Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.12.1991, Blaðsíða 14
I>KJI))JytlAGfylý, f Q.) |{^SflMB.E>H, 1991 í einlægni Bókmenntir Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Stefanía (dulnefni): Súrar gúrk- ur og súkkulaði. Guðlaug Guð- mundsdóttir þýddi. Mál og menn- ing 1991, 212 bls. Við verðum að geta boðið börn- um og unglingum upp á tvenns konar bókmenntir. Annars vegar verða að vera á boðstólum bækur sem gefa ímyndunarafli lesandans lausan tauminn í frásögnum af fjarlægum og oft ójarðneskum fyr- irbærum. Bækur sem innihalda ævintýrapersónur, verur frá öðrum stjömum eða heimum, tröll og for- ynjur. Söguþráður þessara sagna er óraunverulegur en yfirfærslu- gildi þeirra mikið. Hin tegund bamabóka er ekki síður mikilvæg. Þar eru sagðar sögur af trúverðug- um ungmennum sem eiga við sömu eða svipuð vandamál að stríða og bamið eða unglingurinn sem tekur sér bókina í hönd. Þráðurinn hjálp- ar þeim oft á tíðum til að átta sig á sínum eigin raunvemleika og gera sér grein fyrir að vandi þeirra er hvorki sérstakur né einstæður. Með þeim sjálfsagða fyrirv^ra að oft á tíðum er þessum tveimur tegundum bókmennta blandað saman verður að viðurkenna að lítið hefur borið á unglingabókum af síðara taginu hérlendis að undanförnu. Þá eru raunsæjar unglingasögur fágætari en sam- svarandi fyrir stráka. Einnig virð- ast unglingar á aldrinum 11-13 ára vera afskiptari en þeir sem eitthvað eldri era. Minningar hinnar frönsku Stef- aníu era skemmtileg undantekning frá þeim skáldsögum sem hafa verið ráðandi á þessum markaði að undanfömu. Reyndar er varla hægt að bera hana saman við frumsamdar unglingasögur því Súrar gúrkur og súkkulaði er sjálf- ur raunveraleikinn, einlæg dagbó- karlýsing 13 ára stúlku á umbrota- skeiði römmuðu inn af áhyggjum hennar yfir að vera ekki byijuð á túr. Hún finnur sér hvergi stað í tilverunni: Ég spurði mig spurninga. Ég bjó til lista. — Er ég kona? Nei. — Er ég stelpa? Nei. ' — Er ég strákur? Nei. — Erégkrakki? Nei. (Bis. 107.) Ekki bætir úr skák að hjónaband foreldra Stefaníu stendur höllum fæti og hvorki faðir hennar né móðir geta veitt henni þann stuðn- ing sem hún þarfnast. Hjónin eru óvinir eins og annað fullorðið fólk sem er skræfur, ef ekki lygarar og skíthælar að mati Stefaníu (bls. 111). Einu ljósu persónurnar í lífi Stefaníu eru Nicole tónlistarkenn- ari, sem þó má sín lítils gagnvart óréttlæti heimsins, og Hinn, sem heitir réttu nafni Jóel og er eldri bróðir Pablós, skólabróður hennar. ...en það erenn von Gerðu eitthvað í málinu. Fáðu þér myndlykil að Stöð 2 í dag og þá getur þú horft á fjölbreyttara sjónvarpsefni og lengri dagskrá. Þér líður strax betur. Hvort á sinn hátt eru þau áhrifa- valdar í lífi Stefaníu. Nicole lætur Stefaníu finna að hún sé einhvers virði en það er líka henni að þakka að Stefanía lærir að meta tónlist. Þessi lýsing er ein sú áhrifamesta í bókinni enda er upplifun Stefaníu svo sterk að hún á erfitt með að segja nokkrum frá henni. Hinn er bundinn í hjólastól, að hann segir í upphafi, vegna hungui’verkfalls sem hann fór í til þess að mótmæla því hve strangir foreldrar hans væru en seinna ljóstrar hann því upp að hann sé með vöðvarýrnum og eigi aðeins fjögur til fimm ár eftir ólifuð. Stef- anía áttar sig þá á því að hún er ekki ein um að eiga í erfíðleikum og snýr heim en enginn er heima frekar en fyrri daginn svo hún ákveður að gera alvöru úr því að stijúka að heiman. Þegar hún kem- ur aftur til baka virðist allt fallið í ljúfa löð og Stefanía er orðin kona. Frásögnin sem alla söguna hefur verið í 1. persónu hverfist yfir í 3. persónu og atburðurinn sem átti að marka hin miklu tíma- mót virðist hversdagslegur. „Hún hugsaði um allt sitt líf, þijá, ijóra fimm eða sex daga á mánuði yrði hún að hafa bindi og hún spurði sig af hveiju sig hefði langað svona ofboðslega til að þetta byijaði.” (Bls. 210). Með breyttu sjónarhorni er lögð áhersla á að hún hefur þroskast og fengið nokkra yfirsýn yfir fyrri reynslu sína. Stefanía er heillandi stelpa, eftirtektarsöm og einlæg. Hún er einstök, geymir beinagrind af nag- grísnum sínum á gluggasyllunni svo eitthvað sé nefnt, en um leið er hún venjuleg og gengur í gegn- um svipaða hluti og margar stelpur á hennar aldri. Stúlkur á aldrinum 12-15 ára ættu því að finna eitt- hvað við sitt hæfi í bókinni en einn- ig fullorðið fólk einfaldlega vegna þess að Stefanía er umfram allt sönn manneskja þó vandamál hennar séu fyrst og fremst vanda- mál unglinga. Aðrar persónur standa í skugga Stefaníu. Foreldram hennar, sem bregður fyrir, er lýst sem fírrtu nútímafólki og vinkonur Stefaníu, Soffía, Natalía, Valería og Júlía, eru á dálítið annarri línu en hún. Minnimáttarkennd hennar yfír því að vera sú eina sem ekki er byijuð á túr spillir líka sambandinu við þær. Hún kemst næst þeim þar sem vinkonurnar hafa komið sér fyrir í ró og næði á kaffíhúsi og ræða í trúnaði um viðkvæm efni eins og kynferðislegan unað og menn sem bera sig frammi fyrir stelpum. Þær kryfja málin til mergjar og komast að þeirri niður- stöðu að enginn sem þær þekktu hefði nokkurn tíma fengið kynferð- islega fullnægingu og líklegt sé að flestar stelpur á aldrinum 8-14 ára verði fyrir áreitni „flassara”. Hér eru á ferðinni málefni sem fæstir rithöfundar treysta sér til að fjalla um, því miður, vegna þess að þessi mál era dæmigerð fyrir það sem ekki á að tala um en geta legið þungt á hjarta. Hér að framan er talað um að erfítt sé að bera bókina saman við skáldsögur fyrir unglinga. Engu að síður má geta þess að einlægni Stefaníu speglast í tæram stíl hennar þar sem má finna perlur. Má þar sérstaklega minnast á þá kafla þegar hún lætur hugann reika. Ég enda mál mitt á stuttri tilvitnun af þessu tagi undir lok sögunnar: „Þegar fólk segist hafa blæðandi hjarta vegna einhverrar þjáningar eða óhamingju held ég að það sé eins og þegar konur hafa blæðingar. Þær eru blæðandi hjarta en blóðið kemur út á milli fótanna einu sinni í mánuði. Það er til þess að losa þær undan öllum raunum sem liggja á þeim í mánuð- inum sem er að líða. Svo er mögu- legt að það sé vegna raunanna sem munu koma í mánuðinum á eftir.” (Bls. 220.) Þýðing Guðlaugar Guðmunds- dóttur er gerð af mikilli natni og frágangur bókarinnar er til fyrir- myndar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.