Morgunblaðið - 17.10.1991, Síða 18

Morgunblaðið - 17.10.1991, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991 Sjúkrahúsin í Reykja- vík - eitt, tvö eða þrjú? eftir Ragnheiði Haraldsdóttur í fjárlagafrumvarpi því, sem nú hefur verið iagt fyrir Alþingi, eru kynnt áform um að breyta þeirri verkaskiptingu sjúkrahúsa sem ríkt hefur um áraraðir í Reykjavík. Sjúkrahús er veiti bráðaþjónustu verði tvö í stað þriggja, og Landa- kotsspítali og Borgarspítali verði undir einum fjárlagalið. I ljósi fyrir- hugaðra breytinga verða hér tekin til athugunar nokkur atriði er lúta að umönnun sjúkra í Reykjavík. Sagan: Að velja versta kostinn í skemmtilegri greinaröð í Læknablaðinu í apríl, maí og júní 1916 gerir Guðmundur Hannesson prófessor grein fyrir afstöðu sinni til byggingar landsspítala. íslenskar konur höfðu þá hafið söfnun til að láta þann draum sinn rætast. Pró- fessorinn fínnur hugmyndinni ýmis- legt til foráttu, rýnir í framtíðina og kynnir hugmyndir sínar um hvemig sjúkraþjónustu verði best fyrir komið. Margt kemur þar spánskt fyrir sjónir, en í nokkrum atriðum hittir prófessorinn naglann á höfuðið. Hann óttast, áð hér verði reistur til viðbótar við Landakots- spítala og fyrirhugaðan landsspítala „Reykjavíkurspítali”, og verði þá sjúkrahúsin þijú í höfuðborginni. Kostir og gallar mismunandi leiða eru bomir saman og er ein niður- staðan þessi: „Þrír spítalar. Ef það reyndist svo, að bærinn fengist ekki til að vera í samvinnu við landið Prufu-hitamælar + 50 til + 1000 C í einu tæki meö elektrón- ísku verki og Digital sýn- ingu. Vesmistoi 16 - Slnw 1«80-132» um spítalabyggingu og landið vildi hvorki taka að sér að bæta úr spít- alaþörfum Reykjavíkur né styðja Landakotsspítalann, þá gæti farið svo, að á sínum tíma risu hér upp þrír spítalar: landsspítali er landið ræki. Reykjavíkurspítali og Landa- kotsspítalinn. Sjúklingarnir tvístr- uðust þá í þijá staði, og allt yrði dýrara en ástæða væri til. Gallar á slíku fyrirkomulagi eru svo auð- sæir, að ég leiði það hjá mér að ræða þá frekar.” Landspítali er nú 60 ára. Borgar- spítali (Reykjavíkurspítali) tók til starfa 1968 og Landakotsspítali hefur gegnt hlutverki sínu nær óbreyttu frá tímum greinaskrif- anna. Verkaskipting spítalanna hefur þróast á undanförnum áram og er orðin talsverð, þó að enn mætti ganga mun lengra í því efni. Samvinna er mikil, mun meiri en málflutningur að undanförnu í fjölmiðlum gefur tilefni til að halda. Bráðasjúkrahús verði hjúkrunarheimili og öldrunardeildir verði bráðadeildir Stjómendur Borgarspítala og Landakotsspítala hafa lýst yfir áhuga sínum á að stofnanirnar sam- einist. í tillögum ríkisstjómarinnar er gert ráð fyrir að Landakotsspít- ali verði hjúkrunarstofnun aldaðra, en mikill skortur er á slíku hjúkr- unarrými í Reykjavík. Þá er gert ráð fyrir að sú þjónusta, sem nú er veitt á Landakoti, flytjist á Borg- arspítala. Sérhæfð starfsemi Land- akots- og Borgarspítala yrði þá væntanlega m.a. í núverandi hús- næði öldranardeilda Borgarspít- alans, B-álmu, en fé úr fram- kvæmdasjóði aldraðra hefur verið veitt til uppbyggingar þeirrar álmu. Þessi leið er ekki vænleg. Rekst- ur hjúkranarheimilis með hátt í tvö hundrað sjúkrarúm yrði mjög erfið- ur, því dæmin sanna að afar illa fp Dictaphone A Rtney Bowes Company Gæðatæki til hijóðupptöku, afspilunar og afritunar. Falleg hönnun. Vandaðar upptökur. Umboft á íslandi: OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 -105 Reykjavík Símar 624631 / 624699 gengur að manna slíkar stofnanir. Skortur á faglærðu fólki til hjúkr- unarstarfa á stofnunum fyrir aldr- aða hefur lengi verið eitt helsta vandamál sjúkraþjónustu hérlendis sem erlendis, og er fyrirsjáanlegt að sá vandi yrði nær óleysanlegur á hjúkranarstofnuninni Landakoti. Þá brýtur tillagan í bága við þær hugmyndir sem nú ryðja sér til rúms, að hjúkrunarheimili eigi að vera litlar, vistlegar einingar sem líkist sem mest. heimilum manna. Slíkar stofnanir hafa yfirleitt stöð- ugra vinnuafli á að skipa, auk þess sem þær þjóna mun betur þörfum vistmanna. Aldraðir sjúklingar eru fyrst og fremst veikt fólk á efri árum, sem kann að þurfa á sjúkra- húsvist að halda rétt eins og aðrir aldurshópar. Öldrunardeildir, þar sem fram fer hefðbundin sjúkdóms- meðferð, eiga því að vera inni á sjúkrahúsum. Þá hefur þessi leið í för með sér mikla uppbyggingu á skurðstofum og öllum stoðdeildum á Borgarspít- ala, en niðurrif sömu deilda á Land- akoti. Útlagður kostnaður yrði ver- ulegur fyrsti árin, en sparnaður skilaði sér væntanlega síðar. Skynsamlegra hlýtur að teljast að flytja aðra starfsemi en einungis öldranarþjónustu frá Borgarspítala á Landakot við þessa sameiningu, og hafa í því sambandi verið nefnd- ar bæklunaraðgerðir og ýmiss kon- ar þjónusta, sem ekki krefst mjög viðamikils tæknibúnaðar. ■ ' Samstarfsráð sjúkrahús- anna í Reykjavík Með breytingu á lögum um heil- brigðisþjónustu árið 1991 var skot- ið inn nýrri málsgrein er íjallar um samstarfsráð sjúkrahúsanna í Reykjavík, Borgarspítala, St. Jós- efsspítala (Landakotsspítala) og ríkisspítala. Hlutverk ráðsins er „að gera tillögur um mótun framtíðar- stefnu áðumefndra sjúkrahúsa, flokkun þeirra og starfssvið, þróun- ar- og fjárfestingaráætlanir og stuðla þannig að sem hagkvæm- astri verkaskiptingu sjúkrahúsa” eins og segir í lögunum. í ráðinu sitja sjö fulltrúar. Formenn stjóma spítalanna þriggja era skipaðir samkvæmt ákvæði laganna, for- stjóri ríkisspítala og framkvæmda- stjóri Borgarspítala skipaðir sam- kvæmt tilnefningu stjómar ríkis- spítala og borgarstjómar Reykja- víkur, og borgarlæknir og skrifstof- ustjóri í heilbrigðisráðuneytinu skipaðir af heilbrigðisráðherra án tilnefningar. Auk þess starfa með ráðinu hjúkranarforstjóri Borgar- spítalans og framkvæmdastjóri Landakotsspítala. Gengið er út frá því sem vísu, að sjónarmið margra komi fram í slíkri nefnd og er það að sjálfsögðu hið besta mál. Hins vegar hlýtur að vera örðugt að ná fram sameig- inlegri niðurstöðu í nefnd, þar sem svo margir hafa veralegra hags- muna að gæta. Ekki auðveldar það ákvarðanatökuna að litlar tölulegar upplýsingar liggja fyrir um hver væri raunverulegur sparnaður af þeim leiðum, sem verið er að skoða. Þá er mikilvægt að horft sé jafn- framt út fyrir borgarmörkin og skoðað með hvaða hætti styrkja má starfemi þeirra sjúkrahúsa landsbyggðarinnar, sem ætlað er að starfa áfram. Er e.t.v. hugsan- legt að flytja einhveija sérhæfða þjónustu, t.d. tilteknar skurðað- gerðir, á sjúkrahús úti á landi og nota tækjakost og sjúkrarúm þar í stað þess að loka þeim? Samstarfsráðinu er sannarlega vandi á höndum og gera mátti ráð fyrir að það þyrfti tíma til að þróa tillögur sínar. Ráðið hafði þó ekki lengi starfað þegar heilbrigðisráð- herra, Sighvatur Björgvinsson, til- kynnti að unnið yrði að sameiningu Landakotsspítala og Borgarspítala. Tvö bráðasjúkrahús eða eitt? Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að stefnumótun fyrir ríkis- spítala og er nú komið að lokum þeirrar vinnu. Nauðsynlegt þótti að fá til samstarfs erlent ráðgjafafyrir- tæki og eftir nokkra leit var valið fyrirtækið Moret, Ernst & Young, en það er tvímælalaust stærsta og virtasta ráðgjafafyrirtækið á sviði heilbrigðisþjónustu í heiminum. Dr. Paul C.J. de Koning, sem borið hefur hitann og þungann af vinnu fyrirtækisins hér á landi, leggur til, að Landspítali og Borgarspítali verði sameinaðir en Landakot styrkt verulega í núverandi hlut- verki sínu. Við slíka sameiningu er ætlað að ýmiss konar starfsemi sem nú heyrir undir spítalana verði ann- að hvort sjálfstæð eða í lausum „Verkaskipting spítal- anna hefur þróast á undanf örnum árum og er orðin talsverð, þó enn mætti ganga mun lengra í því efni. Sam- vinna er mikil, mun meiri en málflutningur að undanförnu í fjöl- miðlum gefur tilefni til að halda.” rekstrar- og fagtengslum við að- alspítalann. Forsætisráðherra, Davíð Odds- son, komst að svipaðri niðurstöðu þegar hann var borgarstjóri Reykja- víkur og lagði til árið 1986 að Borg- arspítali væri seldur- ríkinu, yrði hluti ríkisspítala. Sú tillaga var gagnrýnd á sínum tíma m.a. vegna þess að talið var eðlilegt að borgin ræki Borgarspítalann, þar sem hún greiddi hluta rekstrarkostnaðar. Nú á þessi viðbára ekki lengur við rök að styrkjast þar sem breytingar á ijármögnun sjúkrastofnana um síð- ustu áramót gera það að verkum að borgin rekur spítalann en rekst- ur er greiddur af ríkissjóði. Engin leið er að segja fyrir um heppilega stærð eða æskilegan rúmafjölda á sameinaðri stofnun Borgarspítala og Landspítala, enda engar formúlur til þar að lútandi. Ljóst er þó, að ekki yrði um mjög stóran spítala að ræða, væntanlega minni en ríkisspítalar eru nú með öllum sinum annexum. Heimur án landamæra - framtíð bama mu> ommwTKKÁWiR Gerð: RF 181/80 - Verð kr. 41.900,- stgr. !! AT LÁS *em ISKALT HAUSTTILBOÐ *CED fr Rúmmál Hæð Verð ÍSSKÁPAR lítrar cm staðgreitt MR 284 með innbyggðu frystihólfi 280/27 145 36.900 MR 243 með innbyggðu frystihóffi 240/27 122 31.900 VR IS6 með innbyggðu frystihólfi 150/15 85 26.900 KÆLISKÁPAR RR29I án frystihólfs 280 143 34.900 RR 247 ón frystihólfs 240 120 29.900 RR 154 ón frystihólfs 150 85 24.900 KÆLI- f FRYSTISKÁPAR RF 365 tviskiþtur, frystir oð ofon 300/60 160 44.900 MRF 289 tviskiptur, frystir oð ofan 280/45 145 39.900 RF 181/80 tvákiptur, frystir oð neðan 280/80 144 41.900 FRYSTISKÁPAR íjt-fTTV VF-223 funm hUlur 220 145 39.900 VF 123 fjórorhHiur 120 85 29.900 4= Nýkomin sending af Atlas kælitækjum á einstöku veröi! RÖNNING SUNDABORG 15 **9I -685868 eftir Halldóru Viðarsdóttur Árið 1989 sömdu og undirrituðu ráðamenn aðildarþjóða Sameinuðu þjóðanna barnasáttmála um réttindi bamsins. Með honum fylgdu tilmæli til þjóða heims um að lögleiða sátt- málann. Haustið 1990 sendi JC- ísland þáverandi forsætisráðherra, Steingrími Hermannssyni, áskoran þess efnis að sáttmálinn yrði lö- gleiddur. Undirbúningur að því hefur verið í gangi og er jafnvel séð fram á að það gerist fyrir árslok. Dagana 29. júlí til 2. ágúst sl. var haldin alþjóðleg ráðstefna undir heit- inu „Intemational Model United Nations”, eða „Alþjóðlegt líkan Sam- einuðu þjóðanna”. Var hún haldin af alþjóða JC-hreyfingunni í sam- vinnu við Sameinuðu þjóðimar undir kjörorðinu „Heimur án landamæra”. Þátttakendur voru JC-félagar frá löndum Sameinuðu þjóðanna og átti JC-ísland þar einn fulltrúa, Kristínu Þórisdóttur, varalandsforseta JC- íslands. Þátttakendum, alís um 300, var skipt í þijá vinnuhópa og fjallaði hver þeirra um eitt af undirkjörorð- unum þremur, „Framtíð barna”, „Umhverfismál” og „Efnahagsþró- un”. Drög að ályktunum voru lögð fyrir hópana, m.a. barnasáttmálinn um réttindi barnsins, en hann til- heyrði „Framtíð bama”. Gerðar voru á á drögunum breytingar og þau lögð fyrir aðalfund ráðstefnunnar. Af alls 40 ályktunum sem samþykkt- ar voru á aðalfundinum heyrðu 13 undir „Framtíð barna”. Var megin- innihald þeirra svohljóðandi: Bætt lífskjör, verndun og þróun — Þátt- taka barna — Heilsa og heilsugæsla — Börnin og umhverfið — Menntun og réttur allra barna til menntunar — Böm og eyðni — Jafnrétti — Hreint vatn og hreinlæti — Menntun kvenna, t.d. til getnaðarvama, hrein- lætis og næringar — Götubörn — Eiturlyf — Stríð og ofbeldi — Vernd- un barna gegn vinnuþrælkun. Eins og sjá má beinist margt af þessu að löndum þriðja heimsins en einnig má finna ýmislegt sem betur mætti fara hér á íslandi. Ráðstefna þessi var einstök sinnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.