Morgunblaðið - 15.10.1991, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. OKTÓBER 1991
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft næði og tíma tii þess
að taka til hendi heima fyrir
og Ijúka þar mörgu. Eitthvað
togar þig þó burt af heimilinu.
—Naut
(20. apríl - 20.Jmaí) (fift
Hugsaðu þig vel um áður en
þú gerir bindandi skuldbind-
ingar. Sinntu félagsstörfum.
Gerðu ekki stórmál vegná lít-
ilsháttar misskilnings.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þó svo staða þín og tekjur
hækki hefur þú áhyggjur af
fjárfrekum áætlunum maka
þíns. Sýndu yfirboðurum til-
hlýðilega virðingu.
Krabbi
(21. júni - 22. júlí) >“£B
^i'itinuálag gerir þig nokkuð
óstöðugan. Losaðu um spennu
með því að sækja menningar-
viðburði. Farðu úr bænum um
næstu helgi.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ert upptekinn í dag af
skatta- og fjárfestingarmái-
um. Farðu því ekki út á meðal
fólks. Láttu ekki vinnuálagið
bitna á samskiptum við þína
nánustu.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Það er mikið að gera hjá þér
í vinnu og verkefnin hafa hlað-
ist upp. Þú reynir að vinna á
hrúgunni og sóaðu því ekki
tímanum í félagsstörf. Vinir
færa þér óvæntan glaðning.
v°s
(23. sept. - 22. október)
Þú færð nýtt atvinnutilboð en
átt erfitt að gera upp hug þinn
og munt ekki láta undan
þrýstingi. Taktu þann tíma
sem þú telur þurfa til að taka
af skarið.
^oþorödreki
(23. okt. - 21. nóvember) *“$§
Þér verður boðið í ferðalag en
það vefst fyrir þér að taka
boðinu vegna kostnaðar sem
því er samfara. Láttu smáatr-
iðin ekki fara í taugarnar á
þér í kvöld.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Þú gerir áætlanir um fjárfest-
ingar vegna heimilisins og
finnst í lagi að taka lán tii
þeirra hluta.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) &
^iljir þú ekki trúa neinum fyr-
ir vandamálum þínum verð-
urðu bara taugaveiklaðri með
tímanum. Vertu opinskár við
þá sem þú unnir.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú færð tækifæri til þess að
auka vinnutekjur þínar en
vandamál sem þú lendir í
vegna vina þinna munu gera
þér erfitt um vik að sinna
starfi sem skyldi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Blandaðu ekki saman starfi
og leik, það hefði slæmar af-
leiðingar í för með sér. Reyndu
að öðru leyti að nota tímann
vel til að sinna áhugamálum
og útivist.
-aéiii'órnusþána á að lesa sem
aægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
[Þstta
FlOTT EKi )
AF HVERJV
þOFFTiiZOO
LAra
C.Í&A yp/e
pus 7
GRETTIR
HITTI HDND UtV PflGINN Seól
Sfl$E>ISr EKKI HAFA fengiobita
1 þRjfa DAGA, SVOOOO ■■■
/ É6 LEVFDI
l HONUAl HP
?ita /v>r
T
JTM PAVTð
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
^- n/il / . A » \
FERDINAND
SMAFOLK
I 60T A LETTER FROM
PE66Y JEAM T0PAV..5HE
5AT5 5HE 5TILL LIKE5 ME
IF Y0UXE TALKIN6
T0ME,CHARUEBR0U)N,
l‘M 5TANPIN6 HERE
BEHINP VOU...
Ég fékk bréf frá Pöllu Jóns
í dag ... Hún segir að henni
líki enn vel við mig.
Ef þú ert að tala við mig,
Kalli Bjarna, þá stend ég
hérna fyrir aftan þig ...
L0VE HA5 DE5TR0VEP
A LOT OF 600D
PITCHER5..
Ást hefur eyðilagt margan
kastarann ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Nýlega kom út í Bretlandi bók
um Evrópumótið í Killarney sl.
vor. Höfundar eru Brian Senior
og John Elliott. Þeir fara í saum-
ana á 19 leikjum, þar af 5 með
íslandi. Hér er spil úr bókinni,
frá viðureign toppþjóðanna,
Breta og Svía:
Norður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ DG
¥ Á87
♦ D76543
Vestur ♦ 42 Austur
♦ 9742 ♦ Á5
¥3 ¥652
♦ AG2 ♦ K1098
♦ D10853 +ÁKG9
Suður
♦ K10863
¥ KDG1094
♦ -
♦ 76
Opinn salur.
Vestur Norður Austur Suður
AnnstrongGullberg Kirby Sundelin
1 grand Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Lokaður salur.
Vestur Norður Austur Suður
Fallenius Robson Nilsland Forrester
Pass 1 grand 2 tíglar
2 grönd 3 hjörtu 4 lauf 4 hjörtu
5 lauf Pass Pass 5 hjörtu
Pass Pass 6 lauf Dobl
Pass 6 hjörtu Dobl Pass
Pass Pass
í opna salnum vakti Gullberg
á einhvers konar láglitagrandi
sem sýndi 8-11 punkta. Kirby
kaus að passa og Sundelin af-
greiddi málið með beinu stökki
í 4 hjörtu: 420 í NS.
Á hinu borðinu vakti Nilsland
á 14-16 punkta grandi. Forrest-
er sýndi hálitina með 2 tíglum
og Fallenius yfirfærði í lauf með
2 gröndum. Síðan tók hin eigin-
lega barátta við.
En þráhyggja Robsons að
melda 6 hjörtu kemur einkenni-
lega fyrir sjónir. Skýringin er
þessi: Fallenius og Forrester
sátu saman öðru megin við
skerminn, en Nilsland ogRobson
hinu megin. Fallenius sagði pass
sitt við 5 hjörtum ekki vera
kröfu, svo dobl Forrester var þar
með til sektar. Hinu megin taldi
Nilsland að Fallenius væri að
bjóða uppá 6 lauf með passinu.
I slíkri stöðu neitaði dobl Forr-
ester varnarslag og því „fórn-
aði” Robson!
Bretarnir kvöddu keppnis-
stjóra að borðinu, sem breytti
skorinni í 6 lauf dobluð, tvo nið-
ur. Svíarnir létu það gott heita.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Um þessar mundir er heims-
meistaraeinvígi kvenna að ljúka í
Manila á Filippseyjum. Þessi staða
kom upp í fyrstu skák kínverska
áskorandans Xie Jun (2.465),
sem hafði hvitt og átti leik, og
Maju Chiburdanidze (2.495).
Hvítur á undir högg að sækja í
þessu endatafli. Ef hrókurinn á
d5 víkur sér undan falla peðin á
f5 og e6. Kínverska stúlkan fann
snjalla lausn:
Hxf5, (Það þýddi ekki að reyna
að halda í biskupinn. 37. — Ba6
má t.d. svara með 38. Hf8+ —
Ke7, 39. Ha8) 38. Hxc8 - Hf3+,
39. Kxh4 - Hxb3, 40. Hxc6 -
Hb4, 41. Kg3 og hér var samið
jafntefli. Að loknum einvígisskák-
unum átta var staðan jöfn, 4-4,
svo framlengja þurfti til að fá
úrslit. Xie Jun jafnaði í áttundu
skákinni.