Morgunblaðið - 17.10.1991, Page 14
14
MÖRGUNBLAÐIð FIMMTUDÁGUR117. ÖKTÓBER 1991
Þetta eru myrkir dagar
Opið bréf til formanns VSÍ
eftir Jóhann
Hauksson
Kæri Einar Oddur.
Þú skelltir svartri skýrslu um
efnahagsáætlun Vinnuveitendasam-
bandsins fyrir næsta ár á borð al-
þjóðar á dögunum. Og opnuviðtal
við þig birtist í þessu blaði um síð-
ustu helgi, þar sem þú varst áfram
við sama heygðarshornið.
Þú og þínir menn létu í veðri
vaka að ekkert kæmi álið í bráð og
að útflutningstekjur á næsta ári
minnkuðu um tíu milljarða króna,
einkanlega vegna niðurskurðar
þorskkvóta. Veifað var talnagögn-
um Þjóðhagsstofnunar, dregin upp
dekksta myndin af þeim sem úr var
að velja og sagt að um það bil núna
væri þjóðarskútan að sökkva með
manni og mús. Þetta minnti mig á
söguna af Alpabóndanum sem
sagði: „í dag ætla ég að vera góður
við hundinn minn. Fyrst lúskra ég
rækileg á honum. Svo hætti ég.”
Imyndaðu þér hversu auðsveipur og
glaður hundurinn varð þegar bar-
smíðunum linnti.
En hér ætla ég ekki að gera sam-
skipti þín við viðsemjendur þína á
vinnumarkaðinum að umtalsefni.
Það getur vel verið að það sé áhrifa-
rík hernaðarlist að vekja skelfingu
um allt þjóðfélagið, sveipa hjúpi
bölsýninnar yfir það rétt í þann
mund þegar semja skal um kaup
og kjör á vinnumarkaði. Og þegar
lesið er milli línanna í bölmóðsplögg-
unum má kannski greina ofurlitla
langrækni í garð Atlantsáls fyrir
þá ósvinnu að vilja ekki gerast aðili
að VSÍ.
Ekki meira um þetta. Hitt er
verra sem snýr að 'umbjóðendum
þínum í röðum atvinnurekenda.
Þegar síst skyidi geisast VSÍ-kross-
fararnir fram á völlinn og bijóta
niður framtak, sjálfstraust og við-
leitni stórra og smárra atvinnurek-
enda í landinu til nýsköpunar. Gagn-
rýni þín og þinna manna brýtur nið-
ur en byggir ekki upp. Þegar þeir
þarfnast hvatningar hvað mest kem-
ur boðskapurinn frá ykkur: „Þetta
er allt skítt og bölvað og tekur því
'ekki að ráðast í neinar fjárfesting-
ar, umbætur, eða þreifa fyrir sér
með kostnaðarsama markaðsöflun
erlendis.”
Stefnuskrá VSÍ: Bölmóður
og uppgjöf
Þú veist það betur en ég, að þeir
sem stunda atvinnurekstur meta
stöðugleikann meira en nokkuð ann-
að. Þeir hafa fengið ráðrúm á und-
anförnum misserum til þess að átta
sig á innviðum fyrirtækja sinna,
gera áætlanir, hagræða, þróa vörur
og afia nýrra markaða. Þökk sé
meiri stöðugleika, minni verðbólgu
en verið hefur um árabil hér á landi.
Þetta hafa sagt mér margir þinna
bestu samheija í fullri einlægni.
Glíman við fjármagnskostnað er ei-
líf, rétt eins og glíman við launa-
kostnaðinn. Þú minntist ekkert á
að vextir fara lækkandi nú. Þú
minntist ekkert á að meira en 100
þúsund tonn af físki fóru óunnin
úr landi í fyrra til sölu sem þriðja
flokks fiskur í Grimsby. Því ekki
að einbeita sér að því að finna leið-
ir til þess að vinna þó ekki væri
nema helminginn af þessum afla
hér heima? Þarna liggja e.t.v. nokkr-
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
<S>
... þar eru gögnin á góðum stað. 5
Q
I
5
Múlalundur
SÍMI:62 84 50
ir milljarðar fyrir augunum á okk-
ur. Nei. Bölmóður og uppgjöf. Hug-
arfarið seitlar um þjóðfélagið. Frétt-
ir berast af uppgjafartóni meðal
framtakssamra ungra atvinnurek-
enda, m.a. á Vestíjörðum sem smit-
ast hafa á uppgjafatóninum í bjarg-
vættinum að vestan. Hans hlutverk
-^er að veita leiðsögn, sýn til framtíð-
ar, hvetja til dáða og nýrra iandvinn-
inga. Segja: „Við höfum séð það
svartara. Einhveijir munu Ieggja
upp laupana á miklu umbreytinga-
skeiði í sjávarútvegi, aðrir lifa. Af-
raksturinn verður meira hagræði,
meiri verðmætasköpun innan tíðar.
Lítið á frændur vora Færeyinga.
Stærsta frystihúsið þar í landi, sem
var á heljarþröm fyrir nokkru, full-
vinnur nú allan afla til útflutnings
og hefur með því móti snúið rekstr-
artapi í vænlegan hagnað!” Nei.
Þess í stað er alið á bölmóði, vænt-
ingum um versnandi hag, sem ör-
ugglega versni þegar frá líður.
Spádómar rætast stundum
vegna þess eins að þeir
eru settir fram
Ábyrgð VSÍ er mikil er það skap-
ar slíkar væntingar um framtíðina.
Auk þess er full ástæða til þess að
taka hefðbundnum útreikningum
reiknimeistara með fyrirvara þegar
efnahagskei-fið íslenska tekur jafn
hraðfara breytingum um þessar
mundir og raun ber vitni. Líka út:
reikningum Þjóðhagsstofnunar. í
fréttum ríkisútvarpsins 22. mars sl.
sagði Þórður Friðjónsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, að ekkert benti
til þess að efnahagslífíð væri að
þróast til verri vegar og engin hætta
væri á atvinnuleysi né samdrætti.
Síðan eru liðnir sex mánuðir og vel
það og helst að heyra, að aldrei
hafí ástandið verið jafn svart. Þórð-
ur sagði orðrétt í sömu frétt: „Þvert
á móti benda þær upplýsingar sem
við höfum undir höndum að það sé
viðunandi jafnvægi á vinnumark-
aðnum. Það er mikil aukning á inn-
flutningi, það er töluvert mikið að
gerast í efnahagslífinu, þannig að
það er engin ástæða til þess að grípa
til sérstakra ráðstafana til þess að
auka umsvifin í efnahagslífinu og
hættan á þenslu er miklu meiri held-
ur en hættan á að við dettum niður
í einhvern öldudal.” Veist þú Einar
Oddur hvað varð um þennan við-
auka við þjóðhagsspá frá því fyrr á
SOTHEBY’S
STOFNAÐ 1744
þekktasta uppboðshús í heimi
býður nú fram þjónustu
sína á íslandi
Sotheby’s hefur þá ánægju að tilkynna að fulltrúi þess hefur
nú tekið til starfa í Reykjavík.
Sotheby’s býr yfir 200 ára reynslu af kaupum ogsöiu á listmunum
og öðrum verðmætum.
Eftirspum er eftir íslenskri myndlist, s.s. eftir Svavar Guðnason,
frímerkjum, mynt, silfri, postulíni oggömlum leikíongum.
Velgengni Sotheby’s hefur m.a. byggst á því að tryggja hæsta verð
fyrir þá muni, sem boðnir eru upp, og að mat á munum er
eigendum að kostnaðarlausu.
Farið verður með allar fyrirspumir sem trúnaðarmál.
Frekari upplýsingar um uppboö á lislmunum og öðrum
verömœtum hjá Sotheby’s veitir
Sigríður Ingvarsdóttir í síma (91 )-20437
Jóhann Hauksson
„Þegar síst skyldi geis-
ast VSI-krossfararnir
fram á völlinn og brjóta
niður framtak, sjálfs-
traust og viðleitni
stórra og smárra at-
vinnurekenda í landinu
til nýsköpunar. Gagn-
rýni þín og þinna
manna brýtur niður en
byggir ekki upp.”
þessu ári? Ef þú vilt ekki gera opin-
berlega að umtalsefni það sem til
framfara horfír í atvinnulífinu um
þessar mundir skal ég gera það
a.m.k. með nokkrum dæmum sem
tekin eru af handahófí úr öðrum
iðngreinum en sjávarútvegi. Ég
undanskil sjávarútveginn sem búið
hefur við einhveija þá mestu hag-
sæld sem um getur á síðari árum,
einkum að því er varðar afurðaverð
á erlendum mörkuðum. Gleymdu
heldur ekki þeirri staðreynd Einar
Oddur, að sjávarafli á hvern sjó-
mann hér á landi er sá mesti sem
um getur í víðri veröld og að íslensk
fiskiskip veiða að jafnaði meira en
flest ef ekki öll önnur fískiskip í
heiminum. En ég dirfist að kynna
þér nokkur dæmi um útflutningsiðn-
að sem við þurfum vitanlega að hlú
að ekki síður en að þessum öfluga
sjávarútvegi:
1) Steinullarverksmiðjan á Sauð-
árkróki skilaði álitlegum hagnaði á
síðastliðnu ári. Meira en helmingur
framleiðslunnar fer nú á erlenda
markaði og horfur eru á að útflutn-
ingurinn tvöfaldist á þessu ári.
2) Alpan hf. á Eyrarbakka flytur
út 95% framleiðslu sinnar af álpönn-
um og hefur aukið framleiðsluna
jafnt og þétt. Hjá fyrirtækinu starfa
nú um 50 manns. (Eru þessi tvö
fyrstu dæmi ekki hin eina byggða-
stefna sem dugir?)
3) Danskir aðilar hafa tekið við
rekstri Sjóefnavinnslunnar á
Reykjanesi. Þeir hyggja á miklar
fjárfestingar og hafa gert sölusamn-
inga langt fram í tímann. Þar verða
a.m.k. 30 manns í vinnu.
4) íslenskt bergvatn hf. nýtur
mikillar velgengni með útflutning á
kolsýrðu íslensku vatni og gos-
drykkjum um þessar mundir. Nú fer
u.þ.b. einn fjörtíu feta gámur á dag
frá fyrirtækinu á erlenda markaði,
kjaftfullur af alíslenskri framleiðslu.
5) Marel hf. treystir stöðu sína
á markaði vestanhafs með háþróað-
ar tölvuvogir og annan búnað til
fískvinnslu.
6) Hugbúnaðarfyrirtækin Tölvu-
bankinn hf., Hugbúnaður hf. og
Hjarni hf. og jafnvel fleiri hafa þeg-
ar flutt út íslenskan hugbúnað fyrir
hundruð milljóna króna.
7) Frá Borgarnesi er flutt út
Vodka á Bandaríkjamarkað. Vel er
hugsanlegt að auka söluna þar
vestra með auknum auglýsingum.
8) Sæplast á Dalvík skilar mikl-
um hagnaði og flytur út hluta fram-
leiðslunnar. Möguleikar fyrirtækis-
ins til aukins útflutnings virðast
vænlegir í framtíðinni.
9) Æ fleiri fyrirtæki gera til-
raunir með útflutning með fullunnar
fiskafurðir, sum hver með góðum
árangri, t.d. Franskt-íslenskt eldhús
og Frostmar hf.
10) Lýsi hf. flytur út um 80%
framleiðslu sinnar og gæti vafalaust
flutt út meira, fengi fyrirtækið
meira hráefni.
11) Járnblendiverksmiðjan á
Grundartanga hefur náð góðum ár-
angri og virðist vera fullfær um að
halda velli þótt sumir keppinautanna
verði gjaldþrota þegar illa árar á
málmmörkuðum. Þökk sé hugvit-
samlegum og hagkvæmum lausnum
við reksturinn.
12) Rafboði í Garðabæ, eitt
stærsta rafeindafyrirtæki hér á
landi hefur gert samninga við al-
þjóðafyrirtækið ASEA Brown Bo-
veri um sölu og markaðssetningu á
sjálfvirkum togvindubúnaði. Arleg
sala er áætluð um hálfur milljarður
króna innan tíðar.
13) Prentsmiðjan Oddi hf. prent-
ar glæsitímarit fyrir Bandaríkja-
markað.
14) Ráðgert er að hefja fram-
leiðslu á rússneskum haglabyssum
á Hellu fyrir Bamjaríkjamarkað.
Líklega er þegar búið að semja um
drejfinguna á markaðnum þar.
- Ég læt þessa upptalningu duga,
en þú getur fengið meira að heyra.
Þú tekur kannski eftir því að erlent
fjármagn kemur við sögu í flestum
tilvikum hér að ofan. Sennilega end-
urspeglar það kjarkleysi íslenskra
fyrirtækja og peningastofnanna
þegar um áhættuljármögnun er að
ræða. í þessum efnum berð þú og
þínir menn mikla ábyrgð. Þið dragið
tennurnar úr framtakssömum hug-
vitsmönnum þegar ykkur ber að
efla þá til dáða og ástunda það fyrst
og síðast að skapa þeim skilyrði til
þess að afla til dæmis áhættuijár-
magns, sem ekki virðist liggja á
lausu í þessu landi. Bölmóður er
ykkar kjörorð. Þú og þínir menn
sjáið máski veruleikann í þessum
dökku litum. Ef svo er á vel við
frásögnin af Axlar Birni sem myrti
ekki færri en sautján manns á Snæ-
fellsnesi hér fyrr á öldum. Sól skein
í heiði um páskaleytið þegar hann
var leiddur til aftöku. Varð honum
þá að orði: „Þetta eru myrkir dagar
piltar.”
Höfundur er félagsfræðingur og
starfar við upplýsingaráðgjöf lýá
Kynningu og Markaði hf.
M A TVEIMUR VINUM verða
tónleikar í kvöld, fimmtudaginn 17.
október með Inferno 5. Það má
segja að Inferno 5 sé sérkennileg-
asta fyrirbærið í tónlistarheiminum
um þessar mundir. Þeir flytja eigið
efni og öll umgjörð tónleikanna er
sérstök og má þar nefna kvikmynd-
ir og slidesmyndir sem er varpað á
sviðið á meðan tónleikarnir standa
og er sviðið og hljómsveitin eins
konar sýningartjald fyrir þessar
myndir. Þeir spila rafmagnaða og
"síkvenseraða” tónlist í samræmi við
myndirnar. Hljómsveitina skipa:
Ómar Stefánsson, Indriði Einars-
son, Örn Ingólfs, Jóhann Rich--
ards, Óskar Thorarensen og Guð-
jón Rúdólf. Á Föstudagskvöldið er
það Sniglabandið sem skemmtir. Á
laugardagskvöld skemmtir hljóm-
sveitin Ber að ofan.
(Frcttatilkynning)
PageMaker á Maciníosh & PC
Utgáfa fréttabréfa, eyðublaðagerð, auglýsingar og uppsetning skjala.
Námskeið fyrir alla þá sem.vinna að útgáfu og textagerð. _0
Höfum kennt á PageMaker frá árinu 1987.
Tölvu-ogverkfræði(3jónustan
Verkfræðistofa Halldörs Kristjánssonar fjr
Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986 ©:—