðstefnunni er
að opna umræðu um geðheilbrigðis-
mál í fjórðungnum og að greind
verði þörf geðverndar og vandi geð-
sjúkra og ættingja þeirra verði Ijós-
ari. Einnig að bent verði á úrræði.
Ráðstefnan verður á Hótel Vala-
skjálf á Egilsstöðum föstudaginn
1. nóvember 1991 og hefst kl.
10.00.
eftir Benedikt
Sigurðsson
í Morgunblaðinu, fimmtudaginn
19. september,-- birtist áberandi
grein eftir okkar ágæta Helga Hálf-
danarson þar sem hann fer afar
hörðum orðum um túlkun hins
heimsfræga og viðurkennda ieik-
stjóra, Franco Zeffirelli, á Hamlet,
nú sýnd á einu breiðtjaldi Háskóla-
bíós.
Um myndina segir Helgi m.a.
orðrétt:
„Um mynd þessa, sem hefur ver-
ið auglýst með skrumi, er annars
það helst að segja, að hún þykir
mér einhver hraklegasta meðferð á
seð..
Og seinna bætir Helgi við:
„... En hér er frumleika-streð
leikstjórans blátt áfram hlægilegt,
styttingar hans órharkvissar, og
hringl með atriði fram og aftur svo
óskynsamlegt, að víða fer rökvís
framvinda verksins gersajnlega úr
böndunum. Auk þess etu mikilvæg
hlutverk furðu illa leikin; til dæmis-
er báðum kvenhlutverkunum ruslað
af í slíku skilningsleysi, að víða
nálgast skopstælingu.”
Hér finnst mér Helgi vera harla
ósanngjarn í dómum sínum. Að
mínum dómi er umrædd mynd í
hæsta gæðaflokki og mæli ég fyrir
munn margra þegar ég segi það.
Túlkun leikstjórand er afar fróðleg
og þótt menn geti greint á um hana
finnst mér leikararnir bera hana
mjög vel, enda eru hér engir aukvis-
ar á ferð. Skýtur það skökku við,
að á sama tíma og virtustu kvik-
myndagagnrýnendur skiptast á að
lofsama Hamlet, bæði í Bandaríkj-
unum og á Bretlandi, en þar kalla
menn ekki allt ömmu sína þegar
túlka á Shakespeare, skuli myndin
vera rökkuð niður hér á Fróni, og
það af snillingi.
Eins og flestum er kunnugt hefur
Helgi Hálfdanarson notið fádæma
athygli og verðskuldaðrar viður-
kenningar fyrir þýðingar sínar á
verkum Shakespeares. Verður
snilld Helga á því sviði vart dregin
í efa.
En snilldin er vandmeðfarin því
henni fylgja mikil völd. Almúginn
treystir dómgreind snillingsins. Orð
hans eru beitt sem axarblað og
geta rist æði djúpt. Veit ég til þess,
að fólk hafi hætt við að sjá Hamlet
í Háskólabíói í kjölfar ummæla
Helga í umræddri grein.
Að vísu get ég vel skilið reiði
snillingsins, sem gæti, að stórum
hluta, stafað af svokallaðri „aðlög-
un” Háskólabíós á þýðingum Helga
Hálfdanarsonar og Matthíasar
Jochumssonar og tek undir um-
mæli hans um að virða beri höfund-
arréttinn.
Hitt er, að gera verður þær kröf-
ur til snillingsins, að hann yfirvegi
vel og vandlega orð sín áður en
hann reiðir til höggs af fullum
þunga.
Bið ég snillinginn að lokum vel
að lifa.
Höfundur er rithöfundur.
Erindi til snillingsins
leikriti Shakespeares sem ég hef
brúðkaup - brúðkaupsafmæli
- stórafmæli eða annað,
fmnurðu því verðugt umhverfi
á Hótel Esju.
Hin nýju og glæsilegu útsýnisherbergi á topphæð
Hótels Esju hafa flest það sem þarf til að gera slíka
stund ógleymanlega.
Útsýnisherbergin eru búin stórum litsjónvarpstækjum
(RUV, CNN, myndbandskerfi með úrvalskvikmyndum).
útvarpi, stafrænum síma og öryggisskáp,
buxnapressu, hárþurrku, smábar, vönduðum
náttsloppum, inniskóm og snyrtivörum.
jarðhœði
>1 jardhætíinm er nyr og
glœsilegur bar, Esjubar-
inn, auk hinna sívinsœlu
veitingastaða Laugaáss
og Pizza Hut. Þar má
einnigfinna hársnyrti-
stofiu, banka, söluskrif-
stofu Flugleiða o.fl. o.fl.
FLUGLEIÐIR
AF GEFNU TILEFNI
SIMI 91-812200
(Fréttatilkynning)